Morgunblaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 36
Það hljóp mikið kapp í menn og sumir görg- uðu á mig í símann að fara að loka samningum … 40 » reykjavíkreykjavík LIÐ Kvennaskólans og Mennta- skólans við Hamrahlíð lögðu bæði fram kæru eftir viðureign liðanna í sjónvarpi sl. föstudag, í spurn- ingakeppni framhaldsskólanna í Gettu betur. Kvennaskólinn kærði þann dóm Páls Ásgeirs Ásgeirs- sonar, dómara keppninnar, að svar liðsins við því hversu marga Jesú hefði mettað með brauðum og fisk- um hefði verið rangt. Liðið sagði 5.000 hafa verið mettaða með fimm brauðum og tveimur fiskum sem er rétt. Kæran var tekin fyrir í fyrra- dag og ákveðið að halda úrslitum óbreyttum. Kæru MH var vísað frá en hún sneri að því að „skilja“ væri það sama og „skilvinda“. Páll Ásgeir segir óumdeilt að mis- tök hafi verið gerð en ekkert frekar sé um málið að segja. Undir lok við- ureignarinnar föstudaginn sl. voru liðin jöfn að stigum, 27-27, og voru því úrslit fengin í bráðabana. MH fór með sigur af hólmi í honum. Ekki er víst hvernig farið hefði, hefði Kvennó verið dæmt stig fyrir svarið um kraftaverk Jesú og engu hægt að slá föstu um það. Þórdís Inga Þórarinsdóttir, einn þriggja liðsmanna í Gettu betur liði Kvennó, segist vona að þetta gerist ekki aftur og að það sé leiðinlegt fyr- ir Pál Ásgeir að hafa gert þessi mis- tök, að hafa snúið við fjölda fiska og brauða. „Við ætlum í raun og veru ekki að gera neitt meira í þessu,“ segir Þórdís Inga, spurð hvort frek- ari aðgerða sé að vænta hjá Kven- skælingum og það sé leiðinlegt fyrir MH að sigra með þessum hætti. Kvennó fékk ekki stigið Árvakur/Frikki Lið Kvennó Jörgen Már, Þórdís Inga og Gísli Erlendur.  Það verður ekki annað sagt en að söngatriði vöðvabúntanna í Mercedes Club sé farið að líkjast allverulega atriði Silvíu Nætur um árið. Gilzenegger og félagar fara um víðan völl með stórar yfirlýsingar um eigið ágæti á tónlistarsviðinu og dugir þá ekkert minna en að vitna til tónvísi for- feðranna. Það getur þó varla talist frumlegt að apa eftir Silvíu sem ap- aði eftir Johnny Naz sem apaði eftir Ali G og af þögn Barða Jóhanns- sonar sem samdi þetta annars stór- skemmtilega lag, má skilja að hann hafi lítinn áhuga á að taka þátt í leikritinu. Hitt er svo annað mál að atriðin sjálf vega þungt þegar sig- urlagið er valið af áhorfendum og því þarf ekki síður að huga að sjón- ræna þættinum. Sem þýðir svo aft- ur að Gilzenegger þarf helst að fá aðra kennslustund hjá Valda í Jeff Who? í því hvernig best er að þykj- ast spila á hljómborð. Silvía Nótt breytist í stælta karlmenn  Rokksveitin We Made God sem hafnaði í þriðja sæti Músíktilrauna árið 2006 fær frábæra dóma í hinu víðlesna tónlistartímariti Q fyrir fyrstu plötu sveitarinnar As We Sleep. Fær platan heilar fjórar stjörnur af fimm og segir m.a. í dómi gagnrýnanda að sveitin dragi áhrif jafnt frá himnastefum Sigur Rósar og myljandi rokki Deftones. Samkvæmt We Made God kemur platan í búðir eftir tvær vikur og þá má telja líklegt að í hönd fari kynn- ingartónleikaferð hér innanlands og ef til vill utanlands í framhaldi af því. Himneskir dómar Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SAMKVÆMT vefsíðu Hayseed Dixie varð sveitin til fyrir hálfgerða slysni. Þannig var að meðlimir ólust upp í afskekktum hlíðum Appalasíufjalla úr tengslum við umheiminn. Dag einn keyrði óþekktur maður í gegnum bæ Hayseed Dixie- liða; lenti á miklum og gildum trjástofni og lét samstundis lífið. Undir sæti bílstjórans fundu piltarnir vínylplötur með hljómsveitinni AC/DC. Piltar hófu að æfa upp lögin með mandólínum og hárgreiðum og sjá … hljómsveitin varð til. Í einu af fyrstu viðtölunum við hinn siðmenntaða heim sagði leiðtoginn Barley Scotch: „Ég komst að því að týndi þjóðvegurinn sem Hank Williams var að syngja um og þjóðveg- urinn til helvítis sem þessi ástralska hljómsveit syngur um eru einn og sami vegurinn!!!“ Eftir að hafa gramsað lítillega á netinu komst sá er skrifar að því að ofangreint er allt saman helv. … lygi og Barley Scotch (hvers nafn er John Wheeler) dvelur í góðu yfirlæti í Nashville þaðan sem sveitin gerir út. Sáttasemjarar Hayseed Dixie á nú að baki nokkrar plötur þar sem rokkslagarar eru dregnir af mikilli list í gegnum blágresið. Sveitin ku víst mögnuð tón- leikasveit og fékk sjálf AC/DC hana til að spila í eftirpartíi einhverju sinni. „Ég skil vel gagnrýnina sem við höfum fengið, að þetta sé einn langur brandari,“ segir Wheeler glaðlegri röddu. „En ég man þegar ég fór á Van Halen- og AC/DC-tónleika í gamla daga. Þá var gleðin fyrst og síðast málið. Og eftirspurnin eftir gleðinni sem við bjóðum upp á virðist þrotlaus, einhverra hluta vegna.“ Rokksveitir frá Nashville hafa í gegnum tíðina kvartað yfir því að það sé erfitt að gera út þaðan, ægivald hins hreina kántrís sé mikið og það sé litið niður á þær. Hayseed Dixie þræða því bil beggja, eru jafnvel sáttasemjarar? „Jú jú, maður hefur heyrt um þessar umkvart- anir. En ég meina, það er erfitt að vera í rokk- hljómsveit, punktur,“ segir Wheeler. „Það er hins vegar eitt hérna sem setur á mann pressu og það er hið mikla framboð af framúrskarandi spilurum. Staðallinn er mjög hár þannig að það er eins gott að þú haldir vel á spöðunum. Gaur- inn sem kemur með pitsuna þína er mjög líklega betri gítarleikari en þú sjálfur.“ Dýr bjórinn Wheeler er hress og hispurslaus og segir að ein af ástæðunum fyrir því að hann ákvað að reyna að lifa af tónlist sé tækifærin sem hann fái til að ferðast. Ísland í febrúar hljómar því eins og kántrískotin gospelsöngur í hans eyrum og hann er áfjáður í að hitta blaðamann í góðu gríni. „Komdu og hittu okkur. Ég skal miskunna mig yfir þig og gefa þér nokkra bjóra … er hann ekki svo hrikalega dýr?“ Bárujárnskántríið blífur Sveitadurgar Hayseed Dixie á að baki nokkrar plötur og ku víst mögnuð tónleikasveit. Sjálf AC/DC fékk hana til að spila í eftirpartíi einhverju sinni. Það er þó ekki selt dýrara en það er keypt. Tónleikar Hayseed Dixie fara fram á NASA sunnudaginn 24. febrúar. Miðasala fer fram á midi.is. Um upphitun sér hin alíslenska köntrí- sveit Baggalútur og hljómveitin Dr. Gunni. Kántríþungarokkssveitin Hayseed Dixie treður upp á NASA nú á sunnudaginn. Morgunblaðið ræddi við for- sprakkann, sem var að sjálf- sögðu á línunni beint frá Nashville, Tennessee. ■ Á morgun kl. 19.30 – Örfá sæti laus Sellósnillingur í toppformi Daniel Müller-Schott, ein skærasta stjarna sellóheimsins í dag, leikur einleik í byltingarkenndum konsert Haydns. Einnig eru á dagskrá forleikur Töfraflautunnar eftir Mozart og Sveitasinfónía Beethovens. Stjórnandi: Eyvind Aadland Einleikari: Daniel Müller-Schott Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á Hótel sögu kl. 18. fyrir tónleikana. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir. ■ Fim. 28. febrúar kl. 19.30 Liszt og Bruckner Tveir stórmeistarar hvor á sínu sviði. Flutt verða píanókonsert eftir Liszt og sinfónía eftir Bruckner. ■ Fim. 6. mars kl. 19.30 Gamalt og nýtt Enginn vill missa af Sigrúnu Eðvaldsdóttur leika hinn magnaða fiðlukonsert Albans Berg. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.