Morgunblaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 39
dagbók
Í dag er föstudagur 11. janúar, 11. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ég er Drottinn, það er nafn mitt, og dýrð mína gef ég eigi öðrum né lof mitt úthöggnum líkneskjum. (Jesaja 42, 8)
Kvennasögusafn Íslands varstofnað 1975. Safnið er nútil húsa í Þjóðarbókhlöð-unni og heldur úti vefsíðu
með áhugaverðu efni um sögu kvenna
á Íslandi.
Auður Styrkársdóttir er for-
stöðumaður safnsins: „Kvenna-
sögusafn Íslands safnar og miðlar öllu
sem viðkemur sögu íslenskra kvenna
og býr að miklu skjalasafni félaga
eins og Kvenréttindafélagsins, Kven-
félagasambandsins og Kvennalistans,“
segir Auður. „Til að gera safnið að-
gengilegra hefur síðustu tvö ár verið
unnið að uppbyggingu vefjar með
upplýsingum um íslenska kvennasögu.
Vefnum er ætlað að vera bæði
skemmtilegur og fræðandi, og þar eru
einnig settar inn kvennatengdar frétt-
ir af innlendum og erlendum vett-
vangi.“
Síða Kvennasögusafns er á slóðinni
www.kona.bok.hi.is: „Á vefnum er
m.a. að finna svæði tileinkað Bríeti
Bjarnhéðinsdóttur og var safnað sam-
an árið 2006 á 150 ára ártíð hennar,“
segir Auður. „Teknar hafa verið sam-
an lykilupplýsingar úr íslenskri
kvennasögu, og má nefna sem dæmi
samantekt um kvennafrídaginn 1975,
uppruna alþjóðabaráttudags kvenna 8.
mars og hvernig íslenskar konur öðl-
uðust kosningarétt árið 1915 eftir
langa baráttu.“
Kvennasagan í vasann
Einnig má finna á vef Kvenna-
sögusafnsins fróðleik um áhugaverða
sögustaði í miðborg Reykjavíkur: „Við
höfum tekið saman texta um merk-
isstaði í Kvosinni og í Þingholtunum.
Gestir vefsíðunnar geta prentað text-
ana út og haft meðferðis á göngu-
túrum um bæinn svo úr verður
kvennasöguferð þar sem fræðst er um
sögu merkiskvenna sem bjuggu í hús-
unum í miðborginni,“ segir Auður.
Nú er unnið að viðbót við síðuna, í
tilefni þess að 24. janúar veða liðin
100 ár frá því reykvískar konur gátu
fyrst kosið í bæjarstjórnarkosningum:
„Í kosningunum 1908 kom fram
kvennalisti, sem reyndist vinsælasti
listinn og voru fjórar konur kosnar í
bæjarstjórn Reykjavíkur. Á næstu
dögum verður hægt að nálgast á vef
safnsins upplýsingar um þessar kosn-
ingar og konunar sem náðu kjöri.“
Samfélag | Skemmtilegur og fræðandi vefur Kvennasögusafns Íslands
Kvennasaga á netinu
Auður Styrk-
ársdóttir fæddist í
Reykjavík 1951.
Hún lauk stúdents-
prófi fá Kenn-
araskólanum 1971,
BA-prófi í þjóð-
félagsfræðum frá
Háskóla Íslands
1976 og dokt-
orsprófi í stjórn-
málafæði frá Umeå-háskóla 1999.
Auður starfaði sem blaðamaður um
langt skeið og sem stundakennari við
Háskólann. Hún hefur verið fostöðu-
maður Kvennasögusafns frá 2001.
Auður er gift Svani Kristjánssyni pró-
fessor og eiga þau þrjú börn.
Myndlist
Hafnarborg | Hafnarfjarðarkaup-
staður á aldarafmæli árið 2008 og
Hafnarborg, menningar- og listastofn-
un Hafnarfjarðar, á 25 ára afmæli. Af
því tilefni verður efnt til hátíðarsýn-
ingar á verkum úr safni Hafnarborgar.
Menntamálaráðherra, Þorgerður Katr-
ín Gunnarsdóttir, opnar sýninguna
laugardaginn 12. janúar kl. 15.
Listasalur Mosfellsbæjar | Hrönn
Helgadóttir sýnir málverk. Síðasti sýn-
ingardagur er 12. janúar. Listasalur
Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2, er
opinn virka daga kl. 12-19 og laug-
ardaga 12-15 og er í Bókasafni Mos-
fellsbæjar.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði á Höfðatorgi.
Vegna flutninganna eru afgreiðsla og skrifstofur lokaðar föstudaginn 11. janúar.
Við opnum aftur mánudaginn 14. janúar í Borgartúni 10-12 og biðjum viðskipta-
vini að sýna biðlund.
Erindum verður svarað í þjónustusíma Reykjavíkurborgar: 411 1111.
Helstu verkefni Umhverfissviðs eru:
Heilbrigðis- og mengunarvarnareftirlit, náttúruvernd og garðyrkja, sorphirða frá
heimilum, dýraeftirlit, Vinnuskóli Reykjavíkur, Staðardagskrá 21, Náttúruskóli
Reykjavíkur og umferðar- og samgöngumál.
Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is og í síma 411 1111
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa, leikfimi, bingó,
söngstund við píanóið.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15, opin smíðastofa kl. 9-
16.30, bingó kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn
handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð,
hádegisverður, kertaskreyting, frjálst að spila,
kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin
kl. 9-16 m/ leiðb. annan hvern föstudag kl. 13-16.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Gleðigjafarnir í
Gullsmára syngja kl. 14. Stjórnandi Guðmundur
Magnússon. Kaffiveitingar á vægu gjaldi. FEBK
verður með opið hús í Gullsmára 12. janúar kl.
14. Upplestur, gamanmál, harmonikuleikur og
myndbrot frá aðventuferð FEBK til Kaup-
mannahafnar í des. sl. Skvettuball í Gullsmára
12. janúar kl. 20. Þorvaldur Halldórsson leikur
fyrir dansi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bókmennta-
klúbbur kl. 13, umsjón hefur Sigurjón Björnsson.
Erlingur Gíslason fjallar um sjálfvalið efni.
Félag kennara á eftirlaunum | Fyrsti fræðslu-
og skemmtifundur ársins verður á morgun, laug-
ardaginn 12. janúar og hefst kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía, málm- og silf-
ursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, hádegisverður,
félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður, jóga,
ganga, leikfimi og hádegisverður. Gleðigjafarnir
syngja kl. 14. Upplýsingar í síma 564-5260.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Hádeg-
ismatur í Jónshúsi, pantað á staðnum eða í
síma 617-1501. Skráningarblöð fyrir vornámskeið
í Jónshúsi e.h., opið til 16.30. Leikfimi hefst í
næstu viku. Ath., breyttur tími fyrir karlaleikfimi,
mánud. kl. 9.30 og fimmtud. kl. 13.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl.
9-16.30, m.a. bókband, umsj. Þröstur Jónsson.
prjónakaffi/bragakaffi kl. 10, ganga um nágrenn-
ið kl. 10.30. Frá hádegi spilasalur opinn, kóræf-
ing kl. 14.20. Uppl. í síma 575-7720 og
www.gerduberg.is. Strætisvagnar S4, 12 og 17
stansa við Gerðuberg.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðstoð við böðun frá
kl. 9, smíðar og útskurður, spilabingó kl. 14,
kaffiveitingar.
Hvassaleiti 56-58 | Vinnustofa opin kl. 9-12,
postulínsmálun, jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyrir
hádegi, hádegisverður. Bíódagur kl. 13.30, kaffi-
veitingar.
Hæðargarður 31 | Kynning á félagsstarfinu kl.
14. Hláturklúbbur, þrekhópur í World Class, ók.
tölvuleiðbeiningar, Müller á morgnana, gönu-
hlaup, skapandi skrif, magadans, klaust-
ursaumur, framsagnarhópur, draumaprins, mynd-
list og páfagaukar? Viltu taka blóm í fóstur?
Sími 568-3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi,
blaðaklúbbur kl. 9.45, leikfimi kl. 11, opið hús,
spilað kl. 13 og kaffiveitingar.
Norðurbrún 1 | Smíðastofa og handavinnustofa
eru opnar kl. 9-16. Myndlist kl. 9, leikfimi kl. 13.
Hárgreiðslustofa sími 588-1288. Fótaaðgerð-
arstofa sími 568-3838.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir,
handavinna, spænska – byrjendur, hádegisverður,
sungið v/flygilinn, kaffiveitingar og dansað í Að-
alsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, leir-
mótun kl. 9, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofan
opin alla daga frá kl. 9. Morgunstund kl. 9.30,
leikfimi kl. 10, bingó kl. 13.30. Uppl. í síma 411-
9450.
Kirkjustarf
Aðventkirkjan á Suðurnesjum | Biblíurannsókn
12. janúar kl. 11 og guðþjónusta kl. 12 í kirkjunni.
Boðið upp á hressingu eftir samkomuna.
Aðventkirkjan í Árnesi | Eyravegi 67, Selfossi.
Barnadagskrá 12. janúar kl. 10 og biblíurannsókn
fyrir fullorðna. Guðþjónusta kl. 11, ræðumaður er
Jón Hjörleifur Stefánsson prédikari.
Aðventkirkjan í Reykjavík | Biblíurannsókn fyrir
börn og fullorðna 12. janúar kl. 11. Sérstakur um-
ræðuhópur á ensku. Guðþjónusta kl. 12, ræðu-
maður er Jóhann Þorvaldsson.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Prestur
kirkjunnar Eric Guðmundsson sér um biblíurann-
sókn 12. janúar kl. 10.30 og prédikar kl. 11.30.
Sérstök barnadagskrá.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Hólshrauni 3,
efri hæð. Biblíurannsókn, barna- og unglinga-
starf, hugvekja, 12. janúar kl. 11. Súpa og brauð
að samkomu lokinni.
Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með stólajóga
og bæn á Dalbraut 27, kl. 10.15.
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12.
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara kl. 11-
14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall.
KJÚKLINGUM var fórnað í miklu
blóðbaði í Benín í gær þegar vúdú-
galdur var notaður til að koma í
veg fyrir útbreiðslu fuglaflens-
unnar og stöndum við Vest-
urlandabúar vitaskuld í þakk-
arskuld við þessa hugdjörfu
kjúklinga.
Vúdúgaldur og
fuglaflensa
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynn-
ingar um afmæli, brúðkaup, ættarmót
og fleira lesendum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyrirvara.Hægt
er að hringja í síma 569 1100, senda
tilkynningu og mynd á netfangið rit-
stjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu
og mynd í gegnum vefsíðu Morg-
unblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn
„Senda inn efni“. Einnig er hægt að
senda vélritaða tilkynningu og mynd í
pósti. Bréfið skal stíla á:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Gullbrúðkaup | Í
dag 11. janúar
eiga hjónin Rósa
Lárusdóttir og
Jósef Rafn Gunn-
arsson fimmtíu
ára brúðkaups-
afmæli. Þau munu
gleðjast með fjöl-
skyldunni í dag.
70ára afmæli. Sjötug-ur er í dag, 11. jan-
úar, Björgvin Hólm Haga-
línsson, Furugrund 38,
Akranesi. Hann er að heim-
an.
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is