Fréttablaðið - 14.04.2009, Qupperneq 46
34 14. apríl 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. varsla, 6. í röð, 8. hélt á brott, 9.
hrós, 11. ekki heldur, 12. fáni, 14.
gosefni, 16. fisk, 17. gapa, 18. tugur,
20. hljóm, 21. þurrka út.
LÓÐRÉTT
1. helminguð, 3. frá, 4. áttfætla, 5.
bjálki, 7. brjóstverja, 10. spor, 13. gifti,
15. jarðgöng, 16. svif, 19. kringum.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vakt, 6. áb, 8. fór, 9. lof,
11. né, 12. flagg, 14. hraun, 16. ál, 17.
flá, 18. tíu, 20. óm, 21. afmá.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. af, 4. kónguló,
5. tré, 7. bolhlíf, 10. far, 13. gaf, 15.
náma, 16. áta, 19. um.
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
k
a
2
0
0
8
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
TEPPI Á STIGAGANGINN
Strandgötu 43 | Hafnarfirði
Sími 565 5454 | www.fridaskart.is
íslensk hönnun
og handverk
„Þeir reyndust ótrúlega sannspáir, kusu tíu
lög áfram og þegar við rýndum í úrslitin eftir
á reyndust átta þeirra rétt,“ segir Páll Óskar
Hjálmtýsson, Eurovision-sérfræðingur íslensku
þjóðarinnar. Upptökur á sjónvarpsþættinum
Alla leið eru nýbúnar en þar er hlaupið yfir
þau lög sem keppa í hinni sívinsælu lagakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðvar. Álitsgjafarnir Dr.
Gunni, Guðrún Gunnarsdóttir og Reynir Þór
Reynisson fengu að vita hvernig þeim hefði
gengið að tippa á Eurovision-keppnina í fyrra.
Óhætt er að fullyrða að þau hafi reynst starfi
sínu vaxin því spáhlutfall þeirra var áttatíu
prósent. „Ef þeim tekst álíka vel upp núna þá
verður horft til þessa þáttar í framtíðinni og
örugglega vitnað í hann,“ segir Páll.
Hins vegar var einn galli á gjöf Njarðar sem
skekkir eilítið þessa tölfræði. Því vegna knapps
tíma í fyrra þurftu fjórmenningarnir að velja
skemmtilegustu lögin, önnur sem þóttu ekki
merkilegur pappír enduðu í ruslafötunni.
Páll upplýsir að eitt þeirra laga sem hafi
ekki hlotið náð fyrir augum almennings
hafi verið sigurlag Rússa. „En til þess að
koma í veg fyrir að þetta gerist aftur þá
erum við búin að hlusta á öll lögin 42. Hins
vegar fá þau leiðinlegustu ekki langan
líftíma en sigurstranglegustu lögin
lifa,“ útskýrir Páll en að hans
sögn hafa álitsgjafarnir mikið
álit á norska laginu, gríska og
portúgalska auk framlags
Möltu. Páll telur jafnframt
að fulltrúi Íslendinga,
Jóhanna Guðrún, gæti átt
við ramman reip að draga,
„Það eru þrettán ballöður í
keppninni og þegar svo er
þá veltur allt á frammistöðu
hennar á sviðinu.“ - fgg
Álitsgjafar Palla hittu í mark
NÖSK Á GÓÐ LÖG Þau
Guðrún Gunnarsdóttir, Páll
Óskar, Reynir Þór Reynisson
og Dr. Gunni reyndust spá-
mannlega vaxin í þáttunum
Alla leið sem sýndir voru í fyrra.
Þau ætla að gera enn betur í ár.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum hafa arkitektar úr tiltölu-
lega fáum verkefnum að moða
um þessar mundir enda hafa nán-
ast allar nýbyggingar stöðvast.
Englendingur inn David Robertson
vann hjá arkitektastofunni Krads-
arkitektar en missti vinnuna þegar
kreppan skall á. Í stað þess að leggj-
ast í kör ákvað hann að láta gamlan
draum rætast og opna verkstæðið
Kria Cycles. Þar hyggst hann gera
við gömul hjól, halda við nýlegri
hjólum við og smíða ný eftir þörf-
um hvers og eins þótt einfaldleik-
inn ráði ríkjum í hönnun hans.
David hefur unnið við arkitekt-
úr í tæp tólf ár og verið búsettur
á Íslandi í tvö. Hann hefur ávallt
verið mikill hjólamaður og farið
allra sinna ferða á hjólhestinum,
sama hvernig viðrar. „Ef ég hefði
ekki verið svona góður að hlaupa
hefði ég sennilega lagt stund keppn-
ishjólreiðar,“ segir David í samtali
við Fréttablaðið en hann keppti
meðal annars fyrir England í víð-
vangshlaupum og langhlaupum á
sínum yngri árum.
David hjólaði hvert sem hann fór
þegar hann var búsettur í London
og ætlaði ekki að slá slöku við þegar
hann fluttist til Íslands. Hann við-
urkennir þó að það sé síður en svo
auðvelt að hjóla á eyjunni í Norður-
Atlantshafi, honum finnst þó að
Íslendingar gætu gefið hjólunum
sínum tækifæri. „Auðvitað hefur
þetta sína kosti og sína galla, stund-
um hefur þú vindinn í fangið, stund-
um getur hann líka verið í bakið og
virkað sem meðbyr.“
David segist einnig hjóla yfir
vetrartímann og bendir á að fólk
þurfi ekkert endilega 27-gíra fjalla-
hjól til að komast leiða sinna innan
borgarmarkanna.
„Ég er allavega ekki á slíkum
faraskjóta og það hefur bara reynst
mér vel.“ David hyggst opna verk-
stæði á næstunni og er bjartsýnn á
að fólki muni taka þessu framtaki
vel. Verkstæðið verður við Hólma-
slóð en áhugasamir geta kynnst
sér starfsemina frekar á kriacyc-
les.com.
freyrgigja@frettabladid.is
DAVID ROBERTSON: SNÝR Á KREPPUNNA
ÚR ARKITEKTÚR Í HJÓLASMÍÐI
LÆTUR GAMLAN DRAUM RÆTAST David Robertson er mikill hjólreiðamaður og fer allra ferða sinna á hjólhestinum. Hann ætlar
nú að opna hjólaverkstæði þar sem hann hyggst jafnframt smíða ný hjól eftir þörfum hvers og eins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég reyni að fara vítt og breitt
um sviðið. Tveir diskar rata
þó mest á fóninn hjá mér um
þessar mundir. Annars vegar
leikhúsmúsík frá Englandi, sem
Bach-sveitin í Skálholti hefur
spilað, og hins vegar diskur með
Rolf Lislevand, þar sem hann
og dóttir hans leika af fingrum
fram á gömul hljóðfæri.“
Bára Grímsdóttir, tónlistarkennari
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Dr. Gunni.
2 Sigurður Gísli Pálmason.
3 Sómalíu.
„Þetta var algjört ævintýri og
það var virkilega gaman að fá að
taka þátt í þessu,“ segir Hermann
Gunnarsson, Hemmi Gunn. Hann
tróð upp á rokkhátíð alþýðunnar,
Aldrei fór ég suður, og sló, að sjálf-
sögðu, í gegn. Þakið ætlaði bók-
staflega að rifna af húsnæði KNH
á Ísafirði þegar sjónvarpsstjarnan
steig á stokk og flutti öll sín bestu
lög ásamt Kraftlyftingu. Salur-
inn tók undir og hápunkturinn var
þegar hinn sígildi slagari Einn dans
við mig tók að hljóma. Slíkar voru
vinsældir Hemma að hann áritaði
bringu eins aðdáanda með nafni
sínu.
Jón Þór Þorleifsson, einn af
aðstandendum hátíðarinnar, segir
erfitt að meta fjöldann sem mætti
í ár, skýtur þó á þrjú til fjögur þús-
und. Hann segir það hafa verið sam-
dóma álit tónlistarmanna að stemn-
ingin hefði aldrei verið betri. - fgg
Allir sungu með Hemma
FÓR Á KOSTUM Hemmi Gunn fór á kost-
um fyrir vestan og þakið ætlaði að rifna
af húsinu þegar slagarar á borð við Einn
dans við mig tóku að hljóma.
Það var mikið stuð í knattspyrnu-
höllinni Kórnum í Kópavogi
um helgina þegar
knattspyrnufélag
samkynhneigðra,
Styrmir, stóð fyrir
alþjóðlegu móti í
fótbolta. Haf-
steinn Þórólfs-
son og félagar
tóku á móti
tíu liðum,
þar af
fimm frá
útlönd-
um.
Spenn-
an var mikil þegar úrslitaleikur-
inn var háður, en hann var milli
Styrmis South og dansks liðs.
Leikar stóðu jafnir eftir venjuleg-
an leiktíma þannig að gripið var
til vítaspyrnukeppni en úrslitin
réðust ekki fyrr en í bráðabana,
þar sem danskir fóru með sigur
af hólmi. Um kvöldið var síðan
blásið til mikillar veislu á Rúbín
þar sem Páll Óskar fór venju sam-
kvæmt á kostum.
Tökur eru nú hafnar á nýjustu
kvikmynd Anitu Briem, Dead
of Night, en þær fara fram í New
Orleans. Eins og
fram hefur komið í
Fréttablaðinu leikur
Anita þar á móti
sjálfu Ofurmenn-
inu, Brandon
Routh, sem er
góðvinur Guðna
Gunnars-
sonar, rope
yoga-
kóngsins
á Íslandi.
Myndin
er engin
smámynd
því samkvæmt imdb.com-vefnum
kostar hún litlar tuttugu milljónir
dollara eða tvo og hálfan milljarð
íslenskra króna.
Og meira af Íslendingum úti í
heimi því Vesturport tekur þátt
í ástralskri leikhátíð til heiðurs
Franz Kafka sem nú fer fram í
Sydney. Leikgerð Vesturports á
Hamskiptunum hefur vakið mikla
athygli en sýningin
hefur meðal annars
hlotið fína dóma í
Tasmaníu og víðar
í Eyjaálfunni. Gísli
Örn Garðarsson
leikstýrir sýningunni
í samstarfi við enska
leikstjórann
David Farr.
FRÉTTIR AF FÓLKI