Morgunblaðið - 03.03.2008, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ER SVO
ÓHUGNALEGT
HÉRNA
ÞAÐ ER ÚT AF
KÓNGULÓNUM
EF ÉG VÆRI LIFANDI ÞÁ
MUNDI ÉG VERA MÓÐGAÐUR
ÉG HEF
ALLTAF VERIÐ
STOLTUR AF ÞVÍ
HVAÐ ÉG ER
SJÁLFSTÆÐUR
KANNSKI ER ÉG EKKI
MJÖG SJÁLFSTÆÐUR...
...OG
BROSA!
EKKI TAKA MYND AF MÉR!
ÉG HEF EKKI ÞVEGIÐ Á MÉR
HÁRIÐ Í ÞRJÁ DAGA OG ÉG
ER ÞAKIN Í MÝBITUM!
EN VILJIÐ
ÞIÐ EKKI
MUNA EFTIR
FERÐINNI
ÉG VIL EKKI MUNA
EFTIR ÞESSARI FERÐ!
ÉG HEF VERIÐ AÐ
REYNA AÐ GLEYMA
HENNI FRÁ ÞVÍ AÐ
VIÐ KOMUM HINGAÐ!
NÆST ÞEGAR ÉG SÉ EINA
AF ÞESSUM ASNALEGU
„KODAK“ AUGLÝSINGUM ÞÁ
HENDI ÉG SJÓNVARPINU
ÚT UM GLUGGANN
ÞAÐ STÓÐ Í BOÐSKORTINU
AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ VERA
VEL KLÆDD!
EN
HELGA, ÉG
ER VEL
KLÆDDUR...
SÉRÐU EKKI
BLÓMIÐ Í
BJARNARFELDINUM?
ÞAÐ STENDUR Í
ÞESSARI BÓK AÐ SUMIR
LIFI LÍFI SÍNU
Í STANSLAUSUM ÓTTA
UM HVERJA
HELDUR ÞÚ AÐ
VERIÐ SÉ AÐ
TALA?
GÆLUDÝRA-
EIGENDUR!
LALLI, AF
HVERJU ER
MAMMA ÞÍN
SVONA REIÐ?
VIÐ FÓRUM AÐ SKOÐA
ALLAR ÍBÚÐIR FYRIR ELDRI
BORGARA Í BÆNUM EN ÞAÐ
VAR ALLT ÓMÖGULEGT
ÞETTA ER
LÍKA ERFIÐ
ÁKVÖRÐUN
ÞAÐ BREYTIR ÞVÍ
EKKI AÐ HÚN ER
DÓMHARÐASTA,
ÞRJÓSKASTA,
ÓRAUNSÆJASTA
MANNESKJA
SEM ÉG ÞEKKI!
Æ, LALLI
ÉG HEFÐI SAMT EKKI ÁTT
AÐ SEGJA HENNI ÞAÐ
MIKIÐ ER
ÞETTA
FRÁBÆRT!
DAGURINN
GÆTI EKKI
VERIÐ BETRI
REYNDAR...
HELD ÉG AÐ HANN
GÆTI VERIÐ ÞAÐ
HVAÐ? VILTU
FREKAR HAFA
RIGNINGU?
PARKER HJÓNIN ERU Í SKOÐUNARFERÐ
UM HOLLYWOOD...
dagbók|velvakandi
Harmagrátur matvörurisanna
Forstjórar stóru matvörukeðjanna
bera sig illa, og segja að nýgerðir
kjarasamningar komi þungt niður á
fyrirtækjum þeirra. Af hverju skyldi
það vera? Þessi ágætu fyrirtæki
stunda eina hörðustu láglaunastefnu
sem þekkist hér á landi. Þrátt fyrir
hæsta matvöruverð í heimi borga
þau starfsfólki sínu smánarlaun.
Haft er eftir Eysteini Helgasyni,
forstjóra Kaupáss, í Fréttablaðinu
laugardaginn 22. febrúar 2008, að
þeir sem fái mestar kjarabætur hjá
Kaupási séu unglingar og erlendir
starfsmenn. Skýringin á því er sú að
þetta er fólkið sem vinnur í þessum
verslunum í dag, unglingar og út-
lendingar. Ástæðan er lág laun.
Þeir eru svo harðir í þessari lág-
launastefnu sinni, að þeir segja
manni bara upp, ef maður gerist svo
djarfur að fara fram á smá launaleið-
réttingu út á starfsreynslu og
ábyrgð. Þetta kallar á aukna „starfs-
mannaveltu“ (vont orð, að velta
starfsmönnum). Afleiðingin er sú, að
þeir eru yfirleitt með óvant fólk í
vinnu, sem skilar sér í verri þjónustu
við viðskiptavini.
Nú er ég alls ekki að setja út á
unglinga eða útlendinga. Það getur
enginn ætlast til þess að fólk stökkvi
inn í starf og kunni alla hluti strax.
Hitt er annað mál, að það pirrar mig
ákaflega að koma inn í verslun og
mæta þar einhverjum jórtrandi ein-
staklingi sem hefur greinilega engan
áhuga því sem hann er að gera. Og
stundum fær maður augnaráð sem
segir, hvern ands… ert þú að gera
hér, getur þú ekki skilið að við þurf-
um að tala saman (starfsfólkið
þ.e.a.s.)? En meginmálið er þetta,
það eru þrjú fyrirtæki sem ráða
matvörumarkaðnum hér, eitt þó
langstærst. Og þessi fyrirtæki ráða
öllu sem þau vilja í verðlagi og
þrælalaunum. Og svo koma þessir
karlar fram og gráta hástöfum, ég
vorkenni þeim ekki.
Hvað ætli þessir herrar hafi
margfalt hærri laun en þetta fólk
sem nú fær smáleiðréttingu, og hið
opinbera tekur hátt í helminginn af?
Svo koma þeir og ætla sér að taka
hinn helminginn og ríflega það.
Óskar Aðalgeir
Óskarsson
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞAU eru oft litrík og ævintýraleg skipanöfnin okkar, og hér eru nokkur
dæmi: Aldey, Dalaröst, Náttfari, Þrymur, Sæborg, Reginn, Sæfari, Eldey,
Boði, Bylgja og á myndinni er skipið Faxi á leið í höfn.
Morgunblaðið/Þorkell
Nafngiftir báta og skipa
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun stjórnar bæjar-
málafélags Frjálslynda flokksins í
Kópavogi, vegna hugmynda um
áframhaldandi þéttingu byggðar í
vesturbæ Kópavogs:
„Í Morgunblaðinu þann 24. febr-
úar sl. birtist frétt þess efnis að nú-
verandi meirihluti Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í Kópavogi sé
enn við sama heygarðshornið varð-
andi þéttingu byggðar í gamalgrón-
um hverfum í Kópavogi. Nú vill
meirihlutinn koma upp frekari
byggð á Kópavogstúni.
Frjálslyndi flokkurinn í Kópavogi
lýsir sig algjörlega andvígan slíkum
hugmyndum. Frekari þétting
byggðar í vesturbæ Kópavogs er
óráð. Umferð á þessu svæði hefur
þyngst með árunum og er ekki á
bætandi. Nær væri að beina sjónum
að því að auka lífsgæði þeirra íbúa
sem fyrir eru á svæðinu með vernd-
um grænna svæða og aðgerðum til
þess að draga úr bílaumferð. Frjáls-
lyndi flokkurinn hvetur bæjaryfir-
völd til þess að fara frekar í sam-
vinnu við Landspítalann um að
styrkja þá starfsemi sem fyrir er á
svæðinu og huga að frekari aðstoð
við Sunnuhlíð til þess að víkka út
sína starfsemi. Síkar aðgerðir væru
til þess fallnar að styrkja atvinnu-
tækifæri í bænum og viðhalda lífs-
gæðum íbúanna.“
Ályktun gegn
þéttingu byggðar
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun Félags ungra
frjálslyndra um Evrópusambands-
aðild:
„Samkvæmt 86. grein almennra
hegningarlaga telst sá landráðamað-
ur ,,sem sekur gerist um verknað,
sem miðar að því, að reynt verði
með … svikum að ráða íslenska ríkið
eða hluta þess undir erlend yfirráð.“
Félag ungra frjálslyndra ályktar
að Evrópusambandsaðild væri bæði
aðför að fullveldi Íslands og Íslend-
ingum sem þjóð.
Þá bendir Félag ungra frjáls-
lyndra á þá augljósu staðreynd að
Evrópusambandið er að þróast út í
miðstýrt veldi sem virðir að vettugi
hagsmuni smáþjóða.
Félag ungra frjálslyndra leggst
gegn Evrópusambandsaðild ásamt
öllum milliríkjasamningum sem á
einhvern hátt afnema fullveldi Ís-
lands.“
Leggjast gegn aðild að ESB