Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 17 MENNING SVO til uppselt var á Tíbrár- tónleikum Salarins s.l. týsdag, án þess að neinar sérstakar auglýsing- arbumbur hafi mér vitandi verið knúðar fyrir fram. En sjálfsagt spillti ekki fyrir nýleg upplifun margra á Tómasi Tómassyni í La traviata eftir a.m.k. tólf ára fjarvist söngvarans frá okkar fjörum, þó undirritaður hafi að vísu misst af þeirri uppsetningu. Þá ætti fram- koma eiginkonu Tómasar einnig að hafa kveikt nokkra forvitni, enda eftir öllu að dæma sú fyrsta hér á landi. Viðfangsefni fyrri hlutans voru rússnesk, seinni ítölsk. Sex fyrstu rússnesku lögin voru eftir Sergei Rakhmaninoff, og söng Tómas fyrstu þrjú en Lúbov hin. Þar eð hér fór langsamlega minnst kunni part- ur dagskrár hefði vel mátt nefna uppruna og umgjörð laganna í tón- leikaskrá, enda varla alltaf ljóst hvað teldist t.d. til kirkjuverka meist- arans og hvað ekki. Á móti virtist hverfandi gagn að sérbirtingu söng- texta á kýríllískt letraðri rússnesku við hlið ágætra íslenzkuþýðinga Reynis Axelssonar. Spurði maður því óneitanlega sjálfan sig (og ekki í fyrsta sinn á Salartónleikum) hverju uppátækið gegndi, umfram hina í mesta lagi 2–3% nærstöddu rúss- neskulæsu áheyrendur. Fyrri hluta lauk með þrem núm- erum eftir Tsjækovskíj, María, María! úr kósakkaóperunni „Ma- zeppa“ (Tómas), aríu Jóhönnu af Örk úr „Mærin frá Orléans“ (Lúbov) og lokaatriði Tatjönu og Onegins úr „Eugen Onegin“ með víxlsöng beggja. Eftir hlé tóku ítalskar óp- eruaríur við og sungu Lúbov og Tómas tvær hvort eftir Tosti úr ótil- greindum óperum. Loks fluttu Lú- bov og Tómas hvort sína aríu úr Grímudansleik Verdis um síðasta konungsmorðið á Norðurlöndum, en komu að endingu saman fram í Ud- iste’ úr „Il trovatore“, sömuleiðis eftir Verdi. Klykkt var út með tveim aukanúmerum þar sem Lúbov söng hina kunnu ástararíu Cho–Cho san [3/4: do– ladola | tí tí–] en Tómas með öllu herskárra Draumaland Sig- fúsar Einarssonar við óhætt að kalla dynjandi undirtektir. Satt bezt að segja komu þessar eldheitu viðtökur mér í það opna skjöldu að fyrstu viðbrögðin voru ósjálfrátt að hugleiða hvort ég væri allt í einu hrokkinn úr eðlilegu jarð- sambandi. Eða þá hvort públík kvöldsins væri verulega frábrugðin þeirri sem almennt gerist. Alltjent get ég ekki fullyrt af sannfæringu að hafa verið jafnhrifinn yfirgnæfandi lýðræðislegum meirihluta áheyr- enda. Þó að rússneska söngkonan hafi smám saman sótt í sig aukna breidd (og maður um leið vanizt bet- ur heldur fábreyttri og lausfókus- aðri holhljóma raddbeitingunni, er að vísu tjaldaði eftirtektarverðri inn- takstúlkun áður en lauk), þá hlaut einhliða fítonsmeðferð Tómasar, er afar sjaldan hvarf niður fyrir forte, snemma að verka þreytandi. Virða bar þó kannski til vorkunn- ar að söngvarinn stendur um þessar mundir í miðri uppþjálfun úr fyrra bassahlutverki í hetjubarýton, eins og stundum mátti heyra á þónokkr- um klemmdum hátónum er voru miður þægilegir áheyrnar. Almennt séð olli einhliða stentorsnálgun hans mér þó mestum vonbrigðum, eink- um hjá sýnu þjálli túlkun fyrri ára. En vonandi stendur það til bóta. Þaulfylginn píanóleikur Kopeckys var hins vegar óaðfinnanlegur í hví- vetna og hefði vel þolað alopið flyg- illok. Hetjubarýton á útopnu TÓNLIST Salurinn Sönglög og óperuaríur eftir Rakh- maninoff, Tsjækovskíj, Tosti og Verdi. Lú- bov Stústjevskaja sópran, Tómas Tóm- asson barýton og Kurt Kopecky píanó. Þriðjudaginn 11. marz kl. 20. Einsöngstónleikarbbmnn Morgunblðaðið/Einar Falur Tríóið „Þaulfylginn píanóleikur Kopeckys var hins vegar óaðfinnanlegur í hvívetna og hefði vel þolað alopið flygillok,“ segir m.a. í dómi. Ríkarður Ö. Pálsson KLING og Bang er komið aftur í nýrri mynd, á Hverfisgötu 42. Hús- næðið er bæði gott og vont, það er lágt til lofts en vítt til veggja, býður upp á ýmsa möguleika en er tak- markað um leið. Nú getur salur eins og Kling og Bang sem ekki hefur úr miklu að spila auðvitað ekki valið úr glæstum salarkynnum og má því í sjálfu sér vel við una. Það er líka í anda dagsins að leitast ekki við að sýna myndlist í full- komnu rými heldur líta á sýning- arsal sem samkomustað lifandi menningar, og má þá lofthæðin lík- lega einu gilda. Það er Kristján Björn Þórðarson sem tekur salinn yfir á þessari fyrstu sýningu á nýja staðnum. Kristján er útskrifaður frá MHÍ ’95 og hefur bætt við menntun sína í Vín á síðustu árum. Hann hefur smíðað frumstætt líkan af skemmti- garði inn í salinn með tjörn, kamri, bekk, pylsubar, póstkortasölu o.s.frv. og yfir tjörninni svífur skúlptúr í formi fjalls. Innsetning Kristjáns minnir að nokkru á raunveruleikainnsetningar Belgans Guillaume Bijl sem í verk- um sínum lék sér að mörkum listar og raunveruleika, sýndi t.d. eitt sinn hjólhýsi á gervigrasi undir nafninu Caravan Show. Hérlendis hefur Þorvaldur Þorsteinsson skap- að innsetningar sem líkja eftir raunveruleikanum á ekki óáþekkan máta, þó með nokkuð skáldlegra ívafi. Titill Kristjáns, Spegillinn, hefur ekkert ímyndunarafl, minnir á hug- myndir um að listin geti verið speg- ill samfélagsins og þá væntanlega með þeim formerkjum að slíkt sé tæpast áhugavert, speglar sýni að- eins það sem fyrir er og ekkert annað. Markmið listamannsins er að fá áhorfandann til að hugsa. Innsetn- ingin sýnir m.a. hvernig maðurinn hefur manngert náttúruna, hamið hið villta landslag miðalda og gert það að útsýni, neysluvöru sem við innbyrðum mótþróalaust á skilyrtan hátt og má kannski yfirfæra slíkar hugmyndir yfir á viðburðavædda skemmtigarða samtímans; listasöfn- in. Innsetningin líður svolítið fyrir kunnuglegan hugmyndaheim og orðræðu um raunveruleika og eft- irmynd sem var mjög ríkjandi í list- heiminum um tíma, og birtist m.a. í verkum fyrrnefndra listamanna. Áhugaverðasti þáttur hennar er án efa hið dularfulla svífandi fjall sem fær hugann til að reika og skemmti- leg er alger yfirtaka og umbreyting listamannsins á rýminu. Morgunblaðið/Ómar Kling og Bang Kristján Björn leikur sér á mörkum listar og raunveruleika. Frá náttúru til útsýnis MYNDLIST Kling og Bang, Hverfisgötu 42 Til 5. apríl. Opið fim. til sun. frá kl. 14– 18. Spegillinn hefur ekkert ímyndunarafl, Kristján Björn Þórðarson bbnnn Ragna Sigurðardóttir HILDUR Margrétardóttir er eins og kamelljón í listinni; hún bregður sér í ýmis gervi og er lítt upptekin af hug- myndum um samfelldan stíl eða við- fangsefni. Að þessu leyti tengjast verk hennar umræðu undanfarinna ára um arfleifð þýska listamannsins Martins Kippenbergers í samtíma- myndlist. Hvað sem því líður má vissulega segja að Hildur komi á óvart – hún hefur m.a. áður sýnt raunsæismálverk af íslenskum hús- dýrum, síðar afstraktmálverk, selt „listrænar“ afurðir í lofttæmdum um- búðum og nú sýnir hún á lofti lista- mannahússins Start Art á Laugavegi blekteikningar sem eru eins konar eftirmyndir blaðsíðna í erlendum slúðurtímaritum á borð við Hello. Teikningarnar eru límdar beint á vegginn með svörtu límbandi. Þær þekja nánast veggina og má því lesa þær eins og nokkurs konar mynda- sögu. Við sjáum t.d. myndir af „fína kryddinu“ Viktoríu Beckham og söngkonunni Amy Winehouse, en sökum villts lífernis veldur hún öllum sem lesa slúðurdálkana talsverðum áhyggjum. Á teikningum Margrétar sjást einnig textar í æsifréttastíl, teknir upp úr tímaritunum. Teikning- arnar eru vísvitað fremur kauðalegar og bjagaðar, og talsvert er um staf- setningarvillur í textanum, eins og til að undirstrika fáránleika og hlægi- leika þess veruleika sem settur er fram í slúðurblöðunum. Verkin grafa þannig undan þeim „fullkomleika“ sem yfirskriftin gefur til kynna og skírskotar til lífs stjarnanna. Hinn mikli fjöldi teikninga og kæruleys- islegt upphengið speglar yf- irgengilegt framboð – og áhrif – slíks efnis í daglegu lífi. Hildur nýtir sér myndmál dæg- urmenningarinnar, tekur það traustataki og endurnýtir í gagn- rýnum tilgangi. Verkin eru vitaskuld til sölu – en eiga þannig jafnframt á hættu að falla sem hvert annað létt- meti ofan í markaðsvæddan ímynda- strauminn, án þess að viðhalda gagn- rýnum áhrifum. Eða býr hér undir ádeila á listheiminn? Er hann kannski stundum álíka yfirborðslegur og slúð- urblöðin? Ímyndasúpa MYNDLIST Start Art Til 2. apríl 2008. Opið þri.–lau. kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Aðgangur ókeyp- is. Hildur Margrétardóttir – Fullkomleiki Morgunblaðið/Valdís Thor Kamelljón Hildur nýtir sér myndmál dægurmenningarinnar, tekur það traustataki og endurnýtir í gagnrýnum tilgangi. Anna Jóa ÉG HEF áður lýst því yfir að Ari Bragi, trompet- og flygilhorn- blásari, væri efnileg- asti djassleikari lands- ins. Hann sannaði það fullkomlega á DOMO þar sem hann lék verk Coltranes – fyrst og fremst hina trúarlegu svítu hans „A Love Supreme“ með helstu þungavigtarmönnum í íslenskum djassi – Sig- urður Flosason á altó- saxófón, Eyþór Gunn- arsson á píanó, Þórður Högnason á bassa og Einar Scheving á trommur. Þessi svíta hefur verið flutt í tvígang hér áður og hafa Sigurður og Þórður þá verið í för. Ari Bragi blés í flygilhorn í innganginum að „A Love Supreme“ en brátt tók Þórður yfir með stefið margfræga. Sólóar voru hver öðrum betri. Sig- urður með óvæntan Coltrane í far- angrinum og svo magnaður bassa- leikur Þórðar, með Mingus-tilfinninguna á fullu. Það er ótrúlegt að þessi frábæri tón- listarmaður, sem hefur orðið að halda sér til hlés vegna erfiðs gigtarsjúkdóms, skuli geta birst á sviðinu leikandi sem aldrei fyrr – þótt plástrar þurfi oft að koma í siggs stað. Eyþór Gunnarsson lék hvern sólóinn öðrum betri, laus við McCoy Tyner, og Einar Schev- ing hafði sinn háttinn á í trommuleiknum – óháður Elvin Jones. Ari Bragi hefur yfir þeirri tækni og tilfinn- ingu að búa sem hver 19 ára unglingur er full- sæmdur af. Hann er af þeim skóla trompetleik- ara sem sækja í smiðju Marshalis til Hardgrove án þess að vita að Red Allen er uppsprettan – eða Roy Eldridge. Það skiptir svo sem engu máli því aðalatriðið er að skapa sinn eigin stíl byggðan á áhrifum alls staðar frá – og það held ég að Ari Bragi eigi eftir að gera. Coltrane kveikir í Íslandsdjassinum TÓNLIST DOMO Múlinn, Ari Bragi Kárason, trompet og flygilhorn, Sigurður Flosason, altósaxó- fónn, Eyþór Gunnarsson, píanó, Þórður Högnason, bassi, og Einar Scheving, trommur. Tónleikarnir voru 13. mars. Kvintett Ara Braga Kárasonar bbbbm Vernharður Linnet Ari Bragi Kárason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.