Morgunblaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Engin sorgleg
sambandsslit
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
FONS, eignarhaldsfélag í eigu
þeirra Pálma Haraldssonar og Jó-
hannesar Kristinssonar, hagnaðist
um 4,7 milljarða króna, eftir skatta á
liðnu ári, að sögn Pálma Haraldsson-
ar.
Hann kveðst í samtali við Morg-
unblaðið hafa ákveðið að upplýsa um
afkomu sl. árs, í kjölfar fréttaflutn-
ings 24ra stunda í liðinni viku.
„Það var reynt með ómaklegum
hætti að ráðast á mig og mitt félag,
og þessar upplýsingar eru svar Fons
við þeirri árás,“ segir Pálmi.
„Nettóhagnaður okkar á liðnu ári
var rúmir 4,7 milljarðar króna, þ.e.
hagnaður eftir skatta, en fyrir skatta
var hagnaðurinn
rúmir sjö millj-
arðar króna,“
sagði Pálmi.
Fons varð fyrir
skakkaföllum
Hann kveðst
telja þessa út-
komu félagsins á
liðnu ári ágæt-
lega viðunandi, einkum þegar horft
sé til þess hversu erfiður seinni hluti
ársins 2007 reyndist mörgum. „Við
hjá Fons urðum fyrir skakkaföllum
eins og aðrir og fórum sannarlega
ekki varhluta af þeim, en unum sáttir
við þessa útkomu,“ sagði Pálmi.
Pálmi upplýsir jafnframt að eigið
fé Fons í árslok 2007 hafi numið
rúmum 40 milljörðum króna og eig-
infjárhlutfallið hafi verið um 40%.
Heildareignir félagsins hafi þannig
numið um 100 milljörðum króna um
síðustu áramót.
Aðspurður hvort Fons muni hafa
þann háttinn á í framtíðinni að upp-
lýsa um árlega afkomu félagsins
sagði Pálmi: „Við munum að sjálf-
sögðu fara að lögum og senda inn
ársreikninga. Það að okkur láðist að
skila inn ársreikningum var ekkert
annað en mistök af okkar hálfu. Við
bara gerðum mistök, eins og um
9.700 önnur fyrirtæki í landinu. Hér
var ekki um neitt ásetningsbrot að
ræða, heldur trassaskap. Að sjálf-
sögðu munu menn geta fylgst með
afkomu félagsins í gegnum Árs-
reikningaskrá í framtíðinni.“
Hagnaður Fons tæp-
ir 5 milljarðar 2007
Hagnaður fyrir skatta rúmir 7 milljarðar króna Eigið fé í árs-
lok 2007 rúmir 40 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall um 40%
Pálmi Haraldsson
ENN á ný hefur
eldsneytisverð
hækkað en það
hefur aldrei
mælst jafnhátt
hér á landi og nú.
N1 reið á vaðið í
fyrradag og
fylgdu Skeljung-
ur, Olís og ÓB eft-
ir í gær. Bensínið hækkaði um 90
aura og dísilolían um rúma krónu og
kostar bensínið hjá stóru olíufélög-
unum þremur nú 138,8-138,9 kr. og
dísilolían 143,6 kr.
Að sögn Runólfs Ólafssonar, fram-
kvæmdastjóra Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda (FÍB), má gera ráð fyr-
ir að þau félög sem eftir eru hækki
gjaldskrár sínar í dag.
Vill að eldsneytisskattar lækki
Runólfur segir heimsmarkaðs-
verðið vera óvenjuhátt um þessar
mundir og hafi bensínverðið hækkað
lítillega á hverjum degi síðustu daga
og að sama skapi hafi dísilolían einn-
ig hækkað í verði.
FÍB hefur óskað eftir því við
stjórnvöld að þau grípi inn í og lækki
skatta á eldsneyti, þó ekki væri
nema tímabundið, og sendi félagið
ítrekun þess efnis í síðustu viku. Um
helmingur af útsöluverði hvers bens-
ínlítra rennur í ríkissjóð. Þá hefur
FÍB gert athugasemdir við álögur
olíufélaganna en félagið telur þau
hafa hækkað álögur sínar umfram
verðlagsþróun.
Bensínverð
aldrei verið
jafnhátt
SAMKOMULAG náðist í gær um
nýjan kjarasamning milli Póst-
mannafélags Íslands og Íslandspósts
hf. Í honum er kveðið á um að samn-
ingsbundnir launataxtar hækki um
18.000 kr. á mánuði frá 1. febrúar
2008, 13.500 kr. frá 1. mars 2009 og
6.500 kr. frá 1. janúar 2010. Samn-
ingarnir gilda til 30. nóvember 2010.
Samningarnir fela einnig í sér
ákvæði um önnur aukin réttindi, s.s.
aukin orlofsréttindi, aukinn rétt
vegna veikinda barna, bættar slysa-
tryggingar og uppsagnir ráðningar-
samninga.
Sátt náðist
um ný kjör
♦♦♦
GAMAN er að útdeila gæðum heimsins, eða í það
minnsta hluta þeirra. Því kynntust krakkar af leikskól-
anum Klömbrum á Háteigsvegi sem gerðu sér ferð nið-
ur að Reykjavíkurtjörn og gáfu öndum brauð.
Árvakur/Valdís Thor
Margir munnar að metta við Tjörnina
HANNA Birna Kristjánsdóttir nýtur
yfirburðastuðnings aðspurðra í emb-
ætti borgarstjóra þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn tekur við því á næsta ári.
Þetta er niðurstaða Capacent-könn-
unar sem gerð var í síðustu viku en
sagt var frá henni á Stöð 2 í gær.
Spurt var: „Samkvæmt samkomu-
lagi borgarstjórnarflokka Sjálfstæð-
isflokksins og Frjálslyndra mun emb-
ætti borgarstjóra koma í hlut
Sjálfstæðisflokksins síðar á þessum
kjörtímabili. Hvaða borgarfulltrúi
sjálfstæðismanna vilt þú helst að taki
við embætti borgarstjóra?“ Af þeim
sem tóku afstöðu sögðust tæp 44%
vilja Hönnu Birnu en meðal þeirra
sem sögðust styðja Sjálfstæðisflokk-
inn naut hún meira fylgis eða 55%.
Næstur kom Gísli Marteinn Baldurs-
son með 17% og þá Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson með 8,2%. Júlíus Vífill
Ingvarsson, Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir, Jórunn Frímannsdóttir og
Kjartan Magnússon, fengu minna
fylgi.
„Þessi stuðningur skiptir mig auð-
vitað máli og ég er þakklát fyrir
hann,“ segir Hanna Birna. „Hins veg-
ar ber að minna á það að Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson er enn þá oddviti okk-
ar og hann nýtur stuðnings okkar.
Það er því í raun
ekki tímabært að
bregðast við þess-
ari niðurstöðu
enda er verið að
fara yfir þessi mál
á okkar vettvangi.
Ég mun styðja
ákvörðun Vil-
hjálms en fari svo
að hann kjósi að
taka ekki við emb-
ætti borgarstjóra mun ég að sjálf-
sögðu ekki víkja mér undan því enda
sit ég í 2. sæti framboðslistans líkt og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson gerði þeg-
ar hann tók við af Birni Bjarnasyni á
sínum tíma,“ segir hún. Ekki náðist í
Gísla Martein eða Vilhjálm í gær-
kvöldi. Úrtak í könnuninni var 1.800
manns í Reykjavík. 1.115 svöruðu og
tóku 880 afstöðu til spurningarinnar.
Flestir vilja sjá Hönnu
Birnu í sæti borgarstjóra
Hanna Birna 43,9% Gísli Marteinn 17% Vilhjálmur 8,2%
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Gísli Marteinn
Baldursson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
SAMFYLKINGIN hefur viðrað
hugmyndir um að hætt verði að út-
hluta byggðakvóta eins og gert hef-
ur verið og að hann verði boðinn
upp þess í stað. En hvað er byggða-
kvóti?
Samkvæmt lögum hefur sjávarút-
vegsráðherra heimild til þess að út-
hluta ákveðnu magni aflaheimilda
til byggðarlaga, sem af ýmsum
ástæðum hafa farið halloka í sjávar-
útvegi. Byggðakvóti og úthlutun
hans er nokkuð flókið fyrirbæri,
sem byggist á lögum um stjórn fisk-
veiða og reglugerðum settum af
sjávarútvegsráðherra. Úthlutunin
hefur oftar en ekki valdið töluverð-
um deilum. Ríflega 4.000 þorsk-
ígildistonn eru til skipta og kemur
fremur lítið í hlut hvers byggðar-
lags. Við úthlutun til byggðarlaga
er í raun miðað við tvo meginþætti.
Sá fyrri er eins konar punktakerfi
og seinni þátturinn er eins konar
skyndihjálp, og er hugsaður til út-
hlutunar byggðarlaga sem hafa orð-
ið fyrir áföllum vegna stöðvunar til-
tekinna veiða.
Ómótaðar tillögur
Það er hvort tveggja ljóst að
byggðakvótinn hefur verið umdeild-
ur og að hann hefur víða komið sér
vel. Sums staðar skiptir hann minna
máli. Því getur verið að hugmyndir
Samfylkingarinnar um að setja
byggðakvótann á uppboð, geti leyst
einhvern vanda. En á því kunna
einnig að vera annmarkar að sögn
Einars K. Guðfinnssonar sjávarút-
vegsráðherra. Vera kann að veikar
byggðir, sem þurfa á byggðakvót-
anum að halda, nái ekki að kaupa til
sín aflaheimildir á uppboðum í sam-
keppni við öflugri byggðarlög. Um
það er lítið hægt að segja á þessu
stigi, þar sem tillögur Samfylking-
arinnar um mögulega framkvæmd
liggja ekki fyrir. Það á eftir að
koma í ljós hvernig hugsanlegu
uppboði gæti verið háttað. | 12
Byggða-
kvóti á
uppboð?
Hugmyndir um
breytingar ómótaðar