Morgunblaðið - 20.02.2008, Page 8

Morgunblaðið - 20.02.2008, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á MORGUN, fimmtudag, stendur Alþjóða- málastofnun Háskóla Íslands fyrir degi ungra fræðimanna í Evrópumálum sem verður í Þjóð- minjasafni Íslands kl. 10-16. Jóhanna Jónsdóttir, doktorsnemi við Cam- bridge-háskóla, fjallar um aðlögun íslenskrar stjórnsýslu að löggjöf ESB. Lára Sigurþórs- dóttir, MA-nemi við Háskóla Íslands, tekur fyrir styrkleika og veikleika í lobbyisma íslenskra hagsmunaaðila gagnvart ESB-gerðum og íslensku stjórnsýslunni. Þá fjallar Brynja Baldursdóttir, MA í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands, um Evrópuvitund utanríkis- ráðherra Íslands frá 2003 til 2007. Að lokun ræðir Magnús Árni Magnús- son, doktorsnemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, nálgun Möltu að Evrópusamrunanum og aðdraganda þess að landið gekk í ESB. Rætt um ESB ANÍTA Lóa Hauksdóttir, 9 ára gömul, og dansfélagi hennar, Pétur Fannar Gunnarsson, 10 ára, frá dansdeild ÍR sigruðu í danskeppni í tvígang – í Juvenile combi (þ.e. standard- dönsum og latín-dönsum sam- anlagt) og Juvenile latin í keppninni Copenhagen open í Kaupmannahöfn núna um síð- ustu helgi. Þau lentu einnig í þriðja sæti í Juvenile standard- flokki. Í frétt frá dansdeild ÍR segir að árangurinn sé glæsilegur hjá þessu unga danspari en þau æfa 6 sinnum í viku og ætla sér stóra hluti í dansheiminum. Juvenile- flokkurinn er fyrir börn á aldr- inum 11 ára og yngri. Fram kemur að hjá þeim Anítu og Pétri séu enn strangari æfingar framundan og keppni bæði hér heima og svo keppni í Birmingham og Blackpool í Englandi um páskana. Dönsuðu til sigurs í Höfn Á SÍÐASTA ári greindust 13 ein- staklingar með HIV-smit á Íslandi. Líklegt var talið að smit tengdist fíkniefnaneyslu í æð í sex tilvikum og var jafnvel talið að um hópsýk- ingu gæti verið að ræða. Í ljós hefur komið að einungis tveir ein- staklingar sem sprautuðu sig reyndust vera með sama veirustofn og því ólíklegt að um eiginlega hóp- sýkingu hafi verið að ræða meðal fíkniefnaneytenda. Þetta kemur fram í farsóttarfréttum landlækn- isembættisins. Þar kemur fram að í fjórum tilvikum af 13 var smit talið tengjast kynmökum gagnkyn- hneigðra og í þremur tilvikum kyn- mökum samkynhneigðra. Af þeim sem greindust á árinu voru sjö kon- ur en þetta er í fyrsta sinn sem fleiri konur en karlar greinast með HIV-smit á Íslandi. „Áfram verður fylgst náið með útbreiðslu HIV-smits meðal fíkni- efnaneytenda því að nái HIV-smit fótfestu í þessum áhættuhópi má búast við stóraukinni útbreiðslu sjúkdómsins hér á landi,“ segir í farsóttarfréttum. Óvenjumargir greindust með lifrarbólgu B á síðasta ári á Íslandi eða 45. Um helmingur þeirra var innflytjendur og vitað var um átta sem höfðu sprautað sig með fíkni- efnum, samkvæmt farsóttar- fréttum. Þrettán greindust með HIV-smit STUTT RANNSÓKNASJÓÐUR hefur veitt 71 styrk til nýrra verkefna. Á þessu ári styrkir Rannsóknasjóður 107 verkefni í viðbót við þau sem úthlut- að er til í ár en styrkir sjóðsins eru til allt að þriggja ára. Í heild styrkir sjóðurinn því 178 verkefni á árinu og nemur heildarstyrkveiting nærri 700 milljónum króna. Nýju styrkirnir sem veittir voru nú skiptast í 60 verkefnastyrki, sjö rannsóknastöðustyrki og fjóra önd- vegisstyrki en þeir eru stærstu rann- sóknastyrkir sem Rannsóknasjóður veitir. Frestur til að skila umsóknum rann út 1. október 2007 og barst 241 gild umsókn. Fjögur fagráð, hvert skipað sjö einstaklingum með mikla reynslu af vísindastarfi, mátu nýjar umsóknir. Sérstakt sex manna fag- ráð lagði mat á nýjar umsóknir um öndvegisstyrki. Auk þess var hver umsókn send til tveggja erlendra sérfræðinga til faglegs mats. Fjórir öndvegisstyrkir Varðandi öndvegisstyrki eru gerð- ar sérstakar kröfur til umfangs verkefna, samstarfs innan lands og utan og þjálfunar ungra vísinda- manna. Þau verkefni sem nú hlutu öndvegisstyrk eru „Mannlegar vit- verur í félagslegu leikjaumhverfi“, verkefnisstjóri þess er Hannes Högni Vilhjálmsson hjá Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við CCP. Styrkur á þessu ári til verkefnisins nemur 13,45 milljónum króna. Öndvegisverkefnið „Erfðamengi samlífs – fléttan Peltigera malacea“ fékk styrk á þessu ári upp á 14 millj- ónir króna. Verkefnisstjóri er Ólafur S. Andrésson við Háskóla Íslands í samstarfi við Háskólann í Bresku- Kólumbíu í Kanada. „Tengsl gammablossa við þróun vetrarbrauta og stjörnumyndun í al- heimi“ hlaut 12,6 milljóna króna styrk á þessu ári. Verkefnisstjóri er Páll Jakobsson, Raunvísindastofnun Háskólans, í samstarfi við Kaup- mannahafnarháskóla og Háskólann í Leicester í Englandi. Verkefnið „Endurmat íslenska velferðarríkisins“ hlaut 12,8 milljóna styrk nú en sótt var um 38,4 milljónir til þriggja ára. Verkefnisstjóri er Stefán Ólafsson við Háskóla Íslands. Ljósmynd/Arnaldur Styrkir Frá úthlutun styrkja Rannsóknasjóðs, f.v.: Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, Elín Soffía Ólafsdóttir, HÍ, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, KHÍ, Yngvi Björnsson, HR, Erpur Snær Hansen, Náttúrustofu Suðurlands, Stefán Ólafsson, HÍ, og Guðrún Nordal, formaður stjórnar Rannsóknasjóðs. Nærri 700 milljónir í rannsóknastyrki ENDURMAT íslenska velferðarrík- isins er nýtt öndvegisverkefni sem hlaut styrk Rannsóknasjóðs. Stefán Ólafsson prófessor stýrir verkefn- inu en aðrir þátttakendur eru Guðný Björk Eydal, Jón Gunnar Bernburg, Sigrún Júlíusdóttir, Sig- urður Thorlacius og Sigurveig H. Sigurðardóttir. Þau starfa öll við Háskóla Íslands. Stefán og Guðný Björk Eydal taka einnig þátt í nýju norrænu öndvegissetri í velferð- arrannsóknum. Það hlaut öndveg- isstyrk frá norræna rannsókna- ráðinu NordForsk til fimm ára að upphæð 410 milljónir ÍKR. Stefán sagði íslenska verkefnið tengjast því norræna. Tilefni þess norræna er þríþætt. Í fyrsta lagi þjóðfélagsbreytingar frá því nor- rænu velferðarríkin mótuðust á eft- irstríðsárunum. Hnattvæðingin veldur því að hreyfanleiki fjár- magns, fyrirtækja og fólks er orð- inn mun meiri en áður. Atvinnulíf og þjóðmálaviðhorf hafa einnig breyst. Þessu fylgir að meginvið- fangsefni velferðarríkjanna í upp- hafi eru ef til vill ekki jafn brýn nú og um miðja 20. öld. Þá er mikill áhugi á norrænu vel- ferðarríkjunum, ekki síst í þróun- arlöndum. Stefán sagði margar þjóðir í Asíu hafa sýnt þessari þjóð- félagsgerð mikinn áhuga. Góð lífs- kjör og samkeppnishæfni norrænu þjóðanna vektu mikla athygli. Þá sagði Stefán norræna fræða- samfélagið telja ástæðu til að skoða velferðarríkin gagnrýnum augum. T.d. hvort fjármunir sem varið væri til velferðarmála nýttust vel. Íslenska velferðarríkið í öndvegisverkefni Það er Stærsta GSM dreifikerfið ÚTHLUTAÐ var úr minningarsjóði Jóhanns Péturs Sveinssonar, fyrrum lögfræðings og formanns Sjálfs- bjargar, í gær. Markmið minning- arsjóðsins er að styrkja hreyfi- hamlaða einstaklinga til náms með ýmsu móti og einnig að styrkja ein- stök málefni varðandi aðgengi fatl- aðra. Sjóðurinn sem var stofnaður árið 1995 byggist á frjálsum fram- lögum. Styrkþegar voru fimm að þessu sinni og var alls úthlutað rúmum 500.000 krónum. Meðal styrkþega var Aðalbjörg Guðgeirsdóttir sem hlaut styrk að upphæð 150.000 kr. Aðalbjörg hefur verið að safna sér fyrir hjálpartæki framan á hjólastól sinn, en það myndi auðvelda henni daglegt líf og auka möguleika hennar til útivistar. „Ég er bara bjartsýn og veit að ég fæ hjólið fyrr eða síðar,“ segir Aðal- björg sem enn vantar nokkuð upp á til að eiga fyrir hjólinu. Aðrir styrkþegar voru Hólm- fríður Benediktsdóttir, Anna Sigríð- ur Traustadóttir, Bergur Þorri Benjamínsson og Kristján V. Hjálm- arsson. Árvakur/Eggert Jóhannesson Bjartsýn Aðalbjörg Guðgeirsdóttir fékk styrk úr minningarsjóðnum. Hreyfihamlaðir fá úthlutað úr sjóði Jóhanns Péturs RANNSÓKN á stofnstærð lunda og áhrif framboðs sílis, lundaveiða og veðurfarsbreytinga á hana var á meðal þeirra verkefna sem Rann- sóknasjóður mun styrkja um 5,75 milljónir á þessu ári auk styrks til tækjakaupa upp á 1,1 milljón. Erpur Snær Hansen hjá Nátt- úrustofu Suðurlands í Vest- mannaeyjum er verkefnisstjóri. Að rannsókninni koma einnig Arnþór Garðarsson og Páll Marvin Jónsson frá HÍ, Ævar Petersen hjá Nátt- úrufræðistofnun, Kristján Lillien- dahl og Valur Bogason hjá Haf- rannsóknastofnun, Ingvar Atli Sigurðsson, vinnufélagi Erps, og Kristján Egilsson hjá Náttúru- og fiskasafni Vestmannaeyja. Erpur sagði að nýliðun hjá lund- anum hefði verið mjög léleg und- anfarin þrjú ár og vantaði þrjá ár- ganga í stofninn. Það væri helst rakið til fæðuskorts en brestur hefði verið á síli í sjónum við Ísland. Kanna ætti áhrif veðurfars á stærð síla- og lundastofna og samband stofnstærða þessara dýrastofna. Þá ætti að kortleggja búsvæði sandsíla á hafsbotninum við Vestmanna- eyjar. Einnig verður unnið úr árlegum veiðitölum á lunda frá 1945-2007 og lundamerkingum í Vestmanna- eyjum frá 1953-2007 en þar hafa verið merktir yfir 60 þúsund lundar og endurheimtir um 12 þúsund. Einnig verða teknar saman upplýs- ingar um lundapysjur frá 1991. Lundinn rannsakaður Árvakur/Ómar Rannsókn Lundinn hefur átt erfitt uppdráttar hér við land undanfarið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.