Morgunblaðið - 21.04.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
ÖFLUGUSTU
MÓTVÆGISAÐGERÐIRNAR
MEIRI VINNSLA = HÆRRA VERÐ
Optima
Á Sjávarútvegssýningunni í Brussel verðum við hjá , Hall 4, stand 5151
Þú finnur réttu
lausnina hjá okkur
www.pmt.is
Krókhálsi 1, 110 Reykjavík
Sími 567 8888, Fax 567 8889
NÝLEGA var haldinn fundur að
Laugalandi í Holtum um kynningu á
áhættumati vegna virkjana í neðri
hluta Þjórsár. Verkfræðingar frá
tveimur verkfræðistofum kynntu
drög að matinu sem verður fullunnið
og gefið út um miðjan maí. Dóra
Hjálmarsdóttir frá VST fór yfir
helstu forsendur fyrir matinu og
kynnti niðurstöðurnar. Fram kom
að helsta áhættan sem steðjar að
umhverfinu er svokallað rof í stíflum
eða stíflugörðum, sem getur orsak-
ast af hugsanlegum risajarðskjálft-
um eða öðrum hamförum náttúrunn-
ar, og að auki eru nefnd til sögunnar
hugsanleg skemmdarverk af manna
völdum.
Hvernig er best að hætta við?
Í stuttu máli eru líkurnar á slíkum
atburðum afar litlar og flóð sem
fylgja í kjölfarið væru af sambæri-
legri stærðargráðu og stór náttúrleg
flóð í ánni og áhættan af þeim langt
undir þeim mörkum sem lögð voru
til grundvallar fyrir áhættumatinu.
Þannig flóð munu að mestu haldast
innan farvegar Þjórsár utan þess að
við rof á stíflugörðum myndi flæða
inn á tún og jarðveg í nágrenni ár-
innar á ákveðnum stöðum.
Áhættumatið gerir ekki ráð fyrir
risahamförum og flóðum sem geta
orðið við gos undir jökli, enda afleið-
ingarnar svipaðar á umhverfið hvort
sem virkjanir verða byggðar eða
ekki. Nokkur fjöldi fólks úr Rang-
árþingi ytra sótti fundinn og kom
fram fjöldi fyrirspurna til verkfræð-
inganna. Auk Dóru Hjálmarsdóttur
sátu fyrir svörum þau Kristján Már
Sigurjónsson og Ólöf Rós Káradótt-
ir, frá VST, ásamt Ómari Erni Ing-
ólfssyni frá VGK-Hönnun. Eydís
Indriðadóttir, oddviti Ásahrepps,
var fundarstjóri. Auk þeirra var
Helgi Bjarnason verkfræðingur frá
Landsvirkjun á fundinum og svaraði
nokkrum spurningum sem ekki
vörðuðu áhættumatið sjálft.
Sigurður Sigurðarson, dýralæknir
sauðfjárveikivarna, benti á að gæta
þyrfti að þeim vörnum við hönnun
virkjananna, þar sem Þjórsá væri
sauðfjárveikivarnalína. Að auki
spurði hann, í gráglettni að eigin
sögn, hvað væri best að gera til að
koma í veg fyrir byggingu þessara
virkjana. Fátt varð um svör við því.
Í máli fundarmanna almennt kom
ekki fram gagnrýni á virkjana-
áformin í heild sinni, frekar gætti
vantrúar hjá sumum á að vel yrði
staðið að einstökum atriðum við
framkvæmdina.
Afar litlar líkur
á að stífla rofni
Áhætta Sigurður Sigurðarson dýralæknir spurði um sauðfjárveikivarnir.
Til hægri er Kristján Már Sigurjónsson, verkfræðingur frá VST.
Kynntu íbúum í Holtum áhættumat
vegna virkjana í neðri hluta Þjórsá
ÍSLANDSMÓT iðngreina 2008 lauk
í gömlu Laugardalshöllinni á laug-
ardag en í fréttatilkynningu segir
að markmið mótsins sé að vekja at-
hygli á iðn- og starfsmenntum og
kynna almenningi iðngreinar, ekki
síst ungu fólki.
Keppt er í ýmsum flokkum iðn-
greina og voru sigurvegarar eftir-
taldir: Jevgenis Gujls (málmsuðu),
Ásgeir Arnór Stefánsson (trésmíði),
Kristófer Þorgeirsson (pípulögn),
Birkir Sigursveinsson (bifvélavirkj-
un), Ásbjörn Matti Birgisson (bíla-
málun), Reynir Harðarson (bif-
reiðasmíði), Kristþór Ragnarsson
(múrverki), Gunnar Guðjónsson
(málaraiðn), Gústaf Benedikt Grön-
vold (dúklagningum), Heiðrún Páls-
dóttir (hársnyrtingu), Jóhann Geir
Úlfarsson (grafískri miðlun), Arnar
Már H. Guðmundsson (ljósmyndun)
og Gunnar Þórbergur Harðarson
(rafvirkjun).
Fulltrúar
um 20 greina
tóku þátt
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Bestir Meðal þeirra sem unnu til verðlauna voru Gunnar Guðjónsson (málaraiðn), Jóhann Geir Úlfarsson (grafísk
miðlun), Arnar Már H. Guðmundsson (ljósmyndun), Jevgenis Gujls (málmsuða) og Ásgeir Arnór Stefánsson (trésmíði).
Íslandsmeistarar í iðngreinum 2008 krýndir í gömlu Laugardalshöll
UMFERÐ í Hvalfjarðargöngum
jókst um 6,2% á fyrra helmingi yf-
irstandandi rekstrarárs Spalar frá
sama tímabili í fyrra. Þá fóru tæp-
lega 790.000 bílar um göngin á sex
mánuðum en tæplega 840.000 nú.
Þetta kemur fram á heimasíðu
Spalar sem á og rekur göngin.
Langmest aukning var í nóv-
ember eða um 17,7% frá sama mán-
uði 2006. Umferðin í janúar og
febrúar í ár var hins vegar litlu
meiri en í sömu mánuðum í fyrra.
Nettótekjur Spalar af umferðinni
drógust saman um 6% á sama tíma
og bílunum fjölgaði um 6,2%.
Ástæðan er lækkun á gjaldskrá.
6% fleiri fóru
um göngin
BÍLVELTA varð á Reykjarströnd í
Skagafirði í fyrrinótt. Fjögur ung-
menni voru í bílnum sem fór a.m.k.
þrjár veltur. Öll voru þau með ör-
yggisbeltin spennt og sluppu með
skrámur. Ökumaður bifreiðarinnar
var 15 ára gamall, samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni.
15 ára ökumað-
ur olli slysi