Morgunblaðið - 21.04.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. APRÍL 2008 15
MENNING
ALIZA Shvarts, myndlistarnemi
við Yale-háskóla í Bandaríkjunum,
segist hafa logið því að hafa orðið
margsinnis ólétt og valdið fósturláti
í þágu listarinnar. Lygarnar sjálfar
voru – og eru – listaverk.
Forsaga málsins er sú að Shvarts
sagði það listgjörning að hafa
frjóvgað sig margoft og valdið sér
jafnoft fósturláti með því að inn-
byrða ákveðin efni, á níu mánaða
tímabili. Var hún að vonum harð-
lega gagnrýnd fyrir þennan gjörn-
ing. New York Times segir nú frá
því að hún hafi logið þessu öllu.
Shvarts sagðist hafa tekið upp á
myndband fósturlátin og ætlaði að
sýna það ásamt eigin blóði á nem-
endasýningu nú í vikunni. Stjórn
skólans greindi frá hinu rétta í til-
kynningu og sagði að ef satt hefði
reynst hefði það verið brot á siða-
reglum skólans.
Lygar sem
listaverk
Laug til um fósturlát
í þágu listarinnar
Umdeild Aliza Shvarts horfir á
sjónvarp í vinnustofunni sinni.
VIKURITIÐ
Der Spiegel segir
„dansk-íslenska“
listamanninn
Ólaf Elíasson
gagnrýna lista-
söfn í Berlín fyrir
að fylgjast ekki
nógu vel með því
sem sé að gerast
í myndlist í borg-
inni, þau einbeiti sér einum of að
sýningum á alþjóðlegri list. „Ég tel
listamenn í Berlín afar hæfi-
leikaríka og borgin ætti að geta
notið enn frekar góðs af sköp-
unargáfu þeirra en hún gerir,“ er
haft eftir Ólafi, en hann er með
vinnustofu í borginni þó svo hann
búi í Kaupmannahöfn með eig-
inkonu sinni og tveimur ættleiddum
börnum frá Afríku. Ólafur segist
finna fyrir kynþáttafordómum í
Berlín og því vilji hann heldur búa í
Kaupmannahöfn.
Fylgjast ekki
nógu vel með
Ólafur Elíasson
ÚSKRIFTARTÓNLEIKAR
Þorgerðar Eddu Hall úr tón-
listardeild Listaháskóla Ís-
lands verða haldnir í kvöld kl.
20 í Salnum í Kópavogi.
Á efnisskrá eru verk eftir
Johann Sebastian Bach,
Beethoven, Gabriel Fauré,
Dmitrí Sjostakovits og Hafliða
Hallgrímsson. Flytjandi með
Þorgerði Eddu á tónleikunum
er Richard Simm á píanó.
Útskriftartónleikar tónlistardeildar Listahá-
skóla Íslands eru margir í ár, þeir fyrstu voru
haldnir 14. mars og þeir seinustu verða haldnir 20.
maí. 23 nemendur útskrifast úr deildinni í vor,
fleiri en nokkru sinni. Dagskrá á www.lhi.is.
Tónlist
Þorgerður Edda
Hall í Salnum
Salurinn í
Kópavogi
ALMA Guðmundsdóttir og
Freyja Haraldsdóttir, höf-
undar bókarinnar Postulín,
halda fyrirlestur annað kvöld
kl. 20 í Bókaútgáfunni Sölku,
Skipholti 50C. Í fyrirlestrinum
munu þær m.a. fjalla um tilurð
bókarinnar og viðhorfsbreyt-
ingar í kjölfar hennar, lífssýn
Freyju og hvað hún ætlar að
taka sér fyrir hendur næst.
Bókin segir frá lífshlaupi
Freyju sem greindist við fæðingu með genagalla
sem veldur því að bein hennar eru sérstaklega
viðkvæm, brothætt eins og postulín. Alma var
stuðningsfulltrúi hennar um tíma og skráðu þær
sögu Freyju saman.
Bókmenntir
Postulínsstúlkur
halda fyrirlestur
Freyja
Haraldsdóttir
MARÍA Karen Sigurðardóttir,
forvörður og safnstjóri Ljós-
myndasafns Reykjavíkur,
heldur hádegisfyrirlestur
Sagnfræðingafélags Íslands í
Þjóðminjasafninu á morgun kl.
12.05 sem ber yfirskriftina Er
réttlætanlegt að henda ljós-
mynd? Í honum veltir hún m.a.
upp spurningunni af hverju
fólk varðveiti gamlar ljós-
myndir af fólki, jafnvel þótt
enginn viti hverjir séu á myndunum. „Getur verið
að eftir því sem ljósmynd eldist, aukist menning-
arlegt verðmæti hennar þar sem hún varðveitir
brot af andrúmi sem er horfið og kemur aldrei aft-
ur?“ spyr María.
Fræði
Brot af andrúmi
sem er horfið
María Karen
Sigurðardóttir
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
ALMENNILEG tiltekt hefur það
yfirleitt í för með sér að fyrst þarf að
rusla vel út, dreifa úr því sem á að
flokka og ganga frá þangað til smám
saman kemst mynd á óreiðuna.
Þannig er ástandið núna á Ný-
listasafni Íslands þar sem unnið er
að því að fara í gegnum safneignina,
forða listaverkum frá skemmdum og
skrá þau verk sem þar er að finna.
Ráðist var í verkefnið í tilefni af
þrjátíu ára afmæli safnsins í sam-
starfi við Listasafn Íslands og Glitni.
„Það hefur verið unnið mikið með
þetta í gegnum tíðina, en það hefur
aldrei verið fjármagn eða mann-
skapur til þess að fara í gegnum
þetta eins og þörf var á,“ segir Nína
Magnúsdóttir safnstjóri. „Það er svo
mikilvægt að þetta sé gert núna
vegna þess að allir, nema Biggi
[Birgir Andrésson] sem fór frá okk-
ur í fyrra, eru hérna ennþá og geta
sagt okkur það sem okkur langar að
vita. Núna er tíminn, líka til þess að
hægt sé að skila stofnuninni áfram til
framtíðar.“
Lopasokkar eða list?
Eitt af því sem komið hefur upp úr
kafinu er lítill pappakassi merktur
svissneska listamanninum Roman
Signer. Í kassanum er lopasokkapar
sem ekki er vitað hvort er hluti af
listaverki eða hvort listamaðurinn
hefur hreinlega gleymt sokkunum
sínum á safninu. „Málið er að þetta
getur alveg verið verk eftir hann,
það væri ekkert út í hött. Það eru
svona hlutir sem við þurfum að fást
við og við erum búin að spyrja
nokkra en enginn kannast við þetta.
Svo fer maður að hugsa, var kannski
einhver annar listamaður að vera
fyndinn og setja þá í kassann og
merkja svona? Svona mál þurfum við
að rekja og komast að hinu sanna,“
segir Nína. „Þegar við fórum yfir
skúffurnar okkar fundum við rúm-
lega hundrað verk eftir Árna Ing-
ólfsson sem við vissum ekki að væru
til. Þannig getur safneignin stækkað
allt í einu á einum degi.“
Safnið á fjölda verka eftir Dieter
Roth og nýlega fannst verk sem
hann vann í samvinnu við breska
listamanninn Richard Hamilton.
Ekki er mikið vitað um verkið, en
þeir Roth og Hamilton unnu saman í
þrjár vikur árið 1976 að sameig-
inlegri sýningu sem var sett upp í
sex Evrópulöndum.
Hjartað í starfseminni
Hlutverk Nýlistasafnsins hefur
frá byrjun verið að varðveita sam-
tímalist. „Þetta er í raun hjartað í
starfseminni, en samt er safneignin
svo óskilgreind og skiptar skoðanir á
því hvort þetta eru verðmæti eða
rusl,“ segir Nína.
„Nútímalistasagan átti sér stað
hér. Nýlistasafnið á sínum tíma var
samkomustaður alls sem var að ger-
ast í rótinni, ekki bara í myndlist
heldur voru líka haldnir hérna tón-
leikar og alls kyns framúrstefnulegir
viðburðir.“
Huginn Þór Arason, varaformaður
Nýlistasafnsins, segir að safnið hafi
um árabil ekki getað tekið við nýjum
verkum vegna þess að ekki hafi verið
aðstaða til þess að geyma þau.
„Ef hægt verður að ganga frá
þessum verkum er Nýlistasafnið í
stakk búið til þess að fara að safna
verkum aftur,“ segir Huginn.
„Núna er tíminn“
Áður óþekkt listaverk koma í ljós í geymslum Nýlistasafnsins Safnstjóri
segir að koma verði reglu á safneignina svo safnið geti sinnt hlutverki sínu
Vefsíða Nýlistasafnins:
http://nylo.is/
VIKA bókarinnar hefst í dag og
stendur til 27. apríl. Alþjóðlegur
dagur bókarinnar er á miðvikudag-
inn, 23. apríl, og helgar UNESCO,
Menningarmálastofnun Sameinuðu
þjóðanna, daginn bókaútgáfu og
baráttunni fyrir virðingu fyrir höf-
undarrétti og frjálsri tjáningu.
Mikið verður um bókmennta-
viðburði þessa viku, eins og gefur að
skilja, en markmiðið er að benda á
mikilvægi og gildi bókmennta í ís-
lenskri samtímamenningu, eins og
segir í fréttatilkynningu frá Félagi
íslenskra bókaútgefenda.
Á morgun mun Félaga íslenskra
bókaútgefenda hrinda af stað verk-
efninu Þjóðargjöf til bókakaupa.
1.000 króna ávísunum verður dreift
til landsmanna til kaupa á bókum
sem útgefnar eru á Íslandi og kosta
a.m.k. 3.000 kr. Fari verð bók-
arinnar yfir þá upphæð er hægt að
verða sér úti um fleiri ávísanir til að
greiða bókina niður.
25. apríl undirritar mennta-
málaráðherra samning í Þjóðmenn-
ingarhúsinu um að Ísland verði heið-
ursgestur Bókastefnunnar í
Frankfurt árið 2011. 28. apríl, á
lokadegi Viku bókarinnar, verður
haldin alþjóðleg ráðstefna um höf-
undarrétt í Evrópu á Radisson SAS
Hótel Sögu, frá kl. 9 til 17.
Gildi bókmennta
í samtímamenningu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
H.C. Andersen Sigurður Skúlason les fyrir smáfólkið í hlutverki danska
barnabókahöfundarins H.C. Andersen á Viku bókarinnar árið 2005.
♦♦♦
MEÐAL áður óþekktra verka sem fundist hafa í tiltektinni í geymslum
safnsins er pólitískur vefnaður eftir Hildi Hákonardóttur.
„Hún var hluti af SÚM-hreyfingunni og einn af stofnendum mót-
unardeildarinnar í Myndlista- og handíðaskólanum. Hún breytti náminu
þar mjög mikið. Hildur gekk inn í þessa vefhefð, sem var ákveðin lína með-
al kvenna sem ófu mjög kröftugan og flottan vefnað,“ segir Huginn. Körl-
unum fannst þetta náttúrlega ekki vera myndlist,“ segir Nína. „En þetta er
mikið gert í Afganistan núna, þar er samtíminn ofinn.“
Samtíminn í vefnaði
Á miðvikudaginn
verður greint frá
því hvaða myndir
keppa um Gull-
pálmann á kvik-
myndahátíðinni í
Cannes í Frakk-
landi. Í fyrra var
fjöldinn allur
sýndur af kvik-
myndum frá
Hollywood en nú virðist sem afar fáar
kvikmyndir frá draumaverksmiðj-
unni verði sýndar, jafnvel bara ein.
Verkfall handritshöfunda í Holly-
wood olli því að erfitt var að slá dag-
setningum föstum hvað varðar kvik-
myndaframleiðslu og þ.a.l. hvaða
myndir yrðu tilbúnar. Fyrsta leik-
stjórnarverkefni Charlie Kaufman,
Synecdoche, New York, er í augna-
blikinu eina kvikmyndin sem talið er
að fari í aðalkeppnina í Cannes.
Steven Soderbergh er þessa dag-
ana að leggja lokahönd á tvær mynd-
ir byggðar á ævi Che Guevara en
óvíst er hvort þær nái á Cannes.
Fáar frá
Hollywood
Charlie Kaufman
♦♦♦