Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 7
13:00–13:30
Jóhanna Jónsdóttir – Getur ESB tryggt að stefnumál þess séu framkvæmd á
Íslandi? Í fyrirlestrinum verður aðlögun íslenskrar stjórnsýslu að löggjöf ESB skoðuð og
greint frá þáttum sem hafa áhrif á viðbrögð íslenskra stjórnvalda við kröfum ESB. Skoðað
er hvort ESB geti knúið fram skilyrðislausa hlýðni íslenskra stjórnvalda, jafnvel þegar slíkt
gengi gegn vilja þeirra. Gert er ráð fyrir því að ESB geti í flestum tilfellum tryggt innleið-
ingu löggjafar sinnar en aftur á móti eru aðferðir til að stuðla að réttri framkvæmd mun
veikari.
13:30–14:00
Lára Sigurþórsdóttir – Veruleiki íslenskra hagsmunaaðila gagnvart ESB-gerðum.
Hagsmunaaðilar hafa verið að gera sér betur ljóst á síðustu árum nauðsyn þess að fylgjast
með samningu reglugerða og tilskipana frá ESB, vegna áhrifa þeirra á íslenskt laga og
reglugerða umhverfi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um styrkleika og veikleika í lobbyisma
íslenskra hagsmunaaðila gagnvart ESB-gerðum og íslensku stjórnsýslunni.
14:00–14:30
Brynja Baldursdóttir – Evrópuvitund utanríkisráðherra Íslands frá 2003 til 2007.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um Evrópuvitund utanríkisráðherra Íslands frá 2003 til 2007.
Á tímabilinu hafa fimm utanríkisráðherrar gegnt embættinu og koma þeir jafnframt úr
þremur stjórnmálaflokkum. Meðal annars verður fjallað um hvað felst í hugtakinu Evrópu-
vitund og hvort Evrópuvitund ráðherranna tengist aðallega þeim stjórnmálastefnum sem
þeir aðhyllast eða hvort telja megi að Evrópuvitund þeirra sé óháð stjórnmálastefnum og
því einstaklingsbundin.
14:30–15:00
Magnús Árni Magnússon – Eyjar á jaðrinum: Ísland og Malta í Evrópusamstarfi.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um nálgun Möltu að Evrópusamrunanum og aðdraganda
þess að landið gekk í Evrópusambandið. Það verður síðan borið saman við atburðarrásina
í þessum efnum hér á Íslandi og að lokum velt upp þeim kostum sem Íslendingar standa
frammi fyrir í þessum efnum.
Ráðstefna á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Samtaka iðnaðarins
Fyrir hádegi – Vinnustofa
10:00–10:30
Capacent
Gerð ferilskráa og atvinnuumsókna
Sigurður Jónas Eysteinsson, ráðgjafi
10:30–11:00
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins
Námsmöguleikar í Evrópu
Ásta María Sverrisdóttir, verkefnisstjóri
11:00–11:30
Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís)
Rannsóknastarf í Evrópu
Elísabet M. Andrésdóttir,
sviðsstjóri alþjóðasviðs
11:30–12:00
Ráðstefnugestir geta leitað ráða
og/eða fengið svör við fyrirspurnum
hjá fyrirlesurum vinnustofunnar.
12:00–13:00
Boðið upp á hádegisverð
Eftir hádegi – Ungir fræðimenn
kynna rannsóknarverkefni sín
á sviði Evrópufræða
15:00
Móttaka
DAGSKRÁ
www.hi.is
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands
Dagur ungra fræðimanna
í Evrópumálum II
Í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands, 1. hæð,
fimmtudaginn 21. febrúar 2008 milli kl. 10 og 16.
Nauðsynlegt er að skrá sig á málþingið
með því að senda tölvupóst á ams@hi.is