Morgunblaðið - 20.02.2008, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
og Önund Pál Ragnarsson
ÓLAFUR F. Magnússon borgar-
stjóri lagði þunga áherslu á metnað
borgarinnar í umhverfismálum og
samgöngumálum, þegar frumvarp að
þriggja ára áætlun um rekstur, fram-
kvæmdir og fjármál Reykjavíkur-
borgar árin 2009-2011 var kynnt í
borgarstjórn í gær. Gert verður stór-
átak í lagningu hjólaleiða, bæði sér-
stakra stíga og meðfram akbrautum
og taldist Ólafi til að um 1,5 milljarðar
króna færu í hjóla- og gönguleiðir á
tímabilinu. Ennfremur verða lagðar
fleiri forgangsakreinar fyrir strætis-
vagna.
Áætlað er að skatttekjur aukist um
2,9 milljarða króna á tímabilinu eða
að meðaltali um 1,8%, en aukningin
var að meðaltali um 3,7% síðustu þrjú
á undan. Rekstrarniðurstaða er áætl-
uð jákvæð allt tímabilið eða 5,7 til 9
milljarðar kr. Að sama skapi gerir
áætlun árs 2008 ráð fyrir jákvæðri
niðurstöðu um 11,1 milljarða kr.
„Ýmsir hlutir munu gerast á næst-
unni í þjóðmálunum sem kalla á að
við séum í stakk búin til að takast á
við þá. Þess vegna er mikilvægt að við
höfum kjark til að setja fram áætlun
þar sem haldið er uppi traustri og
öruggri fjármálastjórn, þar sem við
höfum ráð á að gera það sem við ætl-
um. Við höfum einnig kjark til að
beina fjárstreyminu í átt til fólksins
og þjónustunnar, en ef þörf krefur
hægja fremur á steinsteypufram-
kvæmdum,“ sagði Ólafur við blaða-
menn þegar hann kynnti áætlunina,
fyrir borgarstjórnarfundinn. Hann
fékkst ekki til að taka út fram-
kvæmdir sem hann teldi að færðar
yrðu aftar í forgangsröð borgarinnar
en sagði: „Það getur þurft að hægja
almennt á framkvæmdahraða í borg-
inni.“
Skiptar skoðanir voru um frum-
varpið í borgarstjórn og töldu fulltrú-
ar það ýmist greiningu á traustri og
öruggri fjármálastjórn eða 29 blað-
síður af tölum – án skýringa – sem
vektu upp fleiri spurningar en þær
svöruðu. Helst sveið fulltrúum minni-
hlutans þó að fá ekki eitt einasta svar
við fjölmörgum spurningum sínum.
Borgarstjóri lofaði að svara þeim í
annarri umræðu.
Hátt framkvæmdastig svarið
Bjartsýnin er að baki og svartir
tímar í efnahagsmálum framundan,
sagði Óskar Bergsson, borgarfulltrúi
Framsóknarflokks, og kvað frum-
varpið einhvers konar 19. aldar
þriggja ára áætlun. „Ef það er eitt-
hvað sem borgarsamfélag þarf á að
halda við þessar aðstæður þá er það
bjartsýni og skýr framtíðarsýn. Hátt
framkvæmdastig á að vera svar
Reykjavíkurborgar.“
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingar, sagði áætlunina óað-
gengilega og gagnrýndi að ekki
fylgdi henni nein greinargerð. Þá
sagði hann niðurstöðuna töluvert
dekkri en aðrir greiningaraðilar
gerðu ráð fyrir og benti á að svo virt-
ist sem fé til hjúkrunarheimila væri
skorið niður, og eins væri verulegur
niðurskurður í íþróttamálum.
Átak gert í lagningu hjóla-
og göngustíga í borginni
„Getur þurft að
hægja á fram-
kvæmdahraða“
Morgunblaðið/Ómar
Yfirvegun Ólafur F. Magnússon borgarstjóri kynnti þriggja ára áætlun.
Meira á mbl.is/ítarefni
EFTIR stutta vætutíð og hlýindi snöggkólnaði í gær og
hvíta ábreiðan, sem Reykvíkingar voru farnir að venj-
ast, lagðist aftur yfir borgina. Spáð er áframhaldandi
úrkomu í dag, fyrst rigningu, síðar snjókomu.
Þessi hjólreiðamaður á ferð í Árbænum lét snjóinn
ekki mikið á sig fá og hjólaði ótrauður áfram.
Skjótt skipast veður í lofti
Árvakur/Valdís Thor
VEL hefur gengið að ráða í stöður
við leikskóla í Hafnarfirði undan-
farna daga. Í lok janúar vantaði
starfsfólk í 22,12 stöðugildi í tíu skól-
um en nú vantar í 12,6 stöðugildi í sjö
skólum, að því er segir á vef Hafn-
arfjarðarbæjar, sem setti 200 millj-
ónir í starfsmannamál leikskóla á
þessu ári, sem skila þessum árangri.
Að sögn Magnúsar Baldurssonar,
fræðslustjóra í Hafnarfirði, gæti far-
ið svo að stöður við leikskóla bæj-
arins yrðu fullmannaðar í marsmán-
uði ef áfram heldur sem horfir. Þó
eru flestir nýráðnir ófaglærðir, en
betur gengur að halda í starfsmenn
sem eru fyrir. Að sögn gengur betur
að ná í fólk þegar hægist um á vinnu-
markaði, eins og nú er að gerast.
Stöðurnar
mannaðar
Fleiri ráðnir á hafn-
firska leikskóla
VILHJÁLMUR Bjarnason, formað-
ur Samtaka fjárfesta, mun á aðal-
fundi Glitnis í dag bera upp spurn-
ingu við stjórn undir liðnum önnur
mál. Fyrirspurnin er svohljóðandi:
„Fyrirspurn þessi hefur að mark-
miði að varpa ljósi á hvernig hags-
muna hluthafa Glitnis banka er gætt
í gildandi kaupréttarsamningum við
starfsmenn bankans. Bent er á að
kaupréttarsamningar byggjast á
ráðstöfun á óseldum hlutum, sem
hluthafar eiga að öðru jöfnu for-
kaupsrétt að. Þessi forgangsréttur
felur í sér verðmæti fyrir hluthafa,
sem stjórn ber að gæta að eins og
annarra hagsmuna hluthafa bank-
ans.
1. Við hvaða starfsmenn Glitnis
banka hf. hefur stjórn félagsins gert
kaupréttarsamninga og eru í gildi í
dag?
2. Hve hár er kaupréttur við hvern
og einn starfsmann, hvert er samn-
ingsgengi í einstökum samningum
og hvert er viðmiðunargengi í samn-
ingunum?
3. Í hvaða tilfellum er viðmiðunar-
gengi kaupréttarsamninganna
stundargengi á samningsdegi eða á
síðustu 10-20 dögum fyrir gerð
samnings?
4. Hvaða ástæður lágu til þess að
gerður var kaupréttarsamningur við
forstjóra bankans fyrir 150 milljón-
um hluta á genginu 26,6, samtals að
fjárhæð 3.990.000.000, og hver er
áætlaður kostnaður Glitnis banka af
þessum samningi?
5. Hver eru áhrif þessa samnings á
hagnað á hlut annarra hluthafa
vegna þessa samnings?
6. Á hvern hátt eru gildandi kaup-
réttarsamningar tengdir við afkomu
bankans, ávöxtun eigin fjár, breyt-
ingar á markaðsgengi hlutabréfa og
viðmiðun við markaðsvísitölur hluta-
bréfa?“
Spyr um kaup-
rétti á aðalfundi
UPPBYGGING
Vatnsmýrarinnar
er einstakt tæki-
færi til að inn-
leiða nýja hugsun
og samþætta
breyttar ferða-
venjur í skipulagi
nýs, sjálfbærs
borgarhluta, þar
sem áhersla verð-
ur lögð á öryggi
gangandi og hjólandi, sagði Dagur
B. Eggertsson, oddviti Samfylking-
arinnar, á fundi borgarstjórnar í
gærdag. Hann sér fyrir sér léttlesta-
kerfi í Reykjavík og hraðlest á milli
miðborgarinnar og Keflavíkur.
Á sama tíma og tólf alþingismenn
lögðu fram þingsályktunartillögu á
Alþingi um að stjórnvöld kanni hag-
kvæmni lestarsamgangna milli
Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur
annars vegar og léttlestakerfis innan
höfuðborgarsvæðisins hins vegar
mælti Dagur B. fyrir því sama í
borgarstjórn. „Skipulag Vatnsmýr-
arinnar kallar í heild sinni á róttækt
afturhvarf til evrópsks borgarskipu-
lags. […] Við þurfum því að leyfa
okkur að hugsa stærra. Framtíðar-
lausnir Vatnsmýrarinnar þurfa og
hljóta að vera framtíðarlausn fyrir
alla hina nýju Reykjavík,“ sagði
Dagur og vill setja fjárfestingu á
léttlestakerfi á dagskrá.
Framtíðin
felst í
lestakerfi
Dagur B.
Eggertsson
Vatnsmýrin tekur
mið af framtíðinni
♦♦♦
FARÞEGI úr bílslysinu á Akranesi
á mánudag liggur enn á gjörgæslu-
deild Landspítalans í öndunarvél og
er líðan hans óbreytt. Lögreglan
segir að hvorki hann né ökumaður
bílsins hafi verið í bílbelti. Ökumað-
urinn slasaðist einnig en slapp betur
en farþeginn. Slysið varð þegar bíll-
inn skall á húsvegg á Vesturgötu.
Lögreglan segir að farþegahlið bíls-
ins hafi skollið á húsveggnum og þar
geti skýringa verið að leita í meiri
meiðslum farþegans.
Lögreglan segir rannsóknina hafa
leitt í ljós að ekki var um kappakstur
tveggja bíla að ræða í aðdraganda
slyssins. Húsið, sem er timburhús
með steyptum kjallara, er mikið
skemmt eftir ákeyrsluna.
Enn á gjör-
gæsludeild
Áreiðanlegasta
fjarskipta-
fyrirtækið
EINAR Njálsson, verkefnisstjóri í
félags- og tryggingamálaráðuneyti,
segist ekki geta svarað fyrir sparn-
aðaraðgerðir á geðsviði Landspítal-
ans, sem heyri alfarið undir heil-
brigðisráðuneytið. Verkefnið
Straumhvörf, átak í málefnum geð-
fatlaðra sem fram fer undir hatti fé-
lagsmálaráðuneytis, segir Einar
hins vegar á áætlun.
Í Morgunblaðinu í gær var upp-
bygging í málefnum geðfatlaðra fyr-
ir milljarð af söluandvirði Símans og
hálfan milljarð úr Framkvæmda-
sjóði fatlaðra sögð hafa gengið hægt
og illa. „Verkefnið spannar árin
2006-2010 og tekur til 160 einstak-
linga á landinu öllu, í búsetu auk
frekari liðveislu og stoðþjónustu.
Um mitt þetta ár verður búið að
tryggja húsnæði fyrir helming þessa
fólks og verja til þess helmingnum af
þessum einum og hálfa milljarði,“
segir Einar. „Ég held að það sé nær
að segja að verkefnið sé á áætlun
heldur en að það hafi gengið illa,“
segir hann.
Búsetuátak-
ið hálfnað
♦♦♦