Morgunblaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 29 ✝ Björn Eiríkssonfæddist í Með- alheimi á Ásum í Austur- Húnavatns- sýslu 24. maí 1927. Hann lést á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi föstudag- inn 4. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Vigdís Björnsdóttir kenn- ari, f. 1896, d. 1979, og Eiríkur Hall- dórsson bóndi og verkamaður, f. 1892, d. 1971. Systir Björns var Ingibjörg Theódóra, f. 28 maí 1926, d. 12 ágúst 1926. Hinn 31. desember 1950 kvænt- ist Björn Öldu Sigurlaugu Theó- dórsdóttur, f. 17. júlí 1932. For- eldrar Öldu voru Stefanía Jónína Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 1904, d. 1982, og Theódór Krist- jánsson verkamaður, f. 1900, d. 1966. Björn og Alda bjuggu allan sinn búskap á Blönduósi. Varð þeim tveggja barna auðið. Þau eru: 1) Vigdís, f. 1951, maki Al- bert Stefánsson, f. 1949, börn þeirra eru: a) Björn, f. 1978, sam- býliskona Hafrún Ósk Sigurhans- dóttir, f. 1972. Dætur Björns eru Helga Rakel, f. 1998 og Vigdís, f. 2000. Synir Hafrúnar eru Emil Agnar, f. 1997, og Almar Freyr, f. 2002. b) Ragnar, f. 1982. c) Alda, f. 1983, maki Hafliði Þór Kristjánsson, f. 1972. Börn þeirra eru Sigríður Svala, f. 2003, og Ólafur Benóný, f 2007. Börn Haf- liða eru Halldóra Rán, f. 1995, og Þórarinn Vignir, f. 1998. Dætur Alberts: a) Svala, f. 1967, d. 2002, börn hennar Guðbjörg, f. 1994, og Albert Óli, f. 1997. b) Sigríður Jóna, f. 1973, d. 1998, börn hennar Daníel Freyr, f. 1990, og Nína Dögg, f. 1997. 2) Eiríkur Ingi, f. 1956, maki Kristín Guðmanns- dóttir, f. 1958. Börn þeirra eru Marsibil Björk, sambýlis- maður Guðjón Guð- laugsson, f. 1982, Björn Sindri, f. 1988, og Agnar Logi, f. 1993. Björn fæddist í Meðalheimi, flutti tveggja ára að Hólabaki í Þingi og síðan 10 ára í Skóla- húsið í sömu sveit og átti heimili þar þangað til hann flutti að heiman. Björn vann við öll venju- leg sveitastörf á heimili foreldra sinna og vegavinnu á sumrin. Um tvítugt vann hann um tíma á bíla- verkstæði hjá P. Stefánssyni í Reykjavík. Stundaði vörubílaakst- ur um tveggja ára skeið. Ár- ið1950 hóf hann störf hjá Vél- smiðjunni Vísi og vann þar í 10 ár, þá réð hann sig til Vélsmiðju Húnvetninga þar sem hann vann til 70 ára aldurs. Síðasta starfs- árið vann hann í Árvirkni hjá Gesti Þórarinssyni. Björn tók sveinspróf í bifvélavirkjun 1969. Hann var eftirsóttur bifvélavirki. Var í Slökkviliðinu á Blönduósi í 23 ár. Útför Björns fer fram frá Blönduóskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Kveðja, þín eiginkona. Mig langar að minnast föður míns með nokkrum orðum. Faðir minn var einkabarn, mér varð oft hugsað til afa og ömmu og sorg þeirra að hafa misst stúlkubarn árið áður. Birni föður mínum var vart hugað líf sem ungbarni en hann hjarnaði við og lifði heilsuhraustur í 80 ár. Fyrir tæpu ári þurfti hann að fá gangráð og í byrjun júlí greindist hann með meinsemd í höfði sem ekki neitt var hægt að hjálpa honum með. Tvo mánuði gat hann verið heima en þetta hefði ekki gengið nema með hjálp mömmu, þau voru svo góð saman. Mamma sagði oft á þessum tíma að þau gengju á guðs vegum. Mamma dvaldi hjá honum á sjúkrahúsinu sex til átta tíma á dag. Foreldrar mínir hófu búskap á Blöndubyggð 8 og fluttu svo að Urð- arbraut 11 í maí 1976. Þau tóku mikinn þátt í þeirri byggingu, skófu timbur, slógu upp, einöngruðu o.fl. Fljótlega var svo farið að rækta garðinn, planta trjám og plöntum. Eitt árið fengu þau verðlaun fyrir garðinn. Allan sinn starfsaldur vann hann sem bifvélavirki. Hann var eftirsótt- ur í hinar ýmsu viðgerðir. Ekki var alltaf hægt að fá varastykki í bílana eða vélarnar, þá var það smíðað, hann var hagleiksmaður á járn. Pabba þótti gaman að ferðast og fóru þau hjónin í margar útilegur langar eða stuttar eftir að þau keyptu sér tjaldvagninn og oft barnabörnin með. Hannaði vagn með hjólum undir tjaldvagninn, geymdi hann upp á rönd úti í horni í bílskúrnum. Þegar hann hætti að vinna tók blómaræktin við, hann sáði fyrir öll- um sumarblómunum, sá fjölskyld- unni fyrir blómum og voru þau ekki síðri en keypt blóm. Smíðað var gróðurhús á lóðinni, til að hjálpa til við sumarblómaræktunina. Kartöflurækt stundaði hann í mörg ár og síðast nú í haust fór hann með í Selvíkina að taka upp þótt hann væri orðinn það veikur að hann gæti lítið tekið þátt í því, en hann fylgdist með öllu og var glaður þegar kartöflurnar voru komnar í hús. Fyrir tíu árum lærði hann að synda og stundaði sund eftir það og heiti potturinn var í uppáhaldi. Hann varð mikill sóldýrkandi með árunum, sat oft léttklæddur í sól- stofunni eftir vinnu, eða úti á stétt á morgnana um helgar. Ég og fjölskyldan mín fluttum úr Reykjavík í næstnæsta hús við for- eldra mína fyrir 27 árum og hefur verið nær daglegur samgangur síð- an. Það hefur verið alveg frábært að búa nálægt og eiga ykkur að. Elsku mamma, árin ykkar saman urðu 58. Hann var mjög bóngóður og vandvirkur. Það var ekki til það sem hann gat ekki gert við. Pabbi var mjög rólegur og grand- var maður, skipti varla skapi, mjög orðheppinn og kom oft með vel hugsuð skot í samræður. Eiginkona, börn, tengdabörn og barnabörn voru honum allt og fylgd- ist hann mjög vel með okkur öllum. Takk fyrir allt, pabbi minn. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi fyrir alla umönnun þessa mánuði. Þín dóttir Vigdís. Okkur langar til að minnast afa okkar með nokkrum orðum. Bjössa afa sem var okkur svo góður og hjálpsamur. Alltaf var hægt að leita til þín ef eitthvað bilaði og alltaf fannstu út úr því og lagaðir. Eitt af þínum aðal- áhugamálum var garðurinn og þú leyfðir okkur að taka þátt með því að sjá um að slá garðinn. Við feng- um líka alltaf að koma með í Selvík, ýmist til að setja niður eða taka upp kartöflurnar með þér. Þetta þótti okkur alltaf svo gaman. Oft var líka farið í útilegur í tjaldvagninum ykk- ar. Gistinæturnar á Urðarbrautinni eru okkur ofarlega í minni og kvöld- kaffið var svo gott, jólakaka og kakó. Eftir það var farið í háttinn og alltaf fékk maður að sofa í afa„holu“ ef maður vildi ekki vera á dýnu á gólfinu, þá fórst þú bara á gólfið í staðinn. Alltaf var stutt í grínið hjá þér og það breyttist ekki þrátt fyrir veikindin. Elsku Bjössi afi, við kveðjum þig með söknuði og munum geyma minninguna um þig í hjarta okkar. Þín barnabörn Agnar Logi, Björn Sindri og Marsibil Björk. Björn Eiríksson mágur minn kvaddi með fjöldskylduna sér við hlið að kvöldi 4. janúar sl. Hann var einstaklega ljúfur og góður maður sem gott var að leita til og sækja heim. Húsið hans Björns og Öldu systur stóð alltaf opið fyrir okkur og fjölskylduna og oft gistum við hjá þeim í góðu yfirlæti. Það koma margar góðar minningar upp í hug- ann þegar hugsað er til allra þeirra stunda sem við höfum átt í gegnum árin með þeim hjónum. Bjössi eins og við kölluðum hann var einstakt ljúfmenni og hafði ekki hátt um hlutina. Hann var laghent- ur og viðgerðir og lagfæringar á öll- um sviðum léku í höndunum á hon- um. Bjössi starfaði nánast alla tíð sem bifvélavirki og oft fengum við hjálp frá honum með bílinn. Blómin voru hans áhugamál og þar stundaði hann ræktun sem gaf honum mikið. Oft fengum við blóm hjá honum sem síðan blómstruðu í garðinum hjá okkur. Það sást á blómunum hans Bjössa að um þau hafði verið séð af alúð og nærgætni. Það var gaman að sjá þessi fallegu blóm blómstra langt fram eftir hausti. Alúðin og nærgætnin hans Bjössa sást líka vel í því hvernig hann sinnti fjölskyldunni og börnin hans, barnabörnin og barnabarnabörnin bera með sér þessa eiginleika. Það hefur verið gaman að sjá hversu samstiga og samhent öll fjölskyldan hans hefur verið. Með Bjössa er góður og traustur maður farinn sem minnst verður fyrir mikla mann- kosti og heiðarleika í öllu sem hann tók sér fyrir hendur á lífsleiðinni. Við Haukur sendum Öldu systur og fjölskyldu samúðarkveðjur og biðjum guð að styrkja þau á þessum erfiða tíma. Ragnhildur A. Theódórsdóttir. Björn Eiríksson  Fleiri minningargreinar um Björn Eiríksson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Fjölskyldan Stífluseli 1. Elskuleg vinkona okkar, Dúna, er látin. Margar skemmtilegar minning- ar koma upp í hugann nú þegar leiðir skilja um sinn. Hún átti alltaf ráð í raun og orð til að hugga. Samveru- stundir í sumarbústað, Dúna að prjóna trefla og syngja með sama geisladiskinum. Inn á milli kom „We meet again“ lag sem þau Bjössi héldu mikið upp á. Stuðningur við sonar- missi og fleiri skakkaföll lífsins. Allar gátum við hlegið saman að öllu og engu. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. (Þórunn Sigurðardóttir.) Við kveðjum kæra vinkonu okkar með þökk fyrir allt og allt og vottum börnum hennar og fjölskyldu samúð. Ingibjörg (Dídí) og Elfa Gunnarsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Guð- rúnu Flosadóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN ÞORSTEINSSON, Hamrabergi 6, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, þriðjudaginn 8. janúar. Lilían Kristjánsson, Hörður Guðjónsson, Brynhildur Sveinsdóttir, Jóhanna Guðrún Guðjónsdóttir, Guðmundur Jón Guðjónsson, Dóra Magnúsdóttir, Ásta Kristjana Guðjónsdóttir, Jóhann Gestsson, Þorsteinn Sigurður Guðjónsson og barnabörn. ✝ Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLDÓRU F. ÞORVALDSDÓTTUR, dvalarheimilinu Hlévangi, Keflavík, áður til heimilis í Landakoti, Sandgerði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalar- heimilinu Hlévangi, Keflavík, fyrir einstaka umönnun og alúð í starfi. Hrefna Magnúsdóttir, Viðar Markússon, Sigríður Á. Árnadóttir, Þorvaldur Árnason, Auður Harðardóttir, Magnea Árnadóttir, Katrín H. Árnadóttir, Helgi Laxdal, barnabörn og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og dóttir, INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, Laufskógum 40, Hveragerði, lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn 8. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Guðmundur F. Baldursson, Rósant Guðmundsson, Edda Rúna Kristjánsdóttir, Heiða Margrét Guðmundsdóttir, Valdemar Árni Guðmundsson, Enea og Mía Rósantsdætur, Hallfríður Bjarnadóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, tengdasonur, bróðir og afi, HILMAR KRISTJÁNSSON, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi þriðjudaginn 1. janúar, verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju laugardaginn 12. jan. kl. 14.00. Valdís Finnbogadóttir, Finnbogi Hilmarsson, Jakobína Kristín Arnljótsdóttir, Hilmar Þór Hilmarsson, Sædís Gunnarsdóttir, Valgerður Hilmarsdóttir, Þorgils Hallgrímsson, Hulda Bjarnadóttir, Þormar Kristjánsson, Stefanía Garðarsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Sigurlaug Þorsteinsdóttir, og afabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, JÓNÍNA Á. BJARNADÓTTIR (Nína), Strandvegi 9, Garðabæ, andaðist fimmtudaginn 10. janúar á Landspítalanum við Hringbraut. Jarðarförin auglýst síðar. Áki Jónsson, Bjarni Ákason, Eva Sigurgeirsdóttir, Jón G. Ákason, Fariba Salemi Seifeddin, Andri Ákason, Áróra Bjarnadóttir, Sædís Bjarnadóttir, Hekla Bjarnadóttir, Bergljót Busk Jónsdóttir, Baldur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.