Morgunblaðið - 03.03.2008, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 15
MENNING
TANAÐUR
BEBOP-FÉLAG Reykjavíkur
stendur fyrir tónleikum í kvöld
á Kaffi Kúltúra við Hverfis-
götu. Bebop-félagið er fé-
lagsskapur djassleikara á höf-
uðborgarsvæðinu sem stendur
fyrir tónleikum fyrsta mánu-
dag hvers mánaðar.
Í kvöld leikur B3 Tríó en það
er skipað Agnari M. Magn-
ússyni, Ásgeiri Ásgeirssyni og
Erik Qvick. Eftir hlé verður spilað af fingrum
fram og ekki ólíklegt að fleiri djassistar komi og
taki lag með þeim félögum í B3 Tríó.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er aðgangseyrir
500 krónur.
Tónlist
B3 Tríó spilar af
fingrum fram
B3 Tríó
Í HÁDEGINU á morgun ætlar
Þór Magnússon fyrrvernadi
þjóðminjavörður að rekja varð-
veislusögu myndfjala með sér-
stæðum útskurði sem nú eru til
sýnis í Bogasal Þjóðminja-
safnsins. Talið er að fjalirnar
séu úr dómsdagsmynd sem
prýtt hafi vesturvegg Hóla-
dómkirkju á 12. öld. Fjalirnar
eru oftast kenndar við bæinn
Bjarnastaðahlíð í Skagafirði en þaðan komu þær
til Þjóðminjasafnsins árið 1924. Allar voru þær
notaðar sem húsaviður og hefur það vafalaust
bjargað þeim frá glötun.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 12.05.
Fræði
Fjalirnar frá
Bjarnastaðahlíð
Þór Magnússon
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
„ÞETTA HÚS hefur á 25 árum
sannað mikilvægi svona stofnunar,“
segir Elísabet Þórisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Menningarmiðstöðv-
arinnar Gerðubergs í Breiðholti, en
hún hefur starfað þar frá upphafi.
„Við höfum í 25 ár haft það að leið-
arljósi að vera uppbyggjandi, fræð-
andi, leiðandi á okkar sviði, og
skemmtileg!“
Elísabet segir að fyrstu árin hafi
Breiðholti verið sinnt sérstaklega,
meðan það vantaði aðstöðu fyrir
margt í nýju hverfi, en jafnt og þétt
hafi áhersla verið lögð á að sinna
breiðari hópi með fjölbreytni og nýj-
ungum á breiðum grundvelli.
„Takmarkið er að höfða til allra
aldurshópa og fólks með mismun-
andi áhugasvið. Við erum með stóra
menningarlega viðburði eins og
sjónþingin og ritþingin, og sýn-
inguna „Þetta vilja börnin sjá“ sem
og myndskreytingarverðlaunin
Dimmalimm. Við setjum ekki bara
upp sýningar heldur fylgjum við-
burðum eftir.
Það er mikilvægt fyrir hverja
borg að eiga svona hús. Við erum
með söfn sem hafa sín sérsvið, og
eru með lík markmið. Eins og allir
vita er Hafnarhúsið ekki bara fyrir
þá sem búa í miðborginni heldur alla
borgarbúa, rétt eins og Gerðuberg.
Við vinnum mikið með börnum og
fyrir börn. Í myndlistinni höfum við
líka fjölbreytni í huga, m.a. með sýn-
ingum alþýðulistamanna og ungs
myndlistarfólks. Við óttumst ekki
fjölbreytileikann. Á tímabili vorum
við með sýningarnar Þetta vil ég sjá,
þar sem við fengum ólíka ein-
staklinga til að velja myndverk.“
Mikil umferð um húsið
Starfið í Gerðubergi er fjöl-
breytilegt frá morgni til kvölds. Þar
er félagsstarf aldraðra, fundir,
hverskyns námskeið fyrir börn og
ungmenni, leiksýningar og svo
mætti lengi telja. Þá er Breiðholts-
útibú Borgarbókasafns í bygging-
unni og segir Elísabet báðar stofn-
anir njóta þess nábýlis.
„Það er mikil umferð um húsið
enda er það vel í sveit sett. Það er
yndisleg sundlaug á móti okkur,
tveir stórir grunnskólar, fjölbrauta-
skóli og tónlistarskóli.“
Fólki sem er af erlendu bergi
brotið hefur fjölgað mikið í Breið-
holtinu og segir Elísabet að Heims-
dagur barna, sem verið hefur í
Gerðubergi síðustu tvö ár, sé
ánægjuleg viðbót í starfseminni og
beini sjónum að fjölbreytileikanum í
mannlífinu í Reykjavík.
Opin fyrir því sem vantar
„Við viljum áfram vera með fjöl-
breytilega starfsemi, þannig að fólk
fái ekki á tilfinninguna að Gerðuberg
sé fyrir einhverja útvalda hópa. Við
viljum gjarnan sinna öllu því sem
okkur finnst vera svolítið útundan.“
Skyldi vera búið að leggja drög að
starfsemi næstu 25 ára?
„Okkur vantar ekki hugmynd-
irnar. Eða viljann. Fyrst og fremst
vantar mannskap og örlítið af pen-
ingum. Stundum fá opinberar stofn-
anir eins og okkar styrki, sem er af
hinu góða þar sem samfélagsleg
ábyrgð og áhugi á að láta gott af sér
leiða skilar sér margfalt. Ég vona
svo sannarlega að eitthvert fyr-
irtæki eða stofnun komi til sam-
starfs við okkur á þeim grundvelli.
Það mun gera okkur kleift að halda
áfram að vera opin fyrir því sem við
sjáum að vantar í menningarlitrófið
og ástæða er til að koma á framfæri,
í bland við það sem við leggjum sjálf
áherslu á.“
25 ára afmæli Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs á morgun, 4. mars
Opin fyrir því sem vantar
Í ALDARFJÓRÐUNG hefur Gerðuberg staðið fyrir allrahanda uppá-
komum. Á Glæpasöguþingi árið 2004, í sambandi við ritþing um verk Arn-
aldar Indriðasonar, var glæpavettvangur til að mynda sviðsettur.
Morgunblaðið/Júlíus
Margbreytilegar uppákomur
BÆJARBLOKKIRNAR tvær í aust-
urhluta London, sem saman bera
nafnið Robin Hood Gardens, hafa
ekki þótt eftirsóknarverðar til bú-
setu síðustu árin. Á þeim voru frá
upphafi ýmsir hönnunargallar og í
gegnum árin grófu félagsleg
vandamál um sig meðal íbúa þar,
meðal annars jókst glæpatíðni með
hverju ári. Nú þegar ákveðið hefur
verið að rífa þær, hefur hópur
breskra arkitekta hinsvegar hafið
herferð til þess að bjarga þeim og
segja þeir mikil menningarverð-
mæti í húfi.
Húsin voru hönnuð af hjónunum
Alison og Peter Smithson og voru
fullbyggð árið 1972. Smithson-
hjónin aðhylltust módernisma í
húsagerðarlist og voru undir áhrif-
um arkitekta á borð við Mies van
der Rohe, en lögðu áherslu á ófág-
að yfirborð og grófan frágang.
Blokkirnar eru sjö og tíu hæðir og
samtals eru þar 213 íbúðir.
Building Design, breskt tímarit
um byggingarlist, hafði frumkvæði
að herferðinni til þess að bjarga
húsunum og nú hafa frammámenn
á sviði byggingarlistar lagt barátt-
unni lið og má þar nefna spænska
arkitektinn Carme Pinos og rithöf-
undinn Alain de Botton.
Óvíst er hvort tekst sannfæra
breska menningarmálaráðherrann
Margaret Hodge, sem hefur verið
því mjög fylgjandi að rífa Robin
Hood Gardens. Hún hefur talið að
það svari ekki kostnaði að gera við
þau, en hann mun nema tæpum tíu
milljónum íslenskra króna á íbúð.
Vilja bjarga
bæjar-
blokkunum
Blokk Skiptar skoðanir eru um
hvort húsin skuli standa áfram.
Rithöfundurinn
J.K. Rowling
segist líta á það
sem arðrán ef
fyrirhuguð al-
fræðiorðabók um
Harry Potter og
veröld hans
verður gefin út,
en Rowling er
sem kunnugt er
höfundur bókanna um galdrastrák-
inn. Hún er nú að undirbúa mál-
sókn gegn rithöfundinum Steve
Vander Ark og útgáfufélagi hans
til þess að koma í veg fyrir útgáf-
una og segist sjálf ætla að skrifa
sambærilega bók þar sem ýmislegt
komi fram sem ekki er að finna í
bókunum sjö.
Steve Vander Ark segir bók sína
ekki skaða Rowling á nokkurn hátt
og löng hefð sé fyrir útgáfu sam-
bærilegra handbóka um bók-
menntaverk. Hún segir hinsvegar
að hann vilji hafa bæði hana sjálfa
og aðdáendur bókanna að féþúfu.
„Mér finnst mjög mikils vert að
vernda ævintýraheiminn sem tók
mig svo langað tíma að skapa og
ekki síður alla lesendurna sem
keyptu bækurnar.“
Vill stöðva
útgáfuna
J.K. Rowling
STARFSFÓLK Gerðubergs býður öllum velunnurum, listafólki, samstarfs-
fólki og starfsfólki til afmælishátíðar annað kvöld, 4. mars, milli kl. 20 og
22. Boðið verður upp á léttar veitingar, ljúfa tónlist og notalega stemningu.
Í tilefni dagsins opna tvær sýningar. Stefnumót við safnara III er til-
einkuð hljóðfærum og ýmsum hlutum sem tengjast tónlist á einn eða annan
hátt. Fjölbreyttir og áhugaverðir sýningargripir, auk tóndæma, eiga að
færa gesti inn í margslunginn heim tónlistarinnar.
Hljóðfærin á sýningunni endurspegla ástríðu nokkurra hljóðfærasafn-
ara sem og þróun hljóðfæra gegnum aldirnar; allt frá frumstæðum áslátt-
arhljóðfærum til elektrónískra stílófóna. Sýningarstjórar eru Anik Todd
og Una Stígsdóttir.
Vatnslitastemmur úr ferðalögum
Hin sýningin nefnist Sjö landa sýn. Eru það vatnslitastemningar Maríu
Loftsdóttur, alþýðulistakonu, frá ferðalögum um heiminn. Myndir Maríu
eru frá sjö löndum; Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Íslandi, Japan, Perú og
Skotlandi.
María er fædd árið 1946 og starfar sem sjúkraliði. Hún ferðast gjarnan
með stóra vatnslitablokk, liti og pensla, og málar á viðkomustöðum, af
næmi og tilfinningu fyrir umhverfinu.
Afmælisdagskrá
Gerðubergs
Í HNOTSKURN
»Afmælisdagskráin á morgun,þriðjudaginn 4. mars, er
fyrsti liðurinn í dagskrá Gerðu-
bergs á afmælisárinu.
»Menningarmiðstöðin Gerðu-berg er alhliða menningar-
miðstöð sem leggur áherslu á
gott aðgengi borgarbúa á öllum
aldri að viðburðum og fræðslu á
sviði menningar og lista.
»Eitt af helstu markmiðummenningarmiðstöðvarinnar
Gerðubergs er að efla tengsl
milli kynslóða og gefa innsýn í
mismunandi þekkingar-, menn-
ingar- og reynsluheima.
» Í Gerðubergi eru listsmiðjurfyrir börn, félagsstarf fyrir
aldraða og þá stuðlar stofnunin
að varðveislu menning-
arverðmæta, m.a. með útgáfu á
sjón-, tón- og ritþingum Gerðu-
bergs.
♦♦♦
Í KVÖLD hefst fyrirlestraröð
um sviðslistir á vegum leiklist-
ardeildar Listaháskóla Íslands
og Leiklistarsambandsins. Tvö
fyrirlestrakvöld eru á dag-
skránni nú fyrir páska en eftir
páska er stefnan að halda úti
vikulegum fyrirlestrar-
kvöldum fram í maí.
Yfirskrift fyrsta fyrir-
lestrakvöldins er: „Hin nauð-
synlega enduruppgötvun hjólsins“ og þar verður
varpað fram grunvallarspurningum um hlutverk
listamannsins og möguleika nýjunga.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 21 á Kaffi Sólon
og er öllum opinn.
Leiklist
Rætt um sviðslistir
á Kaffi Sólon
Kaffi Sólon