Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 25

Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 25 HVERNIG er hægt að fyrirgefa þeim sem misnota börn, þeim sem beita einhverskonar ofbeldi, nauðga eða taka líf annarrar manneskju? Mannlega séð er það ekki auð- velt, jafnvel illmögulegt og ekki ætla ég að segja til um það hverjum eigi að fyrirgefa og þá hvenær eða hvernig? Ef það er þá hægt? Þegar um refsiverða glæpi er að ræða hlýtur að vera eðlilegt að kæra. Taka þá leikreglur samfélags- ins við og dæma viðkomandi ger- anda til hegningar eftir vonandi sanngjörnum lögum landsins. Hegningin hlýtur þá að taka mið af því að forða sam- félaginu frá glæpa- manninum um tíma. Hegningin hlýtur þó ekki síður að miðast að því að koma við- komandi ódæðismanni til hjálpar eða betr- unar svo hann sjái að sér, bæti ráð sitt og geri síður glæpsamleg glappaskot eða mistök framvegis. Allt hlýtur þetta að vera bæði mann- og þjóðfélagslega bæt- andi og auk þess ákveðin viðurkenning kerfisins gagnvart þol- anda að refsivert at- hæfi hafi verið framið og því réttlætinu full- nægt að einhverju marki með dóms- uppkvaðningu og þar til gerðri refsingu eða öllu heldur einhvers konar betrun eða við skulum alla vega vona að svo sé. Brotaþola og samfélaginu öllu hlýtur því að líða betur? Þótt vissulega hljóti úr- vinnsla erfiðra tilfinninga, sársauki og sorg þolanda, fjölskyldu hans og vina að standa eftir. Svo er sumt ofbeldi og misrétti sem aldrei verður hægt að sanna og hvað þá kæra þótt miskunnarlaust og mannskemmandi hafi verið. Meiðandi mannleg samskipti Í daglegum samskiptum manna verðum við fyrir alls kyns árekstr- um. Á okkur er hallað, okkur er hafnað, við erum beitt órétti, við er- um svikin, lögð í einelti eða beitt einhvers konar ofbeldi. Þá vaknar sú áleitna og erfiða spurning hvort hægt sé að fyrirgefa þeim sem gerir eitthvað á okkar hlut? Hverjum á að fyrirgefa og þá hvenær og hvernig? Hvað sem öllu ranglæti, ofbeldi og glæpum líður, þá heldur lífið allt- af einhvern veginn áfram. Og þá er spurningin: Er hægt að lifa með orðinni framkomu eða verknaði og þá hvernig? Sumt verður aldrei tek- ið aftur og aldrei bætt, jafnvel þrátt fyrir iðrun og góðan vilja. Öll viljum við sjálfsagt komast sem skást út úr áföllum. Sjá til sól- ar á ný, þótt orðin reynsla marki óneytanlega djúpt sár og skilji oft eftir illgræðanlegt ör sem við neyð- umst til að bera og lifa með þótt við hefðum svo sannarlega óskað þess heitast af öllu að hafa sloppið við að eignast þessa algjörlega óumbeðna reynslu. Ef við hins vegar viljum vinna að því að ná áttum eftir hvers konar áfall er þá rétta leiðin að nærast á og vilja viðhalda beiskju og biturð, hatri og hefnd? Eða er það raun- hæfur valkostur að vilja leitast við að fyrirgefa, ef það er þá á mann- legu valdi? Fyrirgefning er ekki sama og samþykki Fyrirgefningin kostar ákveðnar hugarfarslegar fórnir. Við þurfum að ganga í okkur og jafnvel að brjóta odd af oflæti okkar. Það getur verið sárt. Fyr- irgefningin er spurn- ing um lífsafstöðu, hún er liður í úrvinnslu til- finninga. Þegar upp er staðið gefur hún mikið. Það er eins og þungu fargi sé af hjarta okk- ar létt. Lífsgangan verður bærilegri og við sáttari við náung- ann, umhverfið og ekki síst okkur sjálf. Það að fyrirgefa er ekki það sama og að sætta sig við eða sam- þykkja einhverja liðna meiðandi atburði. Síð- ur en svo. En það er að sætta sig við að at- burðurinn er fortíð sem við fáum ekki breytt. Við hljótum að þrá réttlæti og við sættum okkur ekki við liðna meiðandi atburði sem rændu okkur einhverju mikilvægu og dýrmætu, ollu mikilli vanlíðan og jafnvel óbætanlegu tjóni. Við skulum aldrei samþykkja slíkt framferði í hvaða mynd eða á hvaða stigi sem það kann að birtast. Stöndum saman um að koma í veg fyrir misnotkun, ofbeldi og hvers konar glæpi. Finnum leiðir til að koma fórnarlömbunum til var- anlegrar hjálpar svo þau þurfi ekki að burðast ein með hina erfiðu líð- an. Að festast í reiði, beiskju og bit- urð, hatri og hefnd þegar til lengri tíma er litið er mannskemmandi, við stöðnum og festumst í sárri fortíð- inni. Beiskja og biturð, hatur og hefnd leiðir okkur endanlega inn í myrkur og ógöngur. Sú lífsafstaða að vilja að sér sé fyrirgefið og jafnvel óverðskuldað og það að reyna í veikum mann- legum mætti að fyrirgefa náung- anum bætir líðan okkar á leið til framtíðar. Hatrið ýfir upp sár sem alltaf verða flakandi og aldrei gróa. En fyrirgefningin er eins og græð- andi smyrsl. Þótt vissulega sitji allt- af eftir ör sárra minninga. Dagurinn í gær eða dagurinn í dag. Okkar er valið. Við getum ekki lifað báðum. Annaðhvort festumst við í fortíðinni eða lifum deginum í dag og horfum fram á veginn með reynslu fortíðar sem bakgrunn en ekki sem stjórnanda. Kannski er það svo eftir allt sam- an ekki á mannlegu valdi að fyr- irgefa? Hvað er þá til ráða? Guð, Jesús Kristur. Hann megnar allt. Felum okkur því honum sem mýkir hjörtun. Honum sem kann, vill og getur fyrirgefið og vill fá að reisa okkur upp á ný til vonarríkrar og bjartrar framtíðar. Er fyrirgefningin raunhæfur valkostur? Fyrirgefningin kostar ákveðnar hugarfarslegar fórn- ir, segir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Það að fyrir- gefa er ekki það sama og að sætta sig við eða samþykkja ein- hverja löngu liðna meiðandi atburði. Síður en svo. Höfundur er rithöfundur og framkvæmdastjóri Laugarneskirkju. LOKSINS, loksins. Frábær kona er tilbúin til að axla ábyrgð í Borgarstjórn Reykjavíkur fyr- ir okkur sjálfstæðismenn. Ég hef lengi beðið eftir þessari stundu. Með fullri virðingu fyrir öllum í borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna ber Hanna Birna af eins og gull af eiri. Vitanlega fylkjum við okkur að baki henni. Að mínu viti hefur Hanna Birna allt til að bera, sem prýða má góðan stjórnmálamann. Hún er kjörkuð, traust, sveigjanleg, skemmtileg, sanngjörn, auð- mjúk, sér kjarna málsins og svo talar hún mannamál. Hún er leiðtogi. Með slíkan einstakling í stafni vinnum við borgina á ný árið 2010. Er það ekki málið? Árdís Þórðardóttir Hanna Birna: Frábær kostur! Höfundur er rekstrar- hagfræðingur. Sími 551 3010 Hárgreiðslustofan Traustasta fjarskiptafyrirtækið Styrkur frá NATA Samstarf á sviði ferðamála milli Grænlands, Íslands og Færeyja Allir sem áhuga hafa á bættum samskiptum á sviði ferðamála milli landanna þriggja geta leitað eftir aðstoð við að fjármagna verkefni, hugmyndir, ferðir eða því um líkt. Umsóknir skulu fela í sér samstarf milli tveggja af löndunum þremur hið minnsta. Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum: Menntun Dvöl til að kynna sér aðstæður, faglegar námsferðir, skólaferðalög, menntun á sviði ferðamála, rannsóknir o.s.frv. Þróun ferða Siglingar, þemaferðir, stuttar heimsóknir (short break) o.s.frv. Samstarf þjóða í milli Menningartengdir viðburðir, skólaferðir, íþróttaferðir, vinabæjatengsl o.s.frv. Markaðssetning og skilgreining ferðamennsku Leita má eftir stuðningi við verkefni, ferðir eða starfsemi sem fer fram fyrir árslok 2008. Allar umsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum. Sem fylgiskjöl með umsókninni skal leggja fram nákvæma útlistun á verkefni, svo og fjárhagsáætlun. Umsóknir skulu vera á dönsku eða ensku og sendast til: NATA c/o Ferðamálastofa Lækjargata 3, 101 Reykjavík Lokafrestur til að senda umsóknir er til og með 7. mars 2008. Umsóknareyðublað má nálgast á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is NATA er samstarfssamningur ferðamálaráðuneyta í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi. Markmið samningsins er að auka skilvirkni í samstarfi aðila er sinna ferðamálum í Færeyjum, á Grænlandi og á Íslandi með því að styrkja, samhæfa og tryggja framboð samvinnuverkefna aðildarlandanna á þeim sviðum ferðamála þar sem þau eiga einkum sameiginlegra hagsmuna að gæta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.