Morgunblaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 15 MENNING SÖNGDEILD Tónlistarskóla FÍH setur um þessar mundir upp tónleikauppfærslu á öllum helstu sálar-lögum fyrri ára- tuga, og bera tónleikarnir nafnið Sálarmessa. Frumsýnt verður annað kvöld, fimmtu- dagskvöld, en alls verður boðið upp á ferna tónleika. Meðal þeirra sem koma fram eru Ína, Bryndís Jakobsdóttir, Svenni í Luxor og Bríet Sunna. Hljóm- sveitin sem undir spilar samanstendur af nem- endum úr skólanum, en tónlistarstjóri er Samúel Jón Samúelsson. Miðasala fer fram á midi.is, miðaverð er 1.500 krónur og nánari upplýsingar um tónleikana má finna á nffih.com. Tónlist Söngdeild setur upp sálarmessu Samúel Jón Samúelsson MIKILL áhugi hefur verið á sýningunni Vatnsmýri, 102 Reykjavík, sem opnuð var í Hafnarhúsinu sl. fimmtudag. Síðasti sýningardagur er á morgun, fimmtudag, en í kvöld verður opið lengur, til kl. 22. Hafnarhúsið er opið öll fimmtudagskvöld til kl. 22, en kl. 17 á morgun mun Massimo Santanicchia arkitekt halda fyrirlestur um fagurfræði og tíðaranda í skipu- lagi borga í fjölnotasal Hafnarhússins. Eftir að sýningunni lýkur munu vinningstillögurnar verða til sýnis í skála hjá skipulags- og bygging- arsviði í Borgartúni. Aðgangur að sýningunni er ókeypis. Skipulag Vatnsmýri, 102 Reykjavík Frá sýningunni. NÆSTA rannsóknarkvöld Fé- lags íslenskra fræða verður haldið í húsi Sögufélagsins, Fischersundi 3, kl. 20 annað kvöld. Þar flytur Kristján Ei- ríksson erindi sem hann nefnir Ljóðmæli Einars í Eydölum og útgáfur bundins máls frá lær- dómsöld. Í erindinu mun Krist- ján meðal annars fjalla um nýja útgáfu ljóðmæla Einars Sigurðssonar í Eydölum, sem kom út á vegum Árnastofnunar skömmu fyrir jól, ræða nokkuð um helstu einkenni á skáldskap Ein- ars og þýðingu hans í íslenskri bókmenntasögu. Kristján er verkefnisstjóri á handritasviði Stofn- unar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Bókmenntir Ljóðmæli Einars í Eydölum Kristján Eiríksson FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÍSLENDINGAR hafa tekið að sér hlutverk ábyrgðaraðila í raðtilnefn- ingu menningarminja frá tímum víkinga á heimsminjaskrá UNESCO en Þingvellir eru eini staðurinn á Íslandi á heimsminja- skránni enn sem komið er. Með rað- tilnefningu er átt við að tilnefndar verði minjar um sama menningar- fyrirbæri frá mörgum stöðum og ef mörg lönd koma að þeim er talað um alþjóðlega raðtilnefningu. Mörg lönd koma að verkefninu auk Íslands, þ.e. sambandslandið Slésvík-Holstein, Danmörk, Svíþjóð og auk þeirra hafa stjórnvöld í Kan- ada og Noregi fylgst með fram- vindu mála og hugsanlegt að þau verði með í ferlinu. Það mun að öll- um líkindum koma í ljós á næstu vikum. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra hélt í upphafi þessa mánaðar blaða- mannafund í Kiel með forsætisráð- herra Slésvíkur-Holsetalands, Pet- er-Harry Carstensen, og menningarmálaráðherra, Caroline Schwarz. Í ræðu Þorgerðar á fundinum kom m.a. fram að fjórir staðir væru þegar komnir á heimsminjaskrá UNESCO sem tengjast menningu víkinga, þ.e. konungssetrið og rúna- steinninn í Jyllinge í Danmörku, kaupstaðurinn Birka í Svíþjóð, Þingvellir á Íslandi og landnema- byggð víkinga í Kanada, L’Anse aux Meadows. Nokkurra ára vinna að baki Mikið er um víkingaminjar í Slés- vík-Holsetalandi. Ísland hefur unn- ið að þessu verkefni um nokkurra ára skeið með Þjóðverjum en heimsminjanefnd Íslands stýrir verkefninu hér og vinnur um þessar mundir að fundi um víkingaminjar sem halda á á þessu ári með fulltrú- um landanna fyrrnefndu. Í Heimsminjanefnd sitja Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og formaður nefndarinnar, Sæunn Stefánsdóttir viðskiptafræðingur og Össur Skarphéðinsson iðnaðar- ráðherra. Ríkisstjórnin samþykkti í fyrra tillögu að nýrri yfirlitsskrá yf- ir fyrirhugaðar tilnefningar Íslands á heimsminjaskrá UNESCO. Í skránni er Breiðafjörður nefndur með tilnefningu í huga til náttúru- og menningarminjasvæðis og í flokki menningarminja eru íslensk- ar torfbyggingar ásamt tengdu bú- setulandslagi (raðtilnefning) og svo víkingaminjar. Samkvæmt upplýsingum frá for- manni heimsminjanefndar er vinna hennar rétt að hefjast og því liggur ekki fyrir formlegur listi yfir til- nefningar. Danir, Þjóðverjar og Ís- lendingar hafa hist á tveimur fund- um og rætt málið og þá m.a. með tilliti til uppbyggingar verkefnisins og draga að kostnaðaráætlun. Frá árslokum 2005 hafa verið haldnir nokkrir fundir milli fulltrúa Slés- víkur-Holsetalands og Íslands um það hvernig standa eigi að tilnefn- ingunni og hvaða lönd vilji hugs- anlega vera með í henni. Í febrúar 2006 var svo haldið mál- þing í Osló þar sem rætt var um menningu víkinga og tóku þátt í því helstu fræðimenn á því sviði frá Norðurlöndum. Einnig sátu það fulltrúar stjórnvalda frá Íslandi og Danmörku sem fara með heims- minjamál. Helsta verkefni heims- minjanefndarinnar íslensku er und- irbúningur að tilnefningu íslenskra staða á heimsminjaskrá og að gera tillögu til menntamálaráðherra um framtíðarskipan verkefna á sviði heimsminjamála. Einstakir á heimsvísu UNESCO gerir kröfu um það að hinir tilnefndu staðir séu einstakir á heimsvísu og hafi mikla þýðingu fyrir heimsbyggðina. Samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðu- neytinu má minjunum mjög lítið hafa verið raskað og þurfa að liggja fyrir samanburðarrannsóknir á þeim og öðrum svipuðum til að sanna einstætt gildi þeirra. Því koma sérfræðingar á ýmsum svið- um að þessum tilnefningum og það ætti að koma í ljós fljótlega hvaða lönd taka þátt í raðtilnefningunni og hvaða staðir verða fyrir valinu. Unnið að skrá yfir víkingaminjar  Fjórir staðir eru þegar komnir á heimsminjaskrá UNESCO sem tengjast menningu víkinga, þeirra á meðal Þingvellir  Unnið að fleiri tilnefningum Árvakur/Ómar Öxarárfoss að hausti Þingvellir eru eini staðurinn hér á landi sem kom- inn er á heimsminjaskrá UNESCO. Vinna að tilnefningu er langt og strangt ferli og þarf yfirlitsskrá yfir mögulega staði fyrst að liggja fyrir. Í HNOTSKURN » Hlutverk Heimsminja-nefndar Íslands er að vera vettvangur stjórnvalda um fram- fylgd samnings UNESCO frá árinu 1972 um menningar- og náttúruarfleifð heimsins, sem staðfestur var af Íslands hálfu árið 1995. » Sérhverju aðildarríkiUNESCO-samningsins um verndun menningar- og nátt- úruminja heims ber að leggja fyrir Nefnd um arfleifð þjóða heims yfirlitsskrá yfir menning- ar- og náttúruminjar, sem við- komandi ríki telur einstakar á heimsvísu. » Fulltrúar Íslands munu af-henda tilnefningarskjöl að víkingaminjum, fyrir hönd allra aðildarlanda sem þátt taka í verkefninu, heimsminjaskrif- stofu UNESCO og stefnt að því að það verði fyrir 1. febr. 2010. ÍSLAND kvað fyrst þjóða hafa viðurkennt endurheimt sjálfstæði Eistlands fyrir um 20 árum (hið fyrra var 1918–40). Það framtak skilaði sér með fagurtónrænum hætti á sunnu- dag þegar Kammerkór eistnesku Fíl- harmóníunnar sótti okkur heim í Salnum þar sem m.a. var frumflutt þjóð- argjöf til Íslend- inga, útsetning Tönu Korvits á þrem íslenzkum þjóðlögum. Með hliðsjón af því og ótvíræð- um kostum kórsins var tvennt of- urlítið pínlegt við móttökuna. Ekki hvað undirtektir varðar sem voru afar góðar að verðleikum, heldur hvað snertir hálfþurran hljómburð Salarins er seint verður talinn kjörvettvangur kórsöngs. Einnig hefði aðsóknin mátt vera í nánara samræmi við flutningsgæði. En slíkt er að vísu ekki einsdæmi þeg- ar fremur lítt kunna listamenn ber að garði við takmarkaða kynningu. Enn sem oftar má sakna óvilhallra málsmetandi skipulagsaðilja er þurfa ekki sjálfir að slá mynt af komum erlendra hljómlist- armanna. En það tjóir víst ekki að fást um það í núríkjandi tröllatrú á hráum markaðslögmálum. Líkt og á Skálholtstónleikum einkenndist dagskráin ýmist af forntónverkum og nýjum, en með enn stærra tímabili, því að elztu verkin voru sléttsöngs– og org- anumverk frá hámiðöldum, hin yngri frá 20. öld til í dag, og ekk- ert þar á milli. Fyrrtöld atriði (nema Dolorum solatium eftir ást- mög Héloise, Pierre Abélard) voru eftir ókunna höfunda, og var Dol- orium ásamt Audi tellus sungið af karlasextett en Fletus et stridor dentium og Heu, teneri partus (at- riði úr helgileik frá Fleury– handritinu) sungið af 11 kvenna hluta kórsins og fluttu konur sitt án stjórnanda. Má óhætt fullyrða að sjaldan hafi bragðmeiri gregorssöngur hljómað hér fyrr en nú, enda allt frá hvíslandi dulúð í rífandi dramatík. Nútímalegast var Kolm islandi laulu [8’], frjálsleg útfærsla Tönu Korvits (f. 1969) á Verndi þig engl- ar, Krummi svaf í klettagjá og Ís- land farælda frón, er með kröfu- harðri beitingu á m.a. klasa- hljómum má segja að hafi í síðasttöldu tilviki fært íslenzka tví- sönginn fram á öreinda atómöld. Djarft með farið – en gekk samt upp, þökk sé miðli sem gat sungið hvaðeina sem fyrir hann var lagt. Þarna, sem í 7 Magnificat– Antiphonen og Magnificat Arvos Pärts og tveimur kórlögum Marts Saars í lokin, mátti greinilega heyra alvöru-atvinnukór í essi sínu, ólíkt því sem við eigum að venjast. Kór sem spannaði mun stærra styrksvið en gengur og gerist, í fullkomnu raddsamvægi (og karlraddir engir eftirbátar kvenradda), eða, sem smekkmaður orðaði það í hléi, „eitt samstillt hljóðfæri“. Hjó maður m.a. eftir óvenju safaríkum öltum og nærri rússneskum (ef ekki tíbezkum) profundo bössum. Tónleikaskráin var vel búin text- um á frummálum og íslenzku, en hefði að ósekju einnig mátt gefa verkunum gaum, enda óneitanlega sjaldheyrð á okkar fjörum. Tvísöngur á atómöld TÓNLIST Salurinn Miðaldaverk eftir m.a. Abélard; eistnesk verk eftir Korvits, Pärt og Saar. Kammer- kór Fílharmóníunnar á Eistlandi. Stjórn- andi: Daniel Reuss. Sunnudaginn 17. febrúar kl. 20. Kórtónleikarbbbbb Ríkarður Ö. Pálsson Arvo Pärt Besta þjónusta farsímafyrirtækja Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2007

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.