Morgunblaðið - 11.01.2008, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 11.01.2008, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 43 EFTIRFARANDI þrjár kvikmynd- ir verða frumsýndar þessa helgina í almennum sýningum. Se, jie (Losti, varúð) Græna ljósið frumsýnir um helgina nýjustu mynd leikstjórans Ang Lee, sem áður hefur leikstýrt stórmyndum á borð við Brokeback Mountain og Skríðandi tígur, falinn dreki. Kvikmyndin ku vera æsi- spennandi erótískur þriller sem ger- ist í Sjanghæ stuttu fyrir heims- styrjöldina síðari. Myndin er byggð á smásögu kínverska rithöfundarins Eileen Chang en í aðalhlutverkum eru þau Tony Leung, einn þekktasti leikari Asíu, og Tang Wei, sem hefur verið á hraðri uppleið í asíska kvik- myndaheiminum. Stórfengleg kvik- myndataka og þung undiralda duldra ástríðna má að sjálfsögðu finna í þessari mynd að hætti leik- stjórans. The Mist (Mistrið) Í kjölfar óveðurs sem gengur yfir smábæ einn í Maine-fylki á austur- strönd Bandaríkjanna heldur David Drayton í bæjarferð eftir ýmsum nauðsynjavörum. Með í för er ungur sonur hans, Billy, og nágranni þeirra að nafni Norton. Á leiðinni verður þeim ljóst að ekki er allt með felldu eftir storminn, því í hvítu mistri sem óveðrið skildi eftir sig er hræðilegar hættur að finna sem eiga eftir að hafa skaðlegri áhrif en sjálft óveðrið. Þegar trúarleiðtogi bæjarins reynir að sannfæra bæjarbúa um að mistrið og hryllingurinn sem því fylgir sé refsing frá Guðs hendi rennur það upp fyrir Drayton að hann á ef til vill í höggi við tvo ólíka fjandmenn. Þoka þessi sprettur upp úr hug- arheimi tveggja gamalla kunningja, Stephen King sem skrifar bókina sem myndin er byggð á og Frank Darabont, sem hefur sérhæft sig í kvikmyndum eftir sögum King. Death at a Funeral (Dauðalvarleg útför) Það er ekkert grín að jarðsetja ástvin, eða hvað? Kvikmyndin Death at a Funeral er ein af þessum grág- lettnu bresku kvikmyndum þar sem háalvarlegu umfjöllunarefni er snúið á haus, svo úr verður bráðfyndin gamansaga um allt það sem mann- legt er. Sonurinn Daniel hefur lagt sig allan fram um að veita föður sín- um sómasamlega útför en það hefði hann ef til vill betur látið ógert. Óforbetranlegur bróðir, taugaveikl- uð frændfjölskylda og óvæntur gest- ur sem hótar því að ljóstra upp fjöl- skylduleyndarmálinu gera út um drauma Daniels um að kveðja föður sinn með virktum. Til að útförin endi ekki í fjöldamorði verður Daniel að taka höndum saman við bróður sinn og bjarga því sem bjargað verður. Alþjóð- leg kvik- mynda- helgi Líkkistugrín Útför ættföðurs fer í háaloft í Death at a Funeral, breskri gamanmynd með bandarískan leikstjóra, Frank Oz. Sjanghæ Sem fyrr er mikið lagt upp úr sviðsmyndinni hjá Ang Lee. Óhugnaður Margt leynist í þok- unni, enda hugfóstur Stephen King. FRUMSÝNINGAR HELGARINNAR» Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is „Sviðsetning Baltasars Kormáks á Ívanov er eitt besta verk hans frá upphafi. Hún er þaulhugsuð og samvinna þeirra Gretars Reynissonar hefur sjaldan borið glæstari ávöxt, og er þá ekki lítið sagt." Jón Viðar Jónsson, DV. Ívanov e. Anton Tsjekhov. Aðlögun og leikstjórn: Baltasar Kormákur sýn. fös. 11/1 & lau. 12/1 örfá sæti laus Óhapp! e. Bjarna Jónsson Allra síðasta sýn. lau. 12/1 Gott kvöld e. Áslaugu Jónsdóttur Sprellfjörug barnasýning í Kúlunni sýn. sun. 13/1 kl. 13.30 & 15 Konan áður e. Roland Schimmelpfenning Háski og heitar tilfinningar sýn. lau. 12/1, sun 13/1 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ „Þetta er „stundarfriður" okkar tíma og ég vona að sýningin fái engan frið fyrir æstum áhorfendum.” Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.