Morgunblaðið - 03.03.2008, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 03.03.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2008 39 Bláu pakkarnir hjálpa tvöfalt Nicotinell hjálpar þér að hætta að reykja og styrkir Krabbameinsfélagið um 20 kr. af hverri seldri pakkningu Tvöfaldaðu möguleika þína til að hætta að reykja hvort sem þú kýst tyggjó, plástra eða mintur og þú styður gott málefni um leið. Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Þeir sem hafa fengið ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega, eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ. P L Á N E T A N ÞJÓÐVERJINN Forster gerði Finding Neverland, eina bestu mynd síðari ára og Monster’s Ball átti minnisstæð augnablik. Að þessu sinni glímir hann við kvikmyndagerð samnefndrar metsölubókar sem fór sigurför um heiminn fyrir fáeinum arum. Flugdrekahlauparinn – The Kite Runner er fyrsta skáldsaga Khaleds Hosseini, landflótta Afgana sem lauk læknanámi í Bandaríkj- unum. Hann lýsir æsku sinni í Kabúl með augum drengsins Amirs (Ebra- himi), á meðan borgin var tiltölulega opið og mannvænlegt múslím- aþjóðfélag. Amir er sonur auðmanns og andkommúnista, yfirlýsingagleði hans á eftir að koma fjölskyldunni í koll þegar Sovétið gerir innrás um 1980. Faðir hans flýr land með son sinn og þeir setjast að í Bandaríkj- unum. Árin líða, Amir (Abdalla), er orð- inn fulltíða maður og rithöfundur á uppleið þegar honum berast skila- boð frá gamla föðurlandinu sem nú er komið úr öskunni í eldinn; talíb- anar búnir að hrekja á brott sovéska innrásarliðið og njörva allt eðlilegt mannlíf í landinu undir járnhæl hinna skeggprúðu trúarofstæk- ismanna. Amir átti bernuskuvin í Kabúl, Hassan (Mahmoodzada), son heimilishjálparinnar. Sökum afbrýð- issemi svíkur Amir þennan góða vin sinn rétt áður en feðgarnir flýja land og skilaboðin sem hann fær, orðinn giftur góðborgari á Kyrrahafs- ströndinni, eru þau að talíbanar hafi drepið Hassan sem hafi í raun verið honum nátengdur. Hassan eignaðist son sem dvelst á munaðarleys- ingjahæli í Kabúl og Amir á engra kosta völ, til að bjarga ærunni verð- ur hann að snúa aftur til Afganistan og bjarga syni Hassans. Bókin Flugdrekahlauparinn lýsti eftirminnilega horfnum heimi ungra vina sem eiga lengst af dýrðlega æsku við leik, oft tengda titlinum, og syndafallinu þegar Amir bregst Hassan, sem jafnan hvatti hann og dáði af heilum hug. Upphafið er einnig besti hluti myndarinnar þó flugdrekarnir hefðu að ósekju mátt vera fyrirferðarminni hluti af sýn- ingartímanum. Forster dregur upp áhrifaríkar götumyndir fullar af framandi andrúmi, ilmandi kebab– réttum og fjölbreyttum sögu- persónum þar sem Baba (Ershadi), og fændinn Rahim (Toub), vakna til lífsins af síðum bókarinnar. Að flestu öðru leyti veldur aðlög- un Davids Benioff vonbrigðum og það rifjast upp að hann átti einnig handrit Stay, einnar verstu myndar Forsters, á athyglisverðum ferli. Harmsaga innrásar Sovétríkjanna og í kjölfarið jafnvel enn verri sví- virða talíbananna gagnvart landi og þjóð, er afgreidd á reyfarakenndan og ódýran hátt í örfáum setningum. „Innrás“ Amirs í innstu vé talíbana og flótti úr landi er flausturslegur og maður situr eftir sár og tómur, hvað varð af kjötinu á beininu? Í ofanálag er leikurinn vondur hjá Abdalla í að- alhlutverki Amirs og drengirnir eru heldur ekki sannfærandi. Ég ætla rétt að vona að tvíeykinu Forster/ Benioff verði ekki falið að laga A Thousand Splendid Suns að kvik- myndaforminu. Vonbrigði „Maður situr eftir sár og tómur, hvað varð af kjötinu á beininu?“ Flugdrekar í logni KVIKMYND Háskólabíó, Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri Leikstjóri: Marc Forster . Aðalleikarar: Khalid Abdalla, Atossa Leoni, Shaun Toub, Sayed Jafar Masihullah Gharib- zada, Zekiria Ebrahimi, Ahmad Khan Mahmoodzada, Homayoun Ershadi.125 mín. Bandaríkin 2007. Flugdrekahlauparinn – The Kite Runner bbbnn Sæbjörn Valdimarsson FRANSKA leikkonan og ósk- arsverðlaunahafinn Marion Cotil- lard hefur nú bakað sér óvild margra Bandaríkjamanna eftir að ársgamalt viðtal við hana komst í umferð á netinu. Þar heldur Cotill- ard því meðal annars fram að árás- irnar á Tvíburaturnanna hafi verið skipulagðar í þeim tilgangi að sleppa við háan viðhaldskostnað og segist líka hafa sínar efasemdir um að Bandaríkjamenn hafi sent mann til tungsins. „Það kviknaði í skrifstofuturni á Spáni og hann brann í sólarhring og stóð samt uppi. Þarna í New York hrundu þeir á nokkrum mín- útum,“ sagði hún og bætti því við að turnarnir hefðu verið peningahít sem einfaldara hefði verið að eyði- leggja en að gera upp. Um ferð Neil Armstrong og fé- laga til tunglsins árið 1969 hafði Cotillard þetta að segja: „Ég hef séð margar heimildamyndir um þetta ferðalag og er alls ekki sann- færð. Ég trúi að minnsta kosti ekki öllu sem manni er sagt um það.“ Úbbs! Marion Cotillard hefur móðgað marga Bandaríkjamenn. Í klípu vegna samsæris- kenninga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.