Fréttablaðið - 14.04.2009, Blaðsíða 40
30 14. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Skoðaðu
Mín borg
ferðablað
Icelandair á
www.icelandair.is
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
skipta um dekk hjá Max1
Umfelgun og ný dekk á góðu verði
Umfelgun og jafnvægisstilling á 4 fólksbíladekkjum á 12–16 tommu
stálfelgum 6.458 kr. Kauptu sumardekkin hjá Max1 á góðu verði.
Spyrðu okkur hvað við getum gert meira fyrir þig.
Við erum góðir í að gera hlutina fljótt og vel og ódýrt – skoðaðu: www.max1.is
Reykjavík, sími 515 7190: Bíldshöfða 5a,
Bíldshöfða 8, Jafnaseli 6, Knarrarvogi 2.
Akureyri, sími 462 2700: Tryggvabraut 5.
Skoðaðu www.max1.is
Sparaðu, láttu
Ný sumardekk
Dekkjaskipti
Enska úrvalsdeildin
Liverpool - Blackburn 4-0
1-0 Fernando Torres (5.), 2-0 Torres (33.), 3-0
Daniel Agger (83.), 4-0 David N‘Gog (90.).
Chelsea - Bolton 4-3
1-0 Michael Ballack (40.), 2-0 Didier Drogba
(48.), 3-0 Frank Lampard, víti (60.), 4-0 Didier
Drogba (63.), 4-1 Andy O‘Brien (70.), 4-2 Chris
Basham (74.), 4-3 Matthew Taylor (78.).
Middlesbrough - Hull 3-1
1-0 Sanli Tuncay (3.), 1-1 Nick Barmby (9.), 2-1
Matthew Bates (29.), 3-1 Marlon King (90.).
Portsmouth - West Brom 2-2
1-0 Younes Kaboul (33.), 1-1 Jonathan Greening
(48.), 1-2 Chris Brunt (62.), 2-2 N. Kranjcar (65.).
Sunderland - Manchester United 1-2
0-1 Paul Scholes (19.), 1-1 Kenwyne Jones (55.),
1-2 Federico Macheda (76.).
Tottenham - West Ham 1-0
1-0 Roman Pavlyuchenko (65.).
Wigan - Arsenal 1-4
1-0 Mido (18.), 1-1 Theo Walcott (61.), 1-2 Mikael
Silvestre (71.), 1-3 Andrei Arshavin (90.), 1-4
Alexandre Song (90.).
Stoke - Newcastle 1-1
1-0 Abdoulaye Faye (33.), 1-1 Andy Carroll (81.).
Aston Villa - Everton 3-3
0-1 Marouane Fellaini (19.), 0-2 Tim Cahill (23.),
1-2 John Carew (33.), 1-3 Steven Pienaar (54.),
2-3 James Milner (56.), 3-3 G. Barry, víti (67.).
Manchester City - Fulham 1-3
1-0 Stephen Ireland (28.), 1-1 Clint Dempsey
(50.), 1-2 D. Etuhu (59.), 1-3 Dempsey (83.).
Allt um enska boltann á Vísir.is.
ÚRSLIT
GOLF Lokadagur Masters-mótsins
2009 verður í minnum manna um
langan tíma. Eftir frábæran dag
þar sem menn sáu tvo af bestu
kylfingum heims sækja grimmt
og spila frábært golf varð loka-
spretturinn uppfullur af dramatík
sem endaði með að fyrsti Argent-
ínumaðurinn frá upphafi fagnaði
sigri á Masters-mótinu.
„Þetta er stór stund enda draum-
ur allra golfara að vinna Masters-
mótið. Ég er svo fullur af tilfinn-
ingum að ég get varla talað,“ sagði
Angel Cabrera, sem er 39 ára Arg-
entínumaður. Hann er aðeins í 69.
sæti á heimslistanum og hefur eng-
inn sigurvegari Masters-mótsins
verið neðar á listanum síðan farið
var að taka saman heimslistann
1986.
Angel Cabrera og Kenny Perry
voru jafnir fyrir lokadaginn en
Cabrera var í vandræðum á loka-
hringnum. Á saman tíma og hann
var að fá skolla, spilaði Perry af
miklu öryggi við hlið hans og þeir
félagar heyrðu síðan hvað eftir
annað mikil fagnaðarlæti þegar
tveir efstu menn heimslistans, Phil
Mickelson og Tiger Woods, settu á
svið stórsókn.
Þeir Mickelson og Woods, léku
frábært golf en vantaði báða aðeins
upp á í lok dagsins til þess að setja
alvöru pressu á forystumenn-
ina. Mickelson endaði á níu högg-
um undir pari og var einu höggi á
undan Woods sem fékk skolla á síð-
ustu tveimur holunum.
Kenny Perry var í raun kom-
inn með aðra höndina inn í græna
jakkann þegar aðeins tvær holur
voru eftir því þá var hann með
tveggja högga forustu. Perry fékk
hins vegar skolla á tveimur síð-
ustu holunum eftir að hafa leikið
22 holur í röð á pari eða betra og á
endanum voru því þrír menn jafn-
ir. Perry hefði orðið elsti sigurveg-
ari Masters-mótsins frá upphafi og
bætt met Jack Nicklaus frá 1986.
„Ég fæ líklega aldrei svona
tækifæri aftur en ég naut þess að
spila. Ég var búinn að vinna mótið
en tapaði því. Angel gafst ekki upp
og ég stoltur af honum,“ sagði hinn
48 ára gamli Perry. Hann hefur
áður misst af sigri á risamóti eftir
umspil en það var á PGA-meistara-
mótinu fyrir þrettán árum.
Chad Campbell datt út á fyrstu
holu umspilsins en Angel Cabrera
sýndi ótrúlega seiglu með því að
bjarga sér út úr miklum vand-
ræðum og tryggja sér áframhald
á umspilinu gegn Kenny Perry.
Perry var mjög nálægt því að
setja niður langt pútt og tryggja
sér sigurinn en það var aðeins of
stutt. Cabrera spilaði síðan næstu
holu umspilsins nánast óaðfinnan-
lega og tryggði sér sigur.
Cabrera gat varla lýst tilfinn-
ingunni þegar Trevor Immelman,
sigur vegarinn frá því í fyrra,
klæddi hann í græna jakkann í
mótslok. „Ég fékk gæsahúð og
hristist allur,“ sagði Cabrera. Nú
geta landar hans loksins hugsað
hlýlega til Mastersmótisins sem
fór svo illa með landa hans Roberto
de Vicenzo sem hafði tryggt sér
umspil á mótinu 1968 en skrifaði
vitlaust skorkort og missti titilinn
til Bob Goalby.
Það er talið líklegt að sigur
Cabrera geti komið af stað golfæði
í heimalandi hans enda eru menn
á því að hann geti gert það sama
fyrir argentínska golfið og Diego
Maradona gerði fyrir argentínsk-
an fótbolta og Manu Ginobili gerði
fyrir argentínskan körfubolta.
„Masters-mótið er Masters-
mótið. Ég geri bara það sem ég
geri og það hefur ekkert með það
að gera hvað Maradona og Gino-
bili gera á sínum sviðum. Fótbolti
hefur alltaf verið stærsta íþróttin
í Argentínu og það að ég hafi unnið
Masters-mótið breytir því ekkert,“
sagði Cabrera. ooj@frettabladid.is
Lokadagurinn var frábær
Argentínumaðurinn Angel Cabrera vann Masters-mótið eftir þriggja manna
umspil við Kenny Perry og Chad Campbell. Phil Mickelson og Tiger Woods stálu
sviðsljósinu af forystumönnunum á lokadeginum en voru bara of langt á eftir.
STAL TITLINUM Kenny Perry missti frá sér
sigurinn til Cabrera. NORDICPHOTOS/AFP
KOMINN Í JAKKANN Trevor Immelman klæðir Angel Cabrera í græna jakkann.
NORDICPHOTOS/AFP
ANGEL CABRERA FRÁ ARGENTÍNU
Fæddur: 12. september 1969 í Argentínu
Hæð/Þyngd: 183 sm / 95 kg
Besti árangur áður á Masters: 8. sæti 2006
Sigrar á risamótum: 2 (líka PGA 2007)
1. hringur 68 högg (-4)
2. hringur 68 högg (-4)
3. hringur 69 högg (-3)
4. hringur 71 högg (-1)
Fuglar 20 (6-5-5-4)
Pör 44 (10-12-11-11)
Skollar 8 (2-1-2-3)
LOKASTAÐAN Á MASTERS-MÓTINU
-12 Angel Cabrera, Kenny Perry og
Chad Campbell (Cabrera vann í umspili )
-10 Shingo Katayama
-9 Phil Mickelson
-8 John Merrick, Steve Flesch,
Tiger Woods og Steve Stricker
-7 Jim Furyk, Hunter Mahan og Sean O’Hair
-6 Camilo Villegas og Tim Clark
-5 Todd Hamilton og Geoff Ogilvy
-4 Aaron Baddeley og Graeme McDowell
-3 Nick Watney
FÓTBOLTI Í annað skiptið í röð
reyndist hinn sautján ára
Ítali, Federico Macheda, hetja
Manchester United nú um helg-
ina. Hann kom inn á sem vara-
maður gegn Sunderland og skor-
aði sigurmark leiksins, rétt eins
og hann gerði gegn Aston Villa í
upphafi mánaðarins.
Ben Foster, markvörður United,
telur þó engar líkur á því að
Macheda verði leyft að leyfa góðu
gengi að stíga sér til höfuðs.
„Strákurinn er nokkuð rólegur
og þar fyrir utan fengi hann ekki
að komast upp með neitt annað,“
sagði Foster og sagði að fyrir-
liðinn Gary Neville myndi fara
fremst í þeim flokki.
„En þetta er auðvitað ótrúleg
saga. Hann skoraði sigurmarkið
gegn Aston Villa og svo aftur nú.
Svona hefur hann verið í varalið-
inu allt tímabilið,“ sagði Foster.
- esá
Annað sigurmark Federico Macheda í röð:
Báðir fætur á jörðinni
MIKILVÆGUR Federico Macheda hefur
reynst gulls ígildi. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyj-
ólfsson, landsliðsþjálfari kvenna
í fótbolta, fékk að sjá markaleik
þegar hann var í gær meðal áhorf-
enda á fyrsta Íslendingaslagnum
í sænsku kvennadeildinni á tíma-
bilinu. Guðbjörg Gunnarsdóttir
og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir
héldu þá áfram sigurgöngu sinni
með Djurgården eftir 3-2 útisig-
ur á stelpunum hennar Elísabetar
Gunnarsdóttur í Kristianstad.
Guðbjörg varð þó að sætta sig
við að fá á sig sitt fyrsta mark og
það var alíslenskt því Erla Steina
Arnardóttir jafnaði leikinn í 1-1
eftir sendingu Hólmfríðar Magnús-
dóttur og varð fyrst til að skora hjá
Guðbjörgu. Guðbjörg var búin að
halda hreinu fyrstu 198 mínúturn-
ar sem hún spilaði í deildinni.
Djurgården hefur unnið alla
þrjá leiki sína en Elísabet Gunnars-
dóttir og stöllur hennar í Kristian-
stad eru enn án stiga. Allir fimm
íslensku leikmennirnir voru í byrj-
unarliðum sinna liða en auk fyrr-
nefndra fjögurra spilaði Guðný
Björk Óðinsdóttir allan leikinn
með Kristianstad.
Margrét Lára Viðarsdóttir kom
inn á sem varamaður á 66. mínútu
í 3-0 útisigri Linköping á Hammar-
by og lagði upp lokamarkið fyrir
Caroline Seger.
Edda Garðarsdóttir og Ólína
Guðbjörg Viðarsdóttir léku allan
leikinn með Örebro sem tapaði 4-0
fyrir Kopparbergs/ Göteborg.
Eftir fyrstu þrjár umferðirnar
eru Djurgården og Kopparbergs/
Göteborg efst með fullt hús. LdB
FC Malmö, Linköping og Umeå IK
eru síðan öll með sex stig. Kristian-
stad er eina liðið sem ekki hefur
fengið stig. - óój
Íslendingaslagur í sænsku kvennadeildinni í gær:
Sigurður sá markaleik
ERLA SKORAÐI Erla Steina Arnardóttir
skoraði í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM