Morgunblaðið - 03.03.2008, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÁTTA manns féllu átökum lögreglu
og stjórnarandstæðinga í Jerevan,
höfuðborg Armeníu, á laugardag.
Lýst var yfir neyðarástandi og
skriðdrekar og brynvarðir bílar
sendir út á göturnar. Stjórnarand-
staðan telur að brögð hafi verið í
tafli er Serzh Sarkisian forsætis-
ráðherra var kjörinn forseti 19.
febrúar. Erlendir eftirlitsmenn
voru hins vegar á því að lýðræð-
isreglum hefði að mestu verið fylgt.
Reuters
Neyðarlög í Armeníu
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
EINN af stuðningsmönnum Bar-
acks Obama, Richard Durbin öld-
ungadeildarþingmaður, lagði í gær
til að Hillary Clinton velti fyrir sér
að falla frá framboði sínu ef hún
ynni ekki sannfærandi sigur í for-
kosningum sem fram fara í nokkr-
um mikilvægum ríkjum á morgun.
Obama hefur tryggt sér heldur
fleiri kjörmenn fyrir flokksþingið
sem velur forsetaefni í Denver í
ágúst en kannanir benda til að
mjög lítill munur sé á frambjóðend-
unum í Texas og Ohio.
„Ég vona að hún meti í einlægni
möguleika sína á tilnefningu eftir
þriðjudaginn,“ sagði Durban í við-
tali við Fox-sjónvarpsstöðina. Clint-
on yrði að átta sig á nauðsyn þess
að sameina Demókrataflokkinn en
öruggt þykir að John McCain
tryggi sér tilnefningu repúblikana á
þriðjudag.
Þar sem kjörmönnum í þessum
tveim fjölmennu ríkjum, Texas og
Ohio, er skipt í samræmi atkvæða-
fjölda er ljóst að Clinton þarf að
sigra með geysilegum yfirburðum
til að ná Obama. En talsmenn
hennar vísuðu því á bug í gær að
uppgjöf kæmi til greina.
„Baráttan um tilnefninguna mun
halda áfram eftir [kosningarnar í]
Ohio og Texas,“ sagði Howard
Wolfson, yfirmaður almannatengsla
í herbúðum Clinton. Hann minnti á
að kosið yrði í Pennsylvaníu í apríl
en þar er einnig slegist um marga
kjörmenn.
Obama stendur mun betur að
vígi peningalega en Clinton, honum
hefur gengið vel að safna fé frá ein-
staklingum og þessa dagana dynja
á almenningi auglýsingar hans,
einkum í sjónvarpi. En Clinton hef-
ur einbeitt sér að því að draga úr
trú
fólks á að Obama, sem er 46 ára
gamall og með tiltölulega litla
reynslu af stjórnmálum, sé hæfur
til að tryggja öryggi þjóðarinnar
gagnvart hryðjuverkamönnum.
Hefur hún m.a. látið birta sjón-
varpsauglýsingar með myndum af
litlum börnum sem lifi í ógnvekj-
andi heimi.
Clinton dragi sig
í hlé nema hún
vinni stórsigur
Reuters
Enginn bilbugur Hillary Clinton á
kosningafundi í Texas.
Kannanir benda til
jafnteflis í Texas
og Ohio á morgun
Gaza. AFP. | Ísr-
aelar héldu
áfram hörðum
árásum sínum
með landher og
flugher á Gaza í
gær en talið var
að frá því á laug-
ardag hefðu um
70 manns fallið.
Markmið Ísraela
er að hefna fyrir eldflaugaárásir
sem skæruliðar á Gaza hafa gert á
nokkrar byggðir í Ísrael. Krefjast
stjórnvöld í Jerúsalem þess að
Hamas-menn, sem ráða á Gaza,
stöðvi þær árásir.
Mahmoud Abbas, forseti Palest-
ínumanna, sleit í gær öll tengsl við
Ísraelsstjórn í mótmælaskyni við að-
gerðirnar á Gaza sem hann sagði
bitna á vopnlausum borgurum. Ban
Ki-moon, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, fordæmdi ofbeldi
af hálfu beggja aðila en sagði að Ísr-
aelar beittu meiri hörku en hægt
væri að verja. Bandaríkjamenn
hvöttu einnig til þess að árásum yrði
hætt og sest að samningaborðinu.
Mikið mann-
fall á Gaza
Mahmoud Abbas
TVEGGJA daga heimsókn forseta Írans, Mahmouds
Ahmadinejads, til Íraks hófst í gær og var honum tekið
með kostum og kynjum. Hann notaði m.a. tækifærið til
að ráðast harkalega á George W. Bush Bandaríkja-
forseta og afskipti hans af málum landsins. „Íraska þjóð-
in vill ekki Bandaríkin,“ sagði Ahmadinejad.
Forsetinn átti meðal annars viðræður við starfsbróður
sinn, íraska Kúrdann Jalal Talabani og forsætisráðherra
Íraks, sjía-múslimann Nuri al-Maliki, sagði heimsóknina
„jákvætt merki“. Bandaríkjamenn veittu ekki hefð-
bundna þjónustu við slíkar heimsóknir, þ.e. að flytja er-
lenda tignarmenn með þyrlu frá alþjóðaflugvellinum til
Bagdad en þjóðvegurinn þaðan er afar hættulegur vegna árása uppreisn-
armanna. Ahmadinejad var hins vegar ekið í bíl.
Íransforseti í Bagdad
Mahmoud
Ahmadinejad
MINNST 10 manns létu lífið í miklu
roki sem gekk yfir mörg Evrópu-
lönd um helgina og flóð ollu mikl-
um vanda, meðal annars er Sax-
elfur flæddi yfir bakka sína. Sums
staðar í Póllandi varð vindstyrk-
urinn eins og í hvirfilbyl, yfir 100
km á klukkustund, og víða varð
straumlaust þegar raflínur slitn-
uðu. Manntjón varð einkum er fólk
varð undir trjám sem féllu en í Pól-
landi fórst karlmaður þegar þak af
vörubíl lenti á öðru ökutæki. Vitað
er að tveir fórust í Þýskalandi og
fjórir í Austurríki.
Mannskætt veður
í Evrópulöndum
SPENNA fer nú vaxandi milli
Venesúela, Ekvador og Kólumbíu
eftir að her hins síðastnefnda gerði
loftárás á bækistöð í Ekvador og
felldi þar næst-æðsta mann FARC-
samtakanna. Þau hafa áratugum
saman barist við stjórnarher Kól-
umbíu. Hugo Chavez, forseti Ven-
esúela, varaði við því að sams konar
aðgerðir á skæruliða á landsvæði
hans gætu valdið stríði.
Spenna vegna
árásar í Ekvador
FYRSTU tölur og útgönguspár í
Rússlandi bentu til þess að Dímítrí
Medvedev hefði unnið stórsigur í
forsetakosningum sem fram fóru í
Rússlandi í gær. Samkvæmt út-
gönguspám fékk hann um 70% at-
kvæða en kjörsókn var um 65%. Um
109 milljónir manna voru á kjörskrá.
Varla er hægt að tala um að raun-
veruleg kosningabarátta hafi farið
fram, svo öflug eru tök ráðamanna á
fjölmiðlum. Mörgum stjórnarand-
stæðingum var einfaldlega bannað
að bjóða sig fram. Fjórir voru í fram-
boði og var Gennadí Zjúganov, leið-
togi kommúnistaflokksins, kominn
með næstflest atkvæði í gær eða um
20%. „Við höfum sannanir fyrir
kosningasvikum og munum leita til
dómstólanna,“ sagði Zjúganov.
Eftirlitsmönnum Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu, ÖSE,
var í raun meinað að fylgjast með
kosningunum og sendi því enga full-
trúa. Innlend, óháð stofnun, Golos,
sagði að mörg dæmi væru um mis-
ferli, m.a. að fólk hefði verið þvingað
til að mæta á kjörstað en hættan á
lítilli kjörsókn var eitt helsta
áhyggjuefni ráðamanna.
Medvedev naut stuðnings Vladím-
írs Pútíns forseta enda náinn sam-
starfsmaður hans í mörg ár. Pútín
mun taka við embætti forsætisráð-
herra og margir telja að hann verði
áfram raunverulegur leiðtogi lands-
ins enda hefur hann stuðning leyni-
þjónustunnar, FSB, sem er allsráð-
andi í stjórnkerfinu og atvinnulífinu.
Medvedev sigraði