Morgunblaðið - 11.01.2008, Qupperneq 21
matur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 21
Ég á orðið býsna gott fisk-uppskriftasafn í fórummínum eftir fiskbúða-bransann því það var
ekki aldeilis nóg að henda flökum í
bakka og í borðið heldur þurfti mað-
ur orðið að forelda réttina fyrir
kúnnana. Fisksölumaðurinn var að
því leytinu til farinn að vinna eins og
hver annar kokkur enda fór mesti
tíminn ávallt í að gera sósur og mat-
reiða réttina ofan í viðskiptavinina.
Greinilegt er að neytendur eru í vax-
andi mæli farnir að kalla á tilbúinn
mat enda vitum við, sem vinnum úti
oft langan vinnudag, að lítill tími vill
oft gefast í flókna matseld þegar
heim er komið. Ég hef því komið
mér upp ágætu safni hollra og hand-
hægra uppskrifta. Og fiskur er auð-
vitað í miklu uppáhaldi hjá mér og
mínum,“ segir Soffía Árnadóttir,
fisksölumaður og húsmóðir í
Hafnarfirði.
Alltaf skemmtilegt í slorinu
Soffía er fædd og uppalin á Þórs-
höfn á Langanesi þar sem hún sleit
barnsskónum. Hún var ekki há í loft-
inu þegar hún fór að rölta sér niður á
bryggju til að stunda dorgveiðar auk
þess sem hún fór snemma að róa
með karli föður sínum, útgerðar-
manninum Árna Helgasyni.
Draumar hennar og þrár fóru að
snúast um sjómannslífið og oftar en
ekki hefur starfsvettvangur Soffíu
verið innan um karlmenn á hefð-
bundnum karlavinnustöðum.
„Já, það er mikið rétt. Ætli mér
líki ekki bara svona vel orðið innan
um alla karlana! Ég veit svo sem
ekki hvað veldur, en þetta er bara
eitthvað sem ég er alin upp við og
hef enn ekki haft dug eða hug á að
koma mér út úr enda held ég að
karlavinnustaðir geti oft verið
hressilegri en kvennavinnustaðir.
En satt best að segja kann ég af-
skaplega vel við mig í slorinu og
tengdum verkefnum og hef kannski
einmitt þess vegna sótt í þann
starfsvettvang, sem er allt í senn,
spennandi, lifandi og óvæntur.“
Hefur komið nokkuð víða við
Á unglingsárum var Soffía í há-
setaplássum á bátum, sem stunduðu
m.a. veiðar með snurvoð, línu og net
auk þess sem hún kynntist bæði síld-
veiðum, rækjuveiðum og fraktsigl-
ingum Að afloknu stúdentsprófi frá
MH tók hún sér þriggja ára frí frá
námi og settist svo í Tækniskóla Ís-
lands þar sem hún nam bæði útgerð-
artækni og iðnrekstrarfræði. Hún
bjó á Hornafirði í tólf ár, frá 1992-
2004, þar sem hún starfaði m.a. sem
gæðastjóri hjá Borgey og sem síld-
arsöltunarstjóri hjá Skinney-
Þinganesi.
Soffía býr nú í Hafnarfirði ásamt
börnunum sínum tveimur, Soffíu
Arnþrúði, sem er nýkomin heim úr
interrail-ferðalagi að afloknu stúd-
entsprófi og stefnir á framhaldsnám
í haust, og Magnúsi Þór, sem er
þrettán ára.
„Það er sem sagt stefnt á síðari
ferminguna í vor og þá verða börnin
bæði komin í fullorðinna manna
tölu,“ segir Soffía, sem nú starfar
sem sölumaður hjá Iceland Seafood,
sem áður starfaði undir merkjum
SÍF. Hún seldi fiskbúðina sína við
Lækjargötu í Hafnarfirði í vor eftir
að hafa rekið hana í samvinnu við
meðeiganda í eitt og hálft ár. „Þegar
hann vildi hætta, treysti ég mér ein-
faldlega ekki til að standa í fiskbúð-
arrekstrinum ein þar sem honum
fylgir gríðarleg vinna. Ég á þó
nokkrar sérlega góðar, hollar og
fljótgerðar uppskriftir, sem bæði
húsmæður og húsbændur gætu nýtt
sér í erli dagsins, meira að segja
þegar tíminn virðist vera að hlaupa
frá okkur.“ Uppskriftirnar, sem hér
fylgja, eru fyrir fjóra.
Fiskur í okkar sósu
Sósan:
½ lítri súrmjólk
1 bolli majónes
1 tsk. karrí
½ tsk. túrmerik
1 tsk. aromat
1 tsk. season all
1 niðurskorið epli
¼ dós brytjaður ananas
800 g af beinlausri ýsu eða þorski
Fiskurinn skorinn niður í stóra
bita, sett í eldfast mót og sósunni
hellt yfir. Rifnum osti stráð yfir og
eldað í 20 mín. í 180°C. Passa þarf að
hafa ekki of háan hita því þá á sósan
það til að skilja sig.
Borið fram með hrísgrjónum eða
kartöflum, salati og heitu brauði.
„Þetta er auðveldur réttur, sem
seldist eins og heitar lummur í fisk-
búðinni og hentar öllum fjölskyldu-
meðlimum. Sósuna má búa til fyr-
irfram og hafa tiltæka í ísskápnum.
Saltfiskréttur
700 g saltfiskur
8 kartöflur
3 pressuð hvítlauksrif eða hvít-
lauksduft
1 rauð paprika
1-2 laukar
100 g smjör
100 g ostur, skorinn í bita, t.d. dala-
brie, bóndabrie eða dalayrja
tómatar í bitum eða sneiðum
Saltfiskurinn soðinn, tekinn upp
úr soðinu, roð- og beinhreinsaður.
Kartöflurnar soðnar, síðan skrældar
og skornar í 2 eða 4 hluta eftir
stærð. Laukurinn og paprikan
skornar og steiktar ásamt hvítlauk-
num í olíu í potti. 100 g af smjöri
brætt með. Bætið síðan saltfisk-
inum, kartöflunum og ostinum í
pottinn, blandið saman með sleif án
þess að mauka fiskinn. Sett í eldfast
mót. Rifnum osti stráð yfir og þunnt
skornum tómötum ef vill. Sett í heit-
an ofn eða undir grill þar til osturinn
bráðnar.
Borið fram með hvítlauksbrauði
eða rúgbrauði.
Lax/bleikja með mango
chutney
1 kg laxa- eða bleikjuflök, bein-
hreinsuð með roði.
mango chutney í krukku
svartur pipar
salt
peacan hnetur
sesamfræ
Fiskurinn settur í eldfast mót.
Mango chutney makað yfir fiskinn.
Pipar, salti, sesamfræjum og brytj-
uðum peakan hnetum stráð yfir.
Eldað í ofni í 20 mín. við 180°C.
Borið fram með kúskús og salati.
Þorskhnakkar
1 kg beinhreinsaðir þorskhnakkar
sjávarsalt
sítrónupipar
Þorskhnakkarnir penslaðir roð-
megin með matarolíu. Smá sjáv-
arsalti stráð yfir. Sítrónupipar stráð
ofan á. Eldað í ofni við 200 °C í um 10
mín eða eftir þykkt stykkjanna.
Borið fram með íslenskum kart-
öflum , tómötum, selleríi, graslauk
og basilikum sem brytjað er saman
og olíu hellt yfir.
Sinnepssósa
2 msk. hunang
2 msk. dijon sinnep
1 msk. basilika
1 dl fisksoð
pínu rauðpipar
sletta af púrtvíni
Öllu blandað saman. Þessi sósa er
góð með laxi og þorskhnökkum.
Stútfullur silungur
Fiskurinn er slægður og hreinsaður
að innan, en hausinn hafður á.
Maginn er síðan fylltur af grænmeti,
fiskurinn kryddaður að utan með
grófu salti og pipar og síðan vafinn
inn í álpappír og hent á grillið í 20
mín. Borið fram með bökuðum kart-
öflum.
join@mbl.is
Laxagóðgæti Lax með mango chutney er bragðgóður réttur sem töfra má fram á fljótlegan hátt. Þorskhnakkar Heilsan er í hávegum höfð með þorskhnökkum, kúskús og sætum kartöflum.
„Fiskurinn alltaf í miklu uppáhaldi“
„Fiskbransinn hefur
bara ávallt fylgt mér,“
segir Soffía Árnadóttir,
sem verið hefur sjómað-
ur á fiskiskipum og
frökturum, gæðastjóri,
söltunarstjóri, verk-
stjóri og fisksölumaður.
Jóhanna Ingvarsdóttir
smakkaði laxaflök og
þorskhnakka hjá Soffíu.
Fiskiveisla Soffía ásamt syninum Magnúsi Þór og frænkunni Björgu Gunnarsdóttur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg