Morgunblaðið - 03.03.2008, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 11
FRÉTTIR
Tilfinningatjón
er ekki metið
til fjár
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tm.is og fáðu skýr svör.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
M
I
41
09
8
02
/0
8
Áfallahjálp hjá TM
Þeir sem eru vel tryggðir fá efnisleg verðmæti sín bætt, en eftir stendur oft tilfinningatjón
sem ekki verður metið til fjár. Það er vel þekkt staðreynd að áföll eða slys geta haft í för
með sér áfallastreitu og leitt til langvarandi áfallaröskunar ef ekki er gripið í taumana.
TM gengur nú skrefinu lengra í þjónustu sinni og er eina tryggingafélagið á Íslandi
sem býður tjónþolendum upp á áfallahjálp í sínum tryggingaskilmálum.
Áfallahjálpin er veitt af sálfræðingi og er innifalin í Heimatryggingu TM.
Þannig vinnum við saman úr áfallinu og stuðlum að því að það hafi ekki neikvæðar
afleiðingar til lengri tíma fyrir viðskiptavini okkar.
Áfallahjálp TM TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tm.is / www.tm.is
AUGLÝST hefur verið eftir um-
sóknum um styrki úr Umhverfis- og
orkurannsóknasjóði Orkuveitu
Reykjavíkur öðru sinni. Skv. upplýs-
ingum OR eru á meðal þeirra verk-
efna sem sérstaklega er óskað rann-
sókna á umhverfisáhrif lýsingar,
áhrif verðurfarsbreytinga á starf-
semi veitna og lestarsamgöngur.
Sjóðurinn var stofnaður síðla árs
2006 af OR og háskólunum sjö á
veitusvæðu fyrirtækisins. Fyrst var
úthlutað úr honum í fyrra og nutu þá
40 rannsóknarverkefni, stór og smá,
styrks. Stærsta einstaka verkefnið
sem styrkt var 2007 var alþjóðlegt
kolefnisbindingarverkefni, sem nú
stendur yfir við Hellisheiðarvirkjun.
Styrkjum er skipt í tvo flokka; op-
inn flokk, þar sem hugmyndaflug
vísindafólksins ræður viðfangsefn-
inu, og lokaðan flokk, þar sem sjóðs-
stjórnin skilgreinir viðfangsefni. Í ár
óskar sjóðurinn eftir rannsóknum á
14 viðfangsefnum.
Sjóðurinn hefur sérstakan vef á
heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur,
www.or.is/uoor og er á honum allar
nánari upplýsingar að finna auk um-
sóknarsíðna. Einungis er tekið við
rafrænum umsóknum um styrki úr
sjóðnum.
100 milljónir til
umhverfis- og
orkurannsókna
FLUGFÉLAGIÐ Geirfugl hefur
tekið í notkun nýjar kennsluflug-
vélar af gerðinni Diamond DA20-
C1 Eclipse. Vélarnar eru ein-
staklega sparneytnar, hljóðlátar
og taldar þær öruggustu í sínum
flokki.
Samkvæmt upplýsingum félags-
ins geta þær flogið á um 260 km/
klst og er flugdrægi þeirra er
1000 km. Vélarnar hafa verið í
framleiðslu á annan áratug og
hafa reynst vel, bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum. Meðal annarra
valdi bandaríski flugherinn þessar
vélar til þjálfunar flugmanna
sinna.
„Kennsla hjá Geirfugli hefur
verið í miklum vexti en félagið var
stofnað fyrir rúmum 10 árum og
hefur kennt til einkaflugmanns frá
1999 þegar það fékk fyrsta leyfi á
Íslandi samkvæmt samevrópskum
kröfum. Í dag er kennt til einka-
flugmanns auk blindflugs- og stél-
hjólsáritunar.
Fyrsta flug á vélunum var farið
sl. föstudag og við það tilefni tók
Baldur Sveinsson ljósmyndari
meðfylgjandi mynd af vélunum.
Nýjar kennsluvélar á flugi
BJÖRN Bjarnason dóms- og
kirkjumálaráðherra hefur skipað
nefnd til að vinna að endurskoðun
vopnalaga og þeirra reglugerða og
reglna sem settar hafa verið á
grundvelli laganna.
„Tíu ár eru liðin frá setningu
gildandi vopnalaga. Síðan hefur
reynt á ýmis atriði við túlkun lag-
anna, tækni hefur fleygt fram og
þjóðfélagið tekið breytingum. Jafn-
framt hefur alþjóðlegt samstarf á
þessu sviði aukist. Af þessum sök-
um telur ráðherra tímabært að end-
urskoða vopnalögin,“ segir í frétt
frá ráðuneytinu. Í nefndina hafa
verið skipuð Pétur Guðgeirsson
héraðsdómari, sem jafnframt hefur
verið skipaður formaður hennar,
Thelma Þórðardóttir lögfræðingur,
tilnefnd af ríkislögreglustjóra, Ólaf-
ur Þ. Hauksson lögreglustjóri, til-
nefndur af Lögreglustjórafélagi Ís-
lands, Dagmar Sigurðardóttir
lögfræðingur, tilnefnd af Landhelg-
isgæslu Íslands, Ívar Erlendsson,
tilnefndur af Skotveiðifélagi Ís-
lands, og Jón Sigurður Ólason, til-
nefndur af Skotíþróttasambandi Ís-
lands.
Nefnd endur-
skoðar vopnalögin
LILJA Þorgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmda-
stjóri Öryrkjabandalags Íslands. Lilja er með meistara-
gráðu í opinberri stjórnsýslu, MPA frá Háskóla Íslands
2007 og fil.kand.-próf í félagsfræði frá Stokkhólmsháskóla
1988, með áherslu á mannauðsstjórnun, fræðslu og
starfsþróun.
Lilja hefur meðal annars starfað sem verkefnastjóri á
skrifstofu mannauðsmála Landspítalans frá 2007, á
starfsmannasviði HÍ 1998-2007 og á árunum 1989-1999
sem félagsmálafulltrúi Sjálfsbjargar landssambands fatl-
aðra.
Nýr framkvæmdastjóri
Öryrkjabandalagsins
Lilja
Þorgeirsdóttir