Morgunblaðið - 03.03.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 23
Þitt atkvæði skiptir máli
Taktu afstöðu!!!
Munið að atkvæðagreiðslu lýkur á hádegi 10. mars
Boðinn
NÝVERIÐ var kynnt könnun á
högum og viðhorfi Reykvíkinga
sem náð hafa 80 ára aldri. Um
þessar mundir eru um 4.650 Reyk-
víkingar á þessum aldri. Könnunin
var gerð af Capacent Gallup í nóv-
ember 2007 til janúar 2008 og
voru 1.000 manns í
úrtakinu sem er
nokkuð stórt miðað
við þýðið.
Niðurstöður könn-
unarinnar koma
skemmtilega á óvart,
enda eru aldraðir
Reykvíkingar flestir
hressir og taka virk-
an þátt í samfélaginu,
sjálfum sér og öðrum
til gleði. 63% búa við
gott heilsufar og 65%
hreyfa sig vikulega
eða oftar. Að sjálf-
sögðu er samband þarna á milli
þar sem heilsufarið er best hjá
þeim sem hreyfa sig oftast og þeir
eru minnst einmana. Tekjurnar
hafa líka áhrif þar sem þeir sem
eru með mestar ráðstöfunartekjur
eru virkastir félagslega og með
besta heilsufarið.
Fátækt meðal
aldaðra
Sem jafnaðarkona lít ég óneit-
anlega til þeirra sem eru verst
settir fjárhagslega, félagslega og
heilsufarslega enda hlutverk okk-
ar að skipuleggja opinbera þjón-
ustu eins og heilbrigðisþjónustu,
heimaþjónustu og félagsstarf með
þarfir þeirra í huga. Það eru ekki
mörg prósent sem eru verst sett
hvað þessa þætti varðar, en á bak
við hlutfallstölurnar er margt fólk.
5,1% svarenda, sem eru um 240
Reykvíkingar 80 ára og eldri, hef-
ur oft fjárhagsáhyggjur og jafn
stór hópur hefur stundum fjár-
hagsáhyggjur. Ef við heimfærum
niðurstöður könnunarinnar yfir á
4.650 Reykvíkinga 80 ára og eldri
má segja að um 500 þeirra hafi
fjárhagsáhyggjur og
það er alvarlegt að
svo stór hópur sem
lifað hefur langa ævi
og skilað miklu til
samfélagsins þurfi að
búa við þessar
áhyggjur á síðasta
hluta lífs síns. Í þess-
um hópi eru rúmlega
100 manns (2,3%) sem
hafa frestað því að
fara til læknis vegna
fjárhagsástæðna og
um 80 manns (1,7%)
frestað því að kaupa
lyf af sömu ástæðum. Enn fleiri
telja þó heilbrigðisþjónustuna
mjög dýra eða 8,3% svarenda.
Þessar niðurstöður eru í samræmi
við ráðstöfunartekjur fólks sem
eru að meðaltali 131.000 og voru
12% svarenda með ráðstöf-
unartekjur undir 80.000 krónum.
Það segir sig sjálft að sá hópur
hlýtur oft eða stundum að hafa
fjárhagsáhyggjur.
Vantar
fjárhagsráðgjöf
Það vekur athygli í könnuninni
að tæplega 75% aldraðra telja
frekar og mjög mikla þörf á fjár-
hagsaðstoð fyrir eldri borgara.
Þessi þjónusta er lítið í boði í dag
og niðurstöðurnar ættu því að
vera leiðbeinandi fyrir þá sem
stýra félagsmiðstöðvum í borginni.
Kannski mætti bjóða þá þjónustu
til viðbótar við handverks-
námskeið, sögustundir, spil og
annað tómstundagaman þar sem
ríflega 30% þessa hóps sækja fé-
lagsstarf eldri borgara. Slík nám-
skeið gætu einnig höfðað til hóps
sem er óvirkur í félagsstarfi, en
um helmingur svarenda tekur
hvorki þátt í félagsstarfi eldri
borgara né öðru félagsstarfi.
Velferðarsvið mun á næstunni
standa fyrir kynningarfundum á
niðurstöðum rannsóknarinnar í
hverfum borgarinnar. Hvet ég
eldri borgara og aðra sem áhuga
hafa til að kynna sér niðurstöð-
urnar. Með faglegar niðurstöður
að leiðarljósi eigum við að geta
náð sátt um fjármuni sem setja
þarf í þá þjónustu sem þarf að
vera til staðar. Slík sátt er for-
senda velferðarsamfélags sem lít-
ur til allra. Við skulum þó ekki
gleyma jákvæðu niðurstöðunum –
því þær gleðja og vekja aðdáun og
ekki síður eftirvæntingu til efri
áranna.
Fáar prósentur en margt fólk
Huga þarf að elstu borgurunum
en margir þeirra hafa
fjárhagsáhyggjur, segir
Björk Vilhelmsdóttir
» Sem jafnaðarkona
lít ég óneitanlega
til þeirra sem eru
verst settir fjárhags-
lega, félagslega og
heilsufarslega.
Björk Vilhelmsdóttir
Höfundur er félagsráðgjafi og borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í KOLAPORTINU er iðandi mannlíf
um hverja helgi. Þar mætir manni
mannlífsflóran, stórir og smáir, karl-
ar og konur, ungir og aldnir. Svo virð-
ist sem markaður-
inn hafi eitthvað
að bjóða fyrir alla.
Þar er verslað
með fatnað og
ýmsan varning.
Sumir hafa þar
fastan bás og selja
þar um hverja
helgi meðan aðrir
selja úr geymsl-
unni eða bíl-
skúrnum og er þar gjarnan ýmislegt
að finna.
Í Kolaportinu er hægt að kaupa
harðfisk, hákarl og önnur matvæli
sem eru gjarnan í háum gæðaflokki.
Margir hafa sagt mér að þeir geri sér
sérstaka ferð um helgar að sækja sér
þangað ýmsar góðar afurðir.
Kolaportið er einnig vettvangur
bænasamfélags. Stór hópur presta,
djákna og sjálfboðaliða þjónar þar í
guðsþjónustu klukkan tvö síðasta
sunnudag hvers mánaðar.
Á kaffihúsinu Kaffi Porti eru girni-
legar veitingar. Kaffihúsið er einnig
vettvangur helgihaldsins og hefur
það samstarf verið til gleði og bless-
unar í allmörg ár.
Boðið er upp á fyrirbænir og geta
viðstaddir því verið virkir þátttak-
endur í stundinni. Bænarefnin eru
borin upp og lesin og Drottinn heyrir
þær allar og þekkir, eins og hann
þekkir okkur öll og aðstæður okkar. Í
helgihaldinu skapast gjarnan sérstök
stemning og nærvera. Sálmar eru
sungnir og lesið úr Biblíunni.
Það eru fólgin félagsleg auðæfi í
Kolaportinu og ánægjulegt er að
Reykjavíkurborg skuli hafa þá fram-
tíðarsýn að markaðurinn eigi sér
þennan vettvang áfram.
ÞORVALDUR VÍÐISSON
miðborgarprestur
Dómkirkjunnar.
Frá Þorvaldi Víðissyni
Þorvaldur Víðisson
Fyrirbænasamfélagið
í Kolaportinu
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100