Morgunblaðið - 11.01.2008, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 37
og Gunnþórunn voru sjálfum sér trú.
Þau breyttu mörgu, en héldu því,
sem þeim líkaði. Árið 1998 hættu þau
búskap, bjuggu samt áfram í Krossa-
vík uns þau hófu að hafa vetursetu á
elliheimilinu 2004. Einstök umhyggja
og stuðningur Garðars sonar þeirra
gerði þeim þó kleift að dveljast næst-
um daglega í Krossavík. Í apríl 2006
lést Björn af slysförum og eftir það
fór að draga úr lífskrafti Gunnþór-
unnar uns hún lést nú í ársbyrjun.
Eftir stendur Krossavíkurbærinn
glæsilegur eins og minnisvarði um
það fólk, sem þar bjó allt frá því að afi
og amma byggðu hann árið 1933
fram til þess tíma, er Björn Sigmars-
son og Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir
bjuggu þar tvö. Ég kona mín og
börnin minnumst þeirra með hlýju og
þakklæti.
Sigmar Karlsson.
Elsku frænka. Ég vildi að síðustu
ár hefði ég komið oftar í heimsókn til
þín og Bubba. Ég tala oft um Krossa-
vík við stelpuna mína. Það hefði verið
gaman að koma með hana til ykkar.
Það er ótrúlegt að á innan við ári
séuð þið Bubbi bæði dáin.
Ég á ótal minningar frá öllum
sumrunum í sveitinni hjá þér, Bubba,
Garðari frænda og Simma gamla. Í
fjósinu vildi ég helst vera enda elsk-
aði ég beljurnar, ég efast um að ég
hafi misst af mjaltatíma þegar ég var
hjá ykkur. Aldrei sagðirðu neitt við
mig þótt ég kæmi inn angandi af kúa-
lykt þó að aðrir létu mig heyra það.
Ég gat þvælst tímunum saman út um
allt með hundana á eftir mér og þú
baðst mig bara að fara varlega. Ég
man að ég hafði mjög gaman af að
hjálpa þér inni þegar þú varst að
baka eða skipta á rúmunum og laga
til. Einnig fannst mér mjög gaman að
labba með Bubba út í fjárhús eða
skoða þegar hann var að gera við
traktorana og ýmsar vélar. Þið töl-
uðuð við mig eins og fullorðna. Ég
var frekar fyrirferðarmikil sem
stelpa, sagði ýmislegt við fólk sem
var óþarfi og tók upp á ýmsum
skammarstrikum. Mamma mín fékk
oft að heyra það að ég væri algjör
frekja og óþekk. Þegar ég fór ein til
ykkar í sveitina þá spurði mamma
þig hvernig ég hefði hegðað mér og
þú sagðir að ég væri besta barn sem
þú hefðir haft hjá þér í sveitinni og þú
vissir varla af mér. Ég mun alltaf
muna þetta. Í Krossavík hjá ykkur
blómstraði ég. Mér fannst mjög sorg-
legt að Bubbi skyldi deyja í trak-
torsslysi vegna þess að hann fór mjög
varlega með vélarnar. Ég er sann-
færð um að þú ert að fara fyrr vegna
þessa. Þvílíkt áfall sem þú varðst fyr-
ir þá enda var Bubbi þinn annar
helmingur. Núna eruð þið aftur sam-
an.
Takk fyrir allt elsku frænka, þú
munt lifa í mínum minningum. Ég og
mín fjölskylda sendum Garðari,
Sigga og öðrum ættingjum innilegar
samúðarkveðjur.
Þín frænka
Björg Garðarsdóttir.
Þegar ég frétti lát Gunnþórunnar
frá Krossavík, var mín fyrsta hugsun
„þá eru þau öll farin“, þau öll eru
hjónin sem bjuggu á Krossavíkur-
torfunni þegar við Bakka- og Krossa-
víkurkrakkar vorum að alast upp.
Næsta hugsun var: Nú kemur enginn
til dyra í Krossavík sem faðmar mig
að sér og segir „sæl og blessuð elskan
mín og vertu velkomin nú og ævin-
lega“; en þannig heilsaði hún mér
alltaf þegar ég kom austur á hverju
sumri í 45 ár.
Gunnþórunn kom til Krossavíkur
aðeins 19 ára og fór þaðan í raun
aldrei upp frá því. Þó að hún og Björn
byggju að nafninu til á elliheimilinu á
Tanga síðustu árin, var farið heim
hvern einasta færan dag, og verður
Garðari syni þeirra seint fullþakkað
að gera þeim og síðar henna það
fært. Þegar Gunnþórunn kom að búi í
Krossavík var það við aðstæður sem
nútímakonum þættu erfiðar, þau
bjuggu í sambýli við afa og ömmu og
Gunnar og Beggu líka um tíma, Sig-
mar Björnsson var þar til heimilis og
svo ævinlega aukafólk á sumrin,
krakkar í sveit og kaupafólk. En hún
var engin venjuleg kona hún Gunn-
þórunn, hún var þvílíkur snillingur til
allra verka, svo fljótvirk og velvirk að
ég hef aldrei þekkt annað eins. Hjá
henni var alltaf allt fágað og fægt, í
þessu lengst af yfirfulla húsi, matur
og nánast kaffihlaðborð á boðstólum
handa öllum sem komu og á sumrin
komu gestir stanslaust. Þetta var
eins og hótel, menn dvöldu viku, tvær
vikur, stundum heilu fjölskyldurnar
og ef einhvern tíma leið meira en vika
milli gesta, þá man ég ekki eftir því.
Hún tók á móti öllum með brosi á vör
og þessari hæglátu hlýju sem ein-
kenndi hana, og virtist alltaf hafa
nægan tíma.
Björn frændi minn sagði alltaf að
hann ætti fallegustu og bestu konu í
Vopnafirði, að mínu viti hafði hann al-
veg rétt fyrir sér. Garðari og Sigga
votta ég samúð og fjölskyldum
þeirra, ég kveð hana með virðingu og
þökk.
Laufey Jörgensdóttir.
söguna má að öðru leyti segja að hún
er afar merk samtímalýsing á
Reykjavík og hefur orðið sagnfræð-
ingum merk heimildauppspretta.
Árið 1996 varð Eyjólfur fyrir þeim
sára harmi að missa Katrínu eigin-
konu sína. En forlögin geta verið und-
arleg. Þegar hann, eftir að hafa verið
ekkill í nokkur ár, hélt suður til Ástr-
alíu að heimsækja enskan fornvin
sinn er hann hafði kynnst hér á stríðs-
árunum komst hann í kynni við frú
Mary Pilgrim sem einnig var orðin
ekkja og á svipuðum aldri. Æxlaðist
svo til að þau tóku að búa saman og
áttu mörg hamingjurík ár ólifuð. Því
virðist sem Eyjólfur hafi verið fædd-
ur undir heillastjörnu. Hann lifði í
hamingjuríku hjónabandi öll mann-
dómsár sín og síðasta skeið lífsins
með konu er hann hefði ekki getað
fengið betri. Það getum við borið um
sem þetta skrifum, því frú Pilgrim
kom oftar en einu sinni hingað til
lands með Eyjólfi. Þau voru sannar-
lega hvort öðru samboðin, bæði
prýddi ljúflyndið og glaðværðin.
Hér skal þessum fáu orðum lokið.
Frænku okkar Berglindi sendum við
hugheilar samúðaróskir sem og afa-
börnum þess látna, Eyjólfi yngri og
Katrínu. Við biðjum Guð að gefa þeim
stuðning í sorg þeirra og ekki síður
frú Mary Pilgrim sem harmar sinn
mikla missi í fjarlægu landi.
Systkinin í Ferjuvogi.
Hún Berglind frænka mín hringir
aldrei í mig í vinnuna. Þegar ég
heyrði í henni um miðjan vinnudag
vissi ég að það væri komið að því,
hann Eyjólfur var dáinn.
Eyjólfur Jónsson hefur verið stór
hluti af mínu lífi frá því ég fæddist.
Hann var giftur Kallý móðursystur
minni og aðeins fáum mánuðum áður
en ég fæddist misstu þau dreng í fæð-
ingu. Ég kom þarna sem hinn prýði-
legasti staðgengill og fékk að njóta
væntumþykju og umhyggju þeirra
hjóna mér til mikils ávinnings. Ég var
yngst sex systkina og faðir minn var
skipstjóri og sjaldan heima og gekk
Eyjólfur að vissu marki mér í föður-
stað og kallaði ég hann pabba langt
fram eftir aldri.
Mér er sagt að ég hafi ekki orðið
par hrifin þegar Eyjólfur og Kallý
eignuðust hana Lindu, óttaðist víst að
missa prinsessustöðuna aðeins
þriggja ára. En það voru óþarfa
áhyggjur. Hún varð bara góð viðbót
og höfum við verið miklar vinkonur
frá því ég viðurkenndi tilveru hennar.
Við gengum í eins kjólum sem Kallý
saumaði á okkur og vorum alltaf eins
klæddar 17. júní en þá fór Eyjólfur
með okkur frænkur í bæinn og hafði
okkur hvora á sinni öxlinni svo við
gætum notið skemmtiatriðanna sem
best. Hann hló oft að því síðustu árin
að hann færi varla létt með þetta nú-
orðið.
Eyjólfur missti hana Kallý sína
1995 og varð það honum mikið áfall,
svo mikið að við sem næst honum
stóðum óttuðumst um heilsu hans. Þá
varð það honum til happs að hann átti
vin í Ástralíu sem hann gat heimsótt.
Það varð mikil happaferð því þar
kynntist hann henni Mary Pilgrim,
yndislegri konu, og hófu þau búskap í
Adelaide. Seinustu ár Eyjólfs urðu
því góð og hamingjurík og það yljar
að hugsa til þess núna við þessi tíma-
mót.
Fyrir um ári fór Eyjólfur að finna
að heilsunni var farið að hraka. Ég
heyrði það á röddinni þegar ég
hringdi í hann, karlmannlegur róm-
urinn var farinn að dofna. Það var erf-
itt að trúa þessu. Ég var stödd á
heimili Eyjólfs og Kallýjar þegar
hann átti nokkrar vikur í sjötugt.
Hann var á leið til vinnu og ætlaði
eins og venjulega að taka strætó hin-
um megin við Miklubrautina. Við
frænkur stóðum við gluggann og
horfðum á eftir honum. Þá sá hann að
strætó var að koma og tók á sprett
eins og unglingur. Og náði strætó.
Þessa mynd af honum, hressum og
sprækum, geymi ég í huga mínum.
Eyjólfur var ekki bara góður við
mig, synir mínir báðir líta á hann sem
afa, sérstaklega sá yngri, Úlfar. Hann
fann hvert best var að leita strax sem
smábarn og var oft erfitt að koma
honum út frá þeim Kallý og Eyjólfi
eða fyrir þau að sleppa heiman frá
okkur. Á öllum myndum úr fjöl-
skylduboðum frá þessum árum situr
Úlfar alsæll í fangi Eyjólfs. Hann
saknar nú vinar í stað.
Að lokum vil ég þakka Eyjólfi öll
þau ár sem við áttum samleið og alla
góðvildina í minn garð. Ég kveð góð-
an mann með söknuði og við fjöl-
skyldan vottum Lindu og fjölskyldu
okkar dýpstu samúð.
Helga Magnúsdóttir.
Ég hef þekkt Eyjólf alla mína ævi.
Hann tók mér alltaf sem hluta af fjöl-
skyldunni og fyrir mér var hann eins
og afi minn. Þegar ég var lítil man ég
eftir því hvað mér fannst gaman að
fara í heimsókn upp til afa. Þar var
alltaf tekið vel á móti okkur og ég
held að í hvert einasta skipti sem við
komum hafi verið tekin mynd af okk-
ur Kallý, helst með hendurnar upp í
loft. Eftir að við fórum að eldast og
Eyjólfur dvaldi í Ástralíu stærstan
hluta ársins hvatti hann okkur til þess
að vera í íbúðinni sinni og það gladdi
hann þegar við gistum þar eða buðum
vinum okkar í heimsókn.
Ég kynntist Eyjólfi enn betur þeg-
ar við Kallý heimsóttum hann og
Mary til Ástralíu. Eyjólfur kynnti
okkur alltaf sem afabörnin sín og kom
fram við okkur eins og prinsessur.
Hann fór með okkur á marga af sín-
um uppáhaldsstöðum og kynnti okk-
ur fyrir ættingjum Mary og vinum
þeirra beggja.
Eyjólfur var mikill fjölskyldumað-
ur og fylgdist vel með öllu sem var að
gerast hjá okkur hérna á Íslandi.
Hann þekkti allan vinahóp okkar og
spurði reglulega um þau. Við Eyjólf-
ur skrifuðumst reglulega á og hann
hafði mikinn áhuga á því að fylgjast
með hvað ég væri að gera og hvernig
mér gengi í skólanum. Eyjólfur var
duglegur við að skrifa og það var allt-
af jafngaman að fá bréf frá honum
enda var hann einstaklega einlægur
og hlýr maður.
Elsku Eyjólfur afi. Ég sakna þín
mikið og mun aldrei gleyma þér.
Elísabet Gísladóttir.
Samskipti okkar Eyjólfs Jónssonar
hófust á Grímsstaðaholtinu um miðja
síðustu öld, þegar Knattspyrnufélag-
ið Þróttur var stofnað. Eyjólfur og
Halldór fisksali stofnuðu félagið og
voru burðarásar þess fyrstu árin.
Litla félagið þeirra er orðið stórt í
dag, eitt stærsta íþróttafélag lands-
ins.
Eyji var haldreipi litlu strákanna í
Þrótti, til hans og Dóra var oft leitað.
Við heimtuðum að Þróttur yrði al-
vörufélag, sem gengi í ÍSÍ. Það sáu
þeir um félagarnir bæði fljótt og vel. Í
stjórn Þróttar störfuðum við Eyjólfur
saman. Litla félagið, sem var orðið al-
vörufélag, hugsaði stórt. Það var rætt
um húsbyggingar, vallarframkvæmd-
ir og utanlandsferðir, og ekki króna í
kassanum. En allt gekk upp og átti
Eyjólfur oft stóran þátt í að leysa
málin. Það var ekki laust við að hann
væri undrandi og stoltur, þegar hann
gekk með mér um mannvirki Þróttar
í Laugardal fyrir nokkrum árum og
sá tugi ungmenna við æfingar á völl-
um félagsins.
Við Þróttarstrákarnir urðum ekki
lítið undrandi þegar Eyji vinur okkar
lagðist til sunds frá Grímsstaðavör.
Okkur þótti það bera vott um karl-
mennsku og þor þegar þessi risavaxni
maður lagði á djúpið í vetrarkuldan-
um. Og það merkilega var að hann
var ekki vel syndur þegar hann lagði
fyrst út á hafið.
Það kom mér ekki á óvart að Eyj-
ólfur átti eftir að verða mikils virtur
laganna vörður. Hann gekk í Reykja-
víkurlögregluna ungur að árum og
brátt kom í ljós að hann þurfti ekki að
neyta aflsmunar til að lægja ófriðar-
öldur. Hann hafði ljúfa og fumlausa
framkomu og tókst að tala fólk á sitt
band með góðmennskuna eina að
vopni.
Fyrir nokkrum árum atvikaðist
það að mér var falið að rita ævisögu
Eyjólfs og flaug þá suður til Adelaide
í Ástralíu þar sem ég dvaldi um hríð
hjá Eyjólfi og Mary sambýliskonu
hans. Það voru miklir annatímar við
bókargerðina, en ljúfir tímar engu að
síður, enda voru húsráðendur af-
bragðsfólk, gamansöm bæði tvö, og
lifðu lífinu lifandi.
Er bókarskrifum lauk hélt sam-
band okkar áfram. Það var gaman að
fá gulu umslögin frá honum prýdd
aragrúa frímerkja sem gaman var að
skoða. Duglegri bréfritara hef ég ekki
kynnst en Eyjólfi. Öll bréf hans til
mín enduðu á orðunum: Lifi Þróttur!
Eyjólfur var gæfumaður. Hann var
mikill reglumaður og átti góða fjöl-
skyldu, sem hann var stoltur af. Þau
Katrín Dagmar, kona hans, byggðu
hús sitt í Rauðagerði 22, og þar naut
sín dugnaður þeirra hjóna og hag-
sýni. Eyjólfur sagði mér að þrátt fyrir
ýmis áföll í lífinu, þá hefði lífið verið
sér gott. Örlögin höguðu því svo eftir
að Eyjólfur missti konu sína, að þau
hittust suður í Adelaide, Mary Pil-
grim og hann. Síðustu ár Eyjólfs á
slóðum svo fjarlægum og ólíkum
Grímsstaðaholtinu voru honum ham-
ingjurík. Hann eignaðist góðan lífs-
förunaut og marga vini og hafði í
ýmsu að snúast.
Ég kveð með söknuði góðan vin og
sendi Berglindi og fjölskyldu og ætt-
ingum öllum samúðarkveðjur. Þá
sendi ég Mary Pilgrim kveðju, ég veit
að hún saknar góðs vinar og félaga.
Jón Birgir Pétursson.
Fleiri minningargreinar um Eyj-
ólfur Jónsson bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
V i n n i n g a s k r á
37. útdráttur 10. janúar 2008
Harley Davidson
+ 3.000.000 kr. (tvöfaldur)
2 2 4 8 6
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
8 5 5 6 6 0 3 3 4 6 0 6 3 0 6 4 0 1 8
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3984 8509 12450 29145 59023 68832
7440 9601 16428 38884 66043 79254
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
1 1 6 9 1 1 9 9 3 1 9 5 8 2 2 9 4 2 4 3 9 8 2 1 5 8 7 1 1 6 7 1 6 0 7 3 6 5 4
1 2 5 0 1 2 0 5 2 1 9 9 4 7 2 9 5 6 8 4 0 9 5 4 5 8 8 9 4 6 7 6 9 6 7 3 9 9 6
3 2 9 3 1 2 5 2 3 2 0 0 1 1 3 0 5 7 9 4 4 0 1 5 5 9 4 7 4 6 7 9 8 4 7 6 7 7 3
4 0 4 8 1 2 6 9 6 2 0 2 9 3 3 2 6 2 5 4 5 1 0 8 6 0 3 6 4 6 9 6 4 0 7 6 9 0 0
5 0 6 2 1 4 9 1 5 2 0 3 1 6 3 3 3 6 1 4 5 4 2 5 6 0 5 5 6 6 9 9 1 5 7 7 8 7 4
5 1 9 8 1 5 1 0 2 2 0 7 6 7 3 5 9 8 0 5 1 3 3 9 6 1 3 2 8 7 0 0 7 9 7 8 8 2 7
5 5 9 8 1 5 5 8 0 2 4 1 4 1 3 6 4 8 0 5 3 5 4 4 6 1 7 6 2 7 0 2 1 7 7 9 0 0 7
6 2 7 9 1 5 6 8 0 2 4 6 6 9 3 6 5 6 5 5 3 5 7 8 6 2 2 5 8 7 0 3 2 2 7 9 4 7 8
8 2 1 1 1 5 7 9 9 2 4 8 5 0 3 6 8 1 1 5 3 8 3 2 6 2 7 9 5 7 0 3 3 8 7 9 5 9 7
8 8 5 4 1 5 9 5 0 2 5 0 9 1 3 7 1 6 5 5 4 1 4 6 6 3 0 2 8 7 0 8 5 1
9 3 9 2 1 6 0 7 3 2 6 8 8 7 3 7 9 0 3 5 4 1 9 8 6 4 5 2 1 7 1 3 7 0
1 0 4 3 3 1 6 7 4 1 2 7 5 2 5 3 8 8 6 6 5 5 5 0 8 6 5 4 4 4 7 1 4 3 8
1 1 0 2 6 1 8 0 5 3 2 8 6 1 0 3 9 0 4 3 5 6 7 9 5 6 6 2 6 0 7 1 5 4 8
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
7 7 4 9 9 2 6 2 0 3 9 4 3 1 2 9 3 4 0 8 5 6 5 0 3 1 2 6 2 7 4 6 7 2 1 0 4
9 9 3 1 0 0 3 7 2 0 8 4 6 3 1 4 2 9 4 0 9 9 2 5 0 4 0 0 6 2 9 4 2 7 2 6 6 8
1 0 6 7 1 0 0 7 5 2 1 3 7 5 3 1 6 6 6 4 2 2 0 0 5 0 4 9 7 6 3 2 2 2 7 2 8 6 6
1 5 2 3 1 1 7 7 4 2 1 5 5 5 3 1 8 7 1 4 2 2 1 7 5 0 7 4 0 6 3 2 8 1 7 3 4 9 6
1 6 1 6 1 1 8 4 8 2 2 3 9 0 3 1 9 8 6 4 2 5 4 5 5 0 7 9 6 6 3 7 3 7 7 3 9 1 1
1 6 2 1 1 2 1 5 2 2 2 7 9 8 3 2 4 7 0 4 3 1 8 9 5 1 7 1 5 6 3 9 0 1 7 4 0 3 3
2 1 4 2 1 2 5 4 2 2 3 1 8 9 3 2 6 6 6 4 3 3 2 6 5 2 5 4 9 6 3 9 2 2 7 4 2 2 8
2 3 4 8 1 2 5 4 5 2 3 3 7 0 3 2 9 8 0 4 3 4 7 3 5 3 3 3 4 6 4 1 8 8 7 4 3 0 6
3 5 6 3 1 2 8 9 2 2 4 0 0 5 3 3 0 0 7 4 3 8 6 2 5 3 9 3 1 6 4 2 8 3 7 4 4 4 1
3 8 3 9 1 2 9 9 8 2 4 5 3 8 3 3 5 4 3 4 4 8 9 4 5 4 7 2 8 6 4 5 7 1 7 5 4 4 9
3 9 1 5 1 3 5 8 7 2 4 9 0 4 3 3 9 0 1 4 5 0 4 1 5 5 2 3 2 6 4 6 7 7 7 5 7 1 0
3 9 3 5 1 4 3 6 3 2 5 2 1 0 3 4 4 4 4 4 5 1 8 6 5 5 2 5 8 6 5 0 5 9 7 5 7 3 6
4 6 8 2 1 4 7 0 0 2 6 5 9 0 3 4 6 1 7 4 5 3 9 9 5 5 2 6 7 6 5 0 9 1 7 6 0 0 7
4 7 0 9 1 4 7 6 3 2 7 0 1 5 3 4 8 2 2 4 5 9 1 2 5 5 5 6 1 6 5 1 4 3 7 6 1 1 0
4 8 2 2 1 5 0 9 3 2 7 1 3 8 3 5 2 6 3 4 6 1 1 1 5 5 6 6 3 6 5 3 3 9 7 6 4 3 6
4 8 6 6 1 6 3 9 2 2 7 4 3 8 3 5 5 7 8 4 6 2 6 4 5 5 6 9 8 6 5 4 6 5 7 6 5 7 3
5 0 6 9 1 6 8 1 8 2 7 4 7 1 3 6 0 4 2 4 6 6 8 0 5 5 9 0 2 6 6 3 1 7 7 6 5 9 2
5 1 8 7 1 7 3 1 1 2 7 9 7 1 3 6 3 6 1 4 7 0 0 9 5 5 9 0 4 6 6 3 4 5 7 6 7 9 9
5 3 4 2 1 8 3 4 6 2 8 3 7 5 3 6 3 6 7 4 7 1 7 0 5 6 3 7 8 6 7 3 8 9 7 7 0 0 5
6 2 5 3 1 8 5 9 1 2 8 7 3 7 3 6 4 0 3 4 7 5 1 7 5 6 5 9 8 6 7 5 4 5 7 7 4 9 4
6 3 5 2 1 8 7 9 7 2 8 8 8 8 3 6 6 6 2 4 7 6 4 2 5 6 6 6 6 6 7 8 2 2 7 7 6 7 1
6 7 1 9 1 8 8 6 4 2 8 9 3 3 3 7 2 8 0 4 7 7 2 8 5 7 6 0 7 6 8 5 5 7 7 7 8 0 8
6 7 5 4 1 8 9 0 3 2 8 9 5 3 3 8 0 9 0 4 8 1 8 5 5 8 6 5 3 6 9 3 1 5 7 8 1 4 7
7 1 9 5 1 8 9 2 3 2 9 3 2 6 3 8 8 1 0 4 8 2 9 2 5 9 8 0 4 6 9 6 8 9 7 8 2 4 4
7 7 3 3 1 9 3 1 8 2 9 4 0 1 3 8 8 8 3 4 8 4 0 5 5 9 9 1 3 6 9 9 2 1 7 8 2 9 9
7 7 7 8 1 9 3 3 4 2 9 6 7 4 3 9 1 3 5 4 8 5 0 9 6 0 1 0 9 7 0 0 1 3 7 9 6 6 1
7 8 9 1 1 9 8 4 2 2 9 7 7 2 3 9 4 7 6 4 8 5 2 0 6 1 2 2 3 7 0 2 1 9
8 1 5 8 1 9 8 5 7 3 0 0 0 4 3 9 7 0 3 4 9 7 2 8 6 2 0 1 3 7 0 7 4 6
8 2 8 6 2 0 0 9 5 3 0 0 4 7 4 0 2 7 2 4 9 7 3 1 6 2 2 3 1 7 1 1 8 9
9 5 0 1 2 0 1 2 9 3 0 2 3 0 4 0 4 0 8 4 9 7 5 0 6 2 3 2 3 7 1 6 2 4
9 6 7 4 2 0 1 3 5 3 0 9 0 1 4 0 4 4 4 5 0 2 1 7 6 2 5 4 9 7 1 6 5 4
9 6 9 4 2 0 2 4 0 3 1 2 8 9 4 0 5 9 0 5 0 2 4 2 6 2 7 1 3 7 1 9 2 1
Næstu útdrættir fara fram 17. jan. 24. jan. & 31.jan. 2008
Heimasíða á Interneti: www.das.is