Morgunblaðið - 11.01.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 17
MENNING
HAGSTOFA
Bretlands færir
sannkallaðar
hryllingsfréttir
þeim sem ekki
geta án bóklest-
urs verið, nefni-
lega þær að á síð-
asta ári las fjórði
hver Breti ekki
eina einustu bók.
Forsætisráð-
herra Breta, Gordon Brown, er einn
hinna slegnu og segir lestur líklega
eina bestu vörnina gegn fátækt,
skorti, glæpum og skemmdar-
verkum, að sögn bókarýnis The
Guardian, John Crace. Crace telur
Brown ekki alveg með á nótunum.
Ráðherrar missi sjaldan nætursvefn
yfir dræmri aðsókn á listasöfn eða í
leikhús og spyr Crace af hverju bók-
menntir séu, að því er virðist, æðri
öðrum listgreinum í huga ráð-
herrans.
Crace segir ríkisstjórnina líklega
hafa smitast af sömu bakteríu og
hálf þjóðin, þeirri að ljúga til um
bóklestur sinn til að virka gáfulegri.
Bækur séu ákveðin mælistika á
hversu menningarlega meðvitað fólk
sé. Þeir sem hafi ekki lesið Stríð og
frið séu menningarlega andfélags-
legir. Crace telur vandann felast í
því að hinn almenni Breti viti ekki
hvar eigi að byrja, yfir 100 þúsund
bækur séu gefnar út á ári, og að mati
Crace eru flestar þeirra drasl.
Ekki sé hægt að leggja allt traust
á dóma, þeir séu oft skrifaðir af vin-
um höfunda eða þá fjandvinum. Best
sé að byrja á því að lesa bókina
Hvernig tala á um bækur sem þú
hefur ekki lesið eftir franska fræði-
manninn Pierre Bayard. Þar fletti
Bayard ofan af allri tilgerðinni í
mörgum hinna „sjálfumglöðu og vel
lesnu“, eins og Crace orðar það.
Líta aldrei
í bók
Fjórði hver Breti las
enga bók í fyrra
Bókhneigður
Gordon Brown
HÁTT í níu þús-
und manns munu
á næsta ári koma
sér fyrir uppi á
fjórða stallinum
sk. við Trafalg-
artorg í Lund-
únum og
skemmta við-
stöddum með
hvaða hætti sem
er, verði tillaga
myndlistarmannsins Antony Gorm-
ley að veruleika. Verkefnið er á veg-
um borgarinnar og hafa heims-
þekktir listamenn komið með
tillögur að næsta verki sem prýða
mun stallinn, meðal annars þau
Gormley, Jeremy Deller, Tracey
Emin, Anish Kapoor, Yinka Shonib-
are og Bob og Roberta Smith.
Stallurinn var reistur árið 1841,
ætlaður styttu, sem aldrei var gerð,
af Vilhjálmi IV Englandskonungi á
hestbaki. Stallurinn stóð auður til
ársins 1999, þegar leyfi fékkst fyrir
því að sýna á honum listaverk eftir
hina og þessa.
Hugmynd Gormley er að láta
hvern og einn þátttakanda vera í
klukkustund uppi á stallinum og má
sá hinn sami gera það sem honum
dettur í hug. Verkið gæti því orðið
áhugavert fyrir þá sem vilja fylgjast
með hegðun mannsins undir slíkum
kringumstæðum, hvað gerist þegar
svo margir fá slíka athygli í ákveðinn
tíma. Tillaga Gormley ber heitið One
and Other, eða Einn og annar.
Hann hyggst þó ekki senda hvern
sem er upp á stallinn heldur bjóða
upp á sneiðmynd af bresku sam-
félagi, ekki aðeins þá sem haldnir
eru sýniáráttu og athyglissýki.
8.760 upp
á stallinn
Gormley við líkan
sitt af 4. stallinum.
Í TÓNLISTARSKÓLA Húsa-
víkur verða tónleikar í tilefni af
verkefni sem nefnist Afríku-
tónlist, og eru vinnubúðir með
ungmennum og leiðbein-
endum. Leiðbeinendurnir eru
þau Peta Axelsson og Tipei
Marazanye. Peta er starfandi
kennari og tónlistarmaður í
Malmö í Svíþjóð, en hún er
ættuð frá Zimbawe. Tipei Mar-
azanye er einn af fremstu tón-
listarmönnum Zimbabwe. Hann hefur kennt í
Prince Edward School í Harare og einnig kennt
tónlist við The Zimbabwe College of Music. Tón-
leikarnir verða haldnir í Borgarhólsskóla sunnu-
daginn næsta kl 13 og er ókeypis inn.
Tónlist
Afríkutónlist
á Húsavík
Ung stúlka spilar
afríska tónlist.
Í ÞJÓÐARBÓKHLÖÐUNNI
mun Sólveig D. Þórisdóttir
halda sýningu sem nefnist För
hersins. Umræður um varnar-
og öryggismál þjóðarinnar
hafa verið áberandi í íslensku
samfélagi árum saman. Sólveig
segir að sig langi að reyna fá
fólk til að tjá sig um jafn um-
deilt mál og veru varnarliðsins
á Miðnesheiði og brottför þess.
Listakonan hefur sett upp
fjóra stóra striga sem hún vonast til að nái að
fanga hugsun sýningargesta. Þegar sýningunni
lýkur verður áfram hægt að bæta við verkið, en
það verður sett upp í Byggðasafni Reykjanes-
bæjar. Sýningin hefst á morgun, laugardag, kl. 14.
Myndlist
Strigar til að
fanga hugsun
Verk eftir Sólveigu
D. Þórisdóttur.
DANSVERKIÐ Hoppala
verður sýnt í Norræna húsinu
nú um helgina. Hoppala er
byggt á samvinnu þriggja
dansara og eins tónlistar-
manns.
Þær hafa allar unnið með
dansflokkum og danshöf-
undum víðs vegar um Evrópu
og sem virkir og skapandi
listamenn vilja þær efla dans-
inn sem listform á Íslandi. Brot
úr verkinu var sýnt í Jóladagatali Norræna húss-
ins 2. desember síðastliðinn. Verkið verður sýnt í
fullri lengd í sal í kjallara Norræna hússins kl. 20
bæði laugardag og sunnudag. Miðaverð er 1.000
krónur.
Dans
Dansverk í
Norræna húsinu
Úr dansverkinu
Hoppala.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„ER HAFIÐ blár vatnslitur?“ spyr
Ívar Valgarðsson myndlistarmaður
sem opnar sýningu í galleríi i8 við
Klapparstíg í dag. Í verkum sínum
vinnur Ívar iðulega með hvers kyns
byggingarefni og húsamálning hefur
verið áberandi í sköpun hans síðustu
tvo áratugi. Á þessari nýju sýningu,
sem hann nefnir Stilla, gárur,
straumur, er húsamálning einmitt
áberandi. Öryggismyndavél beinist
að yfirborði blárrar málningar í fötu
og myndinni er síðan varpað á vegg
með skjávarpa; er það hafflöturinn?
Verk þetta kallar Ívar Stillu. Ljós-
mynd á öðrum vegg sýnist vera af
gáruðu hafinu – eða er það nýmál-
aður blár veggur?
Í texta sem fylgir sýningunni er
bent á að myndlist Ívars spretti úr
því umhverfi sem hún er sett fram í
og sé um leið viðbót við sama um-
hverfi. Hann lauk framhaldsnámi frá
Haag í Hollandi árið 1980 og hélt
sama ár sína fyrstu einkasýningu.
Sýningarnar eru orðnar margar.
„Mitt viðhorf er sprottið úr list-
hugmyndum sem ég nam þegar ég
var í skóla fyrir um 30 árum,“ segir
Ívar. „Ég varð fyrir áhrifum frá
konseptlistinni og mínimalismanum,
þessari módernísku hefð, og fleiri
viðhorfum sem voru efst á baugi á
þeim tíma. Ég hef spunnið minn þráð
upp úr því.“
– Ertu að rannsaka eðli skynjunar,
upplifunar og efnanna sem þú notar?
„Mér finnst myndlist ekki vera það
vísindaleg í sjálfu sér að það sé hægt
að tala um rannsókn.“ Hann þagnar
hugsi. Bætir svo við: „Hins vegar er
maður alltaf að láta reyna á list-
hugtakið. Og á litinn. Hér eru marg-
ar birtingarmyndir af lit. Það er ljós-
mynd af honum, málningin sjálf og
lifandi mynd af honum.“
– Er þetta hafflöturinn á veggnum
þarna?
„Einhver sagði: Mitt er að búa til
listina, ykkar að túlka hana.“ Ívar
brosir og heldur svo áfram: „Allt um-
hverfi okkar er myndrænt. Mondrian
sagði einu sinni eitthvað á þá leið að
þegar umhverfið væri orðið fag-
urfræðilegur veruleiki þá væri ekki
lengur þörf fyrir myndlistina.“
Þessi lýríska merking
– Þú notar þetta hversdagslega
fyrirbæri, húsamálninguna, og beitir
myndhverfingum, eins og hér í stig-
anum niður í kjallarann þar sem
málningin er lýrískur foss í ljós-
myndum.
„Ég notast aðeins við þær birting-
armyndir efna og lita sem koma fyrir
augu okkar á hverjum degi í gegnum
ólíka miðla.
Fólk gerir sér ekki alltaf grein fyr-
ir því hvað það hefur mikil áhrif á
umhverfið með athöfnum sínum.
Húseigandi ber mikla ábyrgð; bara
það hvaða lit hann velur á húsið.
Hvort hann stækkar það, hvernig
hann breytir því eða byggir við. Allt
hefur þetta áhrif á umhverfið. Við
sjáum þetta birtast í deilunni um
gömlu húsin á Laugaveginum. Allt
hefur þetta áhrif á umhverfið.“
Á neðri hæð i8 eru nokkur lítil
verk, þar sem Ívar hefur málað lag
eftir lag af málningu á mdf-plötur,
alls um 200 lög og í skurðinum mynd-
ast mismunandi litasamsetningar.
„Þetta er það sem allir gera inni á
heimilum sínum, mála lag eftir lag á
veggina – þetta er eins konar tíma-
skúlptúr. Raunverulega er þetta
bæði málverk og skúlptúr. Hér er til
dæmis eitt verk samsett úr litunum
öskugráum og rauðum.“ Hann held-
ur upp ferköntuðu verkinu með ösku-
gráu yfirborði, en gráu og rauðu sári
í þversniðinu.
Í framsetningu hugmynda og efn-
anna birtast iðulega óvæntir og jafn-
vel ljóðrænir strengir. Eitt verkið á
sýningu Ívars eru tveir bláleitir lita-
fletir á vegg. Hann segir þá koma af
litaspjaldi frá Flügger-litum. Heiti
litanna á spjaldinu hafa ekki verið
þýdd á íslensku og standa heitin und-
ir litunum: „Water shadow“ og
„Summer flirt.“ Eins og óvænt
stefnumót ljóðrænu og nytjaefnis.
Birtingarmyndir litanna
Ívar Valgarðsson opnar sýningu á nýjum verkum í galleríi i8 í dag Hann segist
ávallt láta reyna á listhugtakið Grunnefnið á sýningunni er húsamálning
Morgunblaðið/Einar Falur
Blár hafflötur „Mitt er að búa til listina, ykkar að túlka hana,“ segir Ívar
Valgarðsson. Á sýningu hans í i8 vísar yfirborð litarins til hafsins.
Í HNOTSKURN
»Sýning Ívars Valgarðssonar,sem opnuð verður í galleríi i8
í dag, nefnist Stilla, gárur,
straumur.
»Ungur varð Ívar fyrir áhrif-um frá mínimalisma og hug-
myndalist og segist hafa spunnið
sinn þráð út frá því.
»Verk Ívars hafa verið sögð ísamræðu við listasöguna og
setja fram spurningar um list-
hefðina og hlutverk listarinnar.
»Grunnefnið í sýningunni erhúsamálning; hann kannar
þar eiginleika lita og hugmyndir
um þá.
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Aldrei fór
ég suður hlaut Eyrarrósina í ár, sér-
staka viðurkenningu fyrir fram-
úrskarandi menningarverkefni á
landsbyggðinni. Dorrit Moussaieff,
forsetafrú og verndari Eyrarrós-
arinnar, afhenti hana á Bessastöðum
í gær. Aldrei fór ég suður var haldin
í fjórða sinn á Ísafirði í fyrra en hug-
myndina að henni áttu feðgarnir
Guðmundur M. Kristjánsson og
Elías Örn Guðmundsson, betur
þekktir sem Muggi og Mugison
(borið fram „muggison“).
Guðmundur tók við viðurkenning-
unni í gær, en henni fylgir 1.500.000
króna styrkur og verðlaunagripur
eftir Steinunni Þórarinsdóttur. Guð-
mundur hlaut gælunafnið Muggi
þegar hann var við störf í Malasíu og
þegar sonurinn kom í heimsókn var
hann einfaldlega kallaður Mugison.
Hugmyndina að Aldrei fór ég suður
fengu þeir feðgar yfir bjórglasi á
sumardegi í Lundúnum í 38°C hita.
„Það sem bendir til þess að við höf-
um ekki drukkið mikinn bjór er að
við mundum hugmyndina daginn
eftir,“ sagði Muggi við blaðamann í
gær, að lokinni verðlaunaafhend-
ingu. Aðrir tilnefndir, þ.e. Karlakór-
inn Heimir og Safnasafnið, hlutu 200
þúsund kr. og öll verkefnin fengu tíu
flugferðir frá Flugfélagi Íslands.
Aldrei fór ég suður
hlaut Eyrarrósina
Morgunblaðið/Golli
Fór suður Guðmundur M. Kristjánsson, Muggi, tekur við Eyrarrósinni úr
hendi forsetafrúarinnar í gær. Menntamálaráðherra fylgist brosandi með.
♦♦♦