Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 27

Morgunblaðið - 20.02.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 2008 27 MINNINGAR ✝ Margrét Sig-urveig Sigurð- ardóttir fæddist í Sandgerði 31. júlí 1924. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 11. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigríður Jóns- dóttir saumakona og Sigurður Ein- arsson fiskverkandi, bjuggu þau á Fag- urhól í Sandgerði, hún var ein af tíu systkinum og þar af var einn bróð- ir sem lést á barnsaldri, en þrjár systranna eru látnar, Hulda og Svava og nú Veiga. Eftirlifandi eru Sigríður, Margrét, Einarína, Guð- rún, María og Þórdís. Veiga giftist 26. desember 1949 þau eiga þrjú börn og einn son misstu þau 11 mánaða gamlan 1975. 5) Þórður Matthías, f. 11.7. 1954, kvæntur Kristínu Sigurjóns- dóttur, þau eiga fjóra syni og fyrir átti Þórður fjögur börn, þar af lést elsti sonur hans 2005, barnabörn þeirra eru níu. 6) Ólína Herdís, f. 9.11. 1955, hún á tvær dætur og þrjú barnabörn. 7) Steinunn Sess- elja, f. 17.3. 1958, gift Ísak Þórð- arsyni, þau eiga tvær dætur og fyr- ir átti Steinunn einn son, þau eiga fjögur barnabörn. Veiga ólst upp í Sandgerði. Framan af bjuggu Sigurveig og Sigurður þar og ólu upp börn sín. Árið 1968 fluttu þau til Grindavík- ur, nánar tiltekið í Valhöll í Þór- kötlustaðahverfi og bjuggu þau þar næstu 32 árin. Þá fluttust þau til Keflavíkur en voru þar aðeins í 2 ár og fluttust aftur til Grindavík- ur 2002 í Víðihlíð, heimili aldraðra eftir að Sigurður hafði fengið heilablóðfall. Eftir að hann lést 2003 bjó Veiga áfram í Víðihlíð. Veiga verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan14. Sigurði Þórðarsyni frá Ólafsvík, f. 8. maí 1921, d. 11. sept- ember 2003. Börn þeirra eru: Hafsteinn, f. 25.11. 1947, kvænt- ur Olgu Siggeirs- dóttur, þau eiga einn son og fyrir átti Olga þrjú börn, barnabörn þeirra eru fjögur. 2) Einar Sigurður, f. 20.6. 1949, d. af slys- förum 21.1. 1991, var kvæntur Guðbjörgu Ólafsdóttur, dætur þeirra eru tvær og fyrir átti Einar einn son, barnabörn þeirra eru fjögur. 3) Svanfríður Aðalbjörg, f. 3.12. 1950, gift Ásgeiri Magn- ússyni, þau eiga fjóra syni og sjö barnabörn. 4) Birgir, f. 22.10. 1952, kvæntur Kristínu Þórðardóttur, Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku hjartans mamma og amma okkar, þú átt stað í hjarta okkar og við munum minnast þín um aldur og ævi. Guð blessi þig og varðveiti alla tíð. Blessuð sé minning þín. Steinunn, Ísak, Sjöfn og Ólöf. Elsku amma. Ég bjóst ekki við því að sjá þig ekki aftur þegar þú fórst á spítalann, ég ætlaði að kíkja á þig með stelpurnar daginn eftir, þess í stað hringdi mamma í mig og sagði mér að þú værir dáin. Ég brotnaði saman og dofnaði öll upp, ég trúði því ekki að þú værir farin frá okkur, elsku amma mín. Ég mun sakna þín sárt, þú varst svo stór hluti af okkar lífi, nú verða engar ferðir upp í Víði- hlíð í spjall og hlátur við eldhúsborð- ið. Ég trúi því að þú sért komin til afa og Einars frænda, og ég veit að þar mun þér líða vel. Mín sál og hjarta hvíli’ í þér, en hvíl þú, Guð, í brjósti mér, svo hver einn morgunn heims um rann mig hitti nýrri’ og betri mann. (Matthías Jochumsson.) Þín nafna Margrét Sigurveig. Elsku langamma, við viljum bara láta þig vita að við elskum þig og munum sakna þín. Það var alltaf gaman að koma til þín og fá að fara í fínu skóna þína og fá slæðurnar þín- ar lánaðar, og svo átturðu alltaf eitt- hvað gott í nammiboxinu þínu uppi í skáp. Guð geymi þig, elsku langamma, núna ertu komin til langafa. Frelsarinn góði, ljós mitt og líf, lífsins í stormunum vertu mín hlíf, láttu þitt auglit lýsa yfir mig, láttu mig aldrei skiljast við þig. (Bjarni Jónsson.) Herdís Júlía og Díana Sjöfn. Fáein kveðjuorð til þín, Veiga. Þú varst ein af okkur níu systrum frá Fagurhóli í Sandgerði. Margs er að minnast og margs er að sakna. Þú varst dugnaðarforkur, sjómanns- kona og sást um börn og bú af mynd- arskap. Við systur áttum margar góðar stundir saman og fyrr á árum hittumst við oft með barnahópinn okkar. Þú komst allra þinna ferða á þínum bíl og ekkert stoppaði þig. Takk fyrir allt, þín verður sárt saknað. Einlægar samúðarkveðjur til fjöl- skyldu þinnar. Hvíl þú í friði. Oss héðan klukkur kalla, svo kallar Guð oss alla til sín úr heimi hér, þá söfnuð hans vér sjáum og saman vera fáum í húsi því, sem eilíft er. (V. Briem.) Einarína (Ninna) og fjölskylda. Elsku amma. Það var erfitt að trúa því þegar við fréttum að þú værir farin frá okkur, farin án fyrirvara. Við hefðum svo viljað vera hjá þér og fá að kveðja þig. En svona er lífið og allt tekur enda fyrr en síðar. Það er samt á tímum sem þessum sem maður rifjar upp minningarnar og þar á heimilið ykkar afa, Valhöll, stóran þátt. Það var alltaf ljúft að koma til ykkar hvort sem það var vetur eða sumar. Hverfið austur frá heillaði og maður var í hálfgerðri sveit í bæ. Yndisleg- ur staður fyrir krakka að leika sér. Það var því mikill söknuður þegar þið fluttuð úr Valhöllinni og maður átti erfitt með að sjá aðra fjölskyldu fyrir sér í húsinu. Það er á svo mörgu að taka þegar við skrifum þessi orð til þín, amma. Minningarnar um þig og afa eru margar og góðar. Þær munu alltaf lifa áfram í hjörtum okk- ar og við munum halda þeim á lofti um ókomin ár. Við huggum okkur við það að nú ertu komin til afa, Þórðar bróður, Einars, Svövu og hinna sem fóru á undan þér. Þú kenndir okkur að hafa trúna að leiðarljósi í lífinu og við viljum kveðja þig með bæninni sem þú kenndir okkur þegar við vor- um yngri og vorum hjá ykkur afa. Við elskum þig amma og eigum eftir að sakna þín. Kristur minn, ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gakktu hér inn og geymdu mig, Guð í faðmi þínum. (Höf. ók.) Sigurður Þór, Kristín María og Björn Óskar. Ekki átti ég von á því að fá símtal um það að amma í Valhöll væri dáin. Hugur minn fór á allsherjar flakk og minningunum um góðu stundirnar í Valhöll gleymi ég aldrei. Amma í Valhöll var sú síðasta af ömmum mínum og öfum sem ég átti á lífi og þótti mér afskaplega vænt um þig. Ég var ekki hár í loftinu þegar ég fór að venja komur mínar í Valhöll, þar var tekið á móti manni eins og maður væri þvílíkt mikilmenni. Amma, þú áttir alltaf eitthvað sem manni fannst gott. Það var alltaf gaman að koma í kaffi til þín, þú snaraðir fram kaffihlaðborði á örskotsstundu og fórst létt með það. En þar sem þú ert nú veit ég að Guð er líka. Afi og Ein- ar eru örugglega fegnir að vera bún- ir að endurheimta þig aftur. Amma þú munt eiga stað í hjarta mínu og ég kveð þig með söknuði. Drottinn blessi þig og varðveiti þig. Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur. Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið. Amen. (4.Mos.6.24) Kristján Ásgeirsson. Margrét Sigurveig Sigurðardóttir Ég man þegar við systkinin komum í heimsókn til þín og fengum að leika í dótaherberg- inu og þegar við komum úr leik og fengum kökur og kex og appelsín sem við vissum að þú ættir alltaf til. Ég man eftir fal- lega hárinu þínu og góðu aug- unum, ég man þig, elsku langamma. Kveðja, Ísak Máni. HINSTA KVEÐJA ✝ Ástkær móðir okkar, BRYNHILDUR GEORGIA BJÖRNSSON, er látin. Fyrir hönd annarra vandamanna, Guðrún Jónsdóttir, Rannveig Eyþórsdóttir, Hjördís Eyþórsdóttir. ✝ Móðir okkar og tengdamóðir, ARNÓRA FRIÐRIKKA SALÓME GUÐJÓNSDÓTTIR, síðast til heimilis að Sléttuvegi 13, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 17. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 26. febrúar kl. 14.00. Eiríkur Valdimarsson, Arnfríður H. Valdimarsdóttir, Ólafur Árnason, Magnúsína G. Valdimarsdóttir, Þór G. Þórarinsson, Sigurjóna Valdimarsdóttir, Kristjón Sigurðsson, Arnór V Valdimarsson, Guðlaug Jónsdóttir, Páll G. Valdimarsson, Soffía Gísladóttir, Sigurborg Valdimarsdóttir, Jón Egilsson, Guðjón Valdimarsson, Ólafía G. Einarsdóttir, og aðrir aðstandendur. ✝ Okkar ástkæri, JÓN HILMAR SIGURÐSSON, líffræðingur, frá Úthlíð, Sléttuvegi 13, Reykjavík, varð bráðkvaddur að heimili sínu laugardaginn 16. febrúar. Gísli Sigurðsson, Jóhanna Bjarnadóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Björn Sigurðsson, Sigrún Sigurðardóttir, Guðmundur Arason, Kristín Sigurðardóttir, Werner Rasmusson, Baldur Sigurðsson, Kristbjörg Steingrímsdóttir, Guðný Guðnadóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, INDIANA INGÓLFSDÓTTIR, Starrahólum 7, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 16. febrúar, Stefán Gunnar Vilhjálmsson. ✝ Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn, HEIÐAR ÖRN EINARSSON Álfheimum 40, lést fimmtudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 22. febrúar kl. 11.00. Einar Þór Hannesson, Hafdís Ósk Víðisdóttir, Arnar Már Einarsson, Víðir Björnsson, Alda Finnsdóttir, Svanhildur Pálsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SÓLVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR, Fellsmúla 11, Reykjavík, lést föstudaginn 15. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Einar Norðfjörð, Guðrún Norðfjörð, Steinar V. Árnason, Sigurbjörg Norðfjörð, Þorgeir Valdimarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.