Morgunblaðið - 20.02.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 20.02.2008, Síða 21
vistvænt MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 21 verðlaunahugmyndin var kynnt í Morg- unblaðinu í liðinni viku og opnar augun fyrir þeim möguleikum, sem svæðið býður upp á. Þegar uppdrátturinn er skoðaður vaknar hins vegar spurning um hvort höfundarnir, Graeme Massie, Stuart Dickson, Alan Keane, Tim Ingleby, sem eru frá Skotlandi, ætli að breyta Reykjavík í Las Vegas því að skammt frá Nauthólsvíkinni gera þeir ráð fyrir spilavítishóteli. Ekki er langt síðan lögreglan leysti upp sam- komu þar sem átti að halda mót í pókerspili þannig að það verður tæp- lega mikill friður um spilavítið að óbreyttu. x x x Í tillögu Johanna Irander, NunoGonçalves Fontarra frá Hollandi er ekki aðeins hugsað um Vatnsmýr- ina í samhengi við Reykjavík heldur allan Reykjanesskagann. Segul- mögnuð hraðlest bindur höfuðborg- ina við Keflavíkurflugvöll. Þau gera ráð fyrir að yfir Öskjuhlíðinni svífi eilíft ský búið til úr gufu, sem hleypt er upp úr jörðinni. Þannig hyggjast höfundarnir binda himin og jörð. x x x Þriðja tillagan, sem þótti í fremsturöð, er eftir Jean-Pierre Pran- las-Descours, Christine Dalnoky, Ove Arup frá Frakklandi. Þau gera ráð fyrir lágu byggingarhlutfalli og leggja áherslu á umhverfisþáttinn. Í öllum þessum hugmyndum virðist sitt hvað vera nýtilegt fyrir framtíð- arskipulag Vatnsmýrarinnar. Víkverji er mikilláhugamaður um skipulagsmál í Vatns- mýrinni. Hann hefur reyndar gert sér grein fyrir því að uppbygging byggðar í stað flugvall- arins mun kalla á rask, sem mun hafa áhrif í Mið- og Vesturbæ svo árum skiptir. Búast má við miklu truflunum á umferð vegna fram- kvæmdanna, en hins vegar er ekki ljóst hvaða áhrif það mun hafa til langs tíma á umferðina að fá byggð í Vatnsmýrina. x x x Hugmyndasamkeppnin umskipulag Vatnsmýrarinnar gat af sér forvitnilegar hugmyndir. Ein        víkverji skrifar | vikverji@mbl.is FRAMLEIÐSLA flöskuvatns orsak- ar 600 sinnum meiri losun koltvísýr- ings en vatnið úr krananum. Þetta eru niðurstöður nýrrar breskrar rannsóknar sem Berlingske tidende greinir frá. Í ljós kom að vatn á flöskum, af teg- undunum Evian og Volvic, mengar jafnmikið og bíll sem ekur einn kíló- metra. Þetta kom m.a. fram í heimild- armynd sem sýnd var á bresku BBC sjónvarpsstöðinni og hefur vakið mikla athygli á Bretlandi og í Ástr- alíu. Umhverfisverndarfólki er ákaf- lega brugðið yfir því hversu mikill koltvísýringur fer út í andrúmsloftið við framleiðsluna og t.a.m. er haft eft- ir formanni ástralskra umhverfis- samtaka, Ian Kiernan, að réttast væri að senda fólk, sem kaupir flöskuvatn, í geðrannsókn. Kiernan er þeirrar skoðunar að efna ætti til sambærilegra herferða gegn flöskuvatni og gert hefur verið gegn reykingum. Undir það tekur Tim Lang, umhverfisráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar. „Við verðum að gera fólki ljóst að það er ekki í tísku að drekka flöskuvatn, rétt eins og bent hefur verið á með reykingarnar. Til þess þarf svipaða auglýsingaher- ferð sem sannfærir fólk um að það sé að breyta rangt þegar það kaupir vatn á flösku,“ segir hann. Breski umhverfisráðherrann, Phil Woolas, bætir við að þær peninga- upphæðir sem notaðar eru til kaupa á flöskuvatni „séu á mörkum þess að teljast siðlegar“. Umhverfishópar og vatnsveitur hafa þegar sett af stað umtalsverða herferð gegn flöskuvatnsiðnaðinum, sem veltir um tveimur milljörðum punda eða um 260 milljörðum króna árlega í Bretlandi. Ekki er vitað hvort hægt er að yf- irfæra bresku tölurnar beint á ís- lenskar aðstæður. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Vatn Það skiptir öllu máli hvort vatnið kemur úr krana eða flösku. Flöskuvatn mengar margfalt          ! "##$%&  ! '& ()* +  *, )"# &+  -. -/ & & ) 0   012&2)!. )  012 3 )0 &04'  5   4!         7 4' 0 &0  ! "##8 9: &)   2! "##8 6%( 0)&   :)0& &  ) !!"##8 ()&2) ! 01203 ) -/  ) 4' 0 4  &   :)4'  :)&:  3 ) 6%( 01'4' 25 4(,0   ) 0 0 ),;&) 4'    ) 0 &04'  < !&) 0,     =0! %5 &  :) )()0  0%&   &  (0& 0: 0(01& !  ! ->?-.! &)  &) )()0 :) %5 &  %&  5 -.  )! *& &) ()*!&)3 )*7 4'  :)7 &: & ))4  00  (07!4 "* @  5 A&)()&&) )&)&)!BBB )  4'     -hágæðaheimilistæki Magimix kaffivél nú með flóunarkönnu Verð kr.: 34.990 Njótið þess að fá rjúkandi kaffi, cappuccino eða caffe latte á innan við mínútu heima í eldhúsi. Magimix kaffivélarnar nota einungis Nespressó kaffi af bestu gerð. Verið velkomin í verslanir Eirvíkur á Akureyri og í Reykjavík og kynnið ykkur Magimix kaffivélarnar. vi lb or ga @ ce nt ru m .is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 Kaffihúsið heim í eldhús www.eirvik.is Alltaf í sambandi erlendis

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.