Morgunblaðið - 03.03.2008, Qupperneq 36
36 MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
„Algjört listaverk”
eeeee
- 24 STUNDIR
„Ein mikilfenglegasta
bíómynd síðari ára”
eeeee
- Ó.H.T. Rás 2
eeee
- H.J. MBL
8
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Þriðja besta
mynd aldarinnar
samkvæmt hinum
virta vef IMDB
O S C A R
®
T I L N E F N I N G A R
ÞAR Á MEÐAL
eeee
„Daniel Day Lewis
er stórkostlegur“
24 STUNDIR
SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 B.i.7 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA
DARK FLOORS kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 6 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
THERE WILL BE BLOOD kl. 8:30 - 10:10 B.i.16 ára
THERE WILL BE BLOOD kl. 7 - 10:10 B.i.16 ára LÚXUS VIP
JUNO kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
DARK FLOORS kl. 8:20 - 10:30 B.i.14 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
STEP UP 2 kl. 8:20 - 10:30 B.i. 7 ára
SWEENEY TODD kl. 6 B.i.16 ára
eeee
- S.U.S. X-ið 97.7
eeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL
ÞÁ SJALDAN sem kvikmynda-
gerðarmönnum tekst að koma með
nýtt blóð og ferskan tón í kunn-
uglegt efni er björninn unninn og
allir á bólakafi í lukkupottinum.
Jason Reitman er kornungur leik-
stjóri sem vakti heimsathygli fyrir
háðsádeiluna Thank You For
Smoking, nú hefur þessi liðlega þrí-
tugi sonur Ivans (Ghostbusters)
Reitman, smellhitt naglann aftur á
höfuð og sannað að tóbakssatíran
var engin tilviljun eða byrj-
endaheppni. Því fer víðs fjarri að
Reitman eigi einn og óstuddur
heiðurinn af velgengni Juno, mynd-
in er þriggja manna grettistak.
Handrit hinnar þrítugu Diablo
Cody er á sömu bylgjulengd, alvar-
legt og fyndið í senn og ávallt
skynsamlegt og færði höfundinum
Óskarsverðlaunin fyrir frumraun-
ina sína núna á dögunum. Þá er
ótalin stjarnan, hin ótrúlega þrosk-
aða og ólýsanlega litríka galdra-
kona Ellen Page. Það er leitun að
jafn blæbrigðaríkri túlkun í bíó-
myndum samtímans og Page sýnir
í titilhlutverki ungrar stúlku sem
kemst að því að hún er þunguð eft-
ir einn kæruleysislegan samfund
með vini sínum og jafnaldra, Paulie
(Cera).
Ljóst er frá upphafi að þau eru
ekki sköpuð hvort fyrir annað, Pau-
lie og Juno, þau eru ekki tilbúin í
stórræðin og góð ráð dýr. Mögu-
leikarnir eru fáir. Juno getur ekki
hugsað sér að verða einstæð móðir
tæpast af barnsaldri, hún gefst upp
á miðri leið í fóstureyðingu, þá eru
kjörforeldrar eina úrræðið. Leit
hefst að hjónum sem vilja ættleiða
barnið og þá koma þau til sögunnar
upparnir Vanessa og Mark Loring
(Garner og Bateman). En svo
bregðast krosstré sem önnur tré.
Efnið virðist ekki til þess fallið
að gera úr því gamanmynd en út-
koman er engu að síður fyndin og
jákvæð þroskasaga þar sem áhersl-
an er einatt á hið broslega undir
annars grafalvarlegum aðstæðum
persónanna. Cody er flinkur penni
sem er jafnan smekkleg og fundvís
á snjallar og mannlegar útgöngu-
leiðir úr flóknum kringumstæðum.
Juno er eins fjarri því að vera
kærulaus stelpugála og hugsast
getur, hún er einfaldlega klár í
kollinum með skopskyn sem léttir
henni að ná áttum á þessum fyrstu
krossgötum lífsins. Hún er kornung
en rasar ekki um ráð fram, velur
foreldri sem eru þess umkomin að
veita barninu hennar flest það sem
hana sjálfa skortir á þessum tíma-
punkti.
Sigurganga Juno hefur verið
með miklum eindæmum, myndin
hefur mánuðum saman harðneitað
að detta út af vinsældalistanum.
Það hjálpast margt að til þess að
myndin varð einn óvæntasti sig-
urvegari við miðasöluna og á verð-
launaafhendingum, en Juno hirti
m.a. öll helstu Spirit verðlaun
óháðra kvikmyndargerðarmanna
fyrir skömmu. Page á ríkan þátt í
þessari listrænu og efnahagslegu
farsæld, hún er leikkona í sérflokki,
það var ljóst í Hard Candy, sem fór
fram hjá flestum, en er fáanleg á
næstu myndaleigu. Hennar vandi í
framtíðinni verður einkum fólginn í
að fá hlutverk við hæfi. Core vinn-
ur á þegar líða tekur á myndina og
J.K. Simmons, sem faðir Juno, er
óvæntur senuþjófur líkt og í Thank
You for Smoking. Garner, Bateman
og Janney fylla vel út í myndina
sem sannarlega lýsir upp bíótil-
veruna þar sem ofbeldið og myrkr-
ið hellist yfir mann sem aldrei fyrr.
Barnið kenndi barni barn
Juno Uppar í ættleiðingarhug.
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYND
Sambíóin
Leikstjóri: Jason Reitman . Aðalleikarar:
Ellen Page, Michael Cera, Jennifer Gar-
ner, Jason Bateman, Allison Janney, J. K.
Simmons. 91 mín. Bandaríkin 2007.
Juno
bbbbm
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
og Höskuld Ólafsson
HEILT yfir eru Íslendingar miklir
málvöndunarsinnar og erlendar
þjóðir mæna gjarnan til okkar af
aðdáun þegar allir sem vettlingi
geta valdið brjóta heilann yfir
hvers kyns nýrðasmíð. Málfarsfas-
istar og íhaldsfólk á það til að
standa föstum fótum gegn erlend-
um áhrifum, skiljanlega, en svo eru
þeir sem horfa til íslenskunnar sem
sprelllifandi máls sem geti vel tekið
við erlendum orðum og umfaðmað
sem sín eigin.
Brúdalur og Balalækur
Í Vatnagörðum æfa þrjár hljóm-
sveitir og einn sólólistamaður sam-
an. Þetta eru Ljótu hálfvitarnir,
Hraun, Múgsefjun og Birgir Örn
Steinarsson, Biggi í Maus. Æfinga-
húsnæðið hafa þeir kristnað Fíd-
bakki, sem er dásamlegt dæmi um
skapandi notkun á málinu. Erlenda
orðið „feedback“ eða viðgjöf/
endurgjöf er notað yfir surgið sem
kemur út gíturum þegar þeir
standa of nálægt mögnurunum.
Þetta orð er tónlistarmönnum tamt,
illa hefur gengið að koma þýðingu
inn, en nú hefur það verið leitt inn í
ylhýran, alíslenskan málheim og
stendur nú sem sællegt bæjarheiti:
Fídbakki. En hljómsveitirnar létu
ekki staðar numið þarna. Talað er
um að Fídbakki sé bær í Hljómsveit
og þar rennur Balalækur um, her-
bergi sem hýsir frumstætt hljóðver
og hljóðfærageymslu. Önnur
geymsla ber þá nafnið Díley
(„delay“ er heiti yfir ákveðin hljóð-
hrif sem gítarleikarar framkalla
með bjögunartækjum). Salern-
isaðstaðan ber þá nafnið Brúdalur
og stigagangurinn gengur undir
nafninu Pedalir. Jón Geir trommari
í Hrauni er þá með trommu-
smíðaaðstöðu á staðnum, en hann
er lunkinn trommusmiður og sér-
hannaði m.a. trommusett Ljótu
hálfvitanna með það fyrir augum
að það yrði nógu hálfvitalegt. Nafn-
ið? Slagbrandsstaðir. Jónas hlýtur
að brosa í kampinn með þetta allt
saman…
Fjör á Fídbakka
Íslenskan er lifandi
túlkunartæki, a.m.k. í
höndum nokkurra tón-
listarmanna sem æfa
saman í æfingarhús-
næðinu Fídbakka.
Verkstæði Í Viðgerði fá löskuð hljóðfæri nýtt líf.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Pása Í Pedölum hvíla tónlistarmenn lúin bein milli laga.
Útsýni Bæjarstæði Fídbakka er heppilegt og þaðan sést vítt og breitt. Stúdíó Jón Geir situr í miðjum Balalæk en heldur samt ró sinni.