Fréttablaðið - 14.04.2009, Qupperneq 38
28 14. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel,
Reykjavík þriðjudaginn 21. apríl kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillaga til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Tillaga um lækkun réttinda.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögurnar munu liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og birtar
á heimasíðunni, www.gildi.is tveimur vikum fyrir ársfundinn.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með
málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað
fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem
að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Reykjavík 6. apríl 2009,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2 0 0 9
FÓTBOLTI Þó svo að vonir Liverpool
um að komast í undanúrslit Meist-
aradeildar Evrópu kunni ekki að
vera miklar jukust þær talsvert
í gær þegar í ljós kom að Steven
Gerrard, fyrirliði, verður væntan-
lega leikfær fyrir leik kvöldsins
gegn Chelsea. Síðarnefnda liðið
vann 3-1 sigur í fyrri leik lið-
anna.
Hann spilaði ekki í 4-0 sigri
Liverpool á Blackburn á laugar-
daginn. „Steven mun fara með
liðinu til Lundúna og ég mun taka
ákvörðun á morgun (í dag),“ sagði
Rafa Benitez, stjóri Liverpool.
„Við erum 3-1 undir í rimmunni
og við vitum að það getur breytt
öllu að hafa Steven í liðinu ef hann
spilar vel.“
Guus Hiddink, stjóri Chelsea,
sagði að leikmenn yrðu að halda
einbeitingu sinni í lagi. „Það er
mikilvægt að nýta okkur með-
byrinn úr fyrri leiknum. Enginn
leikur er mikilvægari en sá næsti
og við ætlum okkur að vinna alla
leiki sem við förum í.“
Javier Mascherano getur spilað
með Liverpool á ný eftir leikbann
en John Terry, fyrirliði Chelsea,
verður í banni í kvöld. - esá
Chelsea mætir Liverpool í Meistaradeildinni:
Gerrard líklega með
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
er augljóslega ekki inni í Meistara-
deildarmyndinni hjá Josep Guardi-
ola, þjálfara Barcelona, því okkar
maður hefur aðeins fengið að koma
við sögu í þremur leikjum af níu í
Meistaradeildinni á tímabilinu.
Nítján leikmenn Barcelona-liðs-
ins hafa spilað meira í Meistara-
deildinni en Eiður Smári.
Eiður Smári hefur ekkert fengið
að koma inn á í útsláttarkeppn-
inni en kom síðast við sögu í síð-
asta leik riðlakeppninnar, á móti
Shakhtar Donetsk. Eiður Smári
kom þá inn á sem varamaður á 75.
mínútu í 2-3 tapi.
Eiður Smári hefur einu sinni
verið í byrjunarliði Barcelona í
Meistaradeildinni í vetur en hann
lék allar 90 mínúturnar í 5-2 sigri
á Sporting Lissabon í Portúgal.
Eiður Smári hefur aðeins spilað
í 25 mínútur í hinum átta leikjum
Barcelona í keppninni.
Íslendingur hefur aldrei unnið
Meistaradeildina en miðað við
frammistöðu Barcelona í síðustu
leikjum í Meistaradeildinni gæti
það vissulega breyst í ár. Eiður
Smári virðist þó ekki eiga að fá
mikið að taka þátt í því að tryggja
Börsungum titilinn.
Meðal leikmanna sem hafa spil-
að meira í Meistaradeildinni en
Eiður Smári eru Martín Cáceres
(22 ára miðvörður frá Úrúgvæ),
Víctor Sánchez (21 árs miðvörður)
og Pedro Rodríguez (21 árs væng-
maður) en enginn þeirra spilar þó
sömu stöðu og Eiður.
Sergio Busquets, sem hefur að
því er virðist tekið mikinn spila-
tíma frá Eiði Smára í vetur, hefur
spilað 448 mínútur í Meistara-
deildinni eða 333 mínútum meira
en Eiður Smári.
Næsti leikur Barcelona í Meist-
aradeildinni er gegn Bayern í
München í kvöld. Barca er nánast
öruggt áfram eftir 4-0 sigur í fyrri
leiknum. ooj@frettabladid.is
Eiður Smári fær lítið að vera með
Barcelona þykir eitt sigurstranglegasta liðið í Meistaradeildinni í ár og Íslendingar gætu þar eignast sinn
fyrsta meistara. Josep Guardiola ætlar þó greinilega ekki að nota Eið Smára í Meistaradeildinni.
MÍNÚTUR HJÁ BARCELONA Í
MEISTARADEILDINNI
1. Víctor Valdés 720 mínútur
1. Gerard Piqué 720
3. Rafael Márquez 683
4. Daniel Alves 630
5. Xavi 612
6. Lionel Messi 569
7. Thierry Henry 541
8. Carles Puyol 539
9. Sergio Busquets 448
10. Yaya Touré 441
11. Samuel Eto’o 430
12. Andrés Iniesta 427
13. Sylvinho 362
14. Aleksandr Hleb 361
15. Seydou Keita 326
16. Bojan Krkic 307
17. Martín Cáceres 218
18. Víctor Sánchez 174
19. Pedro 126
20. Eiður Smári Guðjohnsen 115
21. Albert Jorquera 90
21. Víctor Vázquez 90
EIÐUR SMÁRI Í MEISTARADEILDINNI Á TÍMABILINU:
(16. sept.) Riðlakeppni Barcelona-Sporting 3-1 (Sat á bekknum)
(1. okt.) Riðlakeppni Shakhtar Donetsk-Barcelona 1-2 (Varamaður á 80. mín)
(22. okt.) Riðlakeppni Basel-Barcelona 0-5 (Ekki í hópnum)
(4. nóv.) Riðlakeppni Barcelona-Basel 1-1 (Sat á bekknum)
(26. nóv.) Riðlakeppni Sporting-Barcelona 2-5 (Spilaði allar 90 mínúturnar)
(9. des.) Riðlakeppni Barcelona-Shakhtar Donetsk 2-3 (Varamaður á 75. mín)
(24. feb.) 16 liða úrslit, fyrri leikur Lyon-Barcelona 1-1 (Sat á bekknum)
(11. mars) 16 liða úrslit, seinni leikur Barcelona-Lyon 5-2 (Ekki í hópnum)
(8. apríl) 8 liða úrslit, fyrri leikur Barcelona-Bayern 4-0 (Sat á bekknum)
Íslenska landsliðið í handbolta, skipað
leikmönnum 21 árs og yngri, tryggði sér um
helgina sæti í heimsmeistarakeppninni í
þessum aldursflokki sem fer fram í Egypta-
landi í sumar. Ísland var í undankeppninni
í riðli með Hollandi, Ungverjalandi og Bret-
landi og fór riðlakeppnin fram í Hollandi.
Ísland byrjaði á því að gera jafntefli við
heimamenn og Ungverja og vann svo Bret-
land í lokaumferðinni.
Ísland þurfti þó að stóla á hagstæð úrslit
úr leik Hollands og Ungverjalands. Svo fór
að heimamenn unnu leikinn og tryggðu sér
sæti í lokakeppni stórmóts. Það var í fyrsta
sinn í nærri þrjátíu ár sem það gerðist.
„Hollendingarnir komu langmest á óvart,“
sagði Heimir Ríkarðsson, þjálfari íslenska
liðsins. „Ungverjar, sú mikla handboltaþjóð,
áttu í raun aldrei möguleika í leiknum. Það
var troðfullt hús og Hollendingar afar vel
hvattir áfram.“
Með sigrinum náði Holland efsta
sæti riðilsins og Ísland varð í öðru
sæti.
Heimir segir að mikil tilhlökkun ríki
í íslenska liðinu fyrir lokakeppnina í
Egyptalandi. „Ég er búinn að fylgja
þessum strákum síðan þeir
byrjuðu í yngsta landslið-
inu, fyrir 16 ára og yngri,
og það er gott að fá
tækifæri til að klára
þetta verkefni í
Egyptalandi. Það
verður síðasta
verkefni þessara
drengja með yngri
landsliðum Íslands og þá
er ekkert annað að gera en að klára
það með pompi og prakt. Þetta lið
hefur tekið stór skref fram á við
undanfarið eftir erfiða byrjun og er
hörkugott.“
Heimir þjálfaði íslenska U-18
liðið sem varð Evrópumeistari árið
2003 og býr því yfir góðri reynslu
fyrir mótið í Egyptalandi.
„Þetta er flott lið og flottir
strákar. Við höfum bara aldrei
náð að stilla upp okkar
sterkasta liði vegna meiðsla
sem var einnig tilfellið nú um
helgina. En ef allir eru með
og liðið að spila vel erum við
illviðráðanlegir,“ sagði Heimir.
ÍSLENSKA U-21 LANDSLIÐIÐ Í HANDBOLTA: TRYGGÐI SÉR SÆTI Á HM Í EGYPTALANDI Í SUMAR
Ætlum að klára verkefnið með pompi og prakt
> Mikilvægt stig hjá Crewe
Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í enska
C-deildarliðinu Crewe unnu mikilvægt stig
í fallbaráttu liðsins. Crewe gerði 1-1 jafntefli
við Oldham þar sem jöfnunarmarkið
kom á 89. mínútu. Crewe hefur gert
þrjú jafntefli í röð og fjögur jafntefli í
síðustu fjórum leikjum liðsins. Hvert
stig er hins vegar dýrmætt og er
Crewe nú fjórum stigum frá fallsæti.
Gylfi Sigurðsson lék allan leikinn fyrir
Crewe.
FÓTBOLTI Ragnar Sigurðsson
gerði sér lítið fyrir og skoraði frá
eigin vallarhelmingi í 5-0 sigri
IFK Gautaborg á Djurgården í
sænsku úrvalsdeildinni nú um
helgina. Hann sá að markvörður
Djurgården stóð framarlega í
teignum og ákvað að láta vaða
með fyrrgreindum árangri.
Eftir leikinn var greint frá því
í sænskum fjölmiðlum að bæði
Blackburn og Newcastle hefðu
áhuga á Ragnari en Gautaborg er
sagt vilja fá tæpar 400 milljónir
króna fyrir kappann.
„Ég er bara að hugsa um
Gautaborg eins og er,“ sagði
Ragnar í samtali við sænska
fjölmiðla spurður um málið. „En
það er ljóst að ég vil komast í eins
stóra deild og ég mögulega get.
Ef nógu gott tækifæri gefst get
ég vel hugsað mér að flytja mig
um set í sumar.“ - esá
Ragnar Sigurðsson:
Skoraði frá
miðju í Svíþjóð
RAGNAR SIGURÐSSON Skoraði glæsilegt
mark um helgina.
ANDSTÆÐINGAR Steven Gerrard verður væntanlega með í kvöld en John Terry verður
í banni. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
ENGIN TÆKIFÆRI
Eiður Smári fékk
síðast að spreyta
sig í Meistara-
deildinni í byrjun
desember.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY