Fréttablaðið - 14.04.2009, Page 23
14. APRÍL 2009
Valhöll fasteignasala hefur til
sölu 145,2 fermetra einbýlis-
hús með bílskúr við Melgerði.
H úsið sem var byggt 1957 hefur verið endurnýjað mikið í gegnum tíðina.
Búið er að skipta um þakefni og
gler og glugga auk þess sem lagnir
hafa verið endurnýjaðar. Sólstofa
var byggð við húsið árið 1987 og
það var steinað að utan með
hvítum ítölskum marmara og
svörtum marmara undir gluggum.
Innkeyrsla og garður voru hellu-
lögð 2001.
Komið er inn í rúmgott hol
með hita í gólfi og góðum fata-
skáp. Eldhús er með sérsmíðaðri
innréttingu og sérherbergi inn af
því fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofan er rúmgóð með marmara á
gólfum. Sólskáli er rúmgóður með
flísum á gólfi og útgengi út í suð-
urgarð. Á neðri hæð er sér gesta-
snyrting, flísalögð í hólf og gólf.
Teppalagður stigi liggur upp
á efri hæð. Uppi eru tvö rúmgóð
herbergi með skápum. Á gólfi er
eikarparket. Baðherbergi er flísa-
lagt í hólf og gólf með sturtu. Sér
geymsluherbergi er undir súð.
Bílskúr er vel útbúin með heitu
og köldu vatni og eru flísar á gólfi.
Garðurinn er einkar fagur með
fallegum plöntum og gróðri og ný-
legt upphitað garðhús fylgir eign-
inni.
Ásett verð er 47 milljónir.
Sólstofa og garðhús fylgir
Húsið er á fallegum og kyrrlátum stað í miðju Smáíbúðahverfinu.
fasteignir
heimili@heimili.is
Sími 530 6500B o g i P é t u r s s o n l ö g g . f a s t e i g n a s a l iF i n n b o g i H i l m a r s s o n l ö g g . f a s t e i g n a s a l i
Þú getur sjálfur gert greiðslumat á netinu. Ef
þú þarft á aðstoð að halda geturðu hringt
í okkur, komið á staðinn og hitt ráðgjafa
okkar eða haft samband á netinu.
Þegar þú hefur fundið draumaíbúðina sækir
þú um lánið á www.ils.is. Lánið er afgreitt á
fjórum virkum dögum.
Gengið frá greiðslumati
Sótt um íbúðalán
Sótt um lengingu og
styttingu á lánstíma
Á ils.is getur þú:
Bráðabirgðamat
Reiknivélar
Netsamtal við ráðgjafa
Ýmsar þjónustubeiðnir
Önnur þjónusta á ils.is: