Fréttablaðið - 14.04.2009, Side 42
34 14. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Enska B-deildin
Barnsley - Swansea 1-3
Birmingham - Plymouth 1-1
Blackpool - Reading 2-2
Hvorki Ívar Ingimarsson né Brynjar Björn Gunn-
arsson léku með Reading vegna meiðsla.
Bristol - Ipswich 1-1
Cardiff - Burnley 3-1
Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á sem vara-
maður í liði Burnley.
Coventry - Charlton 0-0
Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Coventry
vegna meiðsla.
Derby - Wolves 2-3
Doncaster - Preston 0-2
Norwich - Watford 2-0
QPR - Sheffield Wednesday 3-2
Heiðar Helguson lék allan leikinn fyrir QPR.
Sheffield United - Nottingham Forest 0-0
Southampton - Crystal Palace 1-0
Norska úrvalsdeildin
Lyn - Viking 0-0
Indriði Sigurðsson og Theódór Elmar Bjarnason
voru í byrjunarliði Lyn.
Brann - Tromsö 2-4
Ólafur Örn Bjarnson skoraði bæði mörk Brann
úr vítum. Kristján Örn Sigurðsson og Birkir Már
Sævarsson voru einnig í byrjunarliði Brann og
þeir Ármann Smári Björnsson og Gylfi Einarsson
komu inn á sem varamenn.
Odd Grenland - Álasund 4-2
Árni Gautur Arason lék allan leikinn fyrir Odd
Grenland.
Sænska úrvalsdeildin
GAIS - Helsingborg 1-4
Guðmundur Gunnarsson var í byrjunarliði GAIS
og þeir Eyjólfur Héðinsson og Guðjón Baldvins-
son komu inn á sem varamenn.
Sænska B-deildin
Sundsvall - Falkenberg 2-1
Ari Freyr Skúlason og Hannes Þ. Sigurðsson voru
í byrjunarliði Sundsvall.
Danska úrvalsdeildin
Randers - SönderjyskE 3-1
Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn fyrir Sönd-
erjyskE.
ÚRSLIT
KÖRFUBOLTI Benedikt Guðmunds-
son og Jón Arnór Stefánsson voru
hátt uppi eftir sigur KR í gær. Jón
Arnór talaði um pressuna sem var
á liðinu og var nærri búin að stoppa
það. „Okkur langaði í þetta en á
röngum forsendum. Við vorum að
fara að vinna þetta til þess að tapa
þessu ekki. Við hættum að hugsa
um það og fórum þess í stað að
hugsa um það hversu mikið okkur
langaði til að vinna fyrir okkur,“
sagði Jón Arnór Stefánsson, besti
leikmaður úrslitakeppninnar.
„Þetta var geðveikt en ég vissi
samt ekki hvernig ég ætti að fagna
þessu því þetta var svo mikið
sjokk,“ sagði Jón Arnór, sem hefur
kynnst ýmsu á ferlinum.
„Þetta er toppurinn á ferlinum.
Það var gaman að vinna hina titl-
ana en hérna er maður heima hjá
sér með sínu fólki og fjölskyldu
og með gamla félaginu og vin-
unum. Þetta verður ekkert betra
en þetta,“ sagði Jón, sem þakkar
Benedikt þjálfara mikið fyrir.
„Benni á þennan titil. Hann reif
okkur upp eftir þriðja leikinn.
Hann er alveg ótrúlega góður
þjálfari og sýndi á sér nýja hlið
eftir að við töpuðum þriðja leikn-
um. Hann sýndi sálfræðilega hlið
á sér sem kom mjög á óvart og
hjálpaði okkur mikið,“ sagði Jón
Arnór.
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari KR, segist ætla að hætta með
liðið eftir tímabilið. „Ég hugsa að
ég stígi til hliðar því ég held að það
sé kominn tími á nýjan mann. Ég
er búinn að vera hér í þrjú ár og
strákarnir þurfa einhverja nýja
rödd og ferskleika í þetta,“ sagði
Benedikt Guðmundsson.
„Ég hefði orðið gríðarlega
svekktur ef við hefðum tapað
þessu því við leiddum allan leik-
inn,“ sagði Benedikt, sem segir
að þessi titill sé sætari en sá fyrir
tveimur árum.
„Það sem er sætast fyrir mig er
að vinna þetta með strákum sem
maður kenndi að grípa, skjóta og
drippla fyrir mörgum árum. Ætli
þessi sé ekki sætari út að það að
gera,“ sagði Benedikt að lokum.
- óój
Benedikt Guðmundsson og Jón Arnór Stefánsson:
Toppurinn á ferlinum
KÖRFUBOLTI Grindvíkingarnir
Friðrik Ragnarsson og Brenton
Birmingham gátu ekki leynt von-
brigðum sínum í leikslok.
„Það er gríðarlega svekkjandi
að tapa með einu stigi eftir að
hafa verið með boltann í síðustu
sókninni og skora ekki,“ sagði
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Grindavíkur.
„Við sendum boltann of mikið í
lokasókninni, tókum ekki galopin
skot og lentum síðan í einhverju
klafsi. Þetta var agalegt,“ sagði
Friðrik um lokaandartök leiksins.
„Þeir spiluðu mjög mjúkt á
okkur í þriðja leik. Þeir voru
harðari í leik fjögur en við áttum
að klára leik fjögur. Við mættum
í gleðskap en ekki í körfubolta-
leik. Við spiluðum illa í þeim
leik og svo þegar þú ert kom-
inn í oddaleik á svona velli
getur brugðið til beggja vona.
Við hefðum alveg getað verið
að fagna núna með pínulítilli
heppni,” sagði Friðrik. - óój
Friðrik Ragnarsson eftir leik:
Þetta var
agalegt í lokin
KÖRFUBOLTI KR er Íslandsmeist-
ari karla í körfubolta eftir sigur á
Grindavík í oddaleik liðanna í loka-
úrslitum Iceland Express-deildar-
innar, 84-83. KR hafði yfirhönd-
ina allan leikinn en Grindavík var
aldrei langt undan og átti mögu-
leika á að stela sigrinum í loka-
sókn leiksins.
KR tapaði boltanum þegar um
25 sekúndur voru til leiksloka og
Grindavík hélt þá í sókn. Karfa í
blálok leiksins myndi tryggja gest-
unum titilinn. Boltanum var komið
á Brenton Birmingham eins og svo
oft áður í þeirri stöðu en hann gat
engan fundið til þess að gefa á og
rann því sóknin út í sandinn. Þar
með var KR orðið meistari.
Það var Fannar Ólafsson sem
„stal“ boltanum á lokasekúndu
leiksins. Hann tók svo við bikarn-
um í leikslok.
„Þegar um fimm mínútur voru
eftir vorum við sjö stigum yfir.
Þá fengum við tvær villur á okkur
sem hefðu getað kostað okkur leik-
inn. En það gerði bara rimmu þess-
ara liða enn skemtilegri að mun-
urinn var ekki nema eitt stig í
lokin. Þarna voru tvö lið að berj-
ast til síðasta manns og þá snýst
þetta bara um vilja. Ég held að við
höfum viljað þetta örlítið meira en
Grindavík,“ sagði Fannar.
Langflestir reiknuðu fyrir fram
með því að KR yrði Íslandsmeist-
ari enda með ógnarsterkt lið.
Grindvíkingar sýndu hins vegar að
þeir eru ekki minni menn en þeir
röndóttu enda komust þeir í 2-1 í
rimmunni og voru nálægt því að
vinna titilinn.
„Ég held að þessi titill sé sætari
en sá sem við unnum árið 2007,“
sagði Fannar. „Það var búið að
afskrifa okkur eftir þriðja leikinn
en þá sýndu þeir Benedikt og Ingi
þjálfarar snilld sína með því að
laga hugarfar okkar leikmanna.
Við fórum í þessa tvo síðustu leiki
án þess að vera endilega hræddir
við að tapa og það breytti öllu.“
Hann segir líka mikinn mun á
þessu tímabili og því fyrir tveimur
árum vera þær væntingar sem
voru gerðar til KR nú. „Það var
búið að afhenda okkur fimm titla
fyrir tímabilið. Það var vissulega
gríðarmikil gleði að vinna þennan
titil en líka léttir. Ég held að níutíu
prósent körfboltaáhugamanna á
Íslandi hafi viljað að Grindavík
yrði meistari. En við vorum með
tvö þúsund aðila á þessum leik í
kvöld sem vildu hitt,“ sagði Fannar
og lofaði Miðjuna, harðkjarnahóp
stuðningsmanna KR, mikið.
„Það skiptir ofsalega miklu máli
að vera með stuðningsmenn eins
og þá. Þeir hjálpuðu okkur yfir
mjög erfiða hjalla.“
eirikur@frettabladid.is
KR meistari – gleði og léttir
KR varð í gærkvöldi Íslandsmeistari karla í körfubolta eftir sigur á Grindavík í
oddaleik liðanna um titilinn, 84-83. Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, sagði að titill
KR nú væri sætari en sá sem liðið vann árið 2007. Honum var líka létt.
STAL SIGURBOLTANUM Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, eftir að leiktíminn rann út og KR
hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BESTUR Jón Arnór Stefánsson var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar að leik
loknum í gær. FRÉTTABL AÐIÐ/VILHELM
ÖFLUGUR Nick Bradford skoraði 33 stig
fyrir Grindavík í gær en það dugði ekki
til. FRÉTTABL AÐIÐ/VILHELM