Morgunblaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
JIMMY Page,
gítarleikari
hljómsveit-
arinnar Led Zep-
pelin, hefur falið
Sotheby’s upp-
boðshúsinu að
selja fyrir sig
rúmlega sjö
metra langan
veggrefil í anda
Pre-Rafaelít-
anna, sem var hannaður af Burne-
Jones, einum kunnasta listamanni
hreyfingarinnar, og ofinn á verk-
stæði William Morris. Áætlað er að
refillinn, sem hefur reyndar verið í
geymslu í nokkur ár, mun seljast
fyrir allt að einni milljón punda, um
155 milljónir króna.
Myndefni refilsins er sótt í goð-
s-ögnina um gralið helga, og er þetta
einn sex refla í seríu. Samkvæmt
The Guardian mun Morris hafa lýst
þeim sem „stærsta og mikilvægasta“
verkinu sem unnið var á hans fræga
verkstæði. Það tók þrjá vefara tvö ár
að vefa þá.
Refillinn var síðast sýndur al-
menningi í yfirlitssýningu Victoria &
Alberts-safnsins á verkum William
Morris, þegar Page var á milli heim-
ila. Hann hafði selt herragarðinn,
þar sem refillinn hafði hangið í
knattborðsstofunni, síðan keypti
hann það hús aftur og hefur nú selt
það að nýju. Hann hefur eignast nýj-
an herragarð í Thames-dalnum, sem
teiknaður var af hinum kunna arki-
tekt Edwin Luytens. Þar munu vera
viðarklæddir veggir, sem ekki er
hægt að hengja refilinn á.
Page hefur um áratuga skeið safn-
að gæðagripum frá tímabili Pre-
Rafaelítanna. Á sama uppboði selur
hann steinda glugga, einnig eftir
Burne-Jones, og tröllvaxið hring-
borð í anda Athúrs konungs.
Page sel-
ur refil
Gítarleikari safnar
list Pre-Rafaelítanna
Page safnar list-
munum frá 19. öld.
MARGIR lista-
menn eru kunnir
fyrir gjafmildi
sína. Damien
Hirst er einn
kunnasti lista-
maður samtím-
ans. Sundursag-
aðar skepnur,
fljótandi í for-
maldehýði, hafa á
síðustu árum
selst fyrir milljónir og nýverið seld-
ist demantshauskúpa hans á 50
milljónir punda. Hann brást á sínum
tíma vel við ósk ungs manns sem
þekkti bróður hans, og gaf honum
fisk fljótandi í formaldehýði.
Þetta var fyrir fjórtán árum. Í
nokkur ár hékk fiskurinn í búri sínu
á vegg skyndibitastaðar í Leeds.
Kúnnar grínuðust með það að þetta
minnti á verk eftir Damien Hirst og
Darren Walker og faðir hans, sem
áttu staðinn, voru ekkert að segja að
þetta væri í raun verk eftir hann –
þeir höfðu ekki efni á að tryggja það.
Bróðir Hirst vann um tíma á veit-
ingastaðnum og eftir að hafa séð
ljósmynd af verki með mörgum fisk-
um bað Walker bróðurinn að útvega
einn fisk upp á vegg. Hann barst
tveimur vikum síðar.
„Ég hugsaði að þetta hlyti að vera
5.000 punda virði,“ segir Walker.
Fyrir átta árum lokuðu feðgarnir
veitingastaðnum og síðan hefur fisk-
ur Hirst hangið á vegg á heimili
Walkers. Nýverið viðurkenndi hann
að það væri ekki vit að eiga listaverk
sem kostaði á við ágætis hús. Verkið
verður því selt á uppboði og er búist
við að allt að 150.000 pund fáist fyrir
það, yfir 23 milljónir króna.
Dýrmæt
gjöf Hirst
Fiskar eftir Hirst
í formaldehýði.
A.S.A. TRÍÓIÐ kemur fram á
tónleikum Jassklúbbsins Múl-
ans í kvöld, 19. mars, á DOMO
í Þinholtsstræti.
Tríóið skipa þeir Andrés Þór
Gunnlaugsson sem leikur á gít-
ar, Scott McLemore á tromm-
ur og Agnar Már Magnússon
sem leikur á B3 Hammond
orgel.
Efnisskrá tónleikanna er
fjölbreytileg, meðal annars
verk úr smiðju John Coltrane, Jimi Hendrix, Red
Hot Chili Peppers og Fionu Apple.
Jassklúbburinn Múlinn er samstarfsverkefni
FÍH og Jassvakningar. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21.
Djass
A.S.A. tríóið í
Múlanum í kvöld
Andrés Þór
Gunnlaugsson
MOSI er viðfangsefni sýning-
arinnar sem þær Guðrún
Gunnarsdóttir, myndlist-
armaður og textílhönnuður, og
Sigrún Eldjárn, myndlist-
armaður og rithöfundur, opna í
Fjöruhúsinu á Hellnum á Snæ-
fellsnesi á föstudaginn langa
klukkan 16.
Verk Guðrúnar eru gerð úr
mosa, sem er algengur á Snæ-
fellsnesi eins og víðar, en Sig-
rún sýnir olíumálverk. Sýningin mun standa fram
eftir vori. Gurún og Sigrún hafa haldið fjölda
einkasýninga og tekið þátt í ótal samsýningum,
hér heima og erlendis. Fjöruhúsið er lítið kaffihús
sem stendur niðri við sjó á Hellnum.
Myndlist
Guðrún og Sigrún
sýna á Hellnum
Sigrún Eldjárn
myndlistarmaður
SÝNINGAR á Mr. Skalla-
grímsson eftir Benedikt Erl-
ingsson hefjast að nýju á laug-
ardaginn á Sögulofti
Landnámsseturs. Sýningin á
laugardaginn er sú 150. í röð-
inni, en hún hefur verið leikin
með hléum frá opnunardegi
Landnámsseturs í maí 2006. 12
sýningar eru á sýning-
arskránni í vor og er nánast
uppselt á þær allar. Hugs-
anlega verður aukasýningum bætt við í maí og
verður það þá auglýst síðar. Önnur sýning ekki
alls óskyld, Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur,
er líka á fjölum Söguloftsins í Landnámssetri.
Nánari upplýsingar eru á www.landnamssetur.is.
Leiklist
150 sinnum herra
Skallagrímsson
Benedikt
Erlingsson
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
LISTAHÁSKÓLI Íslands heldur
áfram að fjölga námsbrautunum
sem nemendum standa til boða. Til-
kynnt hefur verið að á næsta skóla-
ári taki til starfa ný námsbraut í
kirkjutónlist við tónlistardeild skól-
ans í samstarfi við Tónskóla þjóð-
kirkjunnar. Undirrituðu Hjálmar H.
Ragnarsson, rektor Listaháskóla Ís-
lands, og Björn Steinar Sólbergsson,
skólastjóri Tónskólans, samning þar
að lútandi. Um er að ræða BA-nám
til 90 eininga með það að markmiði
að undirbúa nemendur fyrir störf í
kirkjum landsins. Í náminu felst
meðal annars orgelleikur, kórstjórn,
að leiða safnaðarsöng og skipulag í
tengslum við helgihald þjóðkirkj-
unnar. Ennfremur á að veita nem-
endum alhliða þjálfun sem leiðandi
tónlistarmenn í samfélaginu.
„Hugmyndin er að fólkið sem
kemur í þetta nám fái undirbúning
til að verða leiðandi í sínu samfélagi,
hvort sem það er á höfuðborg-
arsvæðinu eða úti á landi,“ segir
Hjálmar. „Innan safnaða kirknanna
fer fram leiðandi og mikilvægt tón-
listarstarf um allt land. Við teljum
að okkur beri skylda til að sinna því
og að fólk geti sótt í slíkt nám í há-
skólaumhverfi.“
Auka fjölbreytnina
Tæplega 80 nemendur eru í tón-
listardeild skólans í dag á þremur
brautum. Nýja brautin verður sú
fjórða en hinar eru hljóðfæraleikur/
söngur, tónsmíðar/nýmiðlar og tón-
listarkennsla en þar segir Hjálmar í
raun um undirbúningsnám að ræða
og verður aukin áhersla lögð á þá
braut á næstu árum. Þá er meist-
aranám í undirbúningi innan deild-
arinnar, væntanlega fyrst í tón-
smíðum.
„Það er verið að auka fjölbreytn-
ina í námi við skólann í samvinnu við
Tónskóla þjóðkirkjunnar, stofnun
sem hefur langa sögu og reynslu á
þessu sviði. Við viljum nýta okkur
það.
Allt að því þriðjungur námsins,
sem eru sérhæfðar einingar, eru
kenndar við Tónskólann en undir
okkar eftirliti. Öll námskeið utan
Listaháskólans eru háð sama eftirliti
og sama mati og önnur námskeið
innan skólaveggjanna.“
Hjálmar segir að ekki sé gert ráð
fyrir mörgum nemendum í kirkju-
tónlist til að byrja með.
„En sú staðreynd að þetta nám er
nú til í háskólaumhverfi gæti orðið
fólki hvatning til að fara út á þessa
braut. Þá leitar það sér að tilskildum
undirbúningi og stefnir síðan inn á
brautina. Ákveðinn grunn í orgelleik
og tónfræðigreinum þarf til. Við rek-
um þetta innan deildarinnar og njót-
um samleiðarinnar með öðrum
brautum.
Þetta er ákveðin tenging við at-
vinnuumhverfið. Innan kirkjunnar
er fjöldi starfa í tónlist. Fyrir utan
tónlistarskólana er þetta það at-
vinnuumhverfi sem er hvað blómleg-
ast meðal tónlistarfólks á landinu.“
Leiðandi í sínu samfélagi
Ný námsbraut í kirkjutónlist opnuð fyrir nemendur í Listaháskóla Íslands í
haust Innan kirkjunnar er fjöldi starfa í tónlist, segir Hjálmar H. Ragnarsson
Morgunblaðið/Ómar
Undirritun Björn Steinar Sólbergsson, skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar, undirritar samninginn. Hjálmar H.
Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, fylgist með. Nám í kirkjutónlist hefst næsta haust.
Í OKTÓBER næstkomandi verður
menningarhátíð helguð Ekvador í
Kópavogi. Að sögn Gunnars I. Birg-
issonar bæjarstjóra mun verða mikið
um dýrðir en hann sneri í gær heim
úr viku heimsókn til landsins. Þar
komu hann, Linda Udengård, deild-
arstjóri Menningardeildar Kópa-
vogsbæjar, og Ari Trausti Guð-
mundsson, jarðfræðingur og
sérfræðingur bæjarins í menningu
Ekvador, víða við og gengu frá samn-
ingum um hina ýmsu viðburði.
„Okkur var tekið með kostum og
kynjum,“ sagði Gunnar. Víða var
fundað og meðal annars með Lenín
Moreno, varaforseta landsins.
„Hann tók okkur afskaplega vel.
Hann hreifst af hugmyndinni og
möguleikunum sem felast í því að
kynnast Íslendingum. Hafði hann
áhuga á að ræða orkunýtingu, jarð-
skjálftavöktun, jarðhita, fiskvinnslu
og fleira.“
Gunnar sagði að rætt sé um að for-
seti Ekvador komi í opinbera heim-
sókn til Íslands í tilefni menning-
arhátíðarinnar. Myndi það verða í
fyrsta skipti sem forseti lands í Suð-
ur-Ameríku kæmi í opinbera heim-
sókn. Hefði hann rætt það við forseta
Íslands. Jafnframt hafa ráðherrar
ferða- og orkumála hug á að koma.
Meðal viðkomustaðanna nú var
víðfrægt forngripasafn kennt við
málarann Oswaldo Guasyasamin.
„Við fáum sýningu á gripum frá
þeim, þeir elstu eru frá því um 4000
fyrir Krist,“ sagði Gunnar. „Gripirnir
endurspegla menningu þjóðanna fyr-
ir Inkatímabilið, Inkanna sjálfra og
loks nýlendutímabilið.“
Íslendingarnir hittu málarann
César Piaguaje, sem býr í frumskóg-
inum, og mun koma á hátíðina, eins
og Jacchigua dansflokkurinn, sem er
kunnur víða um heim og kom meðal
annars fram á opnunarhátíð HM í
Þýskalandi í fyrra. Menningarhátíðin
hefst 4. október.
Ekvadorhátíð í
Kópavogi í haust
Í Ekvador Ari Trausti Guðmundsson, Linda Udengard, Gunnar I. Birgisson
og ræðismaður Íslands, Oswaldo Munoz, ásamt Lenín Moreno varaforseta.
♦♦♦