Morgunblaðið - 20.02.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 20.02.2008, Qupperneq 16
$( , #     , #    9!  . 6%  4!  / + + / "%  "%  "%  "%  +, 7. *  8 *  /9 58%.     ' !: %     8    8     8 $(   ;(    !:   :   8  5#   Miðborgin | Hugmyndir stýrihóps, sem skip- aður er fulltrúum frá Austurhöfn-TR ehf., Reykjavíkurborg og Eignarhaldsfélaginu Por- tus hf., um umferðarskipulag við nýja Tónlist- arhúsið í Reykjavík eru á lokastigi, en þær gera ráð fyrir að Geirsgata verði lögð í a.m.k. 350 metra langan stokk neðanjarðar. Samkvæmt upplýsingum frá Ólafi Bjarna- syni, aðstoðarsviðsstjóra á framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar, má gera ráð fyrir að út- færsla þessi verði lögð fyrir borgarráð, skipu- lagsráð sem og umhverfis- og samgönguráð til afgreiðslu fyrir mánaðamót. Aðspurður segir hann framkvæmdina kosta á bilinu 2,5-3 millj- arða króna, en gert er ráð fyrir tveimur ak- reinum í hvora átt. Spurður hvort lagning Geirsgötunnar í stokk hafi áhrif á umferðina í miðborginni segir Ólafur að verið sé að skoða þetta í heild sinni hjá borginni. „Þetta er nú fyrst og fremst til að greiða fyrir umferðinni á Geirsgötunni sjálfri. Við reiknum með því að bílastæðahús á þessum stað muni létta á um- ferð í Kvosargötunum.“ Hjá Helga S. Gunnlaugssyni, framkvæmda- stjóra Eignarhaldsfélagsins Portusar hf., fengust þær upplýsingar að ráðgert væri að Geirsgata myndi liggja í stokk í gegnum bíla- stæðakjallara bygginganna við Austurhöfn. ;(      < %.  < %.  % ( *   ; '   ; '  <* <* Geirsgata lögð í stokk til að greiða fyrir umferð 16 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÞETTA leggst mjög vel í mig. Ég hef verið að- stoðarskipulagsstjóri í tæpt ár og þekki því bæði verkefnin og starfsfólkið vel, þannig að ég er bjartsýn og spennt,“ segir Ólöf Örvarsdóttir arkitekt, um nýja starfið sitt en borgarráð ákvað fyrir skemmstu að ráða Ólöfu í stöðu skipulags- stjóra til eins árs. Ólöf hefur starfað á skipulags- og bygging- arsviði frá árinu 2000 m.a. við verkefnastjórn og hefur frá mars 2007 gegnt stöðu aðstoð- arskipulagsstjóra. Ólöf er fædd 1968 og uppalin í Reykjavík. Hún er arkitekt að mennt, útskrif- aðist frá Arkitektaskólanum í Ósló árið 1995 og starfaði sjálfstætt þar til hún réð sig til starfa hjá borginni sem hverfisarkitekt fyrir Laug- ardalinn, Háaleiti og Fossvog, auk þess að halda utan um skipulagsmál Vatnsmýrarinnar fyrir hönd skipulags- og byggingarsviðs. Að sögn Ólafar hafa borgarmálin alltaf togað í hana, allt frá því hún lærði arkitektúr á sínum tíma. „Það felst mikil dýnamík í skipulagi borga, enda eru borgarskipulagsmál í stöðugri þróun,“ segir Ólöf og tekur fram að m.a. þess vegna sé þetta svo spennandi málaflokkur sem erfitt sé að yfirgefa. „Það er mikið að gerast í borginni. Hún er ung og kraftmikil. Við þurfum því ávallt að vera á tánum að bregðast við því sem kemur inn á borð til okkar og vera jafnframt með nýsköpun og taka frumkvæði.“ Styrkja þarf sérkenni hverfanna Spurð hvort hún sjái einhverja pytti sem var- ast beri við uppbyggingu ungrar borgar nefnir Ólöf hraðann. „Hann má aldrei verða á kostnað gæðanna. Lykilspurningin þarf því alltaf að vera hversu vel við getum gert hlutina en ekki hversu hratt,“ segir Ólöf og nefnir í því samhengi skipu- lagsvinnuna í Vatnsmýrinni sem dæmi um vel heppnaða vinnu þar sem sú hugsun hafi ráðið för að hlut- irnir væru skoðaðir í sam- hengi út frá t.d. umhverf- ismálum og sjálfbærni. Spurð hver séu lykilatriði í skipulagsmálum segir Ólöf ávallt mikilvægt að hafa í huga að skipulagsmál snúist um lífsgæði íbúanna í borg- inni. „Þá erum við að tala um manngert umhverfi, lífið milli húsanna og húsin sjálf,“ segir Ólöf og leggur mikla áherslu á að hagsmunir heildarinnar séu alltaf hafðir að leið- arljósi. Í þessu sambandi bendir Ólöf á að ekki sé t.d. nóg að huga bara að uppbyggingu nýrra borgarhverfa heldur þurfi jöfnum höndum að huga að þróuninni í eldri hverfum borgarinnar með því t.d. að styrkja kjarna eða miðsvæði við- komandi borgarhluta, hvort heldur það eru íþróttasvæði eða verslunarkjarnar. „Þó fók- usinn hafi verið og verði mikið á uppbygginguna í miðborginni þurfum við líka að huga að hinum grónu hverfum og bæði efla og styrkja sérkenni hvers hverfis fyrir sig.“ Endurskoðun aðalskipulags Spurð hver séu helstu verkefni framundan nefnir Ólöf vinnuna við endurskoðun að- alskipulags Reykjavíkur 2001-2024, sem ljúki væntanlega á næstunni, en þar verða ákveðin lykilsvæði sett í brennidepil ásamt umhverf- ismálum og samgöngum. Einnig nefnir hún gæðastefnu borgarinnar sem markmiðið sé að klára á þessu ári. Jafnframt sé búið að setja saman þverfaglegan hóp sem hafi það hlutverk að rýna í skipulag borgarinnar og þróun- aráætlun borgarinnar með það að markmiði að tvinna upplýsingarnar saman svo úr verði betra vinnuplagg sem auðvelt sé að framfylgja, auk þess sem Borgartúnið sé í endurskoðun. „Við þurfum því ávallt að vera á tánum“ Ólöf Örvarsdóttir Nýr skipulagsstjóri í Reykjavík segir hraða upp- byggingar aldrei mega koma niður á gæðum KEA hefur samið við alla sparisjóði á fé- lagssvæði sínu, Eyja- firði og Þingeyj- arsýslum, um útgáfu greiðslukorts; debet- korts og kreditkorts. Um þessar mundir eru tvö ár frá útgáfu KEA-kortsins, af- sláttar- og fríðindakorts sem félagsmenn fengu án endurgjalds, en nú er stigið skrefi lengra. „Með þessu erum við fyrst og fremst að auka þjónustu við okkar félagsmenn. Tvö ár eru síðan við komum með órafræna kortið en okkur hefur dreymt um að gefa út rafrænt kort,“ sagði Halldór Jóhanns- son, framkvæmdastjóri KEA, í gær. Hann telur KEA greiðslukortið einstakt; ekki sé um söfnunarkort að ræða heldur stað- greiðsluafsláttur gefinn strax við innkaup hjá 63 samstarfsfyrirtækjum KEA og handhafar kortsins missi heldur engin fríðindi annars staðar. Tók sem dæmi að félagar í Vildarklúbbi Icelandair haldi sín- um punktum og geti safnað þeim áfram í gegnum KEA greiðslukortið. Félagsmenn í KEA eru nú um 14.000 en voru 7.000 fyrir tveimur árum, áður en KEA kortið var gefið út. „Notkun kortsins hefur farið fram úr björtustu vonum allra sem að útgáfunni komu,“ sagði Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, markaðs- og kynning- arfulltrúi KEA, í gær. Fram kom á kynningarfundi í gær að meðal markmiða KEA og sparisjóðanna með útgáfu nýju kortanna væri að ýta undir verslun í heimabyggð. Vert er að geta þess að félagar í KEA fá kortið ekki sjálfkrafa, heldur verða þeir að biðja um það. Kort eru þegar tilbúin til afhend- ingar. Talsmenn KEA og sparisjóðanna segja árgjöld hagstæðari en á sambæri- legum kortum. KEA býður félögum greiðslukort Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is TALSMAÐUR ferðaþjónustunnar á Norðurlandi fagnar því að fram- kvæmdir vegna lengingar flug- brautarinnar á Akureyri þurfi ekki í umhverfismat, því það hljóti að flýta framkvæmdinni. Bæjarstjór- inn á Akureyri er á sama máli og vonar að verkið klárist í haust, en ljóst sé að engan tíma megi missa til þess að það markmið náist. Skipulagsstofnun hefur tilkynnt að hún telji ekki að framkvæmd- irnar hefðu í för með sér umtals- verð umhverfisáhrif, og skuli því ekki háðar mati á slíkum áhrifum. Markaðssetning „Ég er afar ánægð með þessa niðurstöðu og vonast til þess að þetta verk klárist á haustdögum í ár. En það er ljóst að til þess meg- um við engan tíma missa,“ sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjar- stjóri á Akureyri, við Morgunblað- ið í gær. Sigrún Björk segir að markaðssetning á Akureyrarflug- velli horfi nú öðru vísi við þegar tæknilegar hömlur verði úr vegi. „Ég tel skynsamlegast að Flug- stoðir, Akureyrarbær og Markaðs- skrifstofa ferðamála á Norðurlandi færu í samstarf um markaðssetn- ingu vallarins og það er verkefni sem ég mun beita mér fyrir að verði að veruleika. Ég hef rætt þann möguleika við framkvæmda- stjóra Flugstoða og þar inni er áhugi á slíku samvinnuverkefni,“ sagði bæjarstjórinn. Kjartan Lárusson, fram- kvæmdastjóri Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi, fagnar sömuleiðis úrskurði Skipulags- stofnunar og segir að vinna við málið hljóti að vera komin í gang, annars vegar vegna lengingar flugbrautarinnar og hins vegar tæknibúnaðar. „Þetta er í alla staði jákvætt fyr- ir ferðaþjónstuna og fagnaðarefni að öllu leyti,“ segir Kjartan. Hann telur mikilvægt fyrir Norðurland að flugbrautin á Akureyri verði lengd því það auki líkurnar á því að innlend flugfélög og erlend bjóði upp á millilandaflug til Akureyrar í auknum mæli á næstu áratugum. „Það er sérstaklega tvennt sem vinnst með því. Annar vegar að með því að fjölga komustöðum inn í landið verða ferðamöguleikar hins tímabundna nútímamanns mun meiri en hingað til; það þarf ekki alltaf að fara hringinn í kring- um landið enda hafa menn ekki tíma til þess lengur, og hins vegar – sem er ekki síður mikilvægt – þá léttir þetta á Keflavíkurflugvelli, en þar er álagið orðið ansi mikið. Í leiðinni mun þetta væntanlega létta nokkuð álag á hringveginum, sem er þjóðhagslega mikilvægt.“ Tvær flugur? Kjartan sagði líka að bætt að- staða á Akureyrarflugvelli yrði væntanlega til þess að hægt yrði að þróa millilandaflug utan há- annatímans hægt og sígandi, sem væri mjög mikilvægt. „Öll aðstaða til þess að taka á móti fólki hefur verið fyrir hendi um árabil en hótel og gistiheimili, og þeir sem starfa við ýmsa afþreyingu, hafa þurft að búa við það að takmarkað hefur verið hægt að flytja hingað af fólki.“ Kjartan hvetur til þess að hafist verði handa við að bora Vaðlaheið- argöngin líka, því þannig fáist efni til uppfyllingar vegna lengingar flugbrautarinnar. „Þannig má slá tvær flugur í einu höggi.“ Ekki náðist í Kristján Möller samgönguráðherra í gær. Vonar að lengingu flug- brautarinnar ljúki í haust Árvakur/Skapti Hallgrímsson Lenging Séð yfir Akureyrarflugvöll úr suðri. Brautin verður lengd í þá átt, um alls 460 metra. Eins og sjá má er mikið pláss til þess. Ánægja með að framkvæmdir þurfi ekki í umhverfismat Í HNOTSKURN »Flugbrautin á Akureyr-arflugvelli verður lengd um 460 metra til suðurs. Auk þess verða sett upp aðflugs- ljós, öryggissvæði sett upp við suðurenda brautarinnar og flughlað verður byggt upp norðan flugstöðvarbygging- arinnar. »Fyrirhugaðar fram-kvæmdir við flugvöllinn rúmast, skv. skýrslu Skipu- lagsstofnunar, innan aðal- skipulags Eyjafjarðar 2005- 2018, deiliskipulags Akureyr- arflugvallar og aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2005-2025. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.