Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
5: 5: &
'
"!
"!
H
H
5: / I:
() *
"&
"!
!*
H
H
!J K 7
("'"
( )+
"!
&!
H
H
.4-
!&:
() )
)("'"
"!
"!&
H
H
5: 0?=
5: "E0
&()'
( )
!
"!
H
H
!"!#$%!&
'() 12 )3! !)
& 1 + 9
I 1 + 9
-) 9
.
1 + 9
1 8 9
- +L M' 1 + 9
3 +$ I 9
8 9
9
6,5
2I .
8 9
4 9
N 9
42 5
@A= 9
& ' 9
& ' &J
& ' 6 6D.
- I
. 1 + 9
.O I
M' ' 1 + 9
P9
9
4 9
Q 9
1 "6 7
( & (
I 1 9
+
9
& !
*! +
"+!
!
)!+'
)!"
!'
&!"
* &!
*!
+!
&!)"
!*&
&!&)
+*!)
! *
)!*
'+!
" !
") !
!'
&!
!+"
!
&*!
+!
&'+ !
!
)!
!"#
$%
"$
#!
"
&&
"
"%
!
'#
#
#&
"'
"
'#&
'%$
""
"&#
$$
Q +
48 #
3 + ?E0=E>B/
=AB/@C/C
?B?B/ECB@B
?B=0A0CB>
???@C=?A@0
@?BEACE=
ECC0??A@?
?EA?B>0??B
?E?0CCCECC
B/A=B?E?
A@?BEA@?
?@?C/C=E>=
??AB>0E/
?ECEE@=0
2
?@EB0000
@B=AC0
BB0@0?=
>EB0BE@
EAAAA00
C?>>AEB
@?
2
2
2
CB/0/BB=
2
2
/"?>
@/"C0
?0"0=
A">=
?A"B=
B="C0
BE"0=
/0>"00
B/"00
>E">0
E"AB
?0"/0
E"EA
>/"00
?"BA
A"A/
?C>"00
?@0="00
@=="00
0"C0
?E@"00
B"/C
2
2
2
EC=0"00
?0"00
2
/"B0
@>"B0
?0"?=
A">C
?A"@=
BA"B=
BE"@0
/?E"00
B/"?=
>=">0
E"A@
?0"/E
E"E>
>>"00
?"B>
A"/B
B00"=0
?@B="00
@>0"00
0"C?
?E/"00
B">@
BB"==
2
C"00
=0?0"00
2
2
.
+
?=
B0
/A
A/
??=
?E
?A
?=A
/B
??
EE
/B
?E
/
2
?
?
/
A
=
@?
?
2
2
2
>
2
2
!
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?/@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?>@B00>
?0@B00>
?>BB00>
A?BB00/
BB>B00/
?>@B00>
?@@B00>
/@B00>
PÓLITÍSKIR
andstæðingar
Bush Banda-
ríkjaforseta voru
fljótir að benda á
að afstaða forset-
ans til aðstoðar
hins opinbera
væri mismunandi
eftir því hvort í
hlut eiga stór
fjármálafyrirtæki á Wall Street
annars vegar, eða almenningur
hins vegar. Þetta er tilkomið vegna
aðkomu bandaríska seðlabankans
að kaupum JP Morgan Chase bank-
ans á fjárfestingarbankanum Bear
Stearns um síðustu helgi.
Þegar tilkynnt var um kaupin sl.
sunnudag kom fram að seðlabank-
inn legði til 30 milljarða dollara
vegna fjármögnunar kaupanna auk
þess að ganga í ábyrgðir til að verja
JP Morgan tapi komi til þess að
eignir Bear Stearns lækki í verði.
Í frétt í New York Times segir að
ýmsir hafi bent á að inngrip hins
opinbera með þessum hætti í hinn
frjálsa markað sé algjörlega í and-
stöðu við stefnu Bush í grundvall-
aratriðum.
Harry Reid, leiðtogi demókrata í
öldungadeild þingsins, sagðist hins
vegar vona að nú þegar forsetinn sé
reiðubúinn til að hjálpa til við að
greiða úr vandanum á Wall Street
með peningum skattborgaranna
muni hann láta af andstöðu við til-
lögur sem miði að því að aðstoða
íbúðaeigendur í vanda vegna
kreppunnar á íbúðamarkaðinum.
George W. Bush
Afstaða Bush
gagnrýnd
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
SEÐLABANKI Bandaríkjanna
lækkaði stýrivexti sína í gær eins og
búist hafði verið við og nam lækk-
unin 0,75 prósentustigum. Vextir eru
nú 2,25% og hafa ekki verið lægri
undanfarin þrjú ár en í tilkynningu
frá bankanum kom fram að efna-
hagshorfur í þessu stærsta og áhrifa-
mesta hagkerfi heims séu veikari en
áður og því sé nauðsynlegt að reyna
að örva hagkerfið og auka trú fjár-
festa á fjármálakerfi og -markaði.
Miklar hækkanir urðu á öllum
helstu hlutabréfamörkuðum heims í
gær, annars vegar vegna þess að
uppgjör fjárfestingarbankanna
Lehman Brothers og Goldman Sachs
voru töluvert betri en búist hafði ver-
ið við og hins vegar þar sem mark-
aðurinn bjóst við stýrivaxtalækkun-
inni.
Samkvæmt Bloomberg drógu
uppgjör bankanna tveggja töluvert
úr svartsýni markaðsaðila þess efnis
að fleiri bankar færu sömu leið og
Bear Stearns og hefur fréttastofan
eftir Doug Peta, greinanda hjá J&W
Seligman í New York að banka-
áhlaupinu virðist vera lokið og að
fjórir stórir fjárfestingarbankar
verði eftir í vikulok, nokkuð sem síð-
ur en svo var víst á mánudag. Hvort
bankaáhlaupinu sé endanlega lokið
að mati Peta kom þó ekki fram en
hvað sem því líður hefur gengi
Lehman Brothers aldrei hækkað
jafn mikið á einum degi og í gær og
gengi Goldman Sachs hefur ekki
hækkað jafn mikið á einum degi síð-
astliðin níu ár.
Raunar hafa helstu hlutabréfavísi-
tölur vestra ekki hækkað jafn mikið
á einum degi og í gær í meira en
fimm ár eða allt frá því í október
2002. Dow Jones-iðnaðarvísitalan
hækkaði um 3,5%, samsetta Nasdaq-
vísitalan um 4,2% og S&P500 sömu-
leiðis.
Mesta hækkunin
síðan haustið 2002
Stýrivaxtahækkun og góð uppgjör kættu markaðinn vestra
Reuters
Mikil hækkun Miðlarar fylgjast grannt með gangi mála á viðskiptagólfinu
í kauphöllinni í New York í gær. Gengi hlutabréfa hækkaði verulega.
Í HNOTSKURN
» Gengi dollarsins hækkaðiverulega í kjölfar vaxtalækk-
unar seðlabankans vestra.
» Dollar hefur ekki hækkaðjafnmikið gagnvart jeni síðan
1999.
» Verð á olíu tók kipp upp ávið vegna væntinga um
aukna eftirspurn eftir gullinu
svarta í Bandaríkjunum í kjölfar
vaxtahækkunarinnar. Fatið kost-
ar nú tæpa 109 dali.
ÞÓTT stjórnir bandarísku bankanna
Bear Stearns og JP Morgan Chase
hafi náð samkomulagi um kaup þess
síðarnefnda á hinum er alls ekki víst
að sú verði raunin. Að minnsta kosti
virðist hlutabréfamarkaðurinn efast
um það, því gengi hlutabréfa Bear
hækkaði verulega í viðskiptum í
kauphöllinni í gær. Hluthafar bank-
ans hafa enn ekki lagt blessun sína
yfir söluna til JP Morgan og virðast
markaðsaðilar telja fullvíst að hærra
tilboð muni berast og jafnvel að
kapphlaup um bankann muni hækka
verðið enn frekar. Þegar lokað var
fyrir viðskipti í gærkvöldi hafði
gengi bankans hækkað um 23%.
Margir stærstu hluthafa Bear Ste-
arns hafa látið hafa eftir sér að til-
boðið sé skammarlega lágt og hafa
fjárfestar þegar stefnt stjórn bank-
ans fyrir að hafa blekkt markaðinn.
Þá hefur starfsmaður bankans stefnt
honum fyrir að hafa brotið gegn
skyldum sínum gagnvart starfs-
mönnum.
Eins og fram hefur komið komst
sá kvittur á kreik í liðinni viku að Be-
ar ætti við lausafjárstöðu að etja en
fyrir það þrættu stjórnendur bank-
ans. Í kjölfarið hrundi gengi bankans
og fjárfestar forðuðust að lána hon-
um fé. Bandaríska fjármálaeftirlitið
(SEC) hefur nú samkvæmt frétt Blo-
omberg hafið rannsókn á því hvort
miðlarar hafi vísvitandi dreift fölsk-
um upplýsingum um stöðu bankans
og þannig komið honum á kné. Sam-
kvæmt bandarískum lögspekingum
gæti þó reynst erfitt að sanna brot.
Búast við keppni um Bear
SEC rannsakar hvort fölskum upplýsingum var dreift
Reuters
Bear Stearns Tveggja dala seðill
hefur verið límdur yfir merki bank-
ans en svo hljóðar tilboð JP Morgan.
LÁNSFJÁRKREPPAN er farin að
gera vart við sig á dönskum banka-
markaði og hefur hún breytt stöðunni
þar í landi en nú er svo komið að
smærri bankar eru í sárri lausafjár-
þörf og þurfa því að taka lán hjá
stórum fyrirtækjum en jafnan er það
þannig að bankar sjá fyrirtækjum í
öðrum rekstri fyrir fé.
Jótlandspósturinn segir bankana
fara betlandi um og hefur eftir Jens
Kristian Kjær Krogsgaard, fjármála-
stjóra Rockwool, að sex bankar hafi
haft samband við hann og boðið mjög
háa vexti af innlánum. „Það hef ég
ekki upplifað áður,“ segir Krogsgaard
og bætir við að yfirleitt vilji bankarnir
selja honum ýmis konar fjármálaaf-
urðir. „Maður heyrir að það er ekki
venjulegt sölufólk sem er að hringja.
Ég giska frekar á að það séu yfir-
menn í fjárstýringu,“ segir hann. Þá
segist hann ekki leggja fé fyrirtæk-
isins inn í banka sem ekki hafa fengið
lánshæfiseinkunn heldur treysti hann
stóru bönkunum frekar.
Danska smá-
banka skortir fé
Hringja í fyrirtæki og betla innlán
● HLUTABRÉF Skipta, móðurfélags
Símans og fleiri fjarskiptafyrirtækja,
verða tekin til viðskipta í kauphöll
OMX á Íslandi í dag. Mun Brynjólfur
Bjarnason forstjóri hringja markaðs-
bjöllunni. Útgefnir hlutir eru um 7.368
milljónir talsins. Viðskiptavakt bréf-
anna er í höndum Kaupþings. Útboði
á 30% hlut í félaginu er lokið og sem
kunnugt skráðu fjárfestar sig aðeins
fyrir um 7,5%. Bréfin fara á markað
við erfiðar aðstæður en greiningarað-
ilar töldu útboðsgengi félagsins hafa
verið of hátt, í samanburði við sam-
bærileg félög á markaði.
Hlutabréf Skipta í
kauphöllina í dag
● GLITNIR hefur lokið við sölu á
breytanlegum skuldabréfum að and-
virði 15 milljarða króna. Útgáfan er
þó háð samþykki hluthafafundar
sem haldinn verður í dag.
Í tilkynningu frá Glitni segir að bréf-
in hafi verið seld í lokuðu útboði til
innlendra fagfjárfesta en þau teljast
til eiginfjárþáttar A og styrkja eig-
infjárhlutfall bankans því umtalsvert
eins og segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram í Vegvísi Lands-
bankans að Glitnir hafi gefið út
skuldabréf erlendis í Bandaríkjadal
og er verðmæti útgáfunnar 7,7 millj-
arðar miðað við núverandi gengi.
Sölu breytanlegra
skuldabréfa lokið
● ÞRJÁTÍU þús-
und starfs-
mönnum banda-
ríska flugfélags-
ins Delta Airlines
hefur verið boð-
inn starfsloka-
samningur en
með því stefnir fé-
lagið á að fækka
starfsmönnum sínum um tvö þús-
und. Ástæðan er sögð vera aukinn
eldsneytiskostnaður. Samkvæmt
frétt AP er ekki um uppsagnir að
ræða heldur er öllum þeim er boðinn
var samningur frjálst að halda áfram
störfum. Alls starfa um 55 þúsund
manns hjá Delta.
Bjóða 30 þúsund
starfslokasamninga
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði lít-
illega í gær eftir mikið fall á mánu-
dag. Lokagildi vísitölunnar var 4.659
stig og er það hækkun um 0,14% frá
deginum áður. Mest hækkun varð á
bréfum Century Aluminum í gær,
4,8%. Mest lækkun varð á bréfum
Eikar banka, 5,7%.
Heildarvelta dagsins nam 65,7
milljörðum króna en þar af var velta
með hlutabréf fyrir tæpa 8 milljarða.
Mest velta var með bréf Kaupþings
1,5 milljarðar en velta með bréf
Landsbankans nam 1,4 milljörðum.
Hækkun í kauphöll
NAFNVIRÐI hlutafjár FL Group
hefur ekki verið skráð rétt á vef
kauphallar OMX, eftir að nýir hlutir
voru gefnir út í desember sl. í
tengslum við fasteignakaup og hluta-
fjáraukningu félagsins. Af þeim sök-
um var markaðsvirði FL rangt í frétt
á síðunni í gær. Hlutaféð er nú um
13.584 milljónir en ekki 9.925 millj-
ónir eins og miðað var við. Miðað við
lokagengi FL Group á mánudag,
7,23, var markaðsvirðið því 98,2
milljarðar króna, ekki 72 milljarðar
eins og stóð í fréttinni. Bréfin hafa
eftir sem áður lækkað um 50% frá
því um áramót og markaðsvirði
þeirra hefur rýrnað um 100 milljarða
króna. Að sögn Júlíusar Þorfinns-
sonar, forstöðumanns samskipta-
sviðs FL Group, er skráningarlýsing
vegna nýrra hluta enn í vinnslu í
kjölfar ársuppgjörs félagsins og er
gert ráð fyrir að hlutirnir verði
skráðir formlega hjá OMX innan
skamms.
Bréf FL ekki
rétt skráð
ÓTTI fjárfesta við að lausafé ís-
lensku bankanna gæti klárast er
ástæða þess að hlutabréfaverð
þeirra hefur verið að lækka sam-
kvæmt dálki Lex í Financial Times í
gær. Þar segir að í kjölfar sölunnar á
Bear Stearns séu fjárfestar teknir að
ryðja hlutabréfum banka út úr
eignasöfnum sínum og þegar velja á
hvaða banka á að selja nota þeir þrjú
viðmið.
Hið fyrsta er lausafjárstaða. Slæm
lausafjárstaða varð bæði Bear Ste-
arns og Northern Rock að falli og
„Hún er einnig ástæða þess að
Lehman Brothers og íslensku bank-
arnir eru undir þrýstingi,“ segir Lex.
Hin viðmiðin eru eigið fé og gæði
eignasafna.
Ótti við lausa-
fjárskort
♦♦♦
ÞETTA HELST …
♦♦♦