Morgunblaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.02.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                          !" #         $         4  "5     . "5 6$. 7*8 .  &  "      #%&'%()*+ &&,-%'%()*+ "./*+ 0'%()*+ '1/ /%2 &/*+ 3+"/4&/)+51671  891 /%'%()*+ :()/ 6 &*+ 0 2 &/71 *+ %1*+ !;<  !%(4(%=(%>%?@?%+2*+ A4/*+ B(%*+     C$*+ #1+9*+ #1 /9#/%A #1 /9;%1(4;D "/& &/ 16'%()*+ E%A 891 /9'%()*+ F*%@/*+ %A66/ 64/>->/ *+ G/ 1(->/ *+   !" # H (%A#1(4/ (4 3'% /*+ 34)/>@ *+ $%& ' (                                                                       G/>&/) 6 /12>I1&6 :()!1 K $  $$K  C $  K  K   KK C  K   C C C $$$CC   K  $K $ $K $ K   C  CCK $     C $C C K $ = = = $ K  = = KL $LK L L L L$ $L $ K L L$ L $LC L $ $LC L$ L L K L $$L C L L C$L CL = = = $L = = KL L L$ L L $ C L L K $L L L$ $L L$C $LC L L L$ CL$ $ L C L L $ CL$ CL $ CL = = C$L = L @-1/ ,/>&/)  K   CC $ = = K = = =  = = 6 ,/>&,%>                                                                        K  K    $      GREINING Glitnis spáir því að hag- vöxtur á þessu ári verði enginn, þ.e. að landsframleiðsla verði að raun- gildi hin sama og á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri þjóðhagsspá bankans sem kynnt var í gær undir yfirskriftinni „Kólnar heitt ef köldu er blásið.“ Þar segir jafnframt að ár- ið muni markast af „nokkuð örri þró- un í átt til innra og ytra jafnvægis eftir ójafnvægi undanfarin misseri.“ Auk þess muni aðlögun að jafnvægi einkenna næstu ár; innlend eftir- spurn muni taka við sér á ný á næsta ári með lægri vöxtum auk þess sem aðgengi að lánsfé verður betra sem og horfur á eignamörkuðum, kaup- máttur vaxi og fjárfestingar í iðnaði aukist. Því er spáð að hagvöxtur muni aukast í 3% á næsta ári og 4-5% á árunum 2010-2011. Fram kemur í spánni að útlit sé fyrir töluverða verðbólgu á þessu ári, um 5,9% að meðaltali, og skýrist það meðal af því að horfur eru á all- snarpri gengislækkun krónunnar. Verðbólga mun ná hámarki, 7%, í næsta mánuði samkvæmt spánni en verða um 5% á síðari hluta ársins. Að mati sérfræðinga Greiningar mun verðbólgan síðan minnka hratt á næsta ári og verður verðbólgumark- miði Seðlabankans náð um mitt næsta ár. Seðlabankinn mun hefja lækkun- arferli stýrivaxta þegar í apríl nk. samkvæmt spánni og verður lækk- unarferlið frekar hratt. Þannig er því spáð að stýrivextir verði orðnir 11% í árslok og 7% ári síðar. „Gengi krónunnar lækkar á komandi miss- erum samhliða því sem Seðlabank- inn lækkar vexti og dregur úr vaxta- muni við útlönd á sama tíma og dregur úr spennu í þjóðarbúskapn- um,“ segir í spánni en þar kemur fram að gengi krónunnar muni ná lágmarki næsta vetur. Gengið mun síðan byrja að hækka á ný árið 2009. Það eru óhagstæð skilyrði á fjár- málamörkuðum og skert aðgengi að lánsfé sem ásamt innlendum eigna- verðsáhrifum mun draga úr inn- lendri eftirspurn og verðbólguþrýst- ingi á næstunni og þannig gera Seðlabankanum kleift að lækka vexti. Lögun að jafnvægi einkennir næstu ár Í HNOTSKURN » Áhrif fjármálakreppunnar ástöðugleika á íslenskum fjár- málamarkaði verða ekki var- anleg. Ýmsir þættir í rekstri bankanna gera að þeir munu standast ágjöfina. » Ríkissjóður er nánast skuld-laus og því í góðri stöðu til að mæta niðursveiflu hagkerfisins, segir í þjóðhagsspá Glitnis. » Einkaneysla mun dragastsaman um 3% á árinu og við- skiptahallinn lækkar í 9,2% af landsframleiðslu. ● ATORKA greiddi hluta kaupverðs- ins á hlut FL Group í Geysir Green Energy með hlut í Marel. Þetta kemur í ljós þegar bornir eru saman hlut- hafalistar Marels en þar bregður FL Group fyrir sem snöggvast en dettur aftur út, sem bendir til þess að félag- ið hafi selt hlut sinn nánast um leið. Eins og fram kom í Morgunblaðinu áttu sér stað viðskipti með 1,45% hlut í Marel á föstudag, án þess að tilkynningar bærust kauphöll, en 1,45% er einmitt sá hlutur sem FL Group var skráð fyrir í hluthafaskrá Marels á mánudag. Greitt fyrir GGE með hlutum í Marel ● LÁRUS Weld- ing, forstjóri Glitn- is, nýtur fyllsta trausts stjórnar bankans. Þetta kemur fram í yf- irlýsingu frá stjórninni en Fréttablaðið hefur greint frá því að sá orðrómur sé á kreiki að til standi að Lárus víki fyrir nýjum forstjóra. Í yfirlýsingunni, sem undirrituð er af þeim Þorsteini M. Jónssyni stjórn- arformanni og Jóni Sigurðssyni vara- formanni, segir að stjórnin sé mjög ánægð með störf Lárusar og annarra stjórnenda. Aðalfundur Glitnis fer fram í dag kl. 14 í Súlnasal, Hótel Sögu. Lárus nýtur fyllsta trausts stjórnar Lárus Welding GENGI hlutabréfa svissneska bank- ans Credit Suisse hrundi í gær í kjöl- far frétta þess efnis að bankinn neyddist til þess að skrifa eign sína í eignavörðum skuldabréfum niður um 2,85 milljarða dala og afkomu sína á fyrsta fjórðungi niður um 1 milljarð dala. Ástæðan er sú að við innri rannsókn kom í ljós að miðlarar höfðu verðmetið skuldabréfin vit- laust og er nú unnið að endurmati á afkomu síðasta árs enda óvissa um hvort villan hefur haft áhrif á hana. Samkvæmt frétt Bloomberg féll gengi bankans um 10% við upphaf viðskipta í gær og tryggingarálag á skuldabréf hans fór í methæðir. Credit Suisse, sem er næststærsti banki Sviss og meðal stærstu fjár- málafyrirtækja heims, vék miðlur- unum sem hlut eiga að máli tíma- bundið frá störfum en málið þykir hið versta fyrir bankann. Það eru þó ekki afkomuáhrifin sem þykja verst heldur hefur trúverðugleiki bankans fengið á sig brotsjó að mati sérfræð- inga. Sérstaklega þykir bagalegt að það hafi komið upp svo skömmu eftir hneykslið hjá franska bankanum Société Générale. Fyrir tveimur dögum tilkynnti fjárfestingarsjóður katarska ríkisins að sjóðurinn hefði keypt hlut í Credit Suisse. Afskriftir í kjölfar rangs verðmats TRYGGINGARÁLAGIÐ á skulda- bréf íslensku bankanna hefur verið mikið til umfjöllunar á undanförnum vikum og mánuðum. Á meðfylgjandi línuriti má sjá hvernig álagið hefur þróast frá því í sumar og þar má einnig sjá Itraxx-vísitöluna, sem er sett saman úr tryggingarálagi fjölda banka. Eins og sjá má á myndinni hefur tryggingarálagið hækkað tölu- vert á nýjan leik eftir að hafa lækk- aði í kjölfar þess að Kaupþing hætti við yfirtökuna á hollenska bankanum NIBC en að sama skapi hefur álagið á flesta bankans heimsins hækkað á sama tíma. Álagið á bréf Kaupþings hækkaði í gær um 45 punkta og er nú 610 punktar. Álagið á bréf Glitnis hækk- aði um 30 punkta og er nú 560 og álagið á bréf Landsbankans hækkaði um 45 punkta og er 325 punktar. Þess má geta að í kjölfar tilkynn- ingar svissneska bankans Credit Suisse um niðurfærslu eigna vegna rangs verðmats hækkaði trygg- ingarálag flestra banka heims. Skuldaálagið hækkar á ný     ! " ##$% &  M4 2(%>%,I/1N  $ C ) *  + % #  ,-. /0 ( / )( &% @1I ?6 ) & O,  @  +2 ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALAN lækkaði á ný í gær eftir tveggja daga hækkun. Við lokun markaðar stóð vísitalan í 5.120 stigum sem er 1,22% lækkun frá deginum áður. Mest hækkun varð á bréfum Century Aluminum, 2,3%, en bréf Landsbankans lækkuðu um 2,05%. Heildarvelta í kauphöllinni í gær nam 14,6 milljörðum en þar af var velta með hlutabréf fyrir 5,3 millj- arða. Mest velta var með bréf Kaup- þings, 3 milljarðar. Gengisvísitala krónunnar lækkaði um 0,39% og styrktist krónan sem því nemur. Lækkun á ný BRESKA blaðið Guardian hefur á vefútgáfu sinni í gær eftir heimild- armanni sem þekkir vel til Exista að félagið hafi ekki keypt 8% hlut í írska matvælaframleiðandanum Greencore og því síður sé félagið að undirbúa yfirtökutilboð í Greencore. Greencore tilkynnti í síðustu viku að ónefndur keppi- nautur hefði að undanförnu byggt upp hlut í félaginu og hafa vangaveltur verið uppi um það að Exista stæði að baki kaupunum á hlutnum í Greencore og greindi írska dagblaðið Irish Independent frá því í gær að Exista hefði fengið Deutsche Bank til liðs við sig sem ráðgjafa við yf- irtökuna en Deutsche Bank flaggaði fyrr í mánuðinum 5,45% hlut í Greencore. Írska blaðið segir Exista hafa í hyggju að sameina Greencore og Bakkavör og segir blað- ið Kaupþing fjármagna kaup Exista. Hlutabréf Greencore hækkuðu um 6,2% í kauphöllinni í London þegar frétt Irish Independent birtist í gær. Segir yfirtöku ekki framundan ÁRIÐ 2006 var lífeyrissparnaður hvergi í aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) jafn hár sem hlutfall af landsfram- leiðslu og hér á landi. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu OECD. Það ár var lífeyrissparnaður Íslendinga 132,7% af vergri landsframleiðslu en eins og sjá má af meðfylgjandi mynd var lífeyrissparnaður meiri en landsframleiðsla í aðeins þremur löndum. Áberandi er hversu lágt hlutfallið er í Svíþjóð (9,5%) og Nor- egi (6,8%) en þess ber að geta að ol- íusjóður Norðmanna er ekki talinn með í útreikningum OECD, enda vafamál hvort skilgreina beri sjóð- inn sem lífeyrissjóð. Þegar lífeyrissparnaður sem hlutfall af landsframleiðslu er reiknaður í öllum ríkjum OECD er hlutfallið 72,5%. Lífeyris- sparnaður hvergi meiri 2 2 2// 34 00 04 02 + 2                             5(* &   (, !    (   # ,' (  %% , #,/ 3/4/1J "H 0 HAGNAÐUR KEA á síðasta ári nam 913 milljónum króna eftir skatta, borið saman við 287 millj- óna hagnað árið áður. Bókfært eig- ið fé félagsins um síðustu áramót nam rúmlega 5,4 milljörðum króna og heildareignir voru tæpir 5,8 milljarðar. Félagið minnkaði eign sína í skráðum félögum á síðasta ári en jók hana að sama skapi í óskráðum félögum. Því lenti KEA minna í þeim hremmingum sem fjárfestar annars lentu í síðasta árs- fjórðunginn. Markaðsverðbréf námu tæpum 2,8 milljörðum og fjárfestingaverðbréf tæpum 2,2 milljörðum. Eiginfjárhlutfall fé- lagsins var 94% um síðustu áramót. Hagnaður KEA 913 milljónir ♦♦♦ ● DANSKE Bank er ellefti stærsti hluthafi Glitnis með 2,05% hlut sam- kvæmt nýrri hluthafaskrá bankans. Bankinn kemur inn á listann yfir stærstu hluthafa bankans í stað Citibank, sem um mánaðamótin átti 2,02% hlut. Ekki liggur fyrir hvort um stöðu- töku Danske er að ræða eða hvort bankinn er skráður hluthafi fyrir hönd þriðja aðila, en vert er að minnast þess að bankinn hefur um langt skeið verið afar gagnrýninn á ís- lensku bankana. Danske Bank fjárfestir í Glitni ● HELSTU hlutabréfavísitölur vest- anhafs lækkuðu í gær eftir að hafa byrjað daginn á jákvæðari nótum. Fyrst og fremst voru það fréttir af hækkandi olíuverði sem sneru þró- uninni við en fatið af hráolíu kostaði við lokun markaða í Bandaríkjunum 100,10 dali og er það í fyrsta skipti í sögunni sem nafnverð á hráolíufati nær yfir 100 dali. Dow Jones- iðnaðarvísitalan lækkaði um 0,1% í gær, samsetta Nasdaq-vísitalan um 0,7% og S&P 500-vísitalan um 0,1%. Austan Atlantshafsins hækkuðu flestar vísitölur í gær en þá ber að taka tillit til þess að fregnir af olíu- verðshækkunum höfðu ekki borist við lokun markaða. Olíumet felldi mark- aði vestanhafs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.