Morgunblaðið - 03.03.2008, Qupperneq 34
34 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ*
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 462 3500 Sími 564 0000
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
TILNEFND TIL 2 ÓSKARSVERÐLAUNA
M.A. FYRIR BESTA AUKALEIKARA
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
Frá framleiðendum
Devils Wears Prada
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
FRUMSÝNING
SÝND Í REGNBOGANUM
KÖFUNARKÚPAN OG FIÐRILDIÐ
Frábær gamanmynd frá leikstjóra
Eternal Sunshine of the Spotless Mind
með Jack Black í fantaformi!
l i j
l i l i
l í i
eee
- S.V. MBL
„Tilfinningalega sannfærandi
og konfekt fyrir augun“
Jan Stuart, Newsday
eeeee
Be kind rewind kl. 5:45 - 8 - 10:15
Be kind rewind kl. 5:45 - 8 - 10:15 LÚXUS
27 dresses kl. 5:30 - 8 - 10:30
Brúðguminn kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
Be kind rewind kl. 8 - 10
The Kite runner kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
27 dresses kl. 6 B.i. 12 ára
Brúðguminn kl. 6 B.i. 7 ára
Jumper kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.12 ára
Ástríkur á Ól... m/ísl. tali kl. 3:40
Be kind rewind kl. 5:45 - 8 - 10:15
The Diving Bell And The Butterfly kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
27 dresses kl. 5:30 - 8 - 10:20
Jumper kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI
1
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
eeeee
„Gullfalleg, ljúfsár og heillandi.“
-B.B., 24 Stundir
eeee
„Into the Wild telst til einna
sterkustu mynda það sem af er árinu.“
-L.I.B., TOPP5.IS
eeee
„Into the Wild skilur við áhorfandann snortinn
af andstæðum, fegurðinni og vægðarleysinu
sem hún lýsir svo skýrt og fallega.“
-S.V., Mbl
3 MAR
17:00 Yella
20:00 Mannaland
22:00 Yella
MÁN
Allar upplýsingar er að finna á
WWW.FJALAKOTTUR.IS
Í TJARNARBÍÓI UM HELGINA
VEFSÍÐA VIKUNNAR»www.unusualhotelsoftheworld.com
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
VEFSÍÐA vikunnar er ætluð þeim
sem eru orðnir leiðir á stöðluðum
hótelherbergjum sem eru keimlík
um allan heim. Ævintýragjarnir
ferðalangar sem vilja gista ofan í
jörðinni, uppi í tré, í snjóhúsi eða
jafnvel neðansjávar geta skipulagt
næsta sumarfrí með hjálp vefsíð-
unnar unusualhotelsoftheworld-
.com.
Mennirnir á bakvið síðuna, þeir
Simon Penn og Steve Dobson tóku
eftir því að sum hótel gerðu meira
en að leyfa gestum að hvíla sig og
voru jafnvel vel þess virði að heim-
sækja, burtséð því hvað svæðið í
kring hefði upp á að bjóða.
Cottonwood í Idaho er til dæmis
ósköp venjulegur bandarískur smá-
bær, en þar er hægt að panta sér
herbergi innan í stærsta líkneski af
Beagle-hundi sem fyrirfinnst í
heiminum. Hótelið er rekið af
„sjálfmenntuðum keðjusagarlista-
manni“ og konu hans sem hafa það
að aðalstarfi að skera hunda út úr
tré. Meistaraverk þeirra hjóna er
Dog Bark Park Inn eða Gistiheim-
ilið í Hundgárgarði og þar geta
fjórir gist í einu. Nóttin kostar ekki
nema sex þúsund íslenskar krónur
og innifalið í verðinu er heima-
tilbúið múslí í morgunverð og afnot
af hárblásara á baðherberginu.
Margir aðrir möguleikar eru til
staðar, hægt er að gista í (ónotuðu)
holræsaröri við Dóná, í bryggju-
krana í hollenskum hafnarbæ og
hobbitaholu á Nýja-Sjálandi.
Því miður virðist ekkert íslenskt
hótel vera nógu skrýtið til þess að
á það sé minnst og þyrfti sjálf-
sögðu að bæta úr því. Það þarf því
helst sem fyrst að útbúa gistiað-
stöðu í gömlum hitaveitutanki, uppi
í Galtarvita eða í Surtshelli og
tryggja þannig orðspor þjóðarinnar
á þessu sviði.
Gistiheimili keðju-
sagarlistamannsins
Beagle Þau sem hafa áhuga á að
sofa inni í þessum hundi verða að
gera sér ferð til Cottonwood í Idaho.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
HINN eini og sanni Sáðmaður
söngvanna, Hörður Torfason, ætl-
ar að einblína á sjálfa ástina og
ótal birtingarmyndir hennar á
tónleikunum á þriðjudaginn.
Hörður lýsir því að fyrir rúmu ári
hafi það verið ámálgað við hann
að hann myndi einhverju sinni
halda tónleika sem samanstæðu
einvörðungu af ástarsöngvum.
„Ég hélt í fyrstu að það væri
ekki gerlegt en svo þegar ég fór
að gramsa í safni mínu stóð ég
allt í einu uppi með 37 söngva,“
segir Hörður. „Það er svo merki-
legt, að ég man oft illa eftir því
sem ég hef gert. Ég er alltaf með
hugann við það sem er framundan
og það sem ég er fást við hér og
nú.“
Herði til halds og trausts á tón-
leikunum verða þeir Tatu Kant-
omaa harmonikkuleikari og gítar-
og fiðluleikarinn Matthías Stef-
ánsson.
„Þetta verður því svona lítil
hljómsveit. Við ætlum að hafa
þetta dálítið þjóðlagakennt. Svo
verður þetta bara innileg kvöld-
stund og ég mun ræða við áhorf-
endur á milli laga, þessi bað-
stofuandi sem ég reyni gjarnan að
knýja fram verður í heiðri hafður.
Ég vil að fólk fari af tónleikunum
mett, glatt og vonandi hugsi.“
Annars var Hörður að taka í
gagnið vinnustofu fyrir stuttu og
iðar nú í skinninu að taka til við
Vitann, „fimmleik“ hans ef svo
mætti kalla en um er að ræða
fimm plötur sem tengjast í eitt
heildarverk. Út eru komnar Elds-
saga, Loftssaga og Jarðarsaga og
því bara Vatnssagan eftir og svo
vitanlega verkið sem bindur þetta
allt saman, Vitinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Söngvaskáld „Ég vil að fólk fari af tónleikunum mett, glatt og vonandi hugsi,“ segir Hörður Torfason.
Ástin bætir allt
Forsala miða er á www.borgarleik-
hus.is og á www.midi.is
www.hordurtorfa.com
Söngvaskáldið Hörður Torfa heldur árlega Kerta-
ljósatónleika í Borgarleikhúsinu á þriðjudaginn