Morgunblaðið - 20.02.2008, Page 44
MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 51. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Loðnuveiðar bannaðar?
Svo gæti farið að loðnuveiðar yrðu
bannaðar í dag og að aflinn í vetur,
um 30.000 tonn, verði sá minnsti frá
því á fyrri hluta níunda áratugarins.
Mælingar standa ekki undir veiði-
reglu Hafrannsóknastofnunar til að
tryggja nægilega hrygningu.
»Forsíða
Flestir vilja Hönnu Birnu
Flestir þeirra sem tóku afstöðu til
þess í skoðanakönnun Capacent um
hver af borgarfulltrúum Sjálfstæð-
isflokksins ætti að taka við embætti
borgarstjóra af Ólafi F. Magnússyni,
þegar hann lætur embætti á næsta
ári, sögðust mundu vilja Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur. »2
Castro dregur sig í hlé
Fidel Castro skýrði frá því í gær
að hann myndi ekki framar sækjast
eftir embætti Kúbuforseta. Banda-
ríkjastjórn hyggst ekki afnema við-
skiptabann á Kúbu þrátt fyrir
ákvörðunina, sem markar endalokin
á hálfrar aldar valdaferli Castros.
Margir þjóðarleiðtogar gagnrýndu
feril leiðtogans við tímamótin í gær.
»Forsíða og miðopna
Uppsagnir í bönkunum
Yfir 20 starfsmönnum Glitnis hef-
ur verið sagt upp síðustu vikur og
tugir starfsmanna Kaupþings eiga
uppsögn yfir höfði sér. »Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Vandræðagangur
Steingríms J.
Forystugrein: Einræðisherra fer frá
Ljósvaki: Hreinn skemmtiþáttur
UMRÆÐAN»
Suðurnesjamenn, standið fast í fætur
Að loknum kjarasamningum
Athugasemd við túlkun SE
Er fyrirgefningin raunhæfur kostur?
3
3
3 3 3
4 +5!% .
!* +
6 $
"$!! #!( .7! 3
3
3 3 3 3 3
- 81 %
3
3
3
3 3
3
9:;;<=>
%?@=;>A6%BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA%8!8=EA<
A:=%8!8=EA<
%FA%8!8=EA<
%2>%%A#!G=<A8>
H<B<A%8?!H@A
%9=
@2=<
6@A6>%2*%>?<;<
Heitast 4 °C | Kaldast -1 °C
S 8-13 m/s og él f.
vestan, hægari og skýj-
að með köflum eystra.
SA 10-15, slydda eða
rigning upp úr hádegi. » 10
Bandaríska kántrí-
þungarokkssveitin
Hayseed Dixie ætlar
að halda óvenjulega
tónleika á NASA á
sunnudaginn. »36
TÓNLIST»
Spiluðu fyrir
AC/DC
SJÓNVARP»
Kvennó gat betur en
dómarinn. »36
Edward Trencom er
svo lyktnæmur að
hann getur greint á
milli fjölda tegunda
osta og milli bú-
garða. »38
BÓKMENNTIR»
Gott
þefskyn
FÓLK»
Geiri á Goldfinger keypti
Café Oliver. »41
FÓLK»
J-Lo fær 400 milljónir
fyrir myndir. »37
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Mistök í Gettu betur
2. Lýst eftir stúlku
3. Blés lífi í farþega
4. Stúlkan komin fram
Íslenska krónan styrktist um 0,4%
ALLS hefur
fimm aukasýn-
ingum verið bætt
við upphaflegan
sýningafjölda á
óperunni La
Traviata, sem
gengur fyrir fullu
húsi í Íslensku
óperunni um
þessar mundir.
Þær tíu sýningar sem upphaflega
voru ráðgerðar seldust allar upp fyr-
ir frumsýningu 8. febrúar og hafa
þær aukasýningar sem bætt hefur
verið við selst upp jafnóðum. Í vik-
unni var ákveðið að bæta enn tveim-
ur aukasýningum á La Traviata á
dagskrána. „Aðsóknin hefur farið
fram úr okkar björtustu vonum og
við erum að sjálfsögðu afar ánægð
með þessa góðu aðsókn,“ segir Stef-
án Baldursson óperustjóri.
Uppsetning á óperu á borð við La
Traviata er mjög kostnaðarsöm og
að sögn Stefáns þarf Íslenska óper-
an að borga með hverri sýningu þótt
uppselt sé. „En það er svo sáralítið
sem við þurfum að borga með hverri
sýningu að okkur finnst meira virði
að halda áfram að gefa fólki kost á
að sjá verkið þótt við borgum
kannski einhverja þúsundkalla með
þessu á kvöldi,“ segir Stefán.
Óperan
slær í gegn
Úr La Traviata.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ÞRÓUN alhliða leikjaspilara, forrita
sem geta lært af sjálfsdáðum að
spila nánast hvaða leik sem er, er
eitt þeirra rannsóknaverkefna sem
Rannsóknasjóður styrkir á þessu
ári. Verkefnið er meðal 178 verk-
efna sem sjóðurinn styrkir á árinu,
en 71 nýtt verkefni bættist við ný-
lega.
Geti nýst í sjálfstýrð farartæki
Yngvi Björnsson, dósent við tölv-
unarfræðideild HR, er verkefnis-
stjóri leikjaspilaraverkefnisins sem
fékk fimm milljóna króna styrk.
Verkefnið byggist á gervigreind og
er markmiðið að hanna enn full-
komnari leitar- og lærdómstækni
fyrir alhliða leikjaforrit en nú er til.
Yngvi sagði að líta mætti á leikina
sem rannsóknarstofu því gott væri
að þróa nýjar aðferðir í svo vel skil-
greindu umhverfi sem leikir gjarnan
væru í. Leikreglurnar eru yfirleitt
skýrar. „Svo er hugmyndin að taka
þetta út í hvers konar hugbúnað
sem lærir af sjálfsdáðum.“ Þannig
má hugsa sér að slíkur hugbúnaður
geti nýst í sjálfstýrð farartæki eða
einkatölvur læri að laga sig að notk-
unarvenjum eigenda sinna.
Yngvi er með samstarfsaðila er-
lendis en sagði að styrkurinn nýttist
í að ráða nemanda í framhaldsnámi
til verkefnisins. Hilmar Finnsson
MS hefur starfað með Yngva að
verkefninu. Forrit þeirra sigraði í
fyrra í heimsmeistarakeppni alhliða
leikjaforrita sem Stanford-háskóli
stofnaði til. Yngvi kemur einnig að
nýju öndvegisverkefni sem Hannes
Högni Vilhjálmsson, lektor við HR,
stýrir í samstarfi við CCP-tölvu-
leikjafyrirtækið. Það verkefni fjallar
um mannlegar vitverur í félagslegu
leikjaumhverfi og fékk 13,45 millj-
óna styrk á þessu ári. Yngvi sagði
tilgang þess að gefa persónum í
tölvuleikjum félagsvitund og mann-
legri samskiptahæfni. | 8
Forritin læra af sjálfsdáðum
og laga sig að venjum eigenda
Í HNOTSKURN
»Rannsóknasjóður styrkir 178verkefni á þessu ári.
»Markmið eins verkefnisins erað gefa persónum í tölvu-
leikjum félagsvitund og mann-
legri samskiptahæfni.
♦♦♦
DANSKI matreiðslumeistarinn Claus Meyer kynnti
hópi skólabarna hinn nýja norræna mat í Norræna hús-
inu í gær og naut aðstoðar Jóhönnu Hjaltadóttur. Hann
greindi jafnframt frá nýja norræna eldhúsinu á sér-
stakri kynningu. Matar- og skemmtihátíðin Food&Fun,
sú stærsta frá upphafi skv. upplýsingum aðstandenda
hennar, hefst í Reykjavík í dag. Norræna eldhúsið
verður mjög áberandi á hátíðinni í ár og verður hinn
nýi norræni matur kynntur formlega í fyrsta sinn, en
kynningin í gær gefur forsmekk af því sem koma skal.
Í fyrra skipaði norræna ráðherranefndin sendiherra
norrænna matvæla og koma þeir í fyrsta sinn saman í
dag. „Þetta er í fyrsta sinn sem við kynnum hinn nýja
norræna mat fyrir heimsbyggðinni,“ segir Baldvin
Jónsson, einn skipuleggjenda Food&Fun og í hópi
sendiherra norrænna matvæla.
Matarveislan er nú haldin í sjöunda sinn. Annars veg-
ar gefst almenningi kostur á að snæða mat sem þekktir
gestamatreiðslumenn sjá um á tilgreindum veit-
ingastöðum og hins vegar keppa sömu meistarar í elda-
mennsku. Gert er ráð fyrir um 60 til 70 erlendum
blaðamönnum til landsins vegna hátíðarinnar.
Árvakur/Golli
Gæddu sér á norrænum krásum
Stærsta Food&Fun-matarhátíðin frá upphafi hefst í dag
ALMYRKVI
verður á tungli
í nótt. Tungl
verður í suð-
suðaustri frá
Reykjavík.
Myrkvinn
verður ekki
áberandi fyrr
en tungl gengur í alskuggann kl.
1.43, en almyrkvinn verður á fjórða
tímanum og miður myrkvi klukkan
3.26. Tunglið verður svo laust við
hálfskuggann klukkan 6.17 á
fimmtudagsmorgun, að því er segir í
almanaki Háskóla Íslands. Rauðum
bjarma slær á tunglið þegar skuggi
jarðarinnar fellur á það, vegna ljós-
brots í efstu lögum lofthjúpsins, en
birtustig rauða bjarmans segir mik-
ið um hreinleika lofthjúps jarð-
arinnar. Því dekkri því óhreinni. Að
auki verður tunglið í Ljóninu á þess-
um tíma og Satúrnus því sjáanlegur
rétt hjá, með kíki.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarn-
arness verður með samkomu í
Krýsuvík, við Grænavatn, um tvö-
leytið í nótt og býður alla sem vilja
velkomna. Von er á eitthvað léttara
skýjafari í nótt en verið hefur.
Almyrkvi á
tungli í nótt
Í rauðum bjarma