Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 27 u sér heimi. r skapast d. Í öll- em eru eru þessari ð átta ram.“ t for- æru í kaði í mmt að Það ætti t þessi vort hún ðvitað il kjara- nast ystumenn ðnum gjum af ú hefði i útflutn- góða. u er sá gar hafa t af fjár- út úr eyt- um en rast í ndi, Þessar unnar ra hvort hækkar þess eykst eða hvort þorskveiðikvót- inn skerðist. Þannig er okkar umhverfi orðið á þessu sviði. Það er hins vegar ekki vafamál að þessi gengisbreyting mun hjálpa útflutningsatvinnuveg- unum. Hún mun draga úr inn- flutningi og verða til þess að við- skiptajöfnuðurinn mun batna hraðar en við gerðum ráð fyrir áður.“ Geir sagði ekki einfalt mál fyrir stjórnvöld að bregðast við gengisbreytingum. Það ætti bæði við stjórnvöld hér á landi og stjórnvöld í öðrum löndum. „Ég hef lengi varað fólk við því að taka erlend lán, sérstaklega neyslulán í erlendum gjald- miðlum. Í því er fólgin gríðarleg áhætta eins og nú er að koma á daginn, hvort sem þessi breyting verður varanleg eða ekki. Ég hef sagt það að undanförnu að það verða allir að fara mjög varlega í þessari stöðu og helst ekki að taka lán nema brýna nauðsyn beri til og þá helst til öruggra fjárfestinga en ekki til neyslu.“ Geir sagði aðspurður að aðild að Evrópusambandinu myndu engu breyta um þann vanda sem við stæðum frammi fyrir núna í kjölfar umróts á alþjóðlegum mörkuðum. Aðild að Evrópusam- bandinu gæti ekki orðið að veru- leika fyrr en eftir 5-6 ár að und- angengum miklum ákvörðunum sem þjóðin yrði að taka. Morgunblaðið/RAX ví hefði mátt búast við einhverri lækkun. Ein n myndi minnka. kallar ðbrögð '9 B00> Í HNOTSKURN » Mikið flökt var á gengikrónunnar í gær en við lok dags hafði það lækkað um 1,27%. » Forsætisráðherra minnti á,að ástandið hér endurspegl- aði ástandið og óróann erlendis en við honum brást bandaríski seðlabankinn með því að lækka stýrivexti um 0,75 punkta. » Gengislækkunin, sem hörðsem hún er, mun gagnast út- flutningsatvinnuvegunum. Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is Ljóst er að til skamms tímamun kreppa að í íslenskuefnahagslífi,“ sagði dr.Gunnar Haraldsson, for- stöðumaður Hagfræðistofnunar Há- skóla Íslands, í erindi sem hann hélt á opnum fundi Viðskiptablaðsins á Kjarvalsstöðum í gær. Á fundinum, sem bar yfirskriftina „Er allt að fara til fjandans“, veltu fulltrúar fjölmiðla, sjávarútvegs, orku- og fjármálageirans og fræði- manna fyrir sér stöðu Íslands í al- þjóðlegu viðskiptalífi og horfum efnahagslífsins til skemmri og lengri tíma. Hvað vitum við um Færeyjar? Haraldur Johannessen, ritstjóri Viðskiptablaðsins, steig fyrstur í pontu og spurði hvað við vissum um Færeyjar, efnahagsástand þeirra, helstu fyrirtæki og ríkisstjórn. „Ís- land er sjö sinnum fjölmennara en Færeyjar, þeir eru nágrannar okkar og tala nánast sama tungumál,“ sagði Haraldur. Samt hefðu fæstir Íslendingar þekkingu á Færeyjum. Til samanburðar væri Danmörk sautján sinnum fjölmennari en Ís- land og Bretland 194 sinnum fjöl- mennara. Á alþjóðlegum vettvangi viðskiptalífsins væri einfaldlega ekki keppt miðað við höfðatölu, eins og á Smáþjóðaleikunum. Haraldur sagði væntingar manna um kynningarfundi sem haldnir voru erlendis hafa verið óraunhæfar. Í stærra samhengi hefði mætingin og umfjöllunin e.t.v. ekki verið svo lítil. Markaðssetning er lykilatriði eins og einnig kom fram síðar á fundinum. „Ísland kemst yfirleitt í fréttir erlendis vegna einhvers sem þykir skrítið. Það er ekki endilega heppilegt fyrir viðskiptalífið, allra síst fjármálageirann.“ Tóku markaðshlutdeild og vörumerki með tilfinningagildi Aðilar í íslensku viðskiptalífi hafa verið brúnaþungir yfir neikvæðum tóni erlendra fjölmiðla í þeirra garð. Haraldur kvað erlenda fjölmiðla oft skrifa í meiri æsifréttastíl en hér tíðkaðist, auk þess sem áhugi á nei- kvæðum fréttum væri því miður oft meiri en á jákvæðum. Hins vegar hefðu ekki alltaf verið neikvæð tíð- indi á bak við vafasamar fyrirsagnir á borð við „Time to bale out of Ice- land?“, sem birtist í The Sunday Times 10. febrúar síðastliðinn. Undanfarið hefur víða komið fram að sökin sé skortur á að kynna stöðu og forsögu efnahagslífsins. Þá hafi Íslendingar keypt fyrirtæki með til- finningalegt gildi og t.d. hafi Danir kvartað undan slakri upplýsingagjöf frá óskráðum fyrirtækjum þar í landi. Þó hefðu einnig komið fram óvandaðar greiningar frá erlendum greiningaraðilum sem fjölmiðlar hefðu gripið á lofti og hringlanda- háttur Moody’s hefði ekki hjálpað til. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, rakti breytingar á efnahagslífinu frá inngöngu í EES. „Öfugt við það sem flestir bjugg- ust við, þegar bankakerfið var einka- vætt og opnað fyrir erlendum fjár- festum, komu erlendir bankar ekki til Íslands. Þeir höfðu einfaldlega ekki áhuga á því,“ sagði Sigurjón um hið lítt þekkta íslenska hagkerfi. Ís- lensku bankarnir hefðu á móti vaxið og vakið athygli erlendis, stundum neikvæða, mögulega vegna þess að þeir hafa tekið til sín markaðshlut- deild á alþjóðamarkaði. Grunnskýringin á háu álagi „Íslandskrísan árið 2006 bjó bank- ana á jákvæðan hátt undir núverandi ástand. Neikvæðu afleiðingarnar voru hins vegar sá gífurlegi áhugi sem skapaðist á Íslandi, sem gerði að verkum að skuldabréf íslensku bankanna voru tekin inn í skulda- bréfavafninga af ýmsu tagi. Hér er komin grunnskýringin á háu skulda- tryggingarálagi bankanna í dag.“ Sigurjón sagði íslensku bankana hafa orðið fyrir barðinu á ástandinu að mestu að ósekju því þeir hefðu haldið sig frá þeim hlutum markað- arins sem væru í mestum vanda. Tap stóru bandarísku bankanna á borð við Merrill Lynch dygði t.a.m. hæg- lega til að kaupa Landsbankann. Staðan hér heima í efnahagsmál- um flækti myndina töluvert, en Seðlabankinn yrði að geta fundið millileið til að milda áfallið að utan á sama tíma og unnið væri að þjóð- hagslegu jafnvægi. „Það virðist líka augljóst að við þessar aðstæður henda menn ekki út af borðinu verkefnum sem bjóða upp á beina erlenda fjármögnun,“ sagði Sigurjón, sem gagnrýndi andstöðu við nýtingu auðlinda hér á landi og nefndi í því samhengi uppbyggingu Norðuráls á Reykjanesi. Íslensku bankana sagði Sigurjón vera í stakk búna til að standa af sér gjörningaveðrið með ráðstöfunum til að verjast áhrifum af falli krónunn- ar, safna lausafé og auka mikilvægi alþjóðlegra innlána. Til lengri tíma litið þyrfti þó að endurmeta forsend- ur fyrir peningamála-, hagstjórnar- og reglugerðarumhverfi okkar í ljósi reynslunnar. Kaupmáttaraukning minnki Gunnar Haraldsson steig síðastur í ræðustól og sagði tvo skelli hafa komið á sama tíma. Fyrirséðan sam- drátt í efnahagslífinu, sem væri þó minni en ráðgert var, samhliða fjár- málakreppu af erlendum uppruna. Innlendir þættir, sérstaklega gjald- miðillinn, ykju þó á vandann. Gunnar rakti í ræðu sinni hagsögu síðustu ára, einkavæðingu ríkisfyr- irtækja og bankanna, grundvallar- breytingar á fyrirkomulagi húsnæð- ismála og stóriðjuframkvæmdir, með tilheyrandi innflutningi fjár- magns og vinnuafls. Hagkerfið hefði hreinlega stækkað. Þannig hefði hagvöxtur síðasta árs verið 3,8% en á hvern einstakling væri hann um 1,5%. Gunnar sagði kaupmátt hafa aukist um 71% á árunum 1994 til 2006, um það bil 4,6% á ári. „Slík kaupmáttaraukning helst ekki til langframa nema til komi sams konar aukning í framleiðni vinnuafls.“ Gunnar sagði erlendar fjárfest- ingar hafa vaxið úr nánast engu. Þær hefðu verið 625 dalir á mann ár- ið 1995 en voru 31.563 dalir árið 2005. Með opnun hagkerfisins hefði ásókn í erlenda markaði aukist enda lítið rúm fyrir vöxt á heimamarkaði. Bjartara til lengri tíma litið „Grunnstoðir hagkerfisins eru traustar,“ sagði Gunnar. Uppgangur síðustu ára væri ekki byggður á engu og útlitið væri því bjartara til lengri tíma litið. Nefndi hann góðar horfur í álútflutningi og byltingu í menntun landsmanna. Sjávarútveg- urinn hefði sýnt mikla aðlögunar- hæfni, og sagðist Gunnar enn telja tækifæri til sameininga í sjávarút- vegi. Á móti væru sveiflur í gengi krónunnar mikil byrði, breytt fyrir- komulag gæti aukið traust á hag- kerfinu. Því mætti ekki fresta um- ræðu um gjaldeyrinn og fyrirkomulag peningastefnunnar. „Það er varasamt að horfa of skammt fram á veginn. Meðalævi- lengd fjármálakreppa hefur verið um tvö og hálft ár.“ Því mætti búast við að kreppti að með þyngri byrði lána á heimili og fyrirtæki, minni kaupmætti og hættu á þrengingum á vinnumarkaði. Hins vegar væru næg verkefni framundan í samgöngum, menntamálum og heilbrigðiskerfinu. Ísland keppir ekki á smá- þjóðaleikum í viðskiptum Morgunblaðið/Golli Efnahagslífið Sigurjón Árnason sagði áhyggjuefni að sumir væru raunverulega á móti því að nýta auðlindir. Í HNOTSKURN »Þekking og áhugi erlendrafjárfesta á Íslandi er yf- irleitt í hlutfalli við stærð, eða smæð, landsins. Hið óþekkta fælir á erfiðum tímum. »Að öllum líkindum kreppirnú að í efnahagslífinu til skemmri tíma, enda streymir fjármagn úr landinu, en útlitið er bjartara til lengri tíma. »Endurmeta þarf hagstjórn-arumhverfið, íslenska mynt- svæðið er sennilega of lítið. ÚTLITIÐ er bjart í orkumálum, að sögn Stef- áns Péturssonar, forstjóra HydroKraft Invest. Stefán sagði eftirspurn erlendra aðila eftir hreinni íslenskri orku vera mikla þrátt fyrir efnahagsástand á alþjóðavísu. Í raun væri hún meiri en orkulindirnar gætu annað til skemmri tíma og verðið færi hækkandi. Sem dæmi nefndi hann byggingu nýrra álvera, netþjóna- bú, hreinkísil til að nýta í sólarrafhlöður og ál- þynnuframleiðslu. „Það getur verið erfitt að fá banka til að taka þátt í fjárfestingum ef þeir hafa sjálfir ekki að- gang að lánsfé,“ sagði Stefán. Vandinn á mörk- uðum snerist einkum um traust. Flestar fjár- málastofnanir og fjárfestar væru með fullar hendur fjár sem þeir þyrðu ekki að lána. Að- gangur orkufyrirtækja að lánsfé hefði minnk- að, útrásin væri að hefjast á erfiðum tíma. unnar hefði komið illa niður á landvinnslunni. Aukin samþjöppun væri í raun óumflýjanleg til að auka hagkvæmni og efla markaðsstyrk. „Viðskiptavinir okkar eru stór fyrirtæki sem krefjast þess að vöruframboð sé stöðugt,“ sagði Eggert. Hann minnti á mikilvægi rannsókna, að nýta þekkingu sjómanna og nýja tækni til leitar, ekki síst við loðnuveiðar. Fiskur er gjarnan ríkur að prótínum, hollum fitusýrum og vítamínum og kemur því sterkur inn þegar spurn eftir hollum mat er mikil. Kröfur um sjálfbærar veiðar færu sívaxandi. MSC væri þekkt slík vottun. Íslendingar hefðu kosið að taka ekki þátt í því samstarfi, heldur búa til eigið merki sem væri í farveginum. Eggert sagði óskarekstrarumhverfi sjáv- arútvegsins vera stöðugt gengi, lága vexti og litla verðbólgu, þveröfugt við það sem nú er. Stefán sagði að hér væri efnahagslegt pláss fyrir nýjar orkuframkvæmdir. Ábyrg fyrirtæki í orkufrekum iðnaði reyndu að vaxa án þess að auka útblástur í sama mæli, þar kæmi Ísland sterkt inn. Undir þetta tók Pétur Blöndal, þing- maður Sjálfstæðisflokks, í umræðum á eftir. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, varaði þó við að virkja auðlindirnar til að „losna við timburmenn eftir neyslufylliríið“. Samþjöppun í sjávarútvegi óumflýjanleg Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda, sagði sjávarútvegsfyrirtæki vera smá í sniðum, stærsta félagið hefði minna en 12% heildarkvóta, sem væri hámark samkvæmt lög- um. Flestir fiskistofnar færu nú minnkandi eða væru í mesta lagi stöðugir. Þá hefði fram- leiðslukostnaður hækkað og hátt gengi krón- Fjármögnun helsti vandi orkugeirans

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.