Morgunblaðið - 03.03.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 29
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-
16.30, boccia kl. 10, félagsvist (4
skipta) kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 9-12, handa-
vinna kl. 9-16, smíði/útskurður kl. 9-
16.30, félagsvist kl. 13.30 og myndlist
kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, lífsorkuleikfimi, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerðir, hádegisverður,
bútasaumur, kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Bridds kl. 13, kaffitár kl. 13.30, línu-
danskennsla kl. 18. samkvæmisdans
byrjendur kl. 19 og framhald kl. 20.
Snúður og Snælda sýna Flutningana
eftir Bjarna Ingvarsson í Iðnó, og inn í
sýninguna eru fléttuð atriði úr
Skugga-Sveini eftir Matthías Joch-
umsson. Næstu sýningar verða 6. og
9. mars kl. 14, s. 562 9700.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan er opin, leiðbeinandi við
til hádegis, bossía kl. 9.30, gler- og
postulínsmálun kl. 9.30 og 13, lomber
og canasta spilað kl. 13.15, kóræfing
kl. 17 og námskeið í skapandi skrifum
kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
línshópur kl. 9, ganga og hádeg-
isverður. Handavinna kl. 13. Bridds
fellur niður í dag.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl.
9, 9.45 og 10.30, karlaleikfimi kl.
9.30, boccia kl. 10.30, gönguhópur kl.
11, glerskurður kl. 13, Biblíulestur í
Jónshúsi kl. 14, opið til kl. 16. Skrán-
ing í 5 daga Vestfjarðaferð í júlí hafin.
Ath. takmarkaður þátttakendafjöldi.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof-
ur opnar kl. 9-16.30, sund og leik-
fimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50.
Frá hádegi er spilasalur opinn, kóræf-
ing kl. 14.20. Mánud. 10. mars veitir
Skattstofan framtalsaðstoð, skráning
á staðnum og í s. 575 7720. Þriðjud.
18. mars er leikhúsferð í Þjóðleik-
húsið á Sólarferð, skráning hafin.
Furugerði 1, félagsstarf | Létt leik-
fimi kl. 13.15, framhaldssagan kl. 14.
Kaffiveitingar.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9-
16.30, útskurður kl. 9-12, bænastund
kl. 10, hádegismatur, myndlist kl. 13-
16, kaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa
kl. 9-16, kortagerð, handstúkuprjón
o.fl. Jóga kl. 9-11. Hádegisverður. Spil-
að kl. 13-16.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthús-
inu kl. 9.30. Uppl. í síma 554 2780.
Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun er
sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl.
9.30.
Kvenfélag Garðabæjar | Fé-
lagsfundur 4. mars kl. 20 á Garða-
holti. Venjuleg fundastörf og
skemmtun. Kaffinefnd skipa hverfi 3,
10, 11, 14 og 18. Konur í kaffinefnd
mæta kl. 19. kvengb.is.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund og spjall kl. 9.30, handverks-
og bókastofa kl. 13, kaffiveitingar.
Söng- og samverustund kl. 15.
Leshópur FEBK, Gullsmára | Jón
Kalmann Stefánsson rithöfundur
verður gestur Leshóps FEBK 4. mars
kl. 20. Jón Kalmann hlaut íslensku
bókmenntaverðlaunin 2005 og nýj-
asta bók hans, Himnaríki og helvíti,
vakti athygli. Enginn aðgangseyrir.
Sjálfsbjörg | Bridds kl. 19 í fé-
lagheimili Sjálfsbjargar á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Þórðarsveigur 3 | Félagsráðgjafi kl.
10, salurinn opinn kl. 13, leikfimi kl.
13.15, boccia kl. 14, kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Kvenfélag Árbæj-
arsóknar heldur fund í safnaðarheim-
ilinu kl. 20. Venjuleg fundarstörf,
páskabingó og veitingar.
Áskirkja | Þorgils Hlynur Þorbergson
cand. theol. verður með bænastund/
morgunsöng á Dalbraut 27 kl. 9.30.
Grafarvogskirkja | Kristinn H. Gunn-
arsson les 19. passíusálm kl. 18. TTT
fyrir 10-12 ára í Grafarvogskirkju og
Húsaskóla kl. 17-18. Æskulýðsfélag
fyrir unglinga í 8.-10. bekk kl. 20 í
Grafarvogskirkju.
Hallgrímskirkja | Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 12.15. Umsjón hefur Sig-
rún V. Ásgeirsdóttir.
Kristniboðssalurinn | Félagsfundur í
kl. 20. Ræðumaður Þorgils Hlynur
Þorbergsson.
Laugarneskirkja | Kvenfélag Laug-
arneskirkju heldur fund kl. 20.
Selfosskirkja | Tvíburamæður hittast
í safnaðarheimilinu í fyrramálið kl.
10.30.
dagbók
Í dag er mánudagur 3. mars, 63. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Hver, sem gjörir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir. (Mk. 3, 35.)
Mannúðar- og mannrækt-arsamtökin Höndinhalda málþing umkvíða á morgun í neðri
sal Áskirkju.
Á fundinum ætlar Bryndís Edda
Eðvarsdóttir, meðlimur í stjórn
Handarinnar, að segja frá eigin
reynslu og bata af kvíða og þung-
lyndi og Brjánn Á. Bjarnason geð-
læknir flytur erindi.
Bryndís Edda segir þunglyndi og
kvíða koma fram með ólíkum hætti
hjá ólíkum einstaklingum. Sjálf varð
hún ekki vör við að eitthvað væri að
fyrr en heilsa hennar hrundi
skyndilega: „Fram að því hafði ég
verið með líkamleg einkenni, eins og
mikinn hjartslátt, svita og svefn-
leysi. Ég hafði einnig óafvitandi ein-
angrað mig á stöðum, þar sem mér
fannst ég örugg. Ég stundaði mína
vinnu en félagslífið var nánast ekk-
ert, bar við önnum til að forðast að
hitta annað fólk,“ segir hún.
Bryndís Edda nefnir sem dæmi
að eitt einkenni kvíða er að þora
ekki á nýja staði, jafnvel án þess að
gera sér grein fyrir því, og vandi
hún t.d. komur sínar í Kringluna
frekar en Smáralind þar sem um-
hverfið var nýtt. „Einnig tekur kvíð-
inn rosalega orku, og því er ekki
skrítið að geta ekki stundað félagslíf
og áhugamál eftir vinnu. Þetta
myndar vítahring einangrunar og
vanlíðunar sem erfitt er að vinna sig
úr án aðstoðar fagfólks.“
Bryndís Edda vonast til að saga
hennar geti vakið aðra til umhugs-
unar um eigin heilsu áður en komið
er í óefni: „Ef manni líður illa á
maður ekki að hika við að leita sér
aðstoðar. Fólk með þunglyndi og
kvíða trúir því oft að ekki sé hægt
að laga það sem amar að, og gerir
því ekkert til að bæta líðan sína,“
segir hún og bætir við að þunglyndi
og kvíði séu dauðans alvara.
Samtökin Höndin voru meðal
þeirra meðferðarleiða sem Bryndís
Edda nýtti sér, en auk þess að
halda reglulega opna fundi um sam-
félagsleg málefni starfa meðlimir
handarinnar í lokuðum hópum og í
einkatímum með fagfólki, til að
bæta eigin heilsu: „Það er sér-
staklega styrkjandi að geta tengst
hópi fólks í sömu sporum, og sjá að
maður er ekki einn í baráttunni.
Ákaflega gefandi er svo þegar mað-
ur uppgötvar hvernig maður getur
hjálpað öðrum.“
Fundurinn á þriðjudag er öllum
opinn og aðgangur ókeypis. Á slóð-
inni www.hondin.is má finna nánari
upplýsinagr um starfsemi Hand-
arinnar og viðburði á vegum henn-
ar.
Heilsa | Opinn fundur á vegum Handarinnar á þriðjudag kl. 20.30 Áskirkju
Reynslusaga af kvíða
Bryndís Edda
Eðvarsdóttir
fæddist í
Reykjavík 1976.
Hún lauk stúd-
entsprófi frá FG
1997 og BS-
gráðu í við-
skiptafræði frá
HR 2003. Hún
hefur starfað sem sérfræðingur á
fjármálasviði og frá 2007 setið í
stjórn mannúðar- og mannrækt-
arsamtakanna Handarinnar.
Uppákomur
Hitt húsið | Útþrá 2008 verður haldin 4.
mars í upplýsingamiðstöð Hins hússins kl.
16-18. Á Útþrá gefst ungu fólki á aldrinum
16-25 ára kostur á að kynna sér nám, starf
og sjálfboðavinnu erlendis.
FRÉTTIR
BÖRN taka þátt í helgisiðum þegar fagnað er Mesni Zagovezni (föstuinngangi) í þorpinu Lozen, skammt frá höfuð-
borginni Sofíu í Búlgaríu, í gær. Almenningur í héraðinu telur að hrekja megi burt illa anda með eldi á hátíðinni.
Reuters
Andasæringar í Búlgaríu
DAGUR umhverfisins er haldinn 25.
apríl ár hvert og í ár verður dagurinn
tileinkaður vistvænum lífsstíl. Efnt
hefur verið til fjölda viðburða um allt
land í tilefni dagsins undanfarin ár,
m.a. hefur umhverfisráðherra veitt
viðurkenningarnar Kuðunginn fyrir
umhverfisstarf fyrirtækja og Varð-
liða umhverfisins fyrir verkefna-
samkeppni grunnskóla. Sveitarfélög
og skólar hafa mörg hver skipulagt
viðburði á deginum.
Umhverfisráðuneytið mun kynna
uppákomur sem verða á Degi um-
hverfisins þegar nær dregur en þess
má geta að ráðuneytið vinnur nú að
undirbúningi sýningar í Perlunni á
Degi umhverfisins þar sem félögum
og fyrirtækjum verður boðið að
kynna vistvænar vörur og þjónustu.
Umhverfisráðuneytið og Land-
vernd gáfu út fræðsluritið Skref fyrir
skref á Degi umhverfisins í fyrra. Þar
er fólki leiðbeint um hvernig það get-
ur tileinkað sér vistvænan lífsstíl.
Hægt er að skoða ritið á heimasíðu
umhverfisráðuneytisins.
Dagur umhverfisins er haldinn há-
tíðlegur 25. apríl vegna þess að þann
dag árið 1762 fæddist Sveinn Pálsson,
fyrsti náttúrufræðingur Íslands.
Hann var einna fyrstur til að hvetja
til aðgerða gegn skógareyðingu á Ís-
landi og orðaði þá hugsun sem nú
kallast sjálfbær þróun, segir í frétta-
tilkynningu.
Dagur umhverfisins
– vistvænn lífsstíll
KJARAMÁL verða til umræðu á
Hitti Femínistafélags Íslands
þriðjudaginn 4. mars, kl. 20-22,
Bertelstofu á Thorvaldsen við Aust-
urvöll.
„Mikil umræða hefur verið um
kjaramál í samfélaginu upp á síð-
kastið, enda stórum samningum ný-
lokið milli ASÍ og Samtaka atvinnu-
lífsins og ýmsir fleiri hópar eiga
eftir að semja á næstu mánuðum.
Einnig var launaleynd afnumin
með nýjum jafnréttislögum í liðinni
viku og því um nóg að ræða.
Femínistafélag Íslands efnir því
til Hitts um kyn og kjör, þar sem
fulltrúar ýmissa samtaka á vinnu-
markaði ræða um aðgerðir til að
tryggja launajafnrétti og útrýma
kynbundnum launamun,“ segir í
fréttatilkynningu. Á Hittinu taka til
máls þau: Anna Björg Siggeirs-
dóttir og Steinunn Böðvarsdóttir úr
jafnréttishópi VR, Halldór Grön-
vold, aðstoðarframkvæmdastjóri
ASÍ, Halldóra Friðjónsdóttir, for-
maður BHM og Helga Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri BSRB. Að erind-
um frummælenda loknum verða
opnar umræður.
Ræða um kyn og kjör
STEFNUNEFND Háskóla Íslands
og Landspítala lýsir ánægju með
ákvörðun stjórnvalda um uppbygg-
ingu nýs háskólasjúkrahúss í
Vatnsmýrinni og þá fram-
kvæmdaáætlun sem heilbrigð-
isráðherra og formaður fram-
kvæmdanefndar byggingarinnar
kynntu í vikunni.
„Jafnframt styður nefndin ein-
dregið þá framtíðarsýn sem fram
kemur í tillögu framkvæmdanefnd-
arinnar um framúrskarandi aðstöðu
fyrir sjúklinga spítalans og sam-
vinnu háskólans og spítalans á sviði
vísindarannsókna og menntunar
heilbrigðisstarfsfólks,“ segir m.a. í
ályktun nefndarinnar.
Sameiginlegur fundur fram-
kvæmdastjórnar, sviðsstjóra hjúkr-
unar og sviðsstjóra lækninga á
Landspítala fagnar því sömuleiðis
að ganga eigi rösklega fram við
byggingu nýs háskólasjúkrahúss.
Þar segir að starfsmenn Landspít-
ala hafi lagt mikið af mörkum við
þarfagreiningu og annan undirbún-
ing. Með byggingu nýs háskóla-
sjúkrahúss sé stigið stórt framfara-
skref í heilbrigðisþjónustunni.
Fagna uppbyggingu
háskólasjúkrahúss
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna
fagnar frumvarpi þeirra Jóns Magn-
ússonar, Guðjóns A. Kristjánssonar,
Hönnu Birnu Jóhannsdóttur, Birgis
Ármannssonar, Bjarna Harðarson-
ar, Illuga Gunnarssonar, Jóns Gunn-
arssonar, Kjartans Ólafssonar og
Péturs H. Blöndal um breytingar á
tóbaksvarnalögum. Frumvarpið ger-
ir ráð fyrir því að veitinga- og
skemmtistöðum sé heimilt að koma
sér upp reykrýmum innanhúss að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
„SUS er almennt mótfallið hvers
kyns löggjöf sem skerðir ráðstöfun-
arrétt einstaklingsins yfir eignum
sínum og gildir það um ákvæði tób-
aksvarnarlaga um vinnustaði. Þó ber
að fagna því að stigið sé skref í átt frá
þeim ofsafengnu aðgerðum sem lög-
in í núverandi mynd gera ráð fyrir,“
segir í ályktuninni. Gildandi lög um
tóbaksvarnir eru sögð meingölluð og
þingmenn hafi sýnt tvískinning með
því að undanskilja sjálfa sig þeim
lögum. Auk þess hafi fjölmargir veit-
ingastaðir farið framhjá lögunum
eða beinlínis brotið þau án refsingar.
„Þessi gallaða framkvæmd er að
kenna því gildismati sem lagt var
upp með. Stjórnvöld gerðu enga til-
raun til að sætta mismunandi sjón-
armið í málinu, þ.e. frelsi almennings
til að ráða yfir eignum sínum annars
vegar, og vinnuverndarsjónarmið
hins vegar þegar lögin voru fyrst
lögð fyrir þingheim. Hæglega hefði
verið hægt að fylgja fordæmi Dana,
Svía og fleiri þjóða og leyfa reyking-
ar í sérstökum reykherbergjum allt
frá upphafi. Er það sérstakt um-
hugsunarefni að íslensk stjórnvöld
hafi gengið lengra í frelsisskerðing-
unni heldur en nágrannaþjóðir okkar
í Skandinavíu.
SUS skorar á þingmenn allra
flokka að samþykkja frumvarp fyrr-
nefndra þingmanna og taka þar með
lítið skref til baka af þeirri óheilla-
ferð sem farin var þegar lögin tóku
gildi í núverandi mynd.“
SUS skorar á þing-
menn allra flokka
Fréttir
í tölvupósti