Morgunblaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 50. TBL. 96. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Febrúarsýning ÍD >> 37
Komdu í leikhús
Leikhúsin í landinu
Rannsóknir sýna að þeir sem
drekka mjólk að staðaldri eru
almennt grennri en þeir
sem ekki drekka mjólk.
ms.is
RISASAMNINGUR
SLEGIST VAR UM SÖLURÉTTINN AÐ
BRÚÐGUMA BALTASARS KORMÁKS >> 40
FRÉTTASKÝRING
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
ENN hefur ekki tekizt að mæla
nægilega mikið af loðnu til að
standa undir þeirri veiðireglu Haf-
rannsóknastofnunar að tryggja
nægilega hrygningu nú í vetur. Til
þess þarf 400.000 tonn. Það hníga
því öll rök að því að veiðar verði
bannaðar í dag. Það gæti þýtt að
loðnuafli í vetur verði aðeins um
30.000 tonn. Það yrði minnsti afli
frá því á árunum 1983, þegar engin
veiði var leyfð og árið áður, þegar
aflinn varð aðeins 13.000 tonn.
Í fyrra veiddu íslenzku skipin
með 20%, HB Grandi með 18%,
Vinnslustöðin og tengd fyrirtæki
með 12% og Eskja með um 10%.
Yfir þeim vofir því verulegt tekju-
tap.
En er staðan svona slæm? Mæl-
ingar Hafrannsóknastofnunar á
ungloðnu í hittiðfyrra bentu til
þess, samkvæmt útreikningum
hennar, að um 700.000 tonn af
loðnu gengju upp að landinu á
þessari vertíð. Fyrir vikið var gert
ráð fyrir að heildarveiði gæti orðið
um 300.000 tonn og hlutur Íslands
ríflega 200.000 tonn. Þessi ganga
hefur ekki skilað sér inn í mæling-
ar Hafró og annarra leitarskipa, en
í gærkvöldi var orðin nokkur veiði.
307.000 tonn og má reikna með því
að útflutningsverðmæti afurða þá
hafi verið nálægt 12 milljörðum
króna. Í gærkvöldi hafði verið til-
kynnt um 27.000 tonna afla til
Fiskistofu. Verði aflinn ekki meiri
en 30.000 tonn, verður útflutnings-
verðmæti að hámarki 1,2 milljarð-
ar króna. Það er tíundi hluti þess
sem var í fyrra. Verðmætatap frá
því í fyrra er tæpir 11 milljarðar.
Ljóst er að það verður þungbært
þeim sjávarútvegsfyrirtækjum og
byggðarlögum, sem mest hafa reitt
sig á loðnuna. Síldarvinnslan og
Samherji eru nátengd og þessi tvö
fyrirtæki eru með um 30% loðnu-
heimildanna. Næst koma Ísfélagið
Loðnuveiðar væntan-
lega stöðvaðar í dag
Milljarða króna tekjutap vofir yfir fyrirtækjum í veiðum og vinnslu á loðnu
VÍKINGUR Heiðar Ólafsson píanó-
leikari og flautuleikarinn Denis
Bouriakov sem fæddur er á Krím-
skaga héldu tónleika fyrir fullu
húsi í Salnum í Kópavogi í gær-
kvöldi. Þrátt fyrir ungan aldur er
Víkingur einn fremsti tónlistar-
maður landsins en Bouriakov er tal-
inn einn besti flautuleikari heims af
ungu kynslóðinni.
Að sögn Ríkarðs Arnar Páls-
sonar, tónlistargagnrýnanda Morg-
unblaðsins, voru tónleikarnir mjög
góðir. „Þetta var bráðvel heppnað,
það var ekkert sem skyggði á og
þetta var nákvæmlega það sem
fólkið ætlaðist til. Þetta heppnaðist
fullkomlega,“ sagði Ríkarður. Árvakur/Frikki
„Þetta
heppnaðist
fullkomlega“
Ungir tónlistarmenn fóru á kostum á tónleikum í Kópavogi
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÓLÍFUGRÆN hermannahúfan komst fljótt
í tísku meðal vinstrisinna í Bandaríkjunum
eftir að Fidel Castro tók völdin á Kúbu fyrir
hartnær hálfri öld og gerði þéttvafða vindla
að vörumerki sínu.
Snjáð húfan og kjálkaskeggið kunna nú að
komast aftur í tísku eftir að leiðtoginn skýrði
frá því að hann myndi ekki sækjast eftir
embætti Kúbuforseta framar vegna veik-
inda, eftir um hálfa öld á valdastóli.
Byltingarleiðtoginn var Bandaríkjamönn-
um frá upphafi til mikils ama og frá því John
F. Kennedy Bandaríkjaforseti reyndi að
kollvarpa stjórn hans í misheppnaðri innrás í
Svínaflóa árið 1961 hefur Castro staðið af sér
samtals tíu Bandaríkjaforseta og fjölmörg
banatilræði af hálfu bandarísku leyniþjón-
ustunnar, CIA.
Líklega er besti mælikvarðinn á hinn
langa valdaferil Castros sú staðreynd að arf-
taki hans stendur frammi fyrir allt annarri
veröld en þeirri sem blasti við leiðtoganum
þegar hann steypti stjórn Fulgencio Batista,
árið 1959.
Stalín þá nýlega fallinn frá
Það ár voru fjögur ár liðin frá því blökku-
konan Rosa Parks neitaði að standa upp fyr-
ir hvítum manni í strætisvagni – nú þegar
blökkumaðurinn Barack Obama sækist eftir
embætti Bandaríkjaforseta – og sex ár síðan
Rússar sprengdu fyrstu vetnissprengjuna
sína 1953. Sama ár safnaðist Stalín til feðra
sinna, sjö árum áður en Churchill gerði hug-
takið „járntjald“ frægt í ræðu. | Miðopna
Ný veröld
arftaka
Castros
AP
Leiðtogi Castro á meðal Kúbverja á 1.
maí-hátíðahöldunum í Havana árið 2003.
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
FJÁRMÁLAGEIRINN hefur hafið
uppsagnir á starfsfólki, sem reynd-
ar hafa legið í loftinu frá því um
áramót. Þannig sagði Glitnir upp
tveimur starfsmönnum á fyrir-
tækjasviði Glitnis fyrir síðustu mán-
aðamót og síðan hefur um 20 starfs-
mönnum bankans á Íslandi verið
sagt upp, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins. Jafnframt herma
heimildir Morgunblaðsins að um 40
starfsmenn Kaupþings eigi uppsögn
yfir höfði sér.
Forsvarsmenn bankanna í sam-
vinnu við yfirmenn einstakra deilda
og útibúa munu hafa farið yfir þessi
mál af kappi á undanförnum vikum.
Glitnir hefur ákveðið að loka
útibúi sínu í Smáralind og funduðu
forsvarsmenn bankans um þá
ákvörðun með starfsfólki í síðustu
viku. Þá hefur Glitnir ákveðið til-
færslur í Noregi sem þýða fækkun
starfsmanna um allt að 20. Það eru
því nálægt 40 manns sem Glitnir
hefur sagt upp að undanförnu á Ís-
landi og í Noregi, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að fjármálastofnanir hafi þurft að
grípa til þessara ráða vegna þeirra
aðstæðna sem eru á markaði. Það
sé alltaf erfitt að grípa til svona
ráðstafana, en miðað við núverandi
stöðu hafi ekki verið um annað að
ræða.
Ekki náðist í forsvarsmenn Glitn-
is, Kaupþings eða Landsbankans í
gærkvöldi.
Uppsagnir eru hafnar
Í HNOTSKURN
»Uppsagnir Glitnis að undan-förnu eru um 40 talsins.
»Uppsagnir fjármálafyrir-tækja hafa legið í loftinu frá
því um áramót.