Morgunblaðið - 21.04.2008, Side 6
6 MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„FORVARNIR eru besta leiðin“ er
yfirskrift þriðju alþjóðlegu ráð-
stefnu um forvarnir við kynferð-
islegu ofbeldi gegn börnum sem
samtökin Blátt áfram standa fyrir á
jafnmörgum árum. Þetta árið verður
ráðstefnan haldin 15.-16. maí í Há-
skólanum í Reykjavík og fer hún
fram á ensku, en þegar er byrjað að
taka á móti skráningum á vefnum:
www.blattafram.is
„Við hvetjum alla til þess að afla
sér meiri upplýsinga um þennan
málaflokk,“ segir Sigríður Björns-
dóttir, framkvæmdastjóri og einn
stofnandi Blátt áfram, og tekur fram
að mikill fengur sé að því að fá er-
lenda sérfræðinga til landsins sem
rannsaki og fjalli um áhrif kynferð-
islegs ofbeldis. Aðspurð segir Sigríð-
ur ráðstefnuna nýtast breiðum hópi
fólks, bæði foreldrum og forráða-
mönnum, þeim sem sjálfir hafi orðið
fyrir kynferðislegu ofbeldi og fag-
fólki sem starfi með börnum og þol-
endum kynferðislegs ofbeldis. Segir
hún markmið ráðstefnunnar að
benda á leiðir til að fyrirbyggja kyn-
ferðisofbeldi gegn börnum, en því
miður séu fyrstu viðbrögð fólks við
kynferðislegu ofbeldi oft reiði, ótti
og afneitun sem gagnist þolendum
lítið.
Að mati Sigríðar hefur á sl. árum
orðið ákveðin vitundarvakning um
áhrif og alvarleika kynferðislegs of-
beldis. „Við finnum mun á afstöðu
milli ára og það er alveg ljóst að það
hefur orðið vakning hjá almenningi.
Ég myndi samt auðvitað vilja að
vakningin gengi hraðar fyrir sig, því
það er enn mikil vöntun á fræðslu og
upplýsingum fyrir almenning um
þessi mál. Við munum hins vegar
ótrauð halda áfram að setja þessi
mál á dagskrá.“
Samband ofbeldis og
heilsufars síðar á ævinni
Samkvæmt upplýsingum frá Sig-
ríði taka fjórir erlendir gestafyrir-
lesarar þátt í ráðstefnunni og þrír
innlendir. „Shirley Paceley, ráðgjafi,
rithöfundur, stofnandi og forstjóri
Blue Tower Training Center, mun
fjalla um kynferðisofbeldi gegn fötl-
uðum og greindarskertum börnum,
en erlendar rannsóknir sýna að
þessi börn eru í mun meiri hættu á
að verða þolendur ofbeldis. Paceley
tók einnig þátt í ráðstefnunni í fyrra
og vegna fjölda áskorana ætlar hún
að koma aftur í ár.
Vincent Felitti, læknir við for-
varnadeild Medicine Kaiser Perm-
anent Medical Care Program í Kali-
forníu, mun fjalla um stóra rannsókn
sem unnin er í samvinnu við Heil-
brigðisstofnun Bandaríkjanna þar
sem skoðað er sambandið milli mis-
munandi ofbeldis og vanrækslu í
æsku annars vegar og heilsu á síðari
árum hins vegar. Komið hefur í ljós
að fái þolendur ekki hjálp til að
vinna úr því áfalli að verða fyrir of-
beldi á yngri árum þá getur áfallið
brotist út í líkamlegum og andlegum
sjúkdómum á eldri árum,“ segir Sig-
ríður og tekur fram að miklu máli
skipti að þolendur fái hjálp sem fyrst
og þurfi ekki að bíða árum eða ára-
tugum saman eftir faglegri aðstoð.
„Af öðrum fyrirlesurum má nefna
að Justin Berry mun fjalla um
örugga netnotkun. Hann er ekki
nema 21 árs gamall, en lenti þegar
hann var aðeins 13 ára í vítahring
kynferðisofbeldismanna á Netinu
þegar hann var misnotaður fyrir
framan tölvumyndavél í heimahúsi.
Við vildum fá hann á ráðstefnuna til
þess að hvetja foreldra til að fræða
börnin sín um netnotkun og hætt-
urnar sem þar geta leynst.
Loks kemur Karen Anderson, yf-
irmaður og ráðgjafi hjá barnahúsi í
Kaliforníu. Hún ætlar að fjalla um
ásakanir um kynferðisofbeldi í for-
ræðismálum, en þar er oft mikið
vandamál að börnunum er ekki trú-
að af neinum nema mömmunni. Í
flestum þessara mála er því aldrei
kært, sem er mjög alvarlegt því þá
er í raun búið að senda þau skilaboð
til kynferðisbrotamanna að brot
gagnvart börnum yngri en 5 ára hafi
engar afleiðingar fyrir þá,“ segir
Sigríður.
Verndarar barna
Spurð um íslensku fyrirlesarana
segir Sigríður þá vera þrjá. „Sigrún
Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Hornbrekku í Ólafsfirði og meist-
aranemi í heilbrigðisvísindum við
Háskólann á Akureyri, mun kynna
rannsókn sem hún gerði til að kanna
heilsufar og líðan kvenna sem hafa
orðið fyrir sálrænum áföllum í æsku
af völdum kynferðislegrar misnotk-
unar. Hennar rannsókn kallast á við
rannsókn Vincents Felittis.
Svava Björnsdóttir, starfsmaður
og einn stofnandi Blátt áfram, verð-
ur með kynningu á forvarnaátaki
sem við erum að fara af stað með á
allra næstu vikum sem nefnist
Verndarar barna. Tilgangur átaks-
ins er að efla bæjar- og sveitarfélög í
markvissum forvörnum við kynferð-
islegu ofbeldi gegn börnum og þjálfa
5% af fullorðnum í hverju bæjar- og
sveitarfélagi til þess að fyrirbyggja,
greina og bregðast við kynferðislegu
ofbeldi. Loks mun Þorbjörg Sveins-
dóttir sálfræðingur fjalla um starf-
semi Barnahúss,“ segir Sigríður og
bendir á að öllum ráðstefnugestum
verði í lok dagskrár 15. maí boðið að
skoða Barnahús til þess að kynna
sér starfsemi þess og gera sér grein
fyrir mikilvægi þeirrar sérfræði-
þekkingar sem fyrir hendi sé hér-
lendis.
Samtökin Blátt áfram blása til 3. ráðstefnunnar um forvarnir við kynferðislegu ofbeldi gegn börnum
Ljósmynd/DiMaggio/Kalish/CORBIS
Sálarangist Bæði íslenskar og erlendar rannsóknir sýna fram á tengsl
milli sálrænna áfalla af völdum ofbeldis í æsku og heilsufarslegra kvilla
síðar á ævinni. Því þykir mikilvægt að vinna úr áföllunum sem fyrst.
Forvarnir eru
besta leiðin
Í HNOTSKURN
»Samtökin Blátt áfram vorustofnuð árið 2004 að frum-
kvæði systranna Sigríðar og
Svövu Björnsdætra.
»Blátt áfram eru sjálfstæð fé-lagasamtök og er tilgangur
þeirra að efla forvarnir við kyn-
ferðislegu ofbeldi gegn börnum
á Íslandi.
»Að mati samtakanna er mik-ilvægt að kenna börnum að
þau megi segja nei við hvern
þann sem reynir að snerta þau.
»Gott er einnig að hvetja börntil að þekkja og treysta eigin
innsæi.
ÞAÐ er nokkuð öruggt að vorið
er að koma í Siglufirði. Farfugl-
arnir hafa verið að koma í stríð-
um straumum og á laugardags-
morgun heyrðist í álftum.
Steingrímur Kristinsson er mikill
fuglaáhugamaður og hann smellti
myndum af álftapari í ástarleik.
Myndaseríuna, sem er að finna á
vefsíðunni sksiglo.is, kallar Stein-
grímur vorverk. Hann segir að
mikil læti hafi fylgt þessu;
vængjabusl og hljóðmyndanir á
hápuntinum í lokin, en leikurinn
tók um eina mínútu.
Um helgina sáust lóa og jaðraki
í Siglufirði þannig að ljóst má
vera að vorið er gengið í garð á
Norðurlandi.
Ljósmyndir/Steingrímur Kristinsson
Ástin grípur fuglana á vorin
DORRIT Mo-
ussaieff for-
setafrú situr í
dag og í gær ráð-
stefnu í Katar í
boði Sheikha Mo-
zah, eiginkonu
emírsins í land-
inu. Á ráðstefn-
unni er fjallað
um málefni
barna með sérþarfir og sérstök
áhersla lögð á samspil íþrótta og
getu. Með forsetafrúnni í för er
Anna Karólína Vilhjálmsdóttur
framkvæmdastjóri Special Olymp-
ics á Íslandi og framkvæmdastjóri
útbreiðslusviðs hjá Íþróttasam-
bandi fatlaðra.
Ráðstefnuna sækir áhrifafólk og
sérfræðingar víða að úr veröldinni,
forystumenn í íþróttamálum fatl-
aðra og samtaka sem sinna mál-
efnum barna með sérþarfir. Einnig
tekur þátt í ráðstefnunni íþróttafólk
sem skarað hefur fram úr á alþjóð-
legum mótum fatlaðra og þroska-
heftra, bæði Ólympíuleikum fatl-
aðra og Special Olympics.
Meðal efnisþátta á ráðstefnunni
er hvernig aukin íþróttaiðkun getur
eflt færni og aukið lífsgleði barna
og ungmenna og sérstök málstofa
er helguð einhverfu, en á næsta ári
verður efnt til alþjóðlegs átaks til
að auka skilning á henni.
Á ráðstefnunni verður lögð fram
greinargerð um starfsemi Íþrótta-
sambands fatlaðra á Íslandi og hinn
fjölþætta árangur sem náðst hefur
hérlendis með íþróttastarfi fatlaðra.
Það er Shafallah-miðstöðin í Kat-
ar sem annast skipulagningu ráð-
stefnunnar.
Dorrit
Moussaieff
í Katar
Sækir ráðstefnu um
börn með sérþarfir
Dorrit, Moussaieff
MEIRA en tveir þriðju hlutar þjóð-
arinnar vill að undirbúningur fyrir að-
ildarviðræður við Evrópusambandið
verði hafinn ef marka má nýja skoð-
anakönnun Fréttablaðsins. Í könnun-
inni, sem kynnt var í gær, sögðust
67,8% þeirra sem svöruðu vera hlynnt
slíkum undirbúningi en 32,2% voru
andvíg.
Samkvæmt frétt Fréttablaðsins er
enginn munur á afstöðu svarenda eftir
kyni og virðist búseta einnig lítil áhrif
hafa haft á afstöðu en afstöðumunur-
inn var þeim mun meiri þegar svar-
endur eru flokkaðir eftir því hvernig
þeir kusu í síðustu alþingiskosningum.
Þó vekur athygli að eingöngu meðal
kjósenda Frjálslynda flokksins er
meirihluti gegn undirbúningi undir
aðildarviðræður. Mestur er stuðning-
ur við þær meðal kjósenda Samfylk-
ingar, næstmestur meðal kjósenda
Framsóknarflokks, þá Sjálfstæðis-
flokks og síðan Vinstri grænna. Meðal
þeirra sem ekki gáfu upp hvernig þeir
kusu er mikill stuðningur.
Tæp 82% aðspurðra tóku afstöðu.
Meirihluti
hlynntur
ESB
Meira en 2⁄3 vilja
aðildarviðræður
SKÚLI Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri segir íslensk skattyfir-
völd enn í sambandi við sams konar
yfirvöld í Þýskalandi vegna lista sem
þau síðarnefndu keyptu um viðskipti
útlendinga við banka í Liechten-
stein. Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á hlaupársdag hefur ríkis-
skattstjóri óskað eftir upplýsingum
frá Þýskalandi um hvort einhverjir
Íslendingar séu á listanum.
Enn í sambandi
við Þjóðverja
♦♦♦