Morgunblaðið - 20.02.2008, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Friður í krafti kvenna
Opinn fundur um framlag kvenna til friðarferlisins í Mið-
Austurlöndum með fulltrúum friðarráðs palestínskra og
ísraelskra kvenna (International Women's Commission for
a Just and Sustainable Palestinian-Israeli Peace).
Anat Saragusti, sjónvarpsfréttakona frá Ísrael, og Maha
Abu-Dayyeh Shamas, baráttukona fyrir auknum réttindum
kvenna í Palestínu, halda erindi um ástandið fyrir botni
Miðjarðarhafs, friðarferlið og aðkomu ráðsins að því.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra setur
fundinn en fulltrúarnir koma hingað til lands í boði hennar.
Fundarstjóri er Ólafur Stephensen ritstjóri.
Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík,
miðvikudaginn 20. febrúar og hefst kl. 12:15.
Fundurinn fer fram á ensku.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„VIÐ TÖKUM niðurstöðum kosn-
inganna af einlægni og stillum okkur
nú upp í stjórnarandstöðu,“ sagði
Chaudhry Shujaat Hussain, formað-
ur Múslímasambands Pakistans-Q,
flokks Pervez Musharrafs, forseta
Pakistans, í gær, eftir að ljóst var
orðið að flokkurinn hafði beðið ósig-
ur í þingkosningunum í Pakistan.
Sigur Múslímasambands Pakist-
ans-N (PML-N) og Þjóðarflokks
Pakistans (PPP), sem saman fengu
meira en helming þingsæta, þykir
varpa skugga á framtíð Musharrafs í
pakistönskum stjórnmálum, en hann
var endurkjörinn forseti til fimm ára
í umdeildum kosningum á þinginu í
október á síðasta ári.
Musharraf hefur verið við völd síð-
astliðin átta ár og var mikilvægur
bandamaður Bandaríkjanna í „stríð-
inu gegn hryðjuverkum“.
Talið er að Musharraf reyni að
mynda stjórn með PPP og óháðum
þingmönnum honum hliðhollum,
með því að lofa þeim forsætisráð-
herraembættinu. Musharraf muni
þó eiga erfitt um vik þar sem nið-
urstöður kosninganna hafi veikt
stöðu hans og sé áfellisdómur yfir
stefnu hans. Erfitt gæti orðið fyrir
stjórnarandstöðuna að mynda stjórn
þar sem Musharraf hafi enn vald til
að leysa hana upp.
Stjórnmálaskýrendur segja að
Musharraf gæti reynt að grafa und-
an stjórnarmyndunarviðræðum ann-
arra flokka, hann hafi hinsvegar beð-
ið slík afhroð í kosningunum að
ólíklegt sé að hann reyni það.
Viðræður hefjast
Nawaz Sharif, fyrrum forsætis-
ráðherra Pakistans og formaður
PML-N, hefur sagst reiðubúinn til
viðræðna við aðra flokka til að
„frelsa Pakistan undan einræði til
frambúðar.“ Sharif sagði frétta-
mönnum AFP-fréttastofunnar að
hann hefði þegar rætt við ekkil Ben-
azir Bhutto, Asif Ali Zardar, for-
mann PPP og að þeir myndu eiga
fund síðar í vikunni.
Óttast var að úrslitum kosning-
anna yrði hagrætt, en svo virðist sem
þær hafi farið fram með allheiðarleg-
um hætti.
Reuters
Eftir kosningar Fylgjendur PPP-
flokksins fagna sigri í gær.
Flokkur Musharrafs
beið mikinn ósigur
Ólíklegt þykir að Musharraf geti haldið völdum sem forseti
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna funda í vikunni
Kosovo. AP, AFP. | Borislav Milosevic,
bróðir Slobodans, fyrrverandi for-
seta Serbíu, hvetur Serbíustjórn til
að íhuga hernaðaraðgerðir til að
leysa ágreininginn við Kosovo, með
þeim orðum að fyrst Kosovo-
Albanar hafi lýst yfir sjálfstæði geti
Serbar í N-Kosovo gert það sama.
Ólíklegt er að Milosevic verði að
ósk sinni, enda hefur Serbíustjórn
útilokað hernaðaraðgerðir.
Á sama tíma skiptast Rússar og
Bandaríkjastjórn á gagnrýni vegna
afstöðunnar til sjálfstæðis og vara
yfirvöld í Moskvu við afleiðingunum.
Þjóðernissinnaðir hópar Bosníu-
Serba undirbúa fjöldamótmæli og í
gær bar æstur múgur eld að lög-
reglubifreiðum og eftirlitsstöðinni í
Jarinje í N-Kosovo, ásamt því sem
þúsund Kosovo-Serbar kveiktu í
stöðinni í Banja.
Sveitir Atlantshafsbandalagsins,
NATO, voru sendar á vettvang til að
leysa upp hópa óeirðaseggja og enn
sem komið er hafa engin alvarleg
slys orðið á fólki í mótmælunum.
Skorar á OSCE
Slobodan Samardzic, ráðherra
sem fór fyrir málum Kosovo í Serb-
íustjórn, taldi árásirnar réttmætar
og gerðar af hálfu þeirra sem ekki
sættu sig við sjálfstæðisyfirlýsingu
Kosovo.
Vuk Jeremic, forsætisráðherra
Serbíu, var harðorður og hvatti Ör-
yggis- og samvinnustofnun Evrópu,
OSCE, til að fordæma yfirlýsinguna,
Kosovo yrði áfram hluti af Serbíu.
Síðar um kvöldið skoraði Boris
Tadic Serbíuforseti á mótmælendur
að hætta þegar í stað ofbeldis-
aðgerðum, aðeins með friði gætu
Serbar fært rök fyrir máli sínu.
Hashim Thaci, forsætisráðherra
Kosovo, gerði lítið úr árásunum sem
væru „einangruð tilvik“, allt væri
undir stjórn sveita NATO sem hefð-
uhemil á ástandinu.
Javier Solana, helsti talsmaður
Evrópusambandsins í utanrík-
ismálum, hitti Thaci að máli í
Pristina í gær þar sem þeir ræddu
um stöðuna í hinu nýstofnaða ríki.
Vill íhlutun hersins
Bróðir Milosevic skorar á Serba Ráðherra í Serbíu-
stjórn fagnar árásum Kosovo-Serba á landamærastöðvar
Í HNOTSKURN
»Íbúar Kosovo eru um tværmilljónir, þar af 10% Serbar.
»Serbar hafa kallað sendi-herra sína heim frá Bret-
landi, Frakklandi og Tyrklandi í
mótmælaskyni við að þessi ríki
skuli hafa viðurkennt sjálfstæði
Kosovo.
VETRARLEGT er um að litast í Grikklandi þessa dag-
ana. Allt að 15 metra djúpur snjór hefur legið á götum
Aþenu, sem verður að teljast óvenjulegt þar í borg. Um
tvö hundruð þorp hafa einangrast vegna snjóanna og
samgöngur gengið treglega. Fella varð niður flug um
Aþenuflugvöll og hefur lögreglan verið í viðbragðs-
stöðu. Víða hefur verið rafmagnslaust og var skólahald
féll víða niður í Aþenu og nágrenni.
AP
Snjóar á Aþenubúa
Moskva. AFP. | Vladimir Pútín, Rúss-
landsforseti tók á móti Abdelaziz
Bouteflika, forseta Alsír í Kreml í
gær. Rússland og Alsír eru meðal
þeirra landa sem selja hvað mest
jarðgas í Evrópu og var fundurinn
haldinn til að ræða möguleika á
samstarfi í anda OPEC-ríkjanna.
Bouteflika sagði fréttamönnum
fyrir fundinn að nauðsynlegt væri
fyrir gasútflutningsríki að sam-
hæfa orkustefnur sínar. Hann sagði
jafnframt að GECF, samtök gasút-
flytjenda sem sett voru á laggirnar
í Teheran árið 2001, ættu að vera
virkari, nauðsynlegt væri að standa
saman og mótmæla hamlandi lög-
um sem í gildi væru um orkuinn-
flutning hjá Evr-
ópusambandinu.
Rússland flyt-
ur inn 45% gass
til Evrópusam-
bandsríkja og
Alsír 20% og fer
vaxandi.
Alsírstjórn
hefur farið fram
á að skila 15
MiG-29 herþot-
um þar sem þær mættu ekki gæða-
kröfum. Atvik varpaði skugga á
fundinn í Kreml í gær, en rússneska
dagblaðið Izvestia hefur sagt það
áfall fyrir vopnaviðskipti Rúss-
lands.
Bindast samtökum vegna inn-
flutnings jarðgass til Evrópu
Pútín faðmar
Bouteflika í Kreml.
VIÐARBRENNSLUOFNAR til kynd-
ingar í heimahúsum njóta nú vin-
sælda á nýjan leik í Bandaríkjunum,
eftir að langþreyttir neytendur tóku
að leita leiða til að lækka hjá sér
orkureikninginn. Vestanhafs kynda
margir híbýli sín með brennslu gass
og olíu, leið sem orðið hefur miklu
dýrari samfara stöðugum hækkunum
á olíuverði: Verð á hráolíu hefur
hækkað úr 18 dölum tunnan fyrir um
áratug í hátt í 100 dali nú. Dagblaðið
The New York Times skýrði frá
þessu í gær, en þar sagði að þótt tölur
lægju enn ekki fyrir hjá Orkuupplýsingastofnuninni, EIA, væri búist við
mikilli aukningu á árinu 2006. Mörgum þykir viðarbrennsla sjarmerandi
leið til húshitunar en sá galli er á gjöf Njarðar að henni fylgir mjög mikil
mengun miðað við olíu- og gasofna og er munurinn allt að 8.000-faldur.
Viðarkynding aftur vinsæl
Loginn Bruni viðar til kyndingar
leiðir til töluverðrar mengunar.
SÉRFRÆÐINGAR komu saman í
Taílandi í gær á vegum Sameinuðu
þjóðanna til að meta næringargildi
skordýra. Þar var rætt hvernig best
mætti reka skordýrabú en skordýr
eru víða talin mikið lostæti og er
vilji til að breiða út neyslu á þeim
og efla þar með framleiðslu.
Samkvæmt upplýsingum Mat-
væla- og landbúnaðarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (FAO) leggur
mannkynið sér um 1.400 skor-
dýrategundir til munns. Meðal vin-
sælla tegunda eru bjöllur, maurar,
býflugur, krybbur og mölflugur.
Dýrin eru talin innihalda álíka mik-
ið prótín og fiskur eða kjöt.
Skordýr í
kvöldmatinn?
Reuters
Hunangsflugan Fæða framtíðar?
STUTT