Morgunblaðið - 20.02.2008, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sigurðsson.
Styrmir Gunnarsson.
Forstjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
EINRÆÐISHERRA FER FRÁ
Fidel Castro tilkynnti í gær aðhann hygðist láta af embættiforseta Kúbu. Eftir tæpt ár
hefði hann verið búinn að vera við völd
í hálfa öld en hann sá sér greinilega
ekki fært að sitja lengur. „Það væru
svik við samvisku mína að axla ábyrgð
sem krefst hreyfanleika og fullkom-
innar skuldbindingar, sem ég er ekki í
líkamlegu ásigkomulagi til að veita,“
skrifaði Castro í grein, sem birtist í
málgagni hans, dagblaðinu Granma,
um ákvörðunina.
Það er óhætt að segja að nokkurrar
valdþreytu hafi verið farið að gæta hjá
hinum aldna leiðtoga. Samkvæmt
fréttum í gær búast Kúbverjar hins
vegar greinilega ekki við því að afsögn
leiðtogans boði miklar breytingar.
Líklegast er talið að bróðir hans, Raúl
Castro, taki við valdataumunum þegar
þjóðþing Kúbu kemur saman á sunnu-
dag. Raúl Castro hefur verið tíma-
bundið við völd frá því að Fidel Castro
þurfti að fara í skurðaðgerð í júlí 2006.
Opinberlega hefur hann ekki snúið
aftur og hann hefur ekki náð sér að
fullu, en stjórnað bak við tjöldin. Nú
kveðst hann ætla að hafa áhrif með
skrifum sínum: „Ég óska þess aðeins
að berjast sem hermaður hugmynd-
anna.“
Castro setti mark sitt rækilega á
sögu tuttugustu aldarinnar. Hann
fæddist utan hjónabands árið 1926.
Faðir hans var plantekrueigandi og
móðir hans þjónustustúlka. Í laganámi
í háskólanum í Havana hóf hann af-
skipti af stjórnmálum. Árið 1953 gerði
hann misheppnaða tilraun til að
steypa harðstjóranum Fulgencio Bat-
ista, sem hafði rænt völdum á Kúbu
árið áður. Batista var óvinsæll á Kúbu
og stjórn hans spillt, en hann naut
stuðnings Bandaríkjamanna, enda var
hann hliðhollur bandarískum fyrir-
tækjum. Castro var sleppt úr fangelsi
eftir tvö ár og fór þá til Mexíkó þar
sem hann komst í tygi við Che Guev-
ara. Árið 1956 sneri hann aftur til
Kúbu ásamt hópi uppreisnarmanna og
á nýársdag 1959 náði hann völdum.
Þegar Castro komst til valda boðaði
hann kosningar og kvaðst ætla að end-
urvekja stjórnarskrá landsins. Hann
fór til Bandaríkjanna og leitaði þar
stuðnings, en allt kom fyrir ekki. Það
var ekki fyrr en eftir innrásina í Svína-
flóa, sem bandaríska leyniþjónustan
skipulagði samkvæmt fyrirmælum
John F. Kennedy til að steypa Castro
af stóli, sem hann lýsti yfir að hann
væri marx-lenínisti og leitaði fyrir
fullt og allt í faðm Sovétríkjanna. Kúb-
verski herinn er ekki öflugur um þess-
ar mundir, en hann var einn sá mátt-
ugasti í álfunni á sínum tíma og Castro
studdi uppreisnaröfl í Angóla og víða í
Suður-Ameríku, Bandaríkjamönnum
til mikillar gremju. Öllum lýðræðis-
hugsjónum var kastað fyrir róða og
mannréttindi fótumtroðin. Enn er það
svo að samkynhneigðir eru ekki liðnir
og prestar ofsóttir. Stjórnarandstæð-
ingum er varpað í fangelsi.
Í kjölfarið á innrásinni í Svínaflóa
ákvað Nikita Krústsjov að koma á laun
fyrir kjarnorkuflaugum á Kúbu, sem
hefði hæglega getað leitt til kjarn-
orkustyrjaldar. Þegar Bandaríkja-
menn áttuðu sig á því hvað var að ger-
ast í túnfætinum hjá þeim stóð
heimurinn á heljarþröm. Kúbudeilan
stóð í fjórtán daga. Loks gáfu Sovét-
menn eftir og fjarlægðu flaugarnar
gegn loforði Bandaríkjamanna um að
ráðast ekki inn í Kúbu. Bandaríkja-
menn stóðu við orð sín, en hafa gert
ófáar tilraunir til að ráða Castro af
dögum. Einnig settu þeir viðskipta-
bann á Kúbu og stendur það enn. Við-
skiptabannið hefur haft mikil áhrif.
Kúba varð algerlega háð Sovétríkjun-
um. Þegar þau liðuðust í sundur fór
hins vegar að síga á ógæfuhliðina og
efnahagsáhrif bannsins gerðu vart við
sig fyrir alvöru. Kúba reyndi að halla
sér að Kína, en stuðningurinn þaðan
var takmarkaður. Viðskiptabannið
hefur vissulega haft áhrif á kúbverskt
efnahagslíf, en það hefur einnig veitt
Castro skálkaskjól. Hann gat kennt
Bandaríkjamönnum um ástandið.
Stuðningsmenn Castros segja hon-
um til hróss að hann hafi komið á heil-
brigðiskerfi, sem allir Kúbverjar njóti
góðs af, og tryggt öllum íbúum lands-
ins jafnrétti til náms. Í þessum efnum
stendur Kúba framar mörgum grann-
ríkjum í Rómönsku Ameríku. Honum
hefur einnig verið hrósað fyrir að hafa
upprætt kynþáttafordóma í landinu,
þótt enn sé það svo að á Kúbu njóta
íbúar af spænskum uppruna meiri vel-
megunar en þeir, sem dekkri eru á
hörund. Castro nýtur líka sérstöðu að
því leyti að öndvert við flesta einræð-
isherra okkar daga hefur hann ekki
sankað að sér auðæfum á erlendum
bankareikningum.
Hann nýtur einnig virðingar víða í
Rómönsku Ameríku fyrir að bjóða
Bandaríkjamönnum byrginn – tíu
Bandaríkjaforsetar hafa reynt að
koma honum frá völdum. Castro er
fyrirmynd vinstri leiðtoga á borð við
Hugo Chavez í Venezuela, Evo Mor-
ales í Bólivíu, og Luiz Inácio Lula da
Silva í Brasilíu.
En hvað tekur nú við á Kúbu? Raúl
Castro er ekkert unglamb lengur og
flestir líta svo á að hann verði aðeins
við völd til bráðabirgða. Hann hefur
gefið til kynna að Kúba væri reiðubúin
til að undirrita mannréttindayfirlýs-
ingu Sameinuðu þjóðanna, nokkuð
sem bróðir hans hefur aldrei viljað
gera. Raúl gæti einnig lagt grunn að
því að koma á sáttum við Bandaríkja-
menn, en það hefur verið útilokað í
valdatíð Fidels Castros.
Samskipti Kúbu við Evrópu eru
stirð um þessar mundir vegna gagn-
rýni Evrópusambandsins á mannrétt-
indabrot. Samskiptin eru jafnvel betri
við Bandaríkjamenn, eins ólíklega og
það kann að hljóma. Ekki má gleyma
því að Kúba kaupir árlega matvæli að
andvirði 500 milljóna dollara af
Bandaríkjamönnum gegn stað-
greiðslu og undir þeim merkjum að um
sé að ræða aðstoð í mannúðarskyni.
Raúl Castro óskaði einnig í ræðu í
fyrra eftir tillögum þjóðarinnar um
grundvallarumbætur. 3,5 milljónum
hugmynda og krafna rigndi yfir
stjórnina. Þessar hugmyndir hafa ver-
ið dregnar saman í áætlun, sem á að
leggja fyrir þing landsins og næstu
stjórn. Einnig má sjá vísbendingar um
að leyfa eigi opnari umræðu en áður.
Eftir stendur hins vegar að áfram
verður einn flokkur við völd í landinu
og Kúba verður áfram kommúnista-
ríki. Íbúar Kúbu eru hins vegar orðnir
langþreyttir á ástandinu og það verð-
ur erfitt fyrir stjórnina að standast
þrýsting almennings um umbætur.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Fidel Castro tilkynnti í gærað vegna veikinda hygðisthann ekki taka við völd-unum að nýju á Kúbu, eft-
ir að hafa stjórnað landinu í tæpa
hálfa öld.
Castro skýrði frá ákvörðun sinni í
bréfi sem birt var í Granma, mál-
gagni kommúnistaflokksins á
Kúbu. Hann sagði ekkert um hver
ætti að taka við af honum en flestir
stjórnmálaskýrendur telja að bróð-
ir hans, Raul Castro, verði kjörinn
forseti landsins á þinginu á sunnu-
daginn kemur eftir að hafa gegnt
embættinu til bráðabirgða frá því
að Fidel veiktist fyrir nítján mán-
uðum. Raul er 76 ára, aðeins fimm
árum yngri en Fidel.
Raul er lýst sem harðfylgnum og
raunsæjum stjórnmálamanni en
hann er ekki eins gustmikill og
gæddur eins miklum persónutöfr-
um og Fidel. Nokkrir stjórnmála-
skýrendur telja ólíklegt að Raul
haldi lengi velli sem leiðtogi lands-
ins án stuðnings bróður síns.
Í bréfinu skírskotaði Fidel
Castro til „miðkynslóðar“ forystu-
manna byltingarinnar á Kúbu og
gaf til kynna að einhver yngri mað-
ur kæmi til greina í embættið. Carl-
os Lage, 56 ára varaforseti Kúbu,
er talinn líklegur eftirmaður
Castro-bræðranna, en hann hefur í
raun gegnt hlutverki forsætisráð-
herra í landinu. Lage nam læknis-
fræði og félagsvísindi og stundaði
lækningar í Eþíópu áður en hann
varð einn af nánustu samstarfs-
mönnum Castros. Hann átti stóran
þátt í efnahagsumbótum sem komið
var á vegna efnahagsþrenginganna
á Kúbu eftir hrun Sovétríkjanna í
byrjun síðasta áratugar.
Felipe Perez Roque, 46 ára utan-
ríkisráðherra Kúbu, hefur einnig
verið nefndur sem forsetaefni.
Telja að Raul breyti litlu
Hreyfingar kúbverskra útlaga
gerðu lítið úr yfirlýsingu Fidels
Castros og sögðust ekki telja að
miklar breytingar yrðu á stjórn
landsins ef Raul Castro yrði kjörinn
forseti.
Orlando Fondevilla, talsmaður
Spænsk-kúbversku stofnunarinnar
í Madríd, sagði að lítið hefði breyst
með yfirlýsingu Castros. „Allt get-
ur gerst, en eins og staðan er núna
hafa engar raunverulegar breyting-
ar orðið á Kúbu,“ sagði Fondevilla,
sem flúði þaðan fyrir ellefu árum.
„Vissulega eru það góðar fréttir að
þessi maður [Fidel Castro] skuli
ekki vera lengur við völd formlega,
en áhrifa hans mun gæta eins lengi
og hann lifir.“
Fondevilla sagði að Raul Castro
hefði ekki komið á neinum umtals-
verðum efnahagslegum eða póli-
tískum umbótum frá því að hann
tók við forsetaembættinu til bráða-
birgða 31. júlí 2006 eftir að Fidel
gekkst undir skurðaðgerð. „Raul
Castro breytist ekki í lýðræðissinna
á einni nóttu.“
Enrique Gutierrez, leiðtogi sam-
taka Kúbumanna á Spáni, spáði því
að kommúnistastjórnin á Kúbu
myndi „deyja með Fidel Castro“.
Carlos Malamud, sérfræðingur í
málefnum Rómönsku-Ameríku hjá
rannsóknarstofnuninni Real Elcano
á Spáni, kvaðst hins vegar vera ef-
ins um að verulegra breytinga væri
að vænta á Kúbu. „Við vitum ekki
enn hvort Raul Castro er fær um að
koma á umbótum og hvaða afstöðu
almenningur á Kúbu tekur,“ sagði
hann. „Ég tel að þeir reyni að auka
við þær umbætur sem þeir hafa
þegar hafið en það verða ekki mikl-
ar breytingar á meðan Fidel er enn
á lífi.“
George W. Bush Banda
seti kvaðst vona að brotth
els Castros leiddi til lý
Kúbu. „Ég tel að tímabil b
sé hafið á Kúbu og þetta
vera upphafið að lýðræ
umskiptum.“
Viðskiptabanni ekki afl
Stjórn Sósíalistaflokk
Spáni sagði að með afsög
Castros hefði Raul fengið
til að koma á umbótum s
hefði sjálfur sagt að væru
legar. Spænska stjórni
reynt að beita sér fyrir um
Kúbu með viðræðum við
stjórnvöld, ólíkt Bandarí
sem hefur reynt að einangr
únistastjórnina í Havana.
Spænskir og kúbverskir
ismenn ræddu mannréttin
Telja ekki horf
um breytingum
Fidel Castro
ákveður að draga
sig í hlé eftir að
hafa verið við völd
í tæpa hálfa öld
!
&
!
(('
*
%*+
('
,*
) +
!" # "
'()
))&
*()
))&
-./0.1 2# 3/
#$%
8
:;+-)<=>
:%"
.
'
1@
A
,,(5%
6 "7
2 80 9 3
:+
9 2 &
('
*
$+
1%4
;;
"
;; 2
& < =,2 & & ! 61 9
8
/,
,,"4
,
> BC
#;
,, :& C
D1 ,C
E &
*BBB
!
*BB
!
*BBB
(CA(
B #;
:&
D1
E
*BB
*B
(
<
1"#
2 "3
2# #/#
"2# 2#
976 47
:. "
1
*
*+F/,
9
! #
, $ &
+
('
*
!+
/
=6
;;+
;"&
+
<
G"&
+
5% "
E$'
F? % +
#
!1 +& G*
$A
H
H
+
A!
('
*
*+$5
H
A!
&& IH J 1
1;
6
!1
1
#
<
*+AF, <
6+ ;;
"
,
>,
;
H
&
, #
<
&
*+9;
H
;
4
";;
(C'
*
) + K1
I
"J
6 <&
;; (('
*
*+6
K
B "&K
, / *+K "1
8<G2F
#
&
,
0*+&1
1
A!""&
#
1
,+
&
&&
::A
::A
+A
#
.:%"
/
: &
+=
» Fidel Castro hafði verið við völd frá árinu
1959, lengur en nokkur annar þjóðhöfðing
heiminum að konungum undanskildum. Tíu
bandarískir forsetar höfðu reynt að koma Ca
frá og talið er að leyniþjónustan CIA hafi ma
reynt að ráða hann af dögum.
Raul CastroCarlos Lage