Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 18

Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 18
Hjólabretti og Guð Í kapellunni getur fólk leitað næðis. Hingað geta þeir semeiga hvergi heima kom-ið og fengið fría súpuog brauð. Í staðinn passa þeir að við fáum ekki stöðu- mælasekt. Rónarnir elska okkur sem er gott mál. Þetta hús er öll- um opið,“ segir Stebbi eða Stefán Björnsson sem er einn af þeim sem standa að Kaffihúsinu Kaffi Rót sem er í Hafnarstrætinu, en það er rekið af líknarfélaginu 180. Stebbi segir að Kaffi Rót gangi meðal annars út á að bjóða upp á ódýrt kaffi fyrir alla og góða net- aðstöðu fyrir gesti. „Við erum líka með risastóran skjá til að fólk geti komið og fylgst með fótbolta- leikjum. Hingað kemur mikið af AA-fólki, nemendur úr Háskól- anum og framhaldsskólum og bara alls konar fólk, enda er notalegt andrúmsloft hérna.“ Tónlist og jaðaríþróttir Á neðri hæðinni er stílað inn á unglingana, þar er svið og hljóm- sveitum velkomið að koma og spila og til stendur að hafa tónlist- arkeppni. „Á miðvikudögum getur hvaða band sem er komið og spil- að í stutta stund og þeir sem standa sig best fá að halda tón- leika á laugardeginum á eftir,“ heldur Stebbi áfram. „Við leggjum áherslu á forvarnarstarf og viljum sýna grunnskólakrökkum og öðr- um unglingum að það er hægt að skemmta sér og gera ótal margt áhugavert án þess að drekka eða dópa. Hérna kynnum við líka alls- konar jaðarsport, eins og kajak- róður, sjóbretti og hjólabretti og við erum að byrja með litla búð hér í einu horninu sem verður með fatnað sem tengist þessum jaðaríþróttum. Við erum með rosalega flinka brettastráka og kajakstráka sem ætla að kynna hérna hjá okkur þessar íþróttir.“ Hann segir starfið fyrst og fremst hugsjónastarf. „Við viljum ná til grunnskólakrakkanna af því að það er svo margt að varast. Krakkarnir geta komið hingað niður í kjallara og kjaftað saman, farið í hlutverkaleik eða gert hvað annað skemmtilegt sem þeim dett- ur í hug.“ Engin helgislepja Á neðri hæðinni er lítil kapella sem er hugsuð sem afdrep fyrir þá sem vilja vera í næði. „Hingað geta allir farið inn sem líður illa og hún Sue sem vinnur hérna hjá okkur og er frá Nýja Sjálandi, fer með fólki hingað nið- ur ef það vill og talar við það. Hér er líka lítið altari og hægt að biðj- ast fyrir ef fólk vill það. Hugsunin hér á Kaffi Rót er kristileg en fyrst og fremst snýst þetta um kærleikann. Við erum með fræðslu á fimmtudagskvöldum og tölum þá um Guð á okkar hátt og hvernig trúin hefur hjálpað okkur,“ segir Stebbi sem trúir á Guð en fer aldrei í kirkju. „Mér finnst Guð vera settur í kassa í kirkjunni og ég fíla það ekki, af því að Guð er nógu stór til að allir geti trúað á hann, hver á sinn hátt. Hér er enginn heilagleiki svífandi yfir vötnum eða halelúja stemning.“ Viljum örva sjálfstæða hugsun Ekkert áfengi er selt á Kaffi Rót, en þar er dansað og spilað, mikið teflt og fólk getur gripið í gítar ef það vill. „Á hverju sunnu- dagskvöldi kemur hópur og dans- ar hérna dans frá fjórða áratugn- um, einhverskonar bandarískan Grease-dans, og öllum er velkomið að koma og horfa á.“ Kaffi Rót er ekki rekið sem gróðafyrirtæki, heldur sem góð- gerðarstofnun. Landsbankinn út- vegar húsnæðið, Matstofa Kópa- vogs gefur súpuna og margir fleiri hafa gefið bæði vinnu og hluti. „Mjög margir hafa verið góðir við okkur sem tónar vel við náunga- kærleikann sem hér er í heiðri hafður. Ómar Blápunktur, einn frægasti róni bæjarins, hefur til dæmis unnið mikið að því að skapa þetta kaffihús. Hann bjó nánast til efri hæðina og hefur lagt mikið af mörkum,“ útskýrir Stebbi. Yfirmaðurinn á staðnum er Ingi Stefánsson sem áður var með Kaffi Nauthól á sínum tíma. „Við byggjum þetta á kristnum grunni en við erum ekki í trúboði. Hér ríkir jafnræði og fordómaleysi og við viljum sjá suðupott. Menn eru nefnilega frjórri þegar þeir eru ekki við skál og þá fæðast hug- myndir.“ Stebbi segir Kaffi Rót og starf- semina þar vera tilraunaverkefni til eins árs. „En við ætlum að hafa áhrif og skilja eftir okkur svo góð spor að starfsemin hér fái að lifa áfram. Við viljum leggja okkar af mörkum til að forða fólki frá því að fara út í rugl og gefa fólki tækifæri á að hugsa út fyrir rammann í stað þess að apa upp eftir öðrum. Við viljum örva sjálf- stæða hugsun hjá ungu fólki og minna á að við getum lært enda- laust af náunganum.“ khk@mbl.is Rónarnir elska okkur Árvakur/Golli Taflhorn og gítar Vinsælt er að tefla og taka í gítarinn. Suðupottur hugmynda, tónlistar og jaðarsports er tilgangur með kaffi- húsi í miðbænum sem leggur mikið upp úr því að kynna fyrir ungling- um allt það skemmti- lega sem hægt er að gera án þess að vera í dópi eða víni. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti hugsjónafólk án fordóma á Kaffi Rót. www.myspace.com/caferot „Ómar Blápunktur, einn frægasti róni bæjarins, hefur til dæmis unnið mikið að því að skapa þetta kaffihús. Hann bjó nánast til efri hæðina og hefur lagt mikið af mörkum.“ Hugsjón Stebbi og þeir sem standa að Kaffi Rót eru mikið hugsjónafólk og vilja leggja sitt af mörkum. |miðvikudagur|20. 2. 2008| mbl.is daglegtlíf Rúnar Kristjánsson skrifar að íeina tíð hafi mikið verið talað um fjórmenningaklíku, en þegar tiltekið fólk hafi forðað sér um bakdyr af vissum fundi hafi kviknað þessi vísa: Sýnir helst á flónsku ferð flóttavilja ríkan, sundurleit að sálargerð, sexmenningaklíkan. Og um blaðamannafundinn í kjölfarið orti hann: Útspil Villa sýnist séð, síst það stöðu bætti. Sumir axla ábyrgð með undarlegum hætti. Rúnar heldur meira upp á borgarstjórann fráfarandi, Dag B. Eggertsson: Hann sig lausan feginn fékk, fágaður og skafinn. Líkt og engill út svo gekk, allra hrósi vafinn. Hann yrkir vegna andlátsfrétta: Þegar lífsins gestir góðir ganga undir hlýra jarðar, falla hratt um heljarslóðir huglæg vötn til Dýrafjarðar. Loks yrkir Rúnar: Þorri beittar kuldaklær kýs að sýna. En verri í öllu þykja þær þó í Kína. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af Kína og borgarmálum Það er Engin sorgleg sambandsslit

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.