Morgunblaðið - 21.04.2008, Side 14
14 MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MIKIÐ ber nú á reiði meðal almenn-
ings í Kína vegna framkomu mót-
mælenda sem reyna að spilla boð-
hlaupinu með Ólympíueldinn,
einkum beinist reiðin gegn vestræn-
um þjóðum og útlægum Tíbetum. Er
fötluð, kínversk íþróttakona, sem
hélt fast um kyndilinn í París þegar
reynt var að hrifsa hann af henni, nú
þjóðhetja í landinu og birt við hana
viðtöl í öllum fjölmiðlum.
Að sögn ríkisfréttastofunnar Xin-
hua komu rúmlega þúsund manns
saman við stórmarkað frönsku versl-
anakeðjunnar Carrefour í borginni
Xian í gær auk þess sem efnt var til
mótmæla við verslanir keðjunnar í
Harbin og Jinan. Hundruð manna
mótmæltu einnig á laugardag í borg-
unum Wuhan, Hefei, Kunming og
Qingdao.
Ættjarðarást, sem stjórn komm-
únista hefur ýtt undir á seinni árum í
kjölfar þess að marxisminn var graf-
inn, er nú að eflast og minnir stund-
um á ofstækisfulla þjóðrembu. En
ýmislegt bendir til þess að ráðamenn
í Beijing séu orðnir órólegir og vilji
koma aftur böndum á ófreskjuna.
Hvatt var til stillingar í málgagni
kommúnistaflokksins á laugardag.
Telja má víst að allur þorri Kín-
verja hafi ekki gert sér grein fyrir
því að yfirráð Kínverja í Tíbet væru
jafnumdeild á alþjóðavettvangi og
raun ber vitni. Fjölmiðlum hefur
áratugum saman verið stranglega
bannað að greina frá sjónarmiðum
Dalai Lama og útlagastjórnar hans.
Hefur honum ávallt verið úthúðað
með litríku orðalagi sem aðskilnað-
arsinna og talsmanni ofbeldis.
Kínverskur almenningur
reiður Vesturlöndum
Reuters
Mótmæla Tíbetskar nunnur taka þátt í kertaljósamótmælum í Nepal gegn
framferði kommúnistastjórnarinnar í Beijing gagnvart Tíbetum.
Ríkisfjölmiðlar í
landinu hvetja til
stillingar
Í HNOTSKURN
»Kínverjar rökstyðja yfirráðsín í Tíbet með því að landið
hafi verið skattland keisaranna.
»Tíbetar og ýmsir fræðimennbenda á að um þetta séu að-
eins óljósar heimildir frá 18. öld.
Tíbet hafi allavega verið orðið
sjálfstætt ríki um 1900.
»Beijing-stjórnin lagði Tíbetundir sig árið 1950 og beitti
mikilli grimmd. Hundruð þús-
unda Tíbeta létu lífið þá og á
næstu áratugum.
Jóhannesarborg.
AFP. | Tíu manns
hafa látið lífið
síðan kosning-
arnar í Simbabve
fóru fram 29.
mars og stjórn
Roberts Mugabe
forseta hefur háð
„styrjöld“ gegn
andstæðingum
sínum, segja stjórnarandstæðingar.
Þeir vilja að alþjóðasamfélagið
grípi inn í.
Þrjú þúsund fjölskyldur hafa að
sögn þeirra verið hraktar af heim-
ilum sínum, hús margra þeirra
brennd og margir hafa flúið land.
Um 400 manns séu í haldi og a.m.k.
500 manns særðir á sjúkrahúsi.
Tendai Biti, talsmaður Lýðræð-
ishreyfingarinnar (MDC), helsta
stjórnarandstöðuflokks Simbabve,
varaði við því í gær að vaxandi
hætta væri á að átök brytust út í
landinu. „Ástandið í Simbabve er
hræðilegt,“ sagði hann. Tendai og
Morgan Tsvangirai, forsetaefni
MDC, eru nú báðir í Suður-Afríku
enda segist Tsvangirai telja að
flugumenn Mugabe myrði sig ef
hann snúi nú heim.
Biti sagði endurtalningu atkvæða
í forseta- og þingkosningunum, sem
hófst á laugardag, vera ólöglega og
skammarlega. Skýrt var frá því í
gær að svo gæti farið að hún tæki
lengri tíma en þá þrjá daga sem
áætlað hafði verið. MCD segir
Tsvangirai hafa hlotið hreinan
meirihluta en yfirkjörstjórn segir
að tölur sem birtar voru við kjör-
staði 29. mars hafi verið rangar.
Segja Mugabe
ofsækja stjórn-
arandstæðinga
Robert Mugabe
FERNANDO Lugo, helsta forsetaefni stjórnarandstæð-
inga í Paraguay, heilsar hér innilega argentínskum
mannréttindafrömuði, Hebe Bonafini. Forsetakosn-
ingar voru í Paraguay í gær og Lugo hefur verið efstur
í könnunum. Hann er fyrrverandi biskup, sagði af sér
embættinu 2006 í óþökk Páfagarðs. Sjálfur segist Lugo
vera miðjumaður í stjórnmálum en andstæðingar hans
segja hann vera öfga-vinstrisinna. Aðalandstæðingur
hans, hin fimmtuga Blanca Ovelar, er fulltrúi Colo-
rado-flokksins sem hefur ráðið í landinu í 61 ár.
Reuters
Var biskup en vill verða forseti
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
FORSETI Íraks, Jalal Talabani, skýrði í gær frá
því að helsta flokkabandalag súnní-múslíma í
landinu hefði ákveðið að hefja á ný þátttöku í
samsteypustjórn sjía-múslímans Nouris al-Mal-
ikis forsætisráðherra. Hefði bandalagið, sem yf-
irgaf stjórnina fyrir níu mánuðum, þegar lagt
fram lista með ráðherraefnum sínum.
Ákvörðun súnnítanna er mikill sigur fyrir al-
Maliki en sagt er að þeir hafi tekið hana vegna
ánægju með að al-Maliki skyldi nýlega senda
herinn gegn vopnasveitum al-Sadrs í Basra.
Stjórnarherinn náði á sitt vald aðalbækistöð
Mehdi-hersins í næst-stærstu borginni, Basra,
um helgina en fyrri tilraun hans til að ná tökum á
borginni mistókst herfilega. Var al-Maliki kennt
um, hann hefði viljað stjórna áhlaupinu sjálfur.
Ekki er ljóst hve traust tök stjórnarliðar hafa
nú á Basra þar sem liðsmenn al-Sadrs og ýmsir
óháðir glæpaflokkar hafa leikið lausum hala. En
almenningur hefur víða fagnað umskiptunum,
konur þurfa ekki lengur fortakslaust að bera
blæju og vestræn tónlist er leyfð á almannafæri.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sem kom í óvænta heimsókn til landsins
í gær, hrósaði íröskum leiðogum fyrir aukna
samheldni. Hún sagði einnig að öryggisástandið
hefði batnað en á meðan hún var í Bagdad heyrð-
ist þó sprenging á „græna svæðinu“ svonefnda,
öryggissvæði þar sem ríkisstjórnin og banda-
ríska sendiráðið eru. Liðsmenn al-Sadrs í Bag-
dad hafa síðustu daga skotið flugskeytum á
græna svæðið. Talið er að alls hafi um 60 manns
fallið í átökum við sjítahópa, aðallega Mehdi-
menn, í nokkrum borgum frá því á laugardag.
Bandaríski herinn sagði að um 40 sjíta-vígamenn
hefðu fallið í bardaga við íraska hermenn í Nas-
iriyah á laugardag.
Al-Sadr hefur hótað stríði gegn stjórn al-Mal-
ikis og líkt honum við Saddam Hussein en ekki
er ljóst hve mikil alvara er á bak við þessar hót-
anir. Talið að al-Sadr dveljist í Íran en ýmislegt
bendir til að stuðningur við hann hjá ráðandi
mönnum þar fari dvínandi, að sögn The New
York Times. Sendiherra Írans í Írak segist
styðja eindregið aðgerðir stjórnarliða í Basra
gegn vígamönnunum.
Súnnítar styðja al-Maliki á ný
Blessuð! Jalal Talabani Íraksforseti kyssir
Condoleezzu Rice við komu hennar til Bagdad.
BENEDIKT páfi XVI heimsótti í
gær undir lok sex daga heimsóknar
sinnar til Bandaríkjanna staðinn þar
sem Tvíburaturnarnir stóðu í New
York. Páfi ræddi þar við björgunar-
starfsmenn og skyldfólk þeirra sem
létu lífið.
Hann blessaði svæðið og bað fyrir
fórnarlömbunum, minnti á að þau
hefðu aðhyllst ýmis trúarbrögð en
hann bað einnig fyrir sálum hermd-
arverkamannanna 19 sem flugu þot-
unum á turnana.
„Guð friðarins, færðu ofbeldisfull-
um heimi frið,“ sagði Benedikt páfi.
„Leiddu þá sem hafa fyllt hjarta sitt
og hug hatri yfir á veg kærleika
þíns.“ Páfa hefur verið vel tekið í
Bandaríkjunum og hefur þótt leggja
sig fram um að koma til móts við
gagnrýnendur Rómarkirkjunnar.
Hann átti fund með George W. Bush
forseta og lagði þá áherslu á að ekki
mætta hunsa mannréttindi í barátt-
unni gegn hryðjuverkum.
Blessaði
harmareit
NÝJAR reglur gegn heilsuspillandi
hávaða í löndum Evrópusambands-
ins tóku loks gildi í tónlistarheim-
inum í þessum mánuði og valda þeg-
ar vanda. Hætt var við frumflutning
Sinfóníuhljómsveitar bæverska út-
varpsins á verki eftir tónskáldið
Dror Feiler vegna þess að hávaðinn
mældist að jafnaði 97,4 desíbel, að-
eins örlítið lægri en í loftbor.
„Listræn sjónarmið réðu ekki
ákvörðun minni,“ sagði stjórnand-
inn, Trygve Nordwall. „Þetta var
gert til að vernda hljóðfæraleik-
arana.“ Alan Garner, óbóisti og liðs-
maður Konunglegu óperunnar í
London, sagði að þeim hefði verið
sagt að nota eyrnatappa. „Þetta er
eins og segja kappakstursmönnum
að þeir verði keyra með bundið fyrir
augun,“ segir hann. Tónskáldin eru
beðin um að hafa hávaðann í huga
þegar þau semja, þau „eru að fást
við lifandi fólk en ekki vélar“, segir
Nordwall.
Tónskáldin
gæti hófs
NÁTTÚRUVERNDARSINNAR á
Kýpur hafa nú efnt til herferðar til
að bjarga villtum, brúnum ösnum á
eynni frá útrýmingu. Um 800 dýr
ráfa enn um lítið svæði á Karpas-
skaga í tyrkneska hlutanum en ný-
lega fundust hræ af 10 ösnum sem
höfðu verið skotnir.
Ekki er vitað hver drap dýrin en
böndin beinast að bændum sem telja
asnana éta afurðirnar. Einnig er
bent á að byggingaverktakar vilji
gjarnan geta athafnað sig á skagan-
um sem er eitt af örfáum óspilltum
svæðum á Kýpur. Mikið verið byggt
af hótelum á eynni á seinni árum. En
bent er á að margir ferðamenn heill-
ist einnig af ösnunum og því sé fá-
ránlegt að vernda þá ekki.
Það háir baráttunni hve löng hefð
er fyrir að tala illa um asna í Mið-
jarðarhafslöndum og gera gys að
þeim. En kýpversku asnarnir hafa
lengi þótt einstaklega öflugir og
þolnir. Breski herinn notaði þá mikið
á sínum tíma en þá ekki síst til und-
aneldis: afkvæmi hests og asna, múl-
dýrin, hafa lengi verið eftirsótt en
geta ekki fjölgað sér innbyrðis.
Asnalegt at-
hæfi á Kýpur
♦♦♦