Morgunblaðið - 20.02.2008, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 20.02.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 9 FRÉTTIR Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið virka daga 10.00-18.00 Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00 Tveir dagar eftir af útsölunni Allt á 1000 og 2000 Lokadagar lagerútsölu Hæðasmára 4 Algjört verðhrun 50-80% afsláttur Hæðasmára 4 - sími 555 7355 ATH nýja r vörur í Síðumú la BREYTA þarf skipulags- og bygg- ingarlögum og jafnframt raforkulög- um og reglugerðum þannig að öll mannvirkjagerð við virkjanir verði byggingarleyfisskyld og háð reglu- bundnu byggingareftirliti. Þetta kemur fram í niðurstöðum starfs- hóps sem iðnaðarráðherra skipaði í samstarfi við félagsmálaráðherra og umhverfisráðherra. Starfshópurinn var skipaður í lok ágúst í fyrra, m.a. vegna umfjöllunar um Fjarðarárvirkjun og Múlavirkj- un. Honum var ætlað að skoða hvort tilkynningaskyldar framkvæmdir, sem nýlokið er við, eða standa yfir, hafi verið innan þess ramma sem þeim var settur í opinberum leyfum og hvort brestur hafi orðið á eftirliti með þeim. Í tilkynningu vegna vinnu hópsins segir að við störf hans hafi komið í ljós að 11 smávirkjanir, sem nýlega hafa tengst dreifikerfinu, starfi án rekstrarleyfis samkvæmt raforkulögum. Hafi framkvæmdar- aðilum verið bent á ágallann og leið- beint um leyfisveitingaferli. Brýnt að skerpa reglur Í skýrslu starfshópsins segir að hann telji að vandamál sem komið hafa upp vegna virkjunarfram- kvæmda sýni að mikil þörf sé á að skerpa á reglum hvað þetta varðar og tryggja að opinbert eftirlit fari reglulega fram á byggingartíma virkjana. Segir að í frumvarpi um- hverfisráðherra til nýrra laga um mannvirki sem lagt hefur verið fram á Alþingi sé gert ráð fyrr að tekið verði fram að öll mannvirkjagerð við virkjanir sé byggingarleyfisskyld og háð hefðbundnu byggingareftirliti. Starfshópurinn leggur jafnframt til að sett verði í byggingarreglugerð, í samráði við Orkustofnun og iðnaðar- ráðuneytið, ákvæði um hönnun virkj- unarmannvirkja og framkvæmd eft- irlits með virkjunarframkvæmdum. Tilgangur byggingarleyfis og bygg- ingareftirlits verði að tryggja öryggi virkjunarmannvirkja, samræmi við skipulagsáætlanir og lágmarksum- hverfisáhrif. Þá er lagt til að ákvæði raforku- laga og reglugerðar um framkvæmd raforkulaga verði aðlöguð ákvæðum skipulags- og byggingarlaga og byggingarreglugerðar. Virkjunar- leyfi og eftirlit með því snúi fyrst og fremst að þáttum eins og auðlinda- nýtingu og tæknilegum atriðum sem áhrif hafa á raforkukerfið. Ennfrem- ur að sett verði í viðeigandi löggjöf ákvæði um samvinnu og samráð iðn- aðarráðuneytis, Orkustofnunar og byggingaryfirvalda við útgáfu virkj- unar- og byggingarleyfis og eftirlits vegna þeirra til að tryggja samræmi milli mismunandi leyfa. Öll mannvirkjagerð við virkjanir verði leyfisskyld Í HNOTSKURN »Á undanförnum árum hefursmávirkjunum fjölgað ört. »Frá árinu 2000 hefur Skipu-lagsstofnun tekið ákvörðun um matsskyldu 20 virkjana af stærðargráðunni uppsett rafafl 100 kW til 5 MW, að því er fram kom í skipunarbréfi stýrihópsins. »Starfshópurinn beindi sjón-um að smávirkjunum sem Skipulagsstofnun hafði til með- ferðar vegna ákvörðunar um matsskyldu á árunum 2004-2007. VIÐGERÐ á hringveginum við Svignaskarð í Borgarfirði reyndist meira mál en vegagerðarmenn töldu í fyrstu. Vegurinn fór í sund- ur í vatnavöxtum á sunnudaginn var þegar ræsi stíflaðist. Sam- kvæmt upplýsingum Vegagerð- arinnar í Borgarnesi var búist við að hægt yrði að opna veginn í gær- kvöldi. Viðgerð á veginum hófst þegar á mánudagsmorgun. Þurftu vega- gerðarmenn að taka veginn alveg í sundur og tafði mikill vatnsflaumur verkið. Byggja þurfti nýjan púða undir nýtt ræsi og leggja það í veg- arstæðið. Ekki var hægt að vinna að viðgerðinni í myrkri og því tafð- ist verkið. Umferðartafir urðu vegna flóða víðar í Borgarfirði og smávægilegar skemmdir á vegum, m.a. við Síkin við Hvítárvelli og var gert við þær í gær og fyrradag. Í gær var Laxá í Dölum farin að flæða yfir veginn á milli Engihlíðar og Þrándarkots og bað Vegagerðin vegfarendur að sýna fyllstu varúð vegna þess. Vatn tafði viðgerð Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÞAÐ er ekki endilega einfalt mál að tryggja að aðeins þeir sem eru að kaupa sína fyrstu fasteign fái stimp- ilgjöldin niðurfelld, líkt og kveðið er á um í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar sem var gefin var út í tengslum við kjarasamningana sem skrifað var undir um helgina. Eftir er að útfæra með hvaða hætti þetta verður gert og sömuleiðis á eftir að móta hús- næðissparnaðarkerfi fyrir 35 ára og yngri, sem ríkisstjórnin lýsti einnig yfir að hún myndi beita sér fyrir. Í yfirlýsingunni segir að ríkis- stjórnin muni m.a. beita sér fyrir að stimpilgjöld falli niður vegna lána til kaupa á fyrstu fasteign og að komið verði á húsnæðissparnaðarkerfi með skattafrádrætti, fyrir einstaklinga 35 ára og yngri, til að hvetja til sparnaðar hjá þeim sem hyggja á fyrstu kaup eigin húsnæðis. Stimpilgjald af húsnæðisláni er 1,5% af lánsupphæðinni. Ef miðað er við 15 milljóna króna lán nemur stimpilgjaldið því 225.000 krónum. En hvernig á að ganga úr skugga um að sá sem sækir um niðurfellingu stimpilgjalds sé í raun og veru að kaupa sína fyrstu fasteign? Hvað um hjón sem kaupa íbúð saman en skilja síðan og verða að selja ofan af sér kofann – eiga þau bæði rétt á nið- urfellingu stimpilgjalds fyrir næstu íbúð? Hvað um þá sem eru búnir að vera í sambúð lengi og annar sam- búðarmakinn (eins og það heitir á skattskýrslunni) er skráður fyrir eigninni. Getur hinn sambúðarmak- inn þá líka keypt íbúð og sloppið við stimpilgjaldið? Þetta er meðal þeirra spurninga sem fjármálaráðuneytið stendur frammi fyrir en það kemur í hlut þess að útfæra þennan boðskap rík- isstjórnarinnar. Fyrsta skrefið Baldur Guðlaugsson ráðuneytis- stjóri segir að margt þurfi að skoða áður en tillögur um útfærslu líta dagsins ljós. Vinnan við breytingar á stimpilgjaldi og við sparnaðarreikn- ing fyrir 35 ára og yngri sé að fara af stað í ráðuneytinu. Niðurfelling á stimpilgjaldi til fyrstu íbúðarkaupa er þó væntan- lega aðeins fyrsta skrefið, því í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að stimpilgjald í fasteignavið- skiptum verði afnumið á kjörtíma- bilinu þegar aðstæður leyfa. Útfæra breytingar á stimpilgjaldi Árvakur/Árni Sæberg Dýr Stimpilgjald er 1,5% af láni. NÝ KÖNNUN sem Lýðheilsustöð fékk Capacent Gallup til að gera fyrir sig leiðir í ljós að 72% þátttak- enda eru frekar eða mjög hlynntir því að allir veitinga- og skemmti- staðir séu reyklausir. Aðeins 17% sögðust frekar eða mjög andvíg því að allir veitinga- og skemmtistaðir væru reyklausir, en tæp 11% sögð- ust hvorki hlynnt né andvíg. Um er að ræða símakönnun sem framkvæmd var dagana 14.-26. september sl. Úrtakið var 1.292 manns á aldrinum 18-75 ára og valið tilviljunarkennt úr þjóðskrá. Svar- hlutfall var 61,6%. Könnunin leiðir líka í ljós að 86% þátttakenda sögðu síðustu ferðir sínar á bari eða skemmtistaða hafa verið jafn ánægjulegar eða ánægju- legri eftir að nýju lögin tóku gildi. 90% þátttakenda höfðu sömu sögu að segja um síðustu ferðir sínar á kaffihús og 95% þátttakenda um síð- ustu ferðir sínar á veitingahús. Eftir því sem fram kemur á vef Lýð- heilsustöðvar eru þetta svipaðar niðurstöður og þegar spurt var að því sama áður en breytingar á tób- aksvarnarlögum tóku gildi 1. júní 2007. Upplifa breytinguna jákvætt „Það er ekki hægt að túlka þessar niðurstöður öðruvísi en svo að yf- irgnæfandi meirihluti almennings, frá 86-95%, upplifi þessar breyt- ingar sem jákvæðar,“ segir Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýð- heilsustöðvar. Tekur hann fram að jákvætt sé að heyra þessar nið- urstöður þar sem neikvæðu radd- irnar virðist oft fyrirferðarmeiri í fjölmiðlum. Þátttakendur voru í könnuninni jafnframt beðnir um að leggja mat á gæði andrúmsloftsins á veit- ingastöðum, kaffihúsum sem og bör- um og skemmtistöðum fyrir og eftir að lögin tóku gildi, á skalanum 0-10. Veitingastaðir fengu fyrir gildistöku einkunnina 6,6 en eftir gildistöku einkunnina 7,9. Kaffihús fengu ein- kunnina 7,3 fyrir gildistöku en 8,2 eftir, en barir og skemmtistaðir fengu einkunnina 4,7 fyrir gild- istöku og 7,1 eftir. Í samtali við Morgunblaðið bendir Þórólfur á að nýjar rannsóknir sýni að áhrif óbeinna reykinga séu skað- legri en áður hafi verið talið og því hafi rökin um mikilvægi reyklauss vinnuumhverfis fengið aukið vægi. Almenningur hlynntur reykleysi DRULLUSVAÐ er í göngum undir Reykjanesbraut sem tengja Kópa- vogsdal við Breiðholt og fyrir þá gangandi vegfarendur sem hafa haft hug á að leggja leið sína eftir þessum göngustíg er algjörlega ófært. Árni Björgvinsson, verk- stjóri í áhaldahúsi Kópavogsbæjar, segir að eftir því sem hann best viti standi þarna yfir framkvæmdir á vegum vatnsveitunnar. Unnið hefur verið að gerð dælustöðvar og svæðið var allt grafið upp í tengslum við það. „Ég vissi bara að það eru framkvæmdir þarna og þetta er lokað,“ sagði Árni, þegar Morgunblaðið spurði hann hverju þetta sætti. Þetta væri í höndum verktaka sem hann hefði ekki eft- irlit með. „Það er alveg á hreinu að þetta verður lagað og ef ekki skapast hætta af því að hleypa fólki á svæðið verður það gert fært.“ Göngustígur þessi liggur einnig í göng undir Dalveg og niður að Kópavogslæk. Meðal afleiðinga mikils flóðs, sem varð í einu rign- ingarveðrinu nýlega, var að skarð myndaðist í grasvegg sem liggur niður að læknum. Þá flæddi vatn sem safnaðist fyrir við ganga- munnann austan Reykjanesbrautar út í gegnum göngin undir Reykja- nesbraut og Dalveg. Kópavogsdal- urinn fylltist af vatni í kjölfarið og við það hefur skarðið við lækinn væntanlega myndast. Árni hafði í gær tal af verktak- anum sem séð hafði um fram- kvæmdir á svæðinu í tengslum við dælustöðina. Hann sagði að tafir hefðu orðið á lokafrágangi vegna þess hvernig veður hefði verið að undanförnu, en lagði áherslu á að svæðið væri enn lokað. Búkkar væru bæði Breiðholtsmegin og Kópavogsmegin. „En það verður byrjað að laga þetta á morgun [í dag],“ sagði hann. Drullusvað á göngustíg Árvakur/Valdís Thor

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.