Morgunblaðið - 03.03.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Ný peysusending
20% afsláttur af
bílaleigubílum erlendis!
Bókaðu bílaleigubíl fyrir sumarfríið
hjá Avis í mars og þú færð 20% afslátt
í formi safnkortspunkta hjá N1.
Bókaðu strax bíl á avis.is og safnaðu punktum!
Sæktu um Safnkort N1 á avis.is. Einn punktur jafngildir einni krónu.
Knarrarvogi 2 • Sími 591 4000 • avis.is
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
24
46
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
GATNAGERÐ er í fullum gangi í
Kambalandi, svæði 1, í Hvera-
gerði. Svæðið er 30 hektarar og
hefur verið skipulagt undir íbúða-
byggð. Gert er ráð fyrir byggingu
280 íbúðaeininga, 220 sérbýla og
60 íbúða í fjölbýlishúsum. Kamba-
land verður byggt upp í þremur
áföngum og má
reikna með að
uppbygging alls
hverfisins taki
um 5-8 ár. Eins
og nafn svæðis-
ins gefur til
kynna er það
undir Kömbun-
um vestan við
Hveragerði. Á
svæðinu verður
sparkvöllur, leikskóli og þjónustu-
miðstöð.
Landið er í eigu Kambalands
ehf. sem sér um uppbygginguna,
en Hveragerðisbær mun sjá um þá
þætti sem snúa að þjónustu.
„Kambaland ehf. hefur skipulagt
svæðið, í samvinnu við bæinn að
sjálfsögðu,“ segir Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjarstjóri í Hveragerði,
„og þeir sjá um alla gatnagerð á
svæðinu. Bærinn kemur ekki að
framkvæmdinni að öðru leyti en að
tengja svæðið núverandi gatna-
kerfi, veitukerfi og slíku. Síðan
munum við auðvitað þjónusta
svæðið þegar það er byggt,“ segir
Aldís. Kambaland ehf. sér þannig
um lóðaúthlutun og -sölu. Aldís
segir að unnið sé nú nætur og
daga við gatnagerðina og mikill
gangur sé í henni. „Þetta er þann-
ig klárlega farið í gang og sala
hafin á lóðum.“
Bæjarfélagið að verða
uppiskroppa með lóðir
Framundan er einnig uppbygg-
ing í Sólborgum, en samningar um
uppbyggingu voru gerðir við Eykt
hf.
Eykt eignaðist það land með
samningum við Hveragerðisbæ í
byrjun árs 2006 og síðan hefur
verið unnið að þróun þess og
skipulagningu. „Sólborgarsvæðið
er skemmra á veg komið,“ segir
Aldís. Deiliskipulag segir hún á
lokametrunum en ólíklegt sé að
framkvæmdir þar hefjist á þessu
ári.
Aldís segir mikinn hug í Hver-
gerðingum, mikil ásókn hafi verið í
lóðir í bænum. „Við, sem bæjar-
félag, erum að verða uppiskroppa
með land,“ segir hún. „Á vegum
bæjarins verður úthlutað bygging-
arlóðum í sumar, en svo fer nú að
verða fátt um fína drætti í fram-
haldinu. Lóðir eru og verða þannig
í eigu einkaaðila í Hveragerði.
Bæjarfélagið mun því ekki til
framtíðar geta selt eða úthlutað
lóðum.“ Stöðug fjölgun hefur verið
í Hveragerði á undanförnum árum,
nú búa þar um 2.300 manns. Að
sögn Aldísar eru miklar vonir
bundnar við tvöföldun Suðurlands-
vegar og með því tengist bærinn
enn betur höfuðborgarsvæðinu.
Uppbygging að hefjast í Kambalandi
Morgunblaðið/RAX
Framkvæmdir Nú er unnið hörðum höndum að vegagerð á svæði 1 í
Kambalandi í Hveragerði. Gert er ráð fyrir byggingu 280 íbúðaeininga.
Aldís
Hafsteinsdóttir
MAGNÚS Jónatansson, forsvars-
maður Kambalandsins, segir að
verktökum hafi þegar verið út-
hlutað nokkrum lóðum á svæðinu.
„Í Kambalandinu eru þrír áfangar
og gatnagerðinni í fyrsta áfanga,
fyrir 100 einbýlishús og raðhús,
verður lokið núna í sumar,“ segir
Magnús. „Við erum byrjaðir að af-
henda lóðir, aðallega til verktaka,
og munum ljúka því innan fjögurra
mánaða.“
Hann segir heildarhugmyndina á
bak við framkvæmdina vera nokk-
uð ólíka því sem gengur og gerist,
„af því að við búum til allsherjar-
lausn fyrir verktakann“. Hafist
verður handa við húsbyggingar í
haust og Magnús segir mikinn
áhuga vera fyrir svæðinu.
Afhending
lóða hafin