Morgunblaðið - 03.03.2008, Side 40
MÁNUDAGUR 3. MARS 63. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Ófært vegna snjókomu
Stórhríð gekk yfir Vestmanna-
eyjar í fyrrinótt og í gær og hefur
ekki verið meiri snjór í Eyjum í ára-
tugi. Vonskuveður var líka við suð-
urströnd landsins frá Jökulsá á Sól-
heimasandi austur að Mýrdalssandi
í gær og var Suðurlandsvegi lokað
frá Vík vestur að Skógum. »2
Snillingar á skákmóti
Um 100 keppendur eru skráðir til
leiks á Reykjavíkurskákmótinu sem
verður sett í dag. Þar af eru um 65
erlendir skákmenn og á meðal
þeirra er 11 ára undrabarn frá
Úkraínu sem er með 2.406 Elóstig,
æfir sex tíma á dag og er með frjálsa
mætingu í skólanum. »4
Neikvæð áhrif
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra,
segir að verðhækkanir, sem nú
skella með ofurþunga á landbún-
aðinn, hafi augljóslega neikvæð áhrif
á lífskjör bænda, afurðastöðvar og
neytendur og leita þurfi leiða til að
vinna sig út úr vandanum. »Forsíða
Medvedev vann
Þegar búið var að telja meira en
helming atkvæða í forsetakosning-
unum í Rússlandi í gær var Dmítrí
Medvedev aðstoðarforsætisráðherra
með um 70% atkvæða. Andstæð-
ingar stjórnvalda sögðu að kosn-
ingasvikum hefði verið beitt. »14
SKOÐANIR»
Staksteinar: Aðferðir Gestapó?
Forystugreinar: Skjalavarzla í nýju
ljósi | Nýr forseti Rússlands
Ljósvakinn: Ribery og Gazprom
UMRÆÐAN»
Reykjavíkur-metró
Ágæti þingmaður
Lygamafía Palestínuvina?
Fáar prósentur en margt fólk
Öryggi og hugsanaleti
Velta á fasteignamarkaðnum
Stefnumótun Garðyrkjufélagsins
FASTEIGNIR»
Heitast -1 °C | Kaldast -10 °C
Norðaustan 3-10
metrar á sekúndu og
víða bjartviðri en skýj-
að að mestu um landið
norðanvert. » 10
Hvort má bjóða þér
að gista innan í
hundi eða holræsa-
röri? Heimatilbúið
múslí og hárþurrka
innifalin. »34
VEFSÍÐA»
Hundur eða
holræsarör?
FÓLK»
Keira Kneightley dáist
að Björk. »33
Í Hljómsveit er bær-
inn Fídbakki við
Balalæk þar sem
tónlistarmenn
stunda nýyrðasmíð
af kappi. »36
TÓNLIST»
Á Fídbakka
við Balalæk
TÓNLIST»
Forsala miða á Clapton-
tónleika hefst í dag. »37
TÓNLIST»
Með hugann við það sem
er framundan. »34
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Fær 21 milljón í vinning
2. Gaman að reyna að eignast barn
3. Vont veður í Vestmannaeyjum
4. Innisnjóaðir Vestmannaeyingar
ÞRÁTT fyrir mikið fannfergi á land-
inu eru golfáhugamenn farnir að
huga að sumrinu. Unglingar í Golf-
klúbbnum Leyni settu Íslandsmet í
golfmaraþoni um helgina þar sem
þau skiptust á um að slá golfbolta á
æfingasvæði klúbbsins í sólarhring.
Hópurinn fer í æfingaferð til Spánar
á næstunni og var golfmaraþonið
hluti af fjáröflun þeirra fyrir
draumaferðina. Boltarnir sem not-
aðir voru eru gulir á litinn en það er
hætt við því að stór hluti þeirra finn-
ist ekki fyrr en snjóa leysir.
Íslandsmet í golfmaraþoni
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Slegið í gegn Sólgleraugu og „sixpensari“ eru nauðsynlegur hluti af út-
búnaði kylfinga sem ætla sér að slá Íslandsmet í golfmaraþoni.
armaður skipsins bauð okkur að
láta skipið brjóta sér leið í gegn-
um ísinn inn í fjarðarbotn fyrir
ákveðna upphæð, þar sem hann
hefði hvort eð er ekkert annað
að gera og gæti ekki farið að
HAFÍS hefur valdið starfs-
mönnum Ístaks sem vinna að
virkjunarframkvæmdum við
Sisimiut á vesturströnd Græn-
lands erfiðleikum að undanförnu.
Hafísinn gerði erfitt fyrir um að-
drætti, en úr rættist í vikunni
þegar 700 tonna togari var feng-
inn til að ryðja sér leið í gegnum
ísinn 22 kílómetra leið frá
Sisimiut inn í fjarðarbotninn þar
sem virkjuninni er fyrirhugaður
staður. Tók það sex sólarhringa
og þurfti að sprengja vakir í ís-
inn þar sem hann var þykkastur
til að skipið næði að ryðja rennu
í ísbreiðuna.
„Við erum nýbúnir að brjóta
okkur leið í gegnum ísinn og fá
allt fyllt upp af olíu, þannig að
við erum ansi brattir í dag. Ef þú
hefðir talað við mig fyrir rúmri
viku hefði ég verið heldur svart-
sýnni,“ sagði Guðmundur Þórð-
arson byggingartæknifræðingur,
sem stýrir framkvæmdunum á
Grænlandi.
„Það var lán í óláni að 700
tonna togari sem hér er komst
ekki á miðin vegna íss og útgerð-
veiða. Við samþykktum það og
það tók skipið sex sólarhringa að
brjóta sér leið í gegnum ísinn
með alls konar æfingum. Við
boruðum og sprengdum vakir
fyrir framan skipið þar sem erf-
iðast var að brjóta ísinn,“ sagði
Guðmundur.
Virkjunin sem Ístak byggir er
15 megavött að stærð og á að sjá
þéttbýlinu í Sisimiut og nágrenni
fyrir orku. | 6
Sprengdu
vakir í
hafísinn
Fengu togara til að ryðja sér 22 km leið í gegnum ís á vesturströnd Grænlands
Ljósmynd/Kiddi Einars
FRAMKVÆMDIR við nýtt hverfi
vestan við Hveragerði undir Kömb-
unum eru í fullum gangi. Gatnagerð
er hafin á svæðinu sem er 30 hekt-
arar að stærð og er skipulagt fyrir
íbúðabyggð. Er gert ráð fyrir bygg-
ingu 280 íbúðaeininga, 220 sérbýla
og 60 íbúða í fjölbýlishúsum. Kamba-
land verður byggt upp í þremur
áföngum og má reikna með að upp-
bygging alls hverfisins taki um 5-8
ár.
Landið er í eigu Kambalands ehf.
sem sér um uppbygginguna, en
Hveragerðisbær mun sjá um þá
þætti sem snúa að þjónustu.
„Kambaland ehf. hefur skipulagt
svæðið, í samvinnu við bæinn að
sjálfsögðu,“ segir Aldís Hafsteins-
dóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, „og
þeir sjá um alla gatnagerð á
svæðinu. Bærinn kemur ekki að
framkvæmdinni að öðru leyti en að
tengja svæðið núverandi gatnakerfi,
veitukerfi og slíku. Síðan munum við
auðvitað þjónusta svæðið þegar það
er byggt,“ segir Aldís.
Framundan er einnig uppbygging
í Sólborgum, en samningar um upp-
byggingu voru gerðir við Eykt hf.
Eykt eignaðist það land með
samningum við Hveragerðisbæ í
byrjun árs 2006 og síðan hefur verið
unnið að þróun þess og skipulagn-
ingu, en ólíklegt er að framkvæmdir
hefjist þar á þessu ári. | 9
Framkvæmdir
í fullum gangi
Morgunblaðið/RAX
Uppbygging Áhugi er á húsnæði
sem reist verður við Hveragerði.