Morgunblaðið - 03.03.2008, Blaðsíða 18
hækka vextina. Reikna má með að
lán sem tekið var á 4,15% vöxtum
verði þá á 7,8% vöxtum.“
Ingólfur nefnir sem dæmi að hjón
sem tekið hafi 20 milljón króna verð-
tryggt lán til 40 ára á breytilegum
vöxtum hafi til þessa greitt um
100.000 kr. af láninu á mánuði.
Vaxtahækkunin myndi hins vegar
hækka hina mánaðarlegu afborgun
upp í 159.000 kr., sem er 59% hækk-
un. Það má flestum vera ljóst að ekki
ráða allir við slíka breytingu á
greiðslubyrði sinni.
„Það má líkja íbúðarlánum með
endurskoðunarákvæði við lán með
breytilegum vöxtum. Ég er þegar
farinn að sjá dæmi þess að
verðtryggð lán með breyti-
legum vöxtum valda fólki
erfiðleikum,“ segir Ing-
ólfur og nefnir sem dæmi
að bankarnir hafi fyrir
nokkrum árum farið
um sveitir og boðið
bændum að breyta af-
urðalánum sínum í
verðtryggt lán með
lágum breytilegum
vöxtum.
þetta bara tölur á blaði,“ segir Ing-
ólfur H. Ingólfsson, fjármálaráð-
gjafi. „Hjá flestum hefur kaup-
máttur aukist umfram verðbólgu og
það er hann, ekki eignaverðið, sem
skiptir mestu máli er kemur að af-
borgunum af lánunum. Kaupmátt-
urinn hefur haldið í við verðbólguna
og á meðan hefur allt verið í lagi.
Ætli menn hins vegar að selja,
sama hvort það er til að stækka eða
minnka við sig, nú eða þá til að losa
um fjármagn – þá getur það reynst
öllu erfiðara.“ Hann bætir við að
undir kringumstæðum sem þessum
þá borgi sig að hanga eins lengi og
mögulegt er á eigninni. Sleppa því
einfaldlega að leiða hugann að fast-
eignakaupum sé þess einhver kost-
ur.
59% hækkun
„Svo kemur að haustinu 2009 og
þá gætu málin dökknað svolítið hjá
sumum fasteignaeigendum. Þá er
komið að fimm ára vaxtaendur-
skoðun á verðtryggðu lánunum sem
bankarnir veittu árið 2004. Ég held
að við verðum að gera ráð fyrir að
öllu óbreyttu að þá eigi
bankarnir eftir að
M
ikil uppsveifla er bú-
in að vera á íslenska
fasteignamark-
aðinum undanfarin
ár. Árið 2007 var
14.500 kaupsamningum þinglýst og
námu heildarviðskipti með fasteignir
um 360 milljörðum króna. Árið 2006
var veltan 269 milljarðar króna og
fjöldi kaupsamninga rúmlega 11.700.
Á þessum tíma hækkuðu eignir og
hækkuðu í verði, fasteignaskatt-
urinn fór upp á við og lengst framan
af kepptust bankarnir við að bjóða
almenningi húsnæðislán á lágum
vöxtum.
Nú virðast hins vegar vera blikur
á lofti. Bankarnir hafa hert sínar út-
lánareglur, fasteignamarkaðurinn
hefur nánast stöðvast og þó ríkis-
stjórnin hafi tilkynnt þá fyrirætlun
sína að afnema stimpilgjöld vegna
fasteignalána hjá þeim sem eru að
kaupa í fyrsta skipti er óvíst hvenær
sú breyting tekur gildi.
Útlitið virðist svart og ekki annað
hægt en að velta fyrir sér hvaða áhrif
þetta muni hafa á húsnæðiseigendur
og þá sem hyggja á fasteignakaup.
„Í raun og veru skiptir engu hvort
eign hækkar eða lækkar í verði ef þú
ætlar þér ekki að gera annað
en að búa þar. Þá eru
Með bæði belti og axlab
Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir einstaklingar leggja í á
lífsleiðinni og því velta efalítið margir fyrir sér hver staða þeirra sé nú í
breyttu lánaumhverfi á fasteignamarkaði. Anna Sigríður Einarsdóttir
fræddist um málið hjá Ingólfi H. Ingólfssyni sem sagði reglu númer eitt, tvö
og þrjú að taka aldrei verðtryggt lán með breytilegum vöxtum.
Morgunblaðið/Eyþór
Fjármálaráðgjafinn Ingólfur H. Ingólfsson segir þetta ekki vera rétta tím-
ann til fasteignakaupa.
með orðin 55% hærri en þegar lánið
var tekið og það getur verið erfið
staða fyrir marga.“
Hann fer heldur ekki í launkofa
með skoðun sína á þessum lána-
möguleika. „Verðtryggðir breyti-
legir vextir eru eiginlega út í hött.
Ef þú hugsar út í
það, þá erum
„Margir tóku þessu, enda voru
vextirnir ekki nema 4,8%. Í dag eru
vextirnir hins vegar orðnir 8,8%.
Þeir hafa hækkað um 80%. Mán-
aðarleg afborgun af láninu er þar
fjármál fjölskyldunnar
18 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VORTILBOÐ 3.–6. MARS
+ Nánari upplýsingar og bókanir á
www.icelandair.is eða í síma 50 50 100
BO
ST
ON
Ve
rð
frá
18
.80
0 k
r.*
MINN
EAPOL
IS – ST. P
AUL
Verð frá
18.800 kr.
*
* Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar og gjöld. Ferðatímabil: 1.–30. apríl.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
13
61
0
2
/0
8