Morgunblaðið - 11.01.2008, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 15
ÚR VERINU
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
MJÖG hátt verð fékkst fyrir karfa á
fiskmarkaðinum í Bremerhaven nú í
vikunni. Alls voru seld um 100 tonn
af fiski héðan frá Íslandi, mest karfi.
Hæst fór verð á karfa í 380 krónur ís-
lenzkar á kíló. Á ufsa var hæsta verð-
ið 170 krónur. Um helmingur aflans
var af togaranum Sunnu, sem var á
veiðum yfir hátíðirnar.
Á fyrstu dögum ársins var verðið
enn þá hærra, fór hæst í 565 krónur
á kíló fyrir karfann, sem að sögn
Samúels Samúelssonar, starfsmanns
markaðsins, er að öllum líkindum
heimsmet. Þar var um að ræða ís-
lenzkan karfa, mest af Bylgjunni frá
Vestmannaeyjum.
Samúel segir að verð sé ætíð hátt
fyrstu tvær vikur ársins, enda fram-
boð lítið, nánast aðeins frá Íslandi.
Síðan sígi verðið niður á við í það
sem kallast megi eðlilegt verð, 200 til
230 krónur fyrir karfakílóið. Hann
býst við svipuðu magni á markaðinn í
næstu viku og enn er það eingöngu
íslenzkur fiskur. Samúel segist gera
ráð fyrir að verðið þá verði yfir 230
krónum.
Það eru eingöngu íslenzk skip sem
eru að veiðum yfir hátíðarnar og
fyrstu daga ársins. Því er það þannig
að fyrstu þrjár vikurnar er eingöngu
fiskur héðan á markaðnum en síðan
fer að berast fiskur frá Færeyjum og
Þjóðverjum sjálfum. Einnig kemur
fiskur frá Noregi inn á markaðina í
Þýzkalandi.
Kaupendur að fiskinum eru flestir
í Bremerhaven og nágrenni. Þeir
flaka fiskinn og selja svo áfram í fisk-
búðir og aðrar verzlanir inni í landi.
Einnig er nokkuð um það að aðilar
inni í landi bjóði í fiskinn símleiðis
eða á Netinu.
40 tonn í Grimsby
Það er svipaða sögu að segja af
fiskmörkuðum á Bretlandi. Magnið
er ekki mikið og verðið hátt. Í gær
voru seld 40 tonn á fiskmarkaðum í
Grimsby og var það nánast allt frá
Íslandi. Hæst fór verðið á þorski í
369 krónur en lægst 246 fyrir smáan
þorsk. Sama verð var á ýsunni, hæst
369 og lægst 246.
Hátt verð og framboð lítið
Verð á innlendu mörkuðunum hef-
ur einnig verið mjög hátt nú í janúar.
Meðalverð á slægðum þorski er 306
krónur á kílóið en meðalverð í des-
ember var 299. Verð á óslægðum
þorski hefur hækkað um 10 krónur
frá því í desember. Meðalverð á ýsu
er núna 147 krónur, eða það sama og
í desember. Meðalverð á karfa er nú
135 krónur en var 102 krónur í des-
ember, en magnið er mjög lítið nú,
aðeins 32 tonn. Hæst fór karfaverðið
í janúar í 229 krónur. Í desember öll-
um var magnið aðeins 90 tonn.
Dauft í desember
Mjög lítið framboð var á fiskmörk-
uðunum í desember síðastliðnum.
Aðeins voru seld 4.300 tonn, sem er
minnsta magn í desember síðan
1992, en þá voru seld 4.000 tonn. Í
desember 2006 voru seld 6.400 tonn
og er það mesta sala í þeim mánuði
frá upphafi. Skýringin á litlu magni í
desember 2007 liggur fyrst og
fremst í miklum ógæftum, eins og
reyndar voru allt haustið. Því er erf-
itt að meta hvaða áhrif niðurskurð-
urinn í þorskinum hefur á framboðið
á mörkuðunum, þó vafalítið komi
hann til með að draga úr framboði
þar.
Gott verð í Bremerhaven
Morgunblaðið/ÞÖK
Markaðir Hátt verð fæst nú fyrir karfann á markaði í Þýzkalandi.
Fiskverð er hátt á
mörkuðum innan
lands og utan í
upphafi árs og
framboð lítið
Í HNOTSKURN
»Á fyrstu dögum ársins varverðið enn þá hærra, fór
hæst í 565 krónur á kíló fyrir
karfann, sem er að öllum lík-
indum heimsmet.
»Meðalverð á karfa er nú135 krónur, en var 102
krónur í desember, en magnið
er mjög lítið nú, aðeins 32
tonn. Hæst fór karfaverðið í
janúar í 229 krónur.
»Mjög lítið framboð var áfiskmörkuðunum í desem-
ber síðastliðnum. Aðeins voru
seld 4.300 tonn, sem er
minnsta magn í desember síð-
an 1992, en þá voru seld 4.000
tonn.
RANNSÓKNARSKIPIÐ Bjarni Sæ-
mundsson var í gær kominn á loðnu-
miðin. Um miðjan dag var hann að
leita að loðnu í landsgrunnskant-
inum austur af landinu á leið norður
til móts við veiðiflotann, sem var þá
norður af Langanesi.
Hann mun stunda mælingar á
stærð veiðistofns loðnu fyrir Aust-
ur-, Norðaustur- og Norðurlandi.
Fyrirhugað var að rs. Árni Frið-
riksson færi til mælinga á mánudag
en bilun kom upp í vélbúnaði þannig
að ekki var unnt að senda hann í
verkefnið. Því var rs. Bjarni Sæ-
mundsson sendur í hans stað. Megin-
markmið leiðangursins er að mæla
stærð veiðistofns loðnunnar. Bráða-
birgðaaflamark fyrir yfirstandandi
vertíð var sett á grundvelli mælinga
á ungloðnu sem gerð var haustið
2006 en sú ráðgjöf er mikilli óvissu
háð. Því er mikilvægt að ná sem
fyrst mælingu á kynþroska hluta
loðnustofnsins en sá hluti stofnsins
mun halda uppi veiði á yfirstandandi
vetrarvertíð. Bjarni mun stunda
mælingar næstu daga en framhaldið
ræðst af því hvernig aðstæður á mið-
unum verða og hvernig til tekst við
mælingarnar. Leiðangursstjóri er
Sveinn Sveinbjörnsson og skipstjóri
Jón Marteinn Guðröðarson.
Bjarni kominn á loðnumiðin
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
-hágæðaheimilistæki
Kraftmiklar ryksugur
fyrir öll heimili
Verð frá kr.:
15.990
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með
stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er fáanlegt með vélini.
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri
og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele ryksugurnar.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
Miele
ryksugur
– litlar og liprar.
www.eirvik.is
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði á Höfðatorgi.
Vegna flutninganna eru afgreiðsla og skrifstofur lokaðar föstudaginn 11. janúar.
Við opnum aftur mánudaginn 14. janúar í Borgartúni 10-12 og biðjum viðskipta-
vini að sýna biðlund.
Erindum verður svarað í þjónustusíma Reykjavíkurborgar: 411 1111.
Helstu verkefni Umhverfissviðs eru:
Heilbrigðis- og mengunarvarnareftirlit, náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá
heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóli Reykjavíkur, Staðardagskrá 21, Náttúruskóli
Reykjavíkur og umferðar- og samgöngumál.
Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is og í síma 411 1111