Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 11 FRÉTTIR LYFJAVERÐ er langoftast hæst á Íslandi samanborið við lyfjaverð á hinum Norðurlöndunum. Lyfjagreiðslunefnd gerði í líðandi mánuði verðsamanburð á 33 veltu- hæstu pakkningunum sem Trygg- ingastofnun niðurgreiddi fyrir landsmenn árið 2006. Samanburð- arlöndin eru Danmörk, Noregur og Svíþjóð og er samanburðartalan meðaltal verðs í þessum löndum. Verð í Svíþjóð eru uppreiknuð með 24,5% virðisaukaskatti til að auð- velda samanburð á milli landa, þar sem virðisaukaskattur á lyfseð- ilsskyld lyf í Svíþjóð er 0%. Allt að 120% munur Í 26 tilvikum er verðið hæst á Ís- landi en aðeins sjö sinnum er það hærra á Norðurlöndum. Þar af eru þrjár mismunandi stærðir af Zara- tor töflum. Mesti verðmunurinn er á Sivacor töflum, en þær eru 120% dýrari á Ís- landi en á Norðurlöndunum.  !   "  ) *                       ! "    #$ % "   & &'  (  ( ' ( ' (* ( !  , - ) !+ - ) !+ . . )   /0 1 2 3++ )24 )  )  )  5+  +  6   !   !  7 7 ' ' +  8' 4 8 9  8' 4 8 9 : ; ; ; ; +)                      9   9   9        # 9    92   92   92   92   9   #  <    <                     <    <     +          9<    = > ?=0 @A ?> AB"= B"> /= ?=0 B"= /0 C00 D+  =00 B0 B0 E0 E0 @= C00 D @00 'D  ==0 'D  B= ?00 B0 E0 ?> 'D9  ?AE"= 'D  ?AE"= 'D  =0 'D  B0 E0 ?0 ?0 ?00  C>  @0  @0  @0  C>  ?00  C>  C>  ?00  ?B  ?"= ?00  ?00  ?00  ?00  B>  ?B  ?"0> A0  A0  ?00  ?00  C>  C>  @0 9  @A0  ?B0  B"= ?00  ?00  ?00  =A  + '+( % + + '+ + ( ,( ' %% * (% '+ +, * , ' **% ' +,% +% , + '% (,+ '' (* '* ,% '( (  *, ' (*' + ( , ( %*( %+( +%+ '% '% + *, ( ', ( , *' *( '*%  ' '+ * , '% %  ' +,(  *%* *  %  * %% % % ( * , *(( ' ' ' * *+   +, %,* '* '* +,  ' ,*,  , '* + + '( %*' + , % '* ' + ', ( *% *%* % %% '( , * ' * %,'  ,*+ *' (, % % * ( '( ,* ', % ' ' ( ' *% F     $G +    4,    #  B00A Lyfjaverð oftast hæst á Íslandi MARGRÉT María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, sagði í samtali við Morgunblaðið að niðurstaða hér- aðsdóms í máli stúlku sem slasaði kennara í Mýrarhúsaskóla hefði komið á óvart en það færi eftir fram- haldi málsins hvort umboðsmaður skoðaði það sérstaklega. Eins og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu var móðir stúlkunn- ar dæmd til að greiða kennaranum tíu milljónir í bætur auk málskostn- aðar. Stúlkan, sem er með Asperger- heilkenni, keyrði hurð í höfuð kenn- aranum svo hann hlaut 25% örorku. Segir Margrét ástæðu til að ætla að skyldur og ábyrgð sveitarfélags séu rík í málum sem þessum og mik- ilvægt væri að fá niðurstöðu Hæsta- réttar í málinu. Í samtali við blaðamann sagði Guðmundur Pétursson, lögmaður móðurinnar, að ákvörðun um fram- hald málsins yrði tekin eftir páska. Umboðsmaður fylgist með málinu NOKKRIR nemendur í rekstr- arfræðiáfanga í Verkmenntaskólan- um á Akureyri fengu MS þar í bæ til liðs við sig í því skyni að framleiða mjólk með bragðefnum. Fólki gefst kostur á að smakka í Smáralind um aðra helgi, en þar kynna nemendur úr framhaldsskólum landsins ýmsar vörur sem orðið hafa til í rekstrar- fræðinámi í skólunum í vetur. Það eru átta nemendur VMA sem standa að verkefninu. Hugmyndina fékk Silfá Huld Bjarmadóttir. Silfá og félagar hennar gerðu könnun meðal fjölda grunnskólabarna í bæn- um og krakkarnir voru mjög spennt- ir; sögðust örugglega drekka meira af þess háttar mjólk en þeirri venju- legu. Því ákváðu þau að slá til og höfðu samband við MS. „Þar voru menn ótrúlega jákvæðir og hjálpleg- ir,“ segir Þorsteinn Þór Tryggvason, einn þeirra sem standa að verkefn- inu. Þau Þorsteinn stofnuðu „fyrir- tækið“ Meiri mjólk og ef sýnishornin fá góðar undirtektir vonast þau til þess að MS hefji framleiðslu vörunn- ar. Til þessa hafa nemendur og kennarar VMA fengið að bragða á þessari nýju tegund léttmjólkur og viðtökurnar verið aldeilis frábærar, að sögn Þorsteins og Silfár. Mjólkin verður gerð með tveimur bragðtegundum; jarðarberjabragð hlaut yfirburðakosningu í könnun- inni í VMA en hitt verður annað hvort karamellu- eða bananabragð. MS útvegaði VMA-ingunum bragðefni frá útlöndum og þeir próf- uðu sig svo áfram í eldhúsi matvæla- brautarinnar í VMA. Í léttmjólk er blandað bragðefni og örlitlum ávaxtasykri. Kennari krakkanna er Hilmar Friðjónsson. Framleiða mjólk með bragðefnum til prufu Varan hugsanlega á markað ef við- tökur verða góðar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Meiri mjólk Þorsteinn Þór Tryggvason, Silfá Huld Bjarmadóttir, sem átti hugmyndina, og Oddgeir Sigurjónsson, framleiðslustjóri MS á Akureyri. Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Sími 533 4800 203,6 fm glæsileg neðri sérhæð og kjallari, auk 42 fm bílskúrs, alls 245,6 fm. Húsið sem er endahús er nýlega steinað að utan og allt hið glæsilegasta. Hið innra hefur eignin öll verið endurnýjuð á virkilega vandaðan hátt. Lóð öll endurnýjuð. Eignin er skráð sem tvær eignir og veitir það aukna lánamöguleika. Magnús (865-2310) sýnir í dag milli kl. 17.30 og 18.30 Guðrúnargata 9 – Opið hús – Ö r u g g f a s t e i g n a v i ð s k i p t i ! – Útskálakirkja í Garði opnuð eftir lagfæringar Í vetur hafa miklar lagfæringar farið fram á Útskálakirkju í Garði. Helgidómurinn var reistur árið 1861 fyrir tilstuðlan þáverandi sóknarprests sr. Sigurðar Sívertsen. Á skírdag, fimmtudaginn 20. mars verður kirkjan opnuð á ný og af því tilefni verður efnt til hátíðarmessu kl. 14. Þá mun biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörnsson prédika og Björn Sveinn Björnsson sóknarprestur þjóna fyrir altari. Kirkjukórar Útskála- og Hvalsneskirkna syngja undir stjórn Steinars Guðmundssonar organista. Að lokinni messu býður sóknarnefnd Útskálakirkju til kaffisamsætis á veitinga- húsinu Flösinni í Garði. Það er von okkar að sem flestir sjái sér fært um að samfagna okkur á þessum tímamótum. F.h. sóknarnefndar Útskálasóknar Jón Hjálmarsson formaður HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær Tomas Arlauskas, sem áður bar nafnið Tomas Malakauskas, í 16 mánaða fangelsi fyrir að koma aftur til Íslands í trássi við 10 ára end- urkomubann. Tomas var árið 2005 dæmdur í 2½ árs fangelsi fyrir þátt sinn í líkfund- armálinu svonefnda. Honum var veitt reynslulausn í september 2006 og átti hann þá eftir að afplána 419 daga af refsingunni. Með ákvörðun Útlendingastofu var honum jafn- framt vísað af landi brott og var sú ákvörðun birt honum á Litla-Hrauni. Þessa ákvörðun kærði hann til dóms- málaráðuneytisins og naut við það aðstoðar verjanda síns. Rúmlega ári eftir ferðina út, í nóv- ember 2007, handtók lögreglan hann aftur hér á landi en við förina hingað hafði hann notað annað eftirnafn, Arlauskas í stað Malakauskas. Við leit á honum fundust rúmlega 25 grömm af amfetamíni. Fram kom að Tomas kom til landsins í september en hafði áður dvalið hér frá janúar 2007 og fram í ágúst. Tomas játaði fíkniefnabrotið en við þingfestingu málsins fyrir dómi sagði hann að honum hefði ekki verið birt ákvörðun Útlendingastofu um að hann mætti ekki snúa aftur til landsins. Hann dró síðar í land og viðurkenndi að hann hefði gert sér grein fyrir því að verið væri að vísa honum úr landi en hann hefði ekki gert sér grein fyrir því að hann mætti ekki koma til baka. Dómstól- arnir féllust ekki á þessar varnir og dæmdu hann fyrir rof á skilorði reynslulausnar. Í fangelsi fyrir að koma aftur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.